Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987.
Fréttir
Svvfdrekamaður í Stagiey:
Hefði getað
Útvegsbankastjórar
Sakadómur
hafnaði
■ •• mk
lifað í viku a
svartbakseggjum
Þetta war engin fifldirfska, segir Valur Jóhannsson svifdrekamaður.
„Mér er alls ekki sama um líftór-
una og ég skil reyndar ekkert í
lögreglumönnunum í Stykkishólmi
að kalla flug mitt fífldirfsku af
verstu gerð. Þetta var allt saman
pottþétt,“ sagði Valur Jóhannsson,
29 ára gamall vélvirki frá Patreks-
firði, sem nauðlenti svifdreka
sínum í Stagley á Breiðafirði um
síðustu helgi.
I DV á mánudaginn var það haft
eftir lögreglumönnum er sóttu Val
út í eyjuna að hér hlyti að fara
maður sem hugsaði lítið um eigið
líf og limi. Valur svifdrekamaður
er hins vegar á öðru máli:
„Þetta var skipulagt flug hjá
mér. Við svifdrekamenn gerum
flugáætlanir og erum í stöðugu tal-
stöðvarsambandi úr lofti. Þegar
eitthvað fer úrskeiðis er gott til
þess að vita að svifhlutfall drekans
er einn á móti sjö. Það er að segja
að ef vélin stöðvast í tveggja kíló-
metra hæð getur drekinn svifið í
14 kílómetra áður en lent er. Þarna
á Breiðafirðinum var ég alltaf með
eyjar undir mér og þó gloppur
myndist ná þær aldrei 14 kílómetr-
um.“
- En hvað hefðir þú gert ef tal-
stöðin hefði líka bilað?
„Ég hefði getað lifað í viku í
Stagley á svartbakseggjum," sagði
Valur Jóhannsson.
Orsakir vélarbilunar svifdrekans
má rekja til olíu er Valur keypti á
flaug sína á Patreksfirði. Olían sem
hann er vanur að nota var ekki til
en olíuafgreiðslumaður sannfærði
hann um ágæti annarrar tegundar
áður en haldið var í loftið. Sú teg-
und dugði þó ekki nema hálfa leið.
-EIR
Nauðlentl í Stagley:
Fífldirfska
af verstu gerð
„Mönnum, Bem fara á svona tæki á
þesaum tíma sólarhrings yfir sjó, er
alveg sama um líftóruna. Þetta er fífl-
dirfeka af verstu gerð," sögðu lög-
reglumenn', A i Stykkishólmi um
Bvifdrekamann sem nauölenti í Stagl-
ey á Breiðafirði skömmu fyrir
miðnætti á laugardaginn.
Svifdrekamaöurinn hafði lagt upp
frá Patreksfirði á laugardagskvöldið
og var feröinni heitið tíl Olafevflcur
þar sem maðurinn ætlaði aö hitta
kunningja sinn. Aldrei náði hann yfir
fjörðin því yfir eyjunum varð svif-
drekinn vélapvana og er talin mesta
mildi að svifdrekamaðurinn lenti ekki
f sjónum. Hann var ekki í björgunar-
vesti og eina öryggistækið var lítil
talstöð sem kom að góðu gagni er nið-
ur var komið.
„MaÖurinn vissi ekki hvað hann var
Btaddur ert taldi eyjuna aðra eða þríðju
suöaustur af Flatey. Við fundum hann
svo í Stagley og tókum í land," sögðu
lögreglumennimir í Stykkishólmi.
-EIR
Frétt DV um glæfraflugið.
um frávísun
Sakadómur Reykjavíkur synjaði í
fyrradag kröfu lögmanna sex fyrrum
bankastjóra og eins aðstoðarbanka-
stjóra Utvegsbanka íslands um að
málinu verði vísað frá dómi.
Krafan var reist á meintu vanhæfi
ríkissaksóknara, Hallvarðs Einvarðs-
sonar, en að mati Péturs Guðgeirsson-
ar sakadómara, voru ekki efhi til að
fallast á frávísunarkröfuna.
Þegar úrskurður Sakadóms var fall-
inn tóku lögmennimir sér nokkurra
mínútna frest til að taka um það ák-
vörðun hvort kæra ætti úrskurð
þennan til Hæstaréttar og í framhaldi
af því lýstu þeir því yfir að þeir kærðu
úrskurðinn. Kröfðust þeir þess að úr-
skurði Sakadóms yrði hrundið og
upphafleg krafa þeirra um frávísun
yrði tekin til greina.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
hefur aflað sér, má vænta þess að
Hæstiréttur taki þessa kæru til með-
ferðar í þessari viku, ásamt kæru
veijenda forráðamanna Hafskips, en
þeir kærðu í síðustu viku úrskurð
Sakadóms i vanhæfismáli þeirra gegn
ríkissaksóknara.
-ój
Borgaraflokkurínn:
Skipað í
kjördæmis-
ráð
Mikið skipulagsstarf hefur verið
unnið innan Borgaraflokksins frá
kosningum. Að sögn Helenu Alberts-
dóttur er nú verið að vinna að starfi
flokksins á landsbyggðinni. Langt er
komið með að skipa í kjördæmisráð
um land allt. Á þeirri vinnu að vera
lokið fyrir landsfúnd flokksins en
hann verður haldinn í byrjun septemb-
er í haust. Eitt þeirra atriða sem er
verið að vinna að er að gefa fólki góða
möguleika til að vera beinir þátttak-
endur í starfi flokksins.
-sme
í dag mælir Dagfari
Hvassaleitisdéninn
Maður gengur laus í Hvassaleitinu
og leysir niður um sig á almanna-
færi. Hann er kallaður Hvassaleitis-
dóni. Mun það vera i fyrsta skipti
sem það þykir dónaskapur hjá karl-
mönnum að hátta sig. Þessa manns
hefur orðið vart í skólaportinu hjá
Breiðagerðisskólanum á bak við
grindverkin og til hans hefur líka
spurst í Akurgerðinu, þar sem böm
hafa séð hann gyrða niður um sig.
íbúamir í þessum hverfum hafa kraf-
ist þess að grindverkið verði fjarlægt
á stundinni og af því hefur sprottið
afar sérkennileg deila. Borgarstjór-
inn heldur því nefhilega fram að
vandamálið sé ekki fólgið í grind-
verkinu heldur dónanum. Hann vill
láta fjarlægja dónann en ekki grind-
verkið. íbúamir í hverfinu em á
öðm máli. Þeir vilja greinilega að
fleiri sjái til hans.
En á sama tíma og þessi maður
gengur laus og flettir sig klæðum
óbeðinn, berast fregnir af einkarit-
ara úr Hvíta húsinu, Fawn Hall að
nafni, íturvaxinni og undirfagurri
stúlku, sem hefur notað undirfötin
til að smygla út úr Hvíta húsinu
mikilvægum trúnaðarskjölum í ír-
ansmálinu. Hall þessi segir svo sjálf
frá að hún hafi falið skjölin í nær-
buxum sínum og bijóstahaldara.
Nú verður ekkert sagt til um það
hvort þessi einkaritari afklæðir sig
innan um annað fólk eða bara prívat
og svo mikið er víst að hún hefur
ekki þurft að fletta sig klæðum þeg-
ar hún smyglaði skjölunum. Senni-
lega fer hún ekki úr nema þegar hún
er án trúnaðarskjala í nærbuxunum
og ber það vott um siðavendni
bandarískra ungmeyja í ábyrgðar-
störfum, að þær sýna ekki nekt sína
nema þegar þær hafa ekkert að fela.
Að öðm leyti sýnist hún frjálsleg í
klæðaburði og mun það hafa ráðið
mestu um að hún fékk stöðuna í
upphafi. Hún háttar sig eins og ann-
að fólk.
Hvassaleitisdóninn hér uppi á Is-
landi hefði ekki verið hæfur til
opinberra starfa í Bandaríkjunum
þegar það Iiggur fyrir að einkaritar-
ar verða að vera í nærbuxum og
undirfötum þegar mikið liggur við.
ímyndið ykkur bara, ef Hvassaleitis-
dóninn hefði verið í starfi Fawn
Hall og tekið upp á því að leysa nið-
ur um sig með öll trúnaðarskjölin
innan klæða? Af þessu sést að það
verður að vanda val á einkariturum
með sérstöku tilliti til þess hvort
þeir fara úr á almannafæri eða bara
prívat. Þar að auki heíúr Hvassaleit-
isdóninn ekki annað að sýna en
sjálfan sig meðan maður getur alltaf
átt von á trúnaðarskjölum þegar
fallegir einkaritarar afklæðast.
í samanburði við Fawn Hall hina
bandarísku er hinn íslenski Hvassa-
leitisdóni óttalega lítið spennandi.
Dagfari efast meira að segja um að
krakkamir, sem hafa séð til hans,
hafi af því nokkra ánægju eða
áhuga. Hann hefúr ekkert leyndar-
mál að sýna annað en þetta venju-
lega, sem vekur bará viðbjóð hjá
krökkum sem em komin af sið-
prúðum heimilum og eiga því ekki
að venjast að sjá fullorðið fólk á
nærbuxunum. Vonandi gera foreldr-
amir í Hvassaleitinu ekki kröfu um
að hverfið verði jafnað við jörðu út
af svo hversdagslegum hlut eins og
þeim að maður vilji sýna sig án
nærbuxna, þegar ekkert er að sjá
annað en sköpunarverkið. Þess má
líka geta að karlmenn hafa getað
leyst niður um sig áður þegar mikið
liggur við, án þess að þurfa grind-
verk eða húsveggi til að skýla sér.
Ef Fawn Hall væri aftur á móti
komin í Hvassaleitið til að fletta sig ■
klæðum mætti Dagfara vegna rífa
niður öll grindverk, svo sú nektar-
sýning sæist sem best, og það hvort
heldur hún hefði trúnaðarskjölin
innan klæða eða ekki. Eiginlega
ætti að gera þá almennu kröfu hér
eftir að sérhver einkaritari afklæði
sig opinberlega til að sanna að þær
hafi ekkert að fela. Þær geta þannig
tekið Hvassaleitisdónann sér til fyr-
irmyndar vegna þess að enginn vafi
er á því að hann hefur nú orðið góða
æfingu í að afklæða sig bæði fljótt
og vel. Nú verður að vinda bráðan
bug að því að finna dónann í Hvassa-
leitinu og senda hann vestur og láta
hann sýna handbrögðin þeim einka-
riturum sem þurfa að vera fljótir að
fletta sig klæðum með eða án trún-
aðarskjala. Við gætum þá fengið
Fawn Hall í staðinn.
Dagfari