Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. MAI 1987. Útlönd Rannsókn hafín á eldflaugaárásinni Chris Deangelis, einn hinna þrjátíu og sjö er fórust í eldflaugaárásinni á bandarísku freigátuna Stark á Persa- flóa á sunnudag, skrifaði í síðasta bréfi sínu heim að hann óttaðist ekki að ráðist yrði á skip hans. í bréfinu, sem sýnt var í sjónvarps- stöð í Bandaríkjunum í gær, sagði Deangelis ennfremur að menn væru þó við öllu viðbúnir. Reagan Bandaríkjaforseti sagði í gær að bandarískum sjómönnum hefði verið gefin skipun um að verja sig ef með þyrfti eftir eldflaugaárásina á frei- gátuna. íraska stjómin heíur sagt að árásin hafi verið slys og hafa Banda- ríkjamenn tekið það sem góða og gilda afsökun. Nefiid hefur verið skipuð til að rannsaka atburðinn og er hún að hefja störf sín. Meðal þess sem rannsakað verður er hvers vegna vamarkerfi frei- gátunnar var ekki notað þegar menn vissu að íraskar herflugvélar vora að nálgast. Yfirmaður bandaríska flotans á svæðinu sagði við fréttamenn að skip- in hefðu verið í viðbragðsstöðu en engin ástæða hafi verið tií að ætla að íraskar herflugvélar væra óvinveittar. Sprengjutilræöi í Suður-Afríku Sprenging varð í hæsta háhýsi Suður-Afríku í Jóhannesarborg í gærkvöldi. Olli hún skemmdum en engin slys urðu á mönnum. Opinberar byggingar í Jóhann- esarborg hafa oft orðið fyrir sprengjuárásum og er andstasðing- um stjómarinnar kennt um. Síðasta árásin varð aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Botha forseti sagði í þingræðu að stjómin hygðist ekki grípa til nýrra aðgerða til að endurbæta aðskilnaðarstefnuna. Særðust í mótmælaaðgerð Að minnsta kosti tveir náms- menn og einn lögreglumaður særðust í átökum er urðu í Quito er veru bandarískra hermanna í Equador var mótmælt. Brenndist lögreglumaðurinn á fótum er hann varð fyrir bensín- sprengju. Annar námsmannanna fékk skot í bijóstið en hinn hlaut meiðsl á höfði. Bandarísku hermennimir era að aðstoða við lagningu vegar í frum- skógum í norðausturhluta lands- ins þar sem snarpir jarðskjálftar hafa eyðilagt þjóðvegi og grandað þúsund manns. Bam varð ísbimi að bráð Isbimir í dýragarði í New York urðu litlum dreng að bana í gær. Tveggja barna er saknað og ekki er talið ólíklegt að þau hafi hlotið sömu örlög. Limlestur líkami drengsins, sem tahnn er vera átta ára gamall, fannst í helli fyrir aftan þræmar þar sem bjamdýrm eru höfð í. Oryggisverðir skutu þegar tvo bimi sem ekki höfðu yfirgefið þræmar. Getum er leitt að því að bömin hafi klifrað yfir girðinguna til þess að synda. Föt þriggja bama fúnd- ust í þrónni. Ekki fúndust leifar hinna bamanna er bjamdýrin voru krufin. Reyna að leysa landbúnaðarvanda Fimmtán þúsund belgískir bændur efndu í gær til mótmælaaðgerða í Brassel til að mótmæla tillögum sem Iagðar hafa verið fram á vettvangi Efnahagsbandalags Evrópu þess efnis að dregið verði úr niðurgreiðslum á landbúnaðarvörum. Tillögur þessar hafa vakið mikla reiði meðal bænda í löndum Efriahagsbandalagsins sem telja lífsafkomu sinni ógnað með þeim. Óeirðasveitir lögreglunnar í Belgíu vora kallaðar út vegna aðgerðanna í gær en ekki kom til neinna átaka. Fulltrúar stjómvalda í Frakklandi og Þýskalandi munu fúnda á morgun og föstudag og reyna að finna ein- hverja leið til að leysa þann vanda sem nú steðjar að málefnum landbúnaðar í Evrópu. Munu þeir ræða tillögur sem miða að því að koma í veg fyrir mikla söfnun birgða í landbúnaði en þær fela meðal annars í sér mikla minnkun niðurgreiðslna svo og endurskoðun á reglum þeim sem gilda um umreiknun verðs á milli gjaldmiðla. Kostnaður Efnahagsbandalagsins vegna landbúnaðarmála nemur nú um fjórtán billjónum dollara á ári sem er um þriðjungur fjárlaga bandalagsins. Belgískir lögreglumepn bíða tilbúnir eftir að mótmælaaðgerðir bænda hefjist. Símamynd Reuter Arnold Bracy korpóráll leiddur milli yfirheyrsluherbergja. Bíður ákæru Bandarísku iandgönguliðai-nir, sem fyrir nokkru vora handteknir, sakaðir um að hafa aðstoðað njósnara Sovétríkjanna við störf þeirra, i Moskvu og víðar, bíða nú ákvörðunar hermálayfirvalda um það hvort þeir verða drognir fyrfr hcjrétt. LandgÖnguliðamir era sakaðir um að hafa voitt kvennjósnurum Sovétmanna aðgang að leyniskjöl- um í sendiráðum Bandaríkjanna, og að hafa þcgið blíðu kvcnnanna í staðinn. Landgönguliðamir gætu hugs- anlega átt yfir höf'ði sér líflátsdóm, en langir fangelsidómar era þó taldir líklegri. Súpermann fimmtugur Bandaríska tciknimyndasögu- hetjan Súpermann or fimmtugur á þessu ári og munu útgefendur rit- anna um hann halda upp á afmælið með árslangri veislu. Meðal þess sem fyrirhugað er að gera er að efna til auglýsingaher- ferðar, sem kosta mun um 75 milljönir dollara, halda mikla sýn- ingu á tiknimyndablöðum og öðrum munum er tengjast Súper- mann, fi*umsýning nýrrar kvik- myndar um Súpermann, með Christopher Reeves í aðalhlut- verki og gffurleg afmælisveisla þann 29. febrúar á naasta ári. Þá mun fyrirhugað að reisa minnisvarða um Súpermann í Cle- veland, Ohio, en skaparar hans, Joel Siegel og Jerry Shuster, eru upprunnfr' þaðan. Það fylgir sögunni að þrátt fyrir aldurinn virðist Súpermann enn á svipuðum aldri og þegar hans varð fyrst vart, árið 1938. saklaus af ásökimum um að hann hafi tekið þátt í grimmdarverkum þýskra nasista í síðari heimsstyrj- öldinni. Forsetinn hefur hins vegar íýst því yfir að hann hafi bragðist rangt við þessum áburði, einkum þó þeirri ákvörðun bandarískra stjórrívalda að banna honum að- gang að Bandaríkjunum. Væntanlega mun fbrsetínn þvi bregðast rétt við framvegis. Selja írónum kjamorkutækni Talsmaður kjarnorkustoíríunar Argentínu skýrði frá þvi í gær að argentínsk stjómvöld hygðust selja írönum tæknibúnað til kjarn- orkuvera, fyrir um fixnm milljónir dollara. Samningur þessi var undinitað- ur fyrr í þessum mánuði og verður búnaðurínn afhentur efitir liðlega ár. Sagði talsmaðurinn að Argent- ínumenn myndu selja írönum nýjan kjama fyrir kjamaofrí í til- raunastöð háskólans í Teheran. Muni ofirínn þá geta starfað með 20 % úran sem eldsneyti, én hefur til þessa verið rekinn með 90 úrani.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.