Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Page 20
20
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987.
Iþróttir
Stuttar
fréttir
Gary Mabbut, sem varð
heimsfrægur fyrir mörkin sín tvö
á Wembley á laugardag, mun ekki
leika með Englendingum gegn
Brasilíumönnum í þessari viku.
Þetta kemur ekki til vegna marka
Mabbut heldur vegna meiðsla á
vinstri fæti. Eins og flestir vita
gerði Mabbut eitt mark fyrir Tott-
enham og síðan annað fyrir
andstæðinginn, sem réð úrslitum.
Klaus Augenthaler, fyrir-
liði Bayern Munchen, mun ekki
mæta til leiks gegn Porto í úrslit-
um Evrópukeppninnar þann 27.
maí. Kempan meiddist nefhilega
um helgina og haltraði af velli með
höfuð við bringu.
Læknir Bayern segir að Augent-
haler þurfi undir kutann og það
sem fyrst eigi að koma honum í
gagnið fyrir næsta keppnistimabil.
Ábebe Mekonnen ft-á
Eþíópíu sigraði í Parísar maraþon-
inu sem fór fram um helgina.
Mekonnen hljóp á 2:12,33. í öðnt
sæti varð landi hans Tefera Gutii
á 2:13,48 og í þriðja sæti Mike Bis-
hop frá Englandi á 2:17,10.
Ajax firá Hollandi, sem á dög-
unum varð Evrópumeistari bikar-
hafa í knattspymu, virðist ekki
vera komið niður á jörðina eftir
sigurinn. Um helgina tapaði liðið
á heimavelli, 1-3 fyrir Feyenoord.
PSV sigraði hins vegar öntgglega
í sinni viðureign og er þar með
kontið með örugga forystu í deild-
inni.
Oleg Blokhin fi'á Dinamo
Kiev, margrevndur landsliðsmað-
ur, fékk um helgina formlegt leyfi
frá félagi sínu til að leika með
ungverska liðinu Ujpest Dozsa á
næsta keppnistímabili. Mörg
stærri lið í Vestur-Evrópu hafit
undanfarin ár reynt mikið til þess
að fá Blokhin í sínar raðir en so-
vésk yfirvöld hafa ávallt sett
honum stólinn fyrir dvmar.
Howard Kendall. fram-
kvæmdastjóri Everton, var út-
nefrtdur framkvæmdastjóri ársins
í Englandi og kemur víst fáum á
óvart. Þetta er í annað skiptið á
þremur árum sem Kendall er út-
nefndur þjálfari ársins. Að auki
fékk Kendall 300 þúsund krónur í
viðurkenningu.
Porto, liðið sem mætir Bayem
Múnchen í úrslitaleik í Evrópu-
keppni meistaraliða í næstu viku,
hefur fengið gimilegt tilboð frá íl>
ölsku kaffifyrirtæki sem heitir
liðinu einu kílói af gulli fyTÍr hvert
skorað mark í leiknum. Tilboðið
nær þó aðeins til venjulegs leik-
tíma, ekki ef framlengja þarf
leikinn. Það er því til mikils að
vinna fyrir portúgalska liðið.
Aston villa, sem féll niður
í 2. deild easku knattspymunnar í
vor, hefur ráðið til sín Graham
Taylor sem framkvæmdastjóra.
Taylor var áður stjóri hjá Watford
í 10 ár samfleytt við góðan orðstír.
Dave Basset tekui4 við stöðu hans
hjá Watford en hann var áður
stjóri hjá Wimbledon með frábær-
um árangri. Wimbledon hafnaði í
6 sæti 1. deildar.
Heynckes, sem tekur við
þjálfarastöðunni hjá Bayem
Múnchen af Udo Lattek á næsta
keppnistímabili, hefur mikinn
áhuga á að fá Englendinginn Mark
Hateley til félagsins. Hateley hefur
undanfarin keppnstímabil leikið
með ítalska liðinu AC Milan en
samningur hans rennur út nú í
vor. Vitað er að Glasgow Rangers
lítur einnig hýru auga til kappans.
Hateley, sem er 25 ára gamall, var
í HM-hóp enska landsliðsins í
Mexíkó á sl. sumri.
JKS
Tvo mork a
einni mínútu
- þegar England og Brasilía skildu jöfti, 1-1
„Ég er sæmilega sáttur við úrslitin
þó að ég vilji alltaf sigur minna
manna. Við verðum að hafa það i
huga að landsliðsmennirnir em að
klára erfitt keppnistímabil og menn
em búnir að fá nóg af knattspymu,"
sagði Bobby Robson, landsliðsein-
valdur Englendinga, eftir jafntefli, 1-1,
gegn Brasilíu i vináttulandsleik á
Wembley-leikvanginum í London í
gærkvöldi að viðstöddum 92 þúsund
áhorfendum.
Leikurinn var mjög vel leikinn af
hálfu beggja liða. Englendingar vom
þó öllu hættulegri í fyrri hálfleik. Á
31. minútu var Lineker felldur innan
vítateigs en dómari leiksins sá ekkert
athugavert.
Á 35. mínútu braust Beardsley
skemmtilega upp vinstri kantinn og
gaf síðan góða sendingu fyrir markið
og þar var Lineker á réttum stað og
skallaði glæsilega í netið, 1-0.
Fomsta Englendinga stóð aðeins
yfir í eina mínútu. Löng sending Bras-
ilíu barst inn í vítateiginn. Múller átti
skot að marki en Shilton markvörður
hélt ekki knettinum og Mirandenah
fylgdi vel eftir og skoraði af tveggja
metra færi, 1-1.
Bæði liðin áttu sín tækifæri í síðari
hálfleik án þess að bæta fleiri mörkum
við. Þess má geta að Brasilía hefur
ekki tapað leik á Wembley síðan 1956.
Beardsley og Waddle vom bestir í
liði Englendinga.
Enska liðið var þannig skipað: Shil-
ton, Stevens, Pearce, Reid, Adams,
Butcher, Robson, Bames, Beardsley,
Lineker (Hateley), Waddle. -JKS
• Roberto Gallo slær hér boltann frá marki Brassa en þeir Tony Adams (t.v.)
og Terry Butcher sækja að honum. Símamynd Reuter
Amór enn í
liðvikunnar
Kristján Bemburg, DV, Belgiu:
Amór Guðjohnsen fór rétt eina ferð-
ina í lið vikunnar í Het Niewsblatt
um helgina. Átti hann enda góðan leik
með Anderlecht í rimmunni við Bever-
en.
Amór er nú annar stigahæsti knatt-
spymumaður í Belgíu með 55 stig. Ofar
honum er Van der Elst með 56.
Þá er Amór enn í markakóngssætinu
en deilir því nú með Francois nokkrum.
Hafa þeir báðir gert 17 mörk á tímabilinu.
JÖG
Bæjarstjóri
í 12. sæti
Bræðumir Kári og Ágúst Þorsteins-
synir, UMSB, urðu um síðustu helgi
Islandsmeistarar í langhlaupum.
Ágúst sigraði í hálfmaraþoni (21,1 km)
og Kári varð íslandsmeistari í 7 km
skemmtiskokki. Ágúst fékk tímann
1:12,55 klst. en Kári hljóp á 28:05 mín.
Sighvatur Dýri Guðmundsson, ÍR,
varð í öðru sæti í hálfmaraþoninu á
1:13,31 klst. og Jakob B. Hannesson
þriðji á 1:14,18 klst.
I 7 km skemmtiskokkinu varð Berg-
þór Ólafsson annar á 28:45 mín. og
þriðji Brynjólfúr Gíslason á 30:23 mín.
• Þess má geta að Sigfús Jónsson,
bæjarstjóri á Akureyri, tók þátt í hálf-
maraþoninu og hafnaði í 12. sæti á
1:28,32 klst. og má mikið vera ef hann
er ekki úthaldsbesti bæjarstjóri lands-
ins um þessar mundir. _gj£
RagnarMargeirsson sést hér undirrita samning sinn við belgiska félagið Waterschei. Forráðamenn liðsins halda
verðinu á Ragnari í hámarki og þau félög sem áhuga höfðu á Ragnari eru að hverfa út úr myndinni. Ragnar æfir
þessa dagana með Fram og líkur eru góðar á að hann leiki með liðinu í sumar.
DV-mynd G. Bender
IFK Gautabors
j og Dundee United leika í kvöld
nu fyrir leikinn en sænska liðið
lagsliða í knattspymu. Mikil spenna er í lofl
myndinni hér að ofan er Glenn Hysen, leikmaður með IFK Gautaborg, en Svían
um fræga í Skotlandi á dögunum. Manchester United er á meðal liða sem áhug;
efnilegur leikmaður.