Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 20. MAI 1987.
33
DV
Gráslepputa'ð
hjá Bjama
á Ægisíðunni
Samkvæmt timatalinu stendur
gráslepputíðin yfir núna og þá dettur
mörgum Reykvíkingnum i hug hann
Bjarni á Ægisíðunni sem fer á grá-
sleppu hvert ár. A Ægisíðunni hefur
Bjami gott lægi fyrir trilluna sína,
þar eru trönur til að þurrka grá-
sleppuna ásamt útihúsi og allt
hjálpar þetta til við að setja sér-
stakan sveitarómantískan blæ á
Ægisiðuna.
Hjá Bjama virðist lífið vera laust
við skarkala nútímans. Sjósókn írá
Ægisíðunni hefur gengið mann fram
af manni í ættlið Bjama. „Það er
alltaf eitthvert fiskiri héðan, árið um
kring,“ segir Bjami sem segist ekki
þurfa annað en að róa beint út og
vera svona einn klukkutíma úti í
einu. „Það kom ganga sem hvarf í
hretinu um daginn. Þess vegna hefur
það alstaðar verið tregt sunnan með
sjó. Ég spái því þó að það glæðist
eftir tvo til þrjá daga. Þessi grá-
sleppa, sem hangir hér á trönunum,
er illa sigin, hún er ekki búin að
hanga nógu lengi, helst þarf hún að
hanga í svona hálfan mánuð svo hún
verði góð,“ sagði Bjami.
Umsjón:
Drófn Hreiðarsdóttir
Oftlega ber útlendinga að garði
hjá Bjama og svo var einnig í þetta
sinn. Þar var Englendingur á -ferð
til að forvitnast. Fimmti ættliðurinn,
tveir strákar, vom þama Bjama til
aðstoðar og réðust í að uppfræða
Englendinginn um hagi gráslepp-
Dægradvöl
Bjarni á Ægisíðunni lætur gráleppuna ekki fram hjá sér fara. Fátt er friðsælla en að koma við á Ægisíðunni og fá sér
í soðið. DV-mynd KAE
fr W' 1
r I1 ]
unnar. „Jú, sko, karlkyns fiskurinn
heitir rauðmagi - og þar fór verr,
hvað skyldi það nú vera á ensku?
segjum bara red stomach - og svo
er það eiginkonan, grásleppan,' grey-
getaway skulum við segja," og
strákunum var greinilega skemmt.
Þeir hertu sig þó upp og leiddu Eng-
lendinginn i allan sannleikann um
veiði og verkun grásleppunnar og
sögðu honum hið raunvemlega er-
lenda heiti tegundarinnar sem er
„lumpfish". Það er einmitt þýðing á
samheiti íjölskyldunnar sem er
hrognkelsi.
Að öllu gamni slepptu standa
hrognkelsin ávallt fyrir sínu, þau
þykja herramannsmatur og sumir fá
ekki bragð af sumrinu fyrr en hrogn-
kelsi hafa verið á borðum.
Rætist spá Bjarna um betra fiskirí
þessa vikuna ætti vegfarendum að
gefast tækifæri á að kippa með sér
nýjum rauðmaga eða siginni grá-
sleppu^á leiðinni heim hjá fisksölun-
um sem gjamam selja veiði sína við
íjölfarnar götur.
Enn einn marhnúturinn dreginn upp úr sjónum við bryggjusporðinn. Mar-
hnúturinn er nú alltaf fengur þó ófagur sé. Það eru strákarnir Lárus, Nonni,
Ólafur og Hlífar sem hampa veiðinni. DV-mynd BG
„Kötturinn hefði ekki einu
sinni lyst á marhnútnum"
Á gömlu smábátabryggjunni í Reykjavík lágu íjórir strákar á bryggjusporðin-
um og vom að dorga. Þeir vom allir hæstánægðir með veiðina, sögðu að það
væri nóg af kola, ufsa og marhnút. Svo mikið er víst að ekki þurftu þeir að
hafa áhyggjur af kvótanum.
Áhugi strákanna leyndi sér ekki. Þeir sögðust oft fara niður á bryggju og
kváðu það ekki aftra fór sinni þótt þeir þyrftu að taka sér ferð á hendur úr
Breiðholtinu: „Þetta er ekkert mál, við tökum bara einn strætó, beint niður í
miðbæ,“ sögðu þeir.
- Hvað gera þeir svo við fenginn, fær kötturinn kannski að smakka?
„Við notum augun og innyflin í beitu en marhnúturinn er svo ljótur að við
erum vissir um að ekki einu sinni kötturinn hefði lyst á honum. Svo er það
líka happ að hrækja upp í fiskinn og henda honum í sjóinn," sagði Láms og
mundaði veiðistöngina sem hann var með og hugðist með fínni sveiflu kasta út
en þá vildi svo til að öngullinn festist í hárinu á Ólafi en ekkert slys hlaust af
svo strákamir skemmtu sér yfir uppákomunni.
„Viö förum út á flóann og leikum okkur eins og í fyrra,“ sögöu þeir Rúnar
Þórhallsson og Tómas Helgason sem voru að gera sportbátinn Brimdisi
kláran. DV-mynd KAE
„Erum að gera klárt“
Nú er líf að færast í smábátahöfnina í Elliðavoginum þar sem sportbátaeigend-
ur hafa aðstöðu fyrir báta sína að sumarlagi. Þessi aðstaða var sett upp fyrir
nokkrum árum og segjast sportbátaeigendur geta vel við unað,- Þeir em nú
óðum að gera báta sína klára og em þegar farnir að iðka sportið á Faxaflóanum.
Þeir Rúnar Þórhallsson og Tómas Helgason vom að gera klárt fyrir helgina
og höfðu greinilega í nógu að snúast - „við þurfum að standsetja bátinn, yfir-
fara mótorinn og drifið, þrífa í hólf og gólf og sjá svo um að allt sé í góðu lagi og
á sínum stað áður en gamanið hefst,“ sagði Rúnar sem gaf sér tíma til að líta
upp. Þegar það er búið sögðust þeir fara út á flóann að leika sér eins og þeir
gerðu í fyrrasumar. Tómas sagði að leikurinn fælist aðallega í stuttum skemmti-
siglingum um flóann, einhverju fikti við sjóstöngina og svo sagðist hann vera
með rúllu til að draga þorsk, ýsu og lúðu. „Okkur finnst alveg ægilega gaman
að þessu,“ sögðu þeir kumpánar sem eiga sportbátinn Brimdisi í sameiningu.
Þeir sögðust að sjálfsögðu vera félagar i Snarfara, félagi sportbátaeigenda, og
sögðu að bátasportið ætti hug þeirra allan þegar vinnunni sleppti.
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Frjálst.óháð dagblað
ER SMÁAUGLYSINGABLADID
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samið er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...
Vid birtum... Þad ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Oplð:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00—14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
KREDITKORTAÞJÓNUSTA
Þú hringir - við birtum og auglýsingin verður færð á kortið.