Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987. 3 Fréttir Byggingafulltrúinn í Reykjavík um burðar|>olsskýrsluna: ,,Það hefur orðið trúnaðarbrestur“ Foldaskoli er eitt húsanna, sem nefnd eru í burðarþolsskýrslunni margumtöluðu. DV-mynd BG Byggingafulltrúinn í Reykjavík hefur sætt mikilli gagnrýni frá því að skýrsla um burðarþol húsa var kunngerð. Borgarstjórn Reykja- víkur gangrýndi embætti bygg- ingafulltrúa harðlega á fundi í borgarstjórn síðastliðinn fimmtu- dag. Einnig hefur það verið gangrýnt að starfsmenn embættis- ins taki að sér í aukavinnu að teikna hús og að þessir sömu starfs- menn samþykki síðan sínar eigin teikningar. DV hafði tal af bygg- ingafulltrúanum í Reykjavík, Gunnari Sigurðssyni, og spurði hann nokkurra spurninga vegna þeirrar gagnrýni sem embættið hef- ur mátt sæta. - Nú er nokkuð um að starfsmenn þess embættis sem þú veitir for- stöðu taki að sér að teikna hús og samþykki siðan sjálfir eigin teikn- ingar, er þetta rétt? „I stuttu máli vil ég svara þessu þannig að þeir hafa fengið leyfi til að taka að sér verkefni. Það eru fyrirmæli frá mér um að ég fái að sjá allar teikningar og yfirfæri þær og stimpli sjálfur." - Þannig að það er ekki sami aðili sem gerir hvorutveggja? „Það á ekki að vera, hins vegar hefur þarna orðið trúnaðarbrot á milli. Eg mun reyna að svara þessu. Ég nenni ekki að elta ólar við allar þessar rangfærslur sem mér finnst að hafi að nokkru leyti komið fram.“ - Verður einhver breyting á varð- andi aukavinnu þinna starfs- manna? „Þetta er orðið það mikið mál að borgarráð er með þetta og ég býst við að það komi einhverjar athuga- semdir þaðan þannig að ég verð sennilega ekki ákvarðandi um það. Lítum bara á það að þetta eru menn sem eiga að veita öðrum að- hald, þeir þurfa að halda sér við í faginu til að vera starfi sínu vaxn- ir. Ég álít það að sumu levti heppilegt að þeir teikni eitthvað og haldi sér við en auðvitað undir stjórn. Það má líka benda á að starfsmenn Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins gera nú þessa skýrslu og eru ráðgefandi, þeir hafa stofnað ráðgefandi fyrirtæki og auglýst það. Það má minnast á það. I svo stórri stofnun sem þess- ari er ýmsu ábótavant og það er ekki óeðlilegt þegar kemur svona harðorð skýrsla að ég vilji kynna mér reiknisforsendur og reikn- inga.“ - Hverju vilt þú svara gangrýni Borgarstjórnar Reykjavíkur? „Ég hef ekki svarað því ennþá, ég mun gera það en það er ákaílega gott að halda svona blaðamanna- fund og boða mann og eiga að sjá svona skýrslu sem er ekkert nema niðurstöður, maður hefur ekki fengið nokkra aðstöðu til að kanna reikningana sjálfa. Forsendur sem þeir gefa sér eru hæpnar. Þannig að ég áskil mér rétt til að svara þeim þegar ég hef haft möguleika til að kynna mér þessa reikninga sem liggja fyrir." - Vefengir þú niðurstöður skýrsl- unnar? „Ég vil ekki taka þær gildar al- veg óbeint. Það má til dæmis segja að þær forsendur sem þeir gefa sér hefðu þeir átt að rökstyðja betur.“ -sme Kaup Fjárfestingarfélagsins á lánsloforðum: Málið komið í einhvem rugling „Athugun okkar stendur yfir, en ég held að þetta sé komið í einhvern rugl- ing hjá Fjárfestingarfélaginu," sagði Sigurður E. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, í samtali við DV þegar hann var spurður hvað liði athugun stofn- unarinnar á lögmæti meintra kaupa Fjárfestingarfélagsins á lánsloforðum húsbyggjenda. „Það er alrangt eftir því sem ég best veit að þeir séu famir að kaupa láns- loforð stofnunarinnar. Þ$ir lána svipað og bankamir hafa lengi gert út á loforðin, en taka bara hærri vexti," sagði Sigurður. „Fólk getur selt hér skuldabréf ef það hefur lánsloforð ffá Húsnæðis- stofnun og veðhæfa fasteign og munurinn hjá okkur og lánum bank- anna út á lánsloforðin er sá að fólk getur fengið alla upphæðina gi'eidda út,“ sagði Pétur Kristinsson, forstöðu- maður verðbréfamarkaðar Fjárfest- ingarfélagsins í morgun. „Við genim ráð fyrir 14-16% raun- vöxtiun á ári, þannig að ef maður hefur lánsloforð upp á eina milljón króna og fær helminginn greiddan eftir hálft ár og hinn eftir ár þá getur hann gef- ið út skuldabréf hjá okkur fyrir upphæðinni og fengið um níu hundruð þúsund greidd út. Þetta er í raun sam- bærileg þjónusta og bankarnir hafa veitt, nema að hér geta menn fengið alla upphæðina hafi þeir trygg veð og séu góðir skuldarar," sagði Pétur Kristinsson. -SJ Guðrún ekki í Hvalavfnafélagi Guðrún Helgadóttir héfur óskað eft- ir birtingu eftirfarandi athugasemdar: Vegna ummæla, sem höfð eru eftir Magnúsi Skarphéðinssyni í DV í fyrradag, vil ég taka írarn að ég hef ekki gerst félagi í Hvalavinafélagi Is- lands. Ég hef unnið að svokölluðu hvalamáli innan Alþingis, þar liggur min skoðun fyrir. Ég sé ekki ástæðu til að ganga í félag vegna þessa máls, enda eru mín sjónarmið allfrábrugðin þeim sem koma fram í fréttinni. Ég hyggst ekki fyrr eða síðar beita mér fyrir aðgerðum í þessu máli, öðr- um en þeim að farið verði að samþykkt Alþingis og alþjóðlegum samningum I JEEP WAGONEER OG CHEROKEE fara saman gæði, glæsilegt útlit, þægindi og kraftur á þann hátt að hann á engan sinn líka. JEEP WAGONEER OG CHEROKEE Stöðutákn nútímans. ™ Jeep EGILL VILHJALMSSON HF UMBOÐIÐ Smidjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202. / r é r 1 f íf r l / \ f ' i Jt 0lgoéeWmm ~ f VtflU lía A/. IH./UU,- 4 saman i on i viku. ÍMbnm Brottíör alla fimmtudaga. flugosbill dtUMMC FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.