Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987.
13
Neytendur
I baráttunni við háa vöruverðið:
Svipað ástand og við
könnun fyrir níu árum
Hanp er meira en lítið óhagstæður
samanburðurinn á vöruverðinu á ís-
landi og í Björgvin. Þetta verð er síðan
í desember 1986, skiptingin er orðin
eitthvað önnur núna eftir að tollar og
gjöld voru lækkuð af þessum vöruteg-
undum. Nú er komin skýring á hærra
verðlagi hér á landi, í það minnsta á
ýmsum rafrnagnsvörum og heimilis-
tækjum en i öðrum löndum eins og
t.d. Norðurlöndunum, sér í lagi í
Björgvin. Óheyrilega hár hlutur ríkis-
ins, óheyrilega há álagning, umboðs-
laun ofan á verðið og ótrúlega léleg
innkaup islenskra aðila.
Allt þetta kom fram í verðkönnun
Hvemig er
bestaðborða
kavíarinn?
f bíómyndum og sjónvarpsþáttum
er það ríka þotuliðið sem aðallega
leggur sér kavíar til munns og skol-
ar honum þá gjaman niður með
vodka eða kampavíni.
Við hin, þessi venjulegu, getum
látið eftir okkui- að borða íslenska
kavíarinn sem búinn er til úr grá-
sleppuhrognum. Hér eru nokkrar
tillögur að því hvemig má nota
hann.
Með ristuðu brauói
Rússar nota kavíar aðallega þann-
ig að hann er borinn fram i skál og
borðaður með ristuðu brauði og
smjöri.
Með sýrðum rjóma
Kavíar fer vel með sýrðum rjóma.
Ristið þunnai- brauðsneiðar og
smyrjið með sýrðum ijóma og bætið
kavíar oían á. Gott er að nota
„Melba toast'* í staðinn fyrir ristaða
brauðið eða vatnskex sem er bragð-
lítið í sjálfu sér. Bmður passa líka
vel með kavíar.
Með lauk og eggi
Látið hakkaðan lauk og hökkuð
harðsoðin egg á disk og sýrðan
rjóma og kavíar ofan á. Gott með
ristuðu brauði eða kexi.
Kavíarákex
Látið sýrðan rjóma eða majones á
kex og bætið hökkuðum lauk og
kaviar ofan á. Setjið einn til tvo
dropa af sítrónusafa yfir.
Kavíar í „blinis*'
Litlar rússneskar pönnukökur, eða
klattar, em kallaðar „blinis". Mjög
vinsælt er að nota kavíar með slíkum
pönnukökum og þá með sýrðum
rjóma. Gott er að bragðbæta með
svolitlu af söxuðum lauk.
Þá er gott að nota kavíar til þess
að skrey ta alls konar kalda rétti, auk
þess sem hann gefur aukið bragð.
-A.BJ.
Upplýsingaseðill
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks______
Kostnaður í apríl 1987:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
Verðlagsstofnunar sem greint hefur
verið frá.
Svipaðar upplýsingar fengust i sam-
norrænni könnun árið 1978, fyrir níu
árum. Þá ætluðu innflytjendur að lag-
færa þetta allt og gera hagstæðari
innkaup. Þá var borið fýrir sig óhag-
stæðum álagningarreglum hér á landi.
Álagning hefur síðan verið gefin
frjáls, var áður frjáls á einhveijum
vörutegundum. Og hvað hefur gerst?
Kaupmenn hafa séð sér hag í að
hækka álagninguna og virðist heldur
ekki hafa orðið mikið ágengt í því að
reyna að ná hagstæðari innkaupum.
Fyrir utan að umboðslaun erlendis eru
enn við lýði, að sögn verðlagsstjóra.
Áður 40 % álagning, nú allt að
132 %!
Þegar ákvæði um hámarksálagn-
ingu voru í gildi var álagning 40 % á
flestum þeim vörutegundum, sem
könnunin náði til, 30% á eldavélum
og um 50 % á myndavélum.
Hæsta álagning sem getið er um í
könnun Verðlagsstofnunar er 132%.
Það er á filmum. Hæsta álagning á
rakvélum er 100 %, lægst 46 % og að
meðaltali 85 %. Þá varhæsta álagning
á myndavélum 87%, lægst er hún
70 % og meðalálagning er „ekki
nema" 55%. Á ryksugum 78%, á
hrærivélum 77 %.
Einna lægst var álagningin á lita-
sjónvörpum og myndbandstækjum en
verðlagsstjóri tók sérstaklega fram að
í innflutningi á þeim vörum væri einna
mest samkeppni.
-A.BJ.
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fullri ferö
Nú getur þú spáð í spilin ög valið þér bíl í ró og næði.
Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum-
boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt
úrval bíla.
Auglýsendur athugið!
Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar 1 helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga.
Síminn er 27022.