Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 27. MAI 1987, 37 Sviðsljós Símamynd Reuter „Það er einn ormur héma“ „Aðeins betur til hægri - og klóra!“ Simamynd Reuter Óeirðalögreglan í Manila hefur réttu handtökin á hreinu þegar koma skal röð og reglu á iðandi mótmæl- endakös. Síðastliðinn mánudag brettu verðir laganna upp ermarnar og hreinsuðu til á hraðbraut fyrir utan herbúðir en þar höfðu áhuga- menn um stjórnmál bjástrað við að mótmæla meintum kosningasvikum á staðnum. Mjölpokagripið var not- að á þá sem ekki tóku til fótanna af sjálfsdáðum - og mönnum hent og grýtt í allar áttir af miklum dugnaði og harðfylgi. Kvenapinn Saba hefur það aldeilis ágætt og hefur greinilega ekkert á móti því að Laszlo Toeroek þvoi henni hátt og lágt. Laszlo er gæslumaður í dýragarðin- um í Búdapest og þrifabaðið hennar Söbu er liðúr í fegrun garðsins vegna sjötiu og fimm ára tilvistar hans á staðnum. Allir verða að vera ægifagrir og fínir í af- mælisveislunni. Engin mvnd hefur ennþá borist af hreinsun ljónanna og tígrisdýranna á staðnum - liklega fer þar fram einhvers konar kattarþvottur til þess að vernda líf og limi gæslumannanna. Innan um kuim- ugleg andlit Greg Stone er á meðfylgjandi Re- utermynd svo sannarlega umkringd- ur kunnuglegum andlitum. Reyndar eru þetta hans eigin sköpunarverk, grímur úr hinni upprunalegu Star Wars kvikmynd sem naut ómældra vinsælda víða um heim. Sagt er að listamenn endurskapi sjálfa sig i sí- fellu og skal lesendum látið eftir að dæma um skyldleikann með lista- verkunum og skapara þeirra. Veðhlaupahesturinn Momentus er í ágætri æfingu við að fýla grön og þeir gapa vandlega hvor framan í annan, Momentus og þjálfarinn, Dennis Plowers. Hrossið varð fyrir því óhappi á síðasta ári að fella stöngina illa á Derby-veðreiðunum og skella með skoltinn á stöngina. Sauma þurfti hundruð spora í efri og neðri góm og hefur allt gróið með ágætum. Reuter-myndin af Moment- us er tekin á æfmgu nýlega. Ólyginn James Caan er harður í horn að taka utan hvíta tjaldsins lika. Ungi töffarinn, sem dundaði við að stela öllu lauslegu af bíl filmstjörnunnar, fékk snar- lega afgreitt eitt hressilegt spítala- vink frá hendi stjörnunnar þannig að hann gleymir ekki James Caan á næstunni. Það er lítið spennandi að umbreytast i fingralangrafrigg- así í sínum fyrstu ránsferðum og herma fregnir að þessi ungí af- brotamaður hafi misst áhugann á ránum sem lífsstarfi og sigti nú á eitthvað annað og uppbyggilegra í framtíðinni. David Bowie fær sér göngutúr eða brunar niður snævi þaktar fjallshlíðar í öllum frístundum. Heilsufarið gengur fyrir öllu hjá kappanum og segist David ekki ætla að eyða elliárun- um á stofnunum ef hann fær sjálfur einhverju um ráðið. Þegar fyrir valinu verður að sitja heima er David ekki í vandræðum með sjálfan sig því hann er bókaormur hinn mesti og les heilu doðrantana með óblandinni ánægju. Michael Jackson á í vandræðum með uppeldi gæludýranna sinna. Uppáhald- skyrkislangan hans vildi ekki heyra á annað minnst en gleypa páfa- gauk heimilisins einn morguninn þannig að Michael skilaði henni samstundis aftur í gæludýrabúð- ina. Sú nýja sem honum var afhent reyndist líka villidýr hið mesta og þegar risakyrkislangan, sem Michael fékk í þriðju ferð- inni, vildi ekkert bragða nema mýs, fugla eða smábörn gafst kappinn endanlega upp á slöngu- ættinni. Nú eru það ormar sem eiga huga hans allan og enn sem komið er hefur ekkert stórslys orð- ið á gæludýraflokknum af þeirra völdum. Það er sumsé allt iðandi af lifi á þeim vígstöðvunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.