Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Side 40
> RETT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987. Eýðnistúlkan situr enn í stofufangelsi Stúlka sú sem smituð er af eyðni og sett var í stofufangelsi fyrir tæp- um tveimur vikum þar sem hún -Í^gætti ekki varkámi í kynh'fi situr 'þar enn því ekki hefur fúndist vist- heimili fyrir eyðnisjúklinga eins og unnið er að. Lögregluvakt er við heimili stúlkunnar allan sólarhring- inn. Er DV hafði samband við Skúla G. Johnsen borgarlækni og spurði um þetta mál sagði hann að ekkert væri að frétta af því að svo stöddu. -FRI ítalinn í 2ja mánaða fangelsi ítali sá sem tekinn var á Keflavík- urflugvelli með 600 grömm af hassi «^fog 1 gramm af kókaíni hefur verið dæmdur í 2ja mánaða fangelsi og er þegar byrjaður að afplána dóminn. Italinn mun hafa verið búsettur héma um eins árs skeið er hann var tekinn en upphaflega kemur hann frá Mílanó. Hann var að koma frá London er hann var handtekinn. -FRI Flugumferðarstjórar: Tökumútokkardóm * „Við erum ekki farnir að skoða stöðuna enn eða meta." sagði Jón Árni Þórisson, varaformaður Félags flugumferðarstjóra, í samtali við DV í gær þegar hann var spurður um hvað væri á döfinni í kjaramálum flugumferðarstjóra. „Við erum að hugsa okkar gang. Það var stjómarfundur í dag en þar vom engar ákvarðanir teknar. Við emm rólegir enda dæmdir menn og við tökum út okkar dóm,“ sagði Jón Árni. -ój DV kemur næst út föstudaginn 29. maí. Smáauglýsingadeildin er opin í dag til ki. 22.00. Lokað á morgun, uppstign- ingardag. Síminn er 27022. LOKI I lóðanefnd með dónann! Stjórnarmyndunartilraun Þorsteins: Clif ||ÍAwqA||#| vlll vIwlCCvlICI liggja í loftinu „Ég held að þetta springi. Það er of lítill vilji til að teygja sig. Nema menn komi með eitthvað nýtt í dag.“ Þetta sagði alþingismaður í morgun um stjórnarmyndunarvið- ræður Sjálfstæðisflokks, Alþýðu- flokks og Kvennalista. Þingmaður úr öðrum flokki sagði: „Þessu getur lokið í dag eða eitt- hvað gerist sem gefur mönnum ástæðu til að halda áfram.“ Þriðji þingmaðurinn sagði: „Þetta er erfítt. En það er ennþá jákvæður tónn i þessu.“ Sjálfstæðis- og alþýðuflokks- menn saka kvennalistakonur um að hafa hert á afstöðu sinni og sett fram kröfur umfram það sem þær höfðu gefið til kynna í könnunar- viðræðum. Sjálfstæðismenn höfnuðu í gær alfarið kröfu um lögbindingu lág- markslauna. Aðrar erfiðar kröfur Kvennalistans fyrir hina flokkana eru stöðvun Varnarliðsfram- kvæmda, bann við stóriðjufram- kvæmdum og nýtt ráðuneyti undir umhverfismál. Sjálfetæðismenn eru sakaðir um að vilja ekki taka á rikisfjármálum þannig að hægt verði að veita íjár- munum til velferðarkerfisins. Alþýðuflokksmenn leggja í því sambandi til nýtt skattakerfi. „Sjálfetæðisílokkurinn vill helst ekkert gera,“ er tónninn hinum megin við borðið. Þessi stjórnarmyndunartilraun Þorsteins Pálssonar virðist því ætla að mistakast. -KMU Þær réðu sér ekki fyrir kæti, þessar litlu hnátur, sem voru að æfa fyrir nemendasýningu Listdans- skóla Þjóðleikhússins þegar Ijósmýhdara DV bar þar að í gær. En á morgun, uppstigningardag, klukkan 15 sýna þær vinum, vandamönnum og öllum, sem vilja sjá, hvað þær hafa lært í vetur. -ai/DV-mynd KAE Veðrið á morgun: Sunnan- og suðaustanátt við suður- ströndina Við suðurströndina verður sunn- an- og suðaustanátt, kaldi eða stinningskaldi og skýjað. Annars staðar verður hægviðri og viða létt- skýjað. Hiti verður á bilinu 7-20 stig. Hvassaleitisdoninn: Málinu vísað í lóðanefnd Mál hins svokallaða Hvassaleitis- dóna var tekið til umfjöllunar á síðasta fundi skólamálaráðs og sagði formað- ur þess, Ragnar Júlíusson, í samtali við DV að samþykkt hefði verið að vísa málinu til lóðanefndar og henni fafið að ræða við skólastjóra og form- ann foreldrafélagsins við Hvassaleitis- skóla. Sagði Ragnar að lóðanefnd ætti að fjalla um allar breytingar á lóðum við eldiá skóla borgarinnar en eins og kunnugt er af fréttum krefst foreldra- félagið þess að rifin verði niður girðing sem nú er á lóðinni við Hvassaleitis- skóla. Mál Hvassafeitisdónans hefur farið alla leið inn á skrifborð Davíðs Odds- sonar borgarstjóra og á sunnudags- kvöldið sást til Daviðs þar sem hann ók að Hvassaleitisskóla og aðeins um nánasta umhverfi. -FRI Grímuklæddir piltar: Skutu á fólk með startbyssu Þrír grímuklæddir piltar, 17-18 ára, féku þann ljóta leik í Hafnarfirði um síðustu helgi að koma fólki að óvörum og skjóta á það með startbyssu til að láta því bregða. Eftir að þeir höfðu leikið þennan leik við þrjár manneskj- ur hafði lögreglan fengið lýsingu á þeim og bíl þeirra og tók hún þá úr umferð á laugardagskvöldið. „Ég var að koma úr vinnunni og fékk mér göngutúr eftir Strandgöt- unni. Ég gekk svö upp Mjósund og þar var kallað að baki mér, hei, manni. Er ég sneri mér við stóð grímuklæddur maður á móti mér með byssu í hend- inni sem hann hleypti af. Hvellurinn var mjög hár og ég eiginfega fraus, mér brá svo,“ sagði Marinó Sigurðsson (í samtali við DV en hann var einn þeirra sem lentu í þessari óskemmti- legu lífsreynslu. „Þessi náungi stökk svo af stað og í bíf sem keyrt var á fleygiferð í burtu. Er ég gat hreyft mig aftur fann ég skothylki neðar í götunni og fór með það til lögreglunnar og gaf skýrslu." Sem fyrr segir tók lögreglan þessa pilta úr umferð skömmu eftir að þetta gerðist og er málið að fullu upplýst. -FRI Hvalkjötið til Japan „Kjötið verður sent áfram til Jap- an,“ sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf„ þegar hann vai' spurður um hvað yrði um hvalkjötið sem nú er á leið til landsins frá Hamborg. Kristján sagðist ekki vita um ástand kjötsins, enda hefði það ekki verið skoðað af mönnum Hvals hf„ en ekki bjóst hann við því að kjötið hefði skemmst ytra. Ekki sagði Kristján að áhugi hinna japönsku kaupenda á kjötinu hefði minnkað við þær tafir sem orðið hefðu á sendingunni. -ój Enn mælast skjátftar Samkvæmt upplýsingum frá Páli Einarssyni hjá Raunvísindastofhun sýna skjálftamælar stofnunarinnar enn töluverða hreyfingu á skjálfta- svæðinu. Jarðskjálftahrinan, sem hófst í fyrradag, er því ekki gengin yfir enn. Um sexleytið í morgun mældist t.d. skjálfti við Vatnafjölf sem mun hafa verið um 2,5 stig og um tíuleytið í gærkvöldi fannst skjálfti í Krísuvík sem mældist 2,0 stig. KGK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.