Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Qupperneq 34
34
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987.
Andlát
nesi í Mývatnssveit. Foreldrar hans
voru Áslaug Sigurðardóttir og Stef-
án Helgason. Helgi var við nám í
Samvinnuskclanum veturinr
1934-35. Hann starfaði fvrst hjá Lýs-
issamlaginu. síðan hjá Kristjáni
Skagfjörð og Osta- og smjörsölunni
þar til hann hætti störfum fyrir ald-
urs sakir. Hann giftist Sylvíu
Jónsdóttur en hún.lést árið 1958.
Þeim hjónum varð þriggja barna
auðið. Útför Helga verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Þórarinn Jónsson lést 15. maí sl.
Hann fæddist í Reykjavík 25. október
1917. Foreldrar hans voru Jón Oddur
Jónsson og Ingibjörg Gilsdóttir. Þór-
arinn starfaði alla tíð hjá Reykjavík-
urborg, fyrst Reykjavíkurhöfn og
síðan hjá borgarverkfræðingi. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Guðrún
Símonardóttir. Þau eignuðust íjögur
börn en misstu eitt á unga aldri.
Útför Þórarins verður gerð frá kirkju
Óháða safnaðarins í dag kl. 13.30.
Elísabet Sigurðardóttir andaðist á
Hrafnistu mánudaginn 25. maí sl.
Signe Sirnes Greipsson lést í
sjúkrahúsi í Haugasundi mánudag-
inn 25. maí.
Steinunn Sigurbjörnsdóttir frá
Grímsey lést í Landakotsspítala
föstudaginn 22. maí 1987. Jarðsett
verður frá Miðgarðakirkju í Grímsey
föstudaginn 29. maí kl. 14.
Valgerður Bjarnadóttir, Tjarnar-
götu 16, Keílavík, lést í sjúkrahúsi
Keflavíkur 25. maí.
Sigríður Jónsdóttir frá Norður-
Götum í Mýrdal, til heimilis á Þrast-
argötu 7, andaðist í Borgarspítalan-
um 25. maí.
Hólmgrímur Sigurðsson frá Ystu-
Vík verður jarðsunginn frá Sval-
barðskirkju laugardaginn 30. maí kl.
14.
Róbert G. Jensen, Háengi 15, Sel-
fossi, sem andaðist 21. maí sl., verður
jarðsunginn frá Selfosskirkju laug-
ardaginn 30. maí kl. 13.
Ragnheiður O. Björnsson kaup-
maður, Akureyri, sem andaðlst á
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
fimmtudaginn 21. maí sl., verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju
fostudaginn 29. maí kl. 13.30.
Halldóra Halldórsdóttir verður
jarðsungin föstudaginn 29. maí kl.
11.30.
Sigríður Vilhjálmina Ólafsdóttir,
Jökulgrunni 1 við Hrafnistu, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 29. maí kl. 10.30.
Sigrún Þorkelsdóttir, Sólheimum
56, lést 24. maí. Minningarathöfn
verður í Langholtskirkju, Reykjavík,
föstudaginn 29. maí kl. 10.30 en hún
verður jarðsungin frá Prestsbakka-
kirkju laugardaginn 30. maí kl. 14.
Þórður Sturlaugsson, fyrrverandi
stórkaupmaður, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni föstudaginn 29.
maí kl. 13.30.
Tilkyrmingar
Kirkjudagur í Glerárkirkju
Kirkjudagur verður í Glerárkirkju á
morgurt. uppstigningardág. Dagskráin
hefst með guðsþjónustu kl. 14. Þar syngur
kirkjúkór Lögmannshlíðarsóknar og
sóknarpresturinn. sr. Pálmi Matthíasson.
predikar. Eftir guðsþjónustuna verður
kirkjukaffi kvenfélagsins Baldursbrár. Þá
mun kirkjukórinn bregða á leik í léttum
sumarlögum og syngja jafnvel utandyra
ef veður leyfir. Sumarblóm verða jafnframt
til sölu í kirkjunni.
Dagur aldraðra í
Langholtskirkju,
kirkju Guðbrands biskups. hefst með
helgistund á morgun. fimmtudag. kl. 14.
Stólræðu flvtur Sigríður Jóhannsdóttir.
lestra annast starfsmenn Bæjarleiða.
Prestur: Sig. Haukur. Organisti: Ólafur
Finnsson. Kaffidrvkkja verður eftir at-
höfnina í kirkjunni og þá hefst líka sýning
á munum sem hinir öldruðu hafa unnið
að í vetur.
Öldruðum boðið til kirkju
á uppstigningardag
Líkt og undanfarin ár er öldruðUm boðið
sérstaklega til guðsþjónustu í Hafnar-
fjarðarkirkju á uþpstigningardag sem ber
nú upp á fimmtudaginn 28. maí. Guðs-
þjónustan á þessum degi er mörgum
tilhlökkunarefni og því fjölsótt. Við guðs-
þjónustuna að þessu sinni. sem hefst kl.
14. mun Jóhanna Linnet syngja einsöng
og einnig í kaffisamsæti í Fjarðarseli.
íþróttahúsinu við Strandgötu sem safnað-
arstjórn og kvenfélag býður til eftir
guðþjónustuna. Rúta verður í ferðum
ásaint öðrum bílakosti til að flytja fólk til
og frá kirkju. Þeir sem óska eftir slíkri
þjónustu hafi samband við Eggert ísaks-
son. safnaðarfulltrúa eða sóknarprest.
Hallgrímskirkja -starf
aldraðra
Á uppstigningardag, fimmtudag 28. maí,
verður farið til Hveragerðis og verið við
guðsþjónustu i Hveragerðiskirkju, á eftir
verður drukkið kaffi á Hótel Ork. Lagt
verður af stað frá Hallgrímskirkju kl. 13.
Þeir sem hafa áhuga á þessari ferð eru
beðnir að hafa samband við Dómhildi
Jónsdóttur í síma 39965.
TM-miðstöðin
Nýtt námskeið í TM-tækninni hefst með
kynningarfyrirlestri á morgun, íimmtudag
kl. 20.30 í Garðastræti 17. Fjallað verður
um áhrif TM-tækninnar á streitu, heil-
brigði, öldrun, mannleg samskipti og
fleira. Síminn er 16662.
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-prófasts-
dæmi á uppstigningardag.
Dagur aldraðra
Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta í Ár-
bæjarkirkju kl. 14.00. Organleikari Jón
Mýrdal. Allt eldra fólk í söfnuðinum sérs-
taklega boðið velkomið til guðsþjón-
ustunnar. Kaffiveitingar í boði Kvenfélags
Árbæjarsóknar eftir messu. Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Ólafur
Magnússon frá Mosfelli syngur einsöng í
messunni og í kaffisamsæti í safnaðar-
heimili Áskirkju eftir messu sem öldruðum
er boðið til í tilefni af degi aldraðra. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 14 Les-
ari Áslaug Gísladóttir. Sr. Magnús
Guðjónsson biskupsritari prédikar. Org-
anisti- og söngstjóri Guðni Þ. Guðmunds-
son. Sýning á vinnu aldraðra eftir messu.
Kaffisala til ágóða fyrir starfið. Sr. Ólafur
Skúlason.
KNATTSPYRNUSKÓLIÍR
Knattspyrnuskóli Í.R. hefst mánud. 1. júní og verður
starfræktur í allt sumar. Námskeiðin verða 5 alls og
hefst innritun mánud. 25. maí í félagsheimili Í.R. Nán-
ari uppl. í síma 75013 eftir kl. 13.00.
í gærkvöldi
x>v
Þór Magnússon þjóðminjavörður:
„Góður þáttur um Nicaragua“
Ég reyni alltaf að horfa á fréttim-
ar í sjónvarpinu, og þá í Ríkissjón-
varpinu aðallega. Ríkissjónvarpið
gerir innlendu fréttunum betri skil
en erlendu fréttimar em mjög svip-
aðar á báðum sjónvarpsstöðvunum.
Einnig hlusta ég fréttimar í Ríkisút-
varpinu yfir daginn.
Mér gafst nú minni tími til að
horfa á sjónvarpið en efhi stóðu til.
Ég horfði á þáttinn um Nicaragua,
sem var mjög góður. Það kemur upp
í huga manns, þegar maður horfir á
þætti sem þessa, hvílík forréttindi
það em að búa hér á íslandi. Guðni
Bragason gerði umíjölluninni góð
Þór Magnússon.
skil og maður er talsverðu vísari en
áður. Það er ömurlegt að alls staðar
skuli stórveldin setja fingur sína þar
sem smáþjóðir em annars vegar því
þá er olíu skvett á eldinn um leið.
Vafalaust geta þessar smáþjóðir
leyst deilueíhi sín án þess að stór-
veldin komi þar til.
Ég sá á hlaupum þáttinn Vestræn
veröld. Ég hef eiginlega ekki eirð í
mér til að sitja og meðtaka heilu
framhaldsþættina.
Ég sé ekki að það vanti neitt sér-
stakt efrii í sjónvarpið, framboð af
efrii er það mikið. Þó er maður alltaf
þakklátur íyrir íslenst efni.
Digranesprestakall: Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur
Kristjánsson prédikar. sr. Árni Pálsson
þjónar fyrir altari.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Gvlfi Jónsson.
Grensáskirkja: Messa kl. 14. Kaffi og
kökur eftir messu. Eldri borgurum er sérs-
taklega boðið í þessa messu og að þiggja
veitingar að henni lokinni. Kvöldmessa
kl. 20.30. Altarisganga. U.F.M.H. tekur
þátt í messunni. Þorvaldur Halldórsson
stjórnar söng og tónlist. Kaffisopi á eftir.
Allir velkomnir. Sr. Halldór Gröndal.
Kársnesprestakall: Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur
Kristjánsson prédikar. Sr. Árni Pálsson
þjónar fyrir altari. Samverustund fyrir
aldraða í safnaðarheimilinu Borgum að
lokinni guðsþjónustu.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 14 á
degi aldraðra. Biskup Islands. herra Pétur
Sigurgeirsson, prédikar. Boðið upp á kaffi
í safnaðarheimilinu eftir messu. Sunnu-
daginn 31. maí verður engin messa í
Laugarneskirkju. Sóknarprestur.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmund-
ur Óskar Ólafsson.
Seljasókn: Guðsþjónusta er í Seljahlíð kl.
11 f.h. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 14
(Ath. breyttan messutíma). Kristín Mark-
úsdóttir prédikar. Allt eldra fólk í söfnuð-
inum sérstaklega boðið velkomið til
guðsþjónustunnar og kaffidrykkju á eftir.
Organisti Sighvatur Jónasson. Prestur
Solveig Lára Guðmundsdóttir. Aðalsafn-
aðarfundur í Kirkjunni miðvikudagskvöld
27. maí kl. 20.30. Allir '/elkomnir. Sóknar-
nefndin.
Dómkirkjan: Guðsþjónusta kl. 14. Hans
Jörgensen, fyrrum skólastjóri, formaður
samtaka aldraðra predikar. Sr. Þórir Step-
hensen þjónar fyrir altari. Eftir messuna
er eldri borgurum í söfnuðinum boðið til
kaffidrykkju á Hótel Borg. Þar mun Halla
Margrét Árnadóttir syngja nokkur lög við
undirleik Marteins H. Friðrikssonar. Sr,
Þórir Stephensen.
Háteigskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Tóm-
as Sveinsson. Aðalfundur Háteigssafnaðar
á fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sóknarnefnd.
Tónleikar
Lokatónleikar Tónlistar-
skólans í Reykjavík
á þessum vetri verða fimmtudaginn 28.
maí nk. kl. 14 í Háskólabíói. Á tónleikun-
um koma fram Sinfóníuhljómsveit ásamt
fjórum nemendum sem ljúka einieikara-
og einsöngvaraprófum frá skólanum í vor.
Þeir eru píanóleikararnir Þórarinn Stef-
ánsson og Þórhildur Björnsdóttir og
söngkonurnar Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir og Kolbrún Arngrímsdóttir. Á
efnisskrá eru píanókonsertar eftir Katsjat-
úrían og Mozart og óperuaríur eftir
Donizetti, Gluck, Mozart, Rossini, Verdi
og Wagner. Stjórnandi er Mark Reedman.
Nú stendur yfir fjáröflunarherferð til
styrktar bókasafni skólans og mun ágóði
af miðasölu renna til bókasafnsins.
Skerpluhátíð Musica Nova
Fyrstu tónleikarnir á Skerpluhátíð
Musica Nova verða haldnir í Bústaða-
kirkju í kvöld 27. maí kl. 20.30. Þar mun
músíkhópurinn flytja íslenska tónlist frá
árunum 1967-1986. Þessi hópur var stofn-
aður fyrir nokkrum mánuðum tii að flytja
nútímatónlist, íslenska og erlenda. Á þess-
um tónleikum koma fram söngvararnir
Signý Sæmundsdóttir og Kristinn Sig-
mundsson ásamt Önnu Guðnýju Guð-
mundsdóttur píanóleikara, Arnþóri
Jónssyni sellóleikara, Guðna Franzsyni
klarínettleikara og Kolbeini Bjarnasyni
flautuleikara. Þá munu Stefán Hörður
Grímsson og Þorsteinn frá Hamri lesa upp
ljóð sín á tónleikunum.
Áðrir tónleikar á Skerpluhátíð Musica
Nova verða haldnir í Norræna. húsinu á
uppstigningardag 28. maí kl. 20.30. Þar
frumflytja Guðný Guðmundsdóttir, Gunn-
ar Kvaran og Halldór Haraldsson tríó eftir
Karólínu Eiríksdóttur og Guðríður St.
Sigurðardóttir frumflytur Rapsódíu fyrir
píanó einnig eftir Karólínu. Þá mun Blás-
arakvintett Reykjavíkur flytja „Burt-
flogna pappírsfugla“ eftir Gunnar Reyni
Sveinsson og blásarakvintett eftir Herbert
H. Ágústsson.
Kvartett-inn og hljómsveit
halda tónleika á Hótel Borg fimmtudaginn
28. maí kl. 21.30. Kvartett-inn hefur starf-
að í 4 ár undir nafninu Kvartett MK og
eru þetta fyrstu opinberu tónleikar hans.
Á efnisskránni má finna lög úr öllum átt-
um bæði ný og gömul og ræður sveiílan
og djassinn ríkjum. Þessi lög hafa verið
færð í nýjan búning þar sem raddir leika
aðalhlutverkið. Kvartett-inn skipa þau
Skarphéðinn Hjartarson, Þuríður Jóns-
dóttir. Guðrún Gunnarsdóttir og Þór
Ásgeirsson. Hljómsveitin sem spilar undir
skipa úrvalshljóðfæraleikarar en þeir eru
Friðrik Karlsson gítar, Ari Einarsson gít-
ar, Birgir Bragason bassi og Matthías
Hemstok trommur. Þeir félagar ætla einn-
ig að ieika nokkur lög einir sér.
Hallgrímskirkju
Á uppstigningardag, fimmtudaginn 28.
maí, mun Friðrik Vignir Stefánsson halda
burtfararprófstónleika á orgel í Hall-
grímskirkju. Hann hefur stundað nám við
Tónskóla þjóðkirkjunnar og hefur Hörður
Áskelsson verið kennari hans síðustu þrjú
árin. Áður var Friðrik í námi hjá Hauki
Guðlaugssyni við Tónlistarskólann á
Akranesi. Undanfarin ár hefur Friðrik
starfað sem organisti við Innra-Hólms-
kirkju. Hann er nú að ljúka kantorsprófi
frá Tónskóla þjóðkirkjunnar. Eftirtalin
verk eru á efnisskránni: J.S. Bach: Tríó í
c-moll, F.Couperin: Offertoire sur les
Grands jeux, C. Franck: Prelúdía, fúga og
variation, Jón Þórarinsson: Prelúdía,
akórall og fúga, J.S. Bach: Prelúdía og
fúga í a-moll. Allir eru velkomnir og að-
gangur ókeypis.
Hádegistónleikar
Hinir árlegu vortónleikar Tónlistarskól-
ans í Reykjavík verða haldnir miðviku-
daginn 27. maí kl. 12.30 í Gamla bíói.
Efnisskrá er mjög fjölbreytt. Aðgangur er
ókeypis.
Tónleikar í Akureyrarkirkju
Tríóið Musica Antiqua Island mun leika
á tónleikum í Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 28. maí (uppstigningardag) kl. 17.
Tríóið skipa Camilla Söderberg blokk-
flautuleikari, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir
sellóleikari, sem leikur á viola da gamba,
og Snorri Öm Snorrason sem ieikur á lútu
og bassalútu.
Sýningar
„Ég dansa við þig“
Síðustu sýningar Þjóðleikhússins á sýn-
ingunni „Ég dansa við þig“ verða í kvöld
og annað kvöld kl. 20.
Nemendasýning íþróttafé-
lagsins Gerplu
Fimmtudaginn 28. maí, uppstigningardag,
verður hin árlega nemendasýning Iþrótta-
félagsins Gerplu í íþróttahúsinu Digranesi
og hefst hún kl. 15. Dagskrá verður að
vanda fjölbreytt og mun verða reynt að
kynna á sem bestan hátt daglega starfsemi
félagsins. Laugardaginn 30. maí verður
vorferðalag Gerplu og er ferðinni heitið í
Þrastaskóg, þar sem grillaðar verða pylsur
og farið í leiki, á heimleiðinni verður kom-
ið við í sundlaug. Brottfor verður frá
íþróttahúsi Gerplu við Skemmuveg um kl.
10 f.h. og áætlað að koma í bæinn aftur
um kl. 17.
Dröfn með klippimynda-
sýningu
Dröfn Friðriksdóttir myndlistarmaður
heldur klippimyndasýningu í Dynheimum
á Akureyri þessa dagana. Dröfn vinnur
verk sín að mestu upp úr dagblöðum. Þessi
athyglisverða sýning hófst sl. laugardag
23. maí og henni lýkur sunnudaginn 31.
maí kl. 22. Sýningin er opin daglega kl.
17-20.
Málverkasýning á Akureyri
Ingvar Þorvaldsson opnar málverkasýn-
ingu að Gamla Lundi, Akureyri, fimmtu-
daginn 28. maí kl. 16. Á sýningunni eru
36 vatnslitamyndir málaðar á þessu og
síðasta ári. Sýningin er opin kl. 14-22 um
helgar en kl. 17-22 virka daga. Henni lýk-
ur mánudaginn 8. júní.
Ferðlög
Vorferð Kvenfélags Kópavogs
um Suðurnes verður laugardaginn 30.
maí. Lagt af stað frá félagsheimilinu kl.
13. Tilkynnið þátttöku fyrir miðvikudag.
Nánari upplýsingar gefa: Stefanía s. 41084,
Sigrún s. 40561 og Anna s. 41566.
Ferðafélag íslands
Dagsferð fimmtudaginn 28. maí,
kl. 13 Sveifluháls - Seltún. Ekið í Vatns-
skarð og gengið þaðan suður eftir Sveiflu-
hálsi að Arnarvatni. Frá Arnarvatni er
gengið eftir Ketilstíg að Seltúni sunnan
Kleifarvatn. Verð kr. 500. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd
fullorðinna.
Helgarferð til Þórsmerkur 29.-31. mai.
I Þórsmörk verða farnar gönguferðir eftir
því sem tími og aðstæður leyfa. Gist í
Skagfjörðsskála/Langadal. Upplýsingar
og farmiðasala á skrifstofu F.I.
ÚTIVIST
Útivistarferðir
Helgarferðir 29.-31. maí.
1. Breiðafjarðareyjar - Purkey. Náttúru-
paradís á Breiðafirði. Tjaldað í eyjunni.
Sigling m.a. að Klakkeyjum.
2. Tindaíjöll. Gist í Tindafjallaseli. Gengið
á Tindafjallajökul. Góð jöklaferð.
3. Þórsmörk. Gist í Útivistarskálunum
Básum. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni
1. Símar 14606 og 23732.
Miðvikudagur 27. maí.
Kl. 20 Búrfellsgjá. Létt kvöldganga um
eina fallegustu hrauntröð Suðvesturiands.
Verð 350 kr. Frítt f. börn m. fullorðnum.
Brottför frá BSÍ, bensísölu.
Fimmtudagur 28. maí.
Kl. 9 Skarðsheiði - Heiðarhorn (1053
mm) Gengið frá Efra-Skarði.
Kl. 9 Ströndin í Melasveit. Ein sérkenni-
legasta strönd Suðvesturlands. Gengið
undir Melbökkum á stórstraumsfjöru.
Kl. 13 Botnsdalur - Glymur (hæsti foss
landsins). Létt ganga fyrir alla. Farið að
Glym og gljúfrum í nágr. Verð 600 kr.
Frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá
BSl, bensínsölu.
Afmæli
80 ára er í dag, 27. maí, Arnfríður
Gestsdóttir frá Þykkvabæ, Dal-
braut 23, Reykjavík.
80 ára afmæli átti í gær, 26. maí,
Guðmunda Guðjónsdóttir, Eyja-
holti 13, Garði. Hún ætlar að taka á
móti gestum á heimili sínu laugar-
daginn 30. þ.m. milli kl. 14 og 17.