Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987. 7 DV „Engin læti“ - segir landgræðslustjóri lón G. Haukssan, DV, Akureyit „Það verða engin læti. Við höfum ekki kært málið ennþá en okkur finnst mjög miður að bændur skuli hafa brot- ið samkomulag um að reka ekki fé þama inn eftir,“ sagði Sveinn Runólfs- son landgræðslustjóri í samtali við DV en Reykjahlíðarbændur ráku fé inn á land sitt í svokölluð Mellönd við Jök- ulsá á fjöllum. „Landið þama er mjög þurrt og mik- ið um sandfok," sagði Sveinn. „Sveit- arstjómin hefur vald til að ákveða hvenær bændur reka fé sitt á afrétti og skiptir þá ekki máli hvort um eign- arland er að ræða.“ Sveinn sagði að landgræðslan hefði haft starfsemi þama frá árinu 1955 og ætíð átt gott samstarf við bændur. Sundlaugin á Akureyri er nú lokuð um stundarsakir og sakna þess margir að geta ekki fengið sér sundsprett í góða veðrinu. Sundlaugin lokuð Jón G. Haiiksaan, DV, Akuieyii: Um miðjan dag í fyrradag, í sumar- hita og glampandi sólskini, var sundlauginni á Akureyri lokað. Sól- brúnir gestimir kvöddu og þeir komast ekki í laugina næstu tvo daga þvi laug- in verður lokuð bæði í dag og í gær. Hleypt verður úr lauginni, hún verður máluð og gerð upp. Málaramir vom mættir þegar gestimir yfirgáfu laug- ina í fyrradag. Skjálftinn líkastur ölduhreyfingum Ómar Gaiðaissan, DV, Vestmannaeyjum Jarðskjálftinn, sem varð á Suður- landi um hálftólfleytið í fyrradag, fannst mjög greinilega í Vestmanna- eyjum. Fyrst byrjaði þetta sem snöggir kippir sem dró úr, en svo jukust þeir aftur og þá var þetta líkast ölduhreyf- ingum. Jarðskjálftinn stóð yffr í þó nokkum tíma. Fréttaritara DV varð litið út um glugga á meðan skjálftinn gekk yfir og sá hann þá greinilega hreyfingu á húsinu á móti. Ekki hefur frést af meiri háttar skemmdum af völdum skjálftans, en ljósakrónur sveifluðust til og vörur féllu úr hillum verslana. Stór steinn hrundi úr norðausturhlíð Stóraklifs og braut þar girðingu. Einn- ig er álitið að það hafi hrunið úr Klifinu að norðanverðu, en þar fellur hlíðin í sjó fram og hafa vegsummerki þar ekki verið könnuð. Síðan um gos hafa verið starfræktir tveir jarðskjálftamælar í Heimaey, annar í Ráðhúsinu en hinn úti í Stór- höfða. Óskar Sigurðsson, vitavörður í Stórhöfða, sagðist ekki muna eftir jafh miklum skjálfta, en hann er búinn að vera þama i rúm tuttugu ár. Óskar gat þess einnig að jarð- skjálftavirkni hafi komið fram á mælinum fyrr um morguninn en þó i miklu minna mæli. Aðfaranótt sunnudagsins var bif- reið 8tolið úr bílskúr við Jaðarsbraut á Akranesi. Bifreiðin, sem er silfur- B9 stdiö grár Taunus áigerð 1982, heftir ekki fúndist enn. Síðast sást til bifreiðar- innar imdir Þyrilshh'ð í Hvalfirði á Fréttir suðurleið. Skráninganúmerið er E-260. -sme VERDFRÁ Dæmi: Peningar Lán til 6 mán. Eldri bifreiö kr. 70.000. kr. 63.000, kr. 150.000, Nýr FIAT UNO kr. 283.000,- Sýningarsalurinn er opinn virka daga frá kl. 09:00-18:00 og laugardaga frá kl. 13:00-17:00. HVAR ENDAR ÞETTA! Þeir kröfuhörðustu velja AUDIOUNE i bílinn Enn og aftur getur Sjónvarpsmiðstöðin boðið ótrúlega lágt verð vegna mjög hagstæðra samninga við verksmiðjur.____ m 'A SH U-.u w..„ AL 440 digital utvarp LW, MW, FM stereo, 50W magnari, minni á 18 stöðvar, auto reverse. Kr. 13.890,- AL 410 = 8.950,- Útvarps- og kassettutæki m/3 bylgjum - kassetta, „autoreverse", spólun áfram/afturábak. AL 333. 3 bylgjur, kassetta. Mest selda Audiolinetækið. Verð kr. 5.650,- AL 402 = 7.560,- Útvarps- og kassettutæki m/50 W magnara - 3 bylgjur. Síðumúla 2 — sími 39090 og nýtt 689090.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.