Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Qupperneq 21
20 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987. MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ Í987. 21
fþróttir DV DV íþróttir
„Sváfum á
„Þetta var ágætisleikur en þó er ég
ekki sáttur við úrslitin," sagðí Guðni
Kjartansson aðstoðarlandsliðsþjálf-
ari cftir viðureignina í gærkvöldi.
„Auðvitað hefði ég helst kosið sig-
ur en augnabliks einbeitingarleysi
verðinum"
kostaði sitt. Þeir jöfnuðu á meðan
við sváfum á verðinum. Annars fór
íslénska liðið sér hægt í byyjun en
þegar á leið óx því ásmegin. Betri
leikur sigldi þannig i kjölfar aukins
sjálfstrausts. -JÖG
■
• Guðmundur Torfason var ekkert að tvínóna við hlutina þegar
hann tók víti i gærkvöldi heldur þrumaði boltanum inn. Á stóru
myndinni sést boltinn þenja netmöskvana eftir fyrra víti Guð-
mundar. Á innfelldu myndinni sést þegar Guðmundi Steinssyni
var brugðið í seinni hálfleik og fiskaði hann þar sitt annað víti.
Hér til hliðar sést Menzo, markvörður Hollendinga, uppi á baki
Ágústs Más en Menzo stundaði mjög þann leik.
DV-myndir Brynjar Gauti og Gunnar Sverrisson
„Völlurinn var
mjög lélegur“
„Eg er aldrei ánægður með jafh-
tefli gegn smáþjóðum eins og
íslandi, Möltu eða Kýpur. Við van-
mátum ekki íslenska liðið. Við
vissum að það yrði erfitt og það
kom á daginn,1' sagði Rinus Mic-
hels, þjálfari Hollendinga, eftir
leikinn. Hann var ekki ánægður
með úrslitin kvað aðstæður hafa
verið sla-mar til að leika knatt-
spymu. „Leikurinn þróaðist
þannig að bæði liðin voru farin að
íeika „enska" knattspymu með til-
heyrandi langspyi-num. Það var
náttúrlega ekki skemmtilegt á að
horfa en völlurinn var mjög léleg-
ur.“
Þá var Michel ekki ánægður
með fyrri vítaspyrnudóminn.
„Fyrra atvikið var alls ekki víta-
spyma. Við héldum fyrst að
dómarinn hefði dæmt á íslenska
liðið og urðum því mjög hissa þeg-
ar við sáum vítaspymudóminn.
Um seinna atvikið verður hins
vegar ekki deilt.
Michel sagði fyrst í stað að hann
hefði ekki tekið eflir neinum leik-
manni í íslenska liðinu en þegar
var gengið á hann hrósaði hann
bæði Friðriki og Guðmundi Torfa-
syni. „Vítin vom sérlega vel tekin
hjá honum.“ Ekki vildi Michel við-
urkenna að hollensku atvinnu-
mennirnir hefðu átt að sigra
íslensku áhugamennina. „í svona
leik verður oft lítill munur á at-
vinnu- og áhugamönnum.“
-SMJ
Þrumuvíti tryggðu stigið
- þegar íslendingar gerðu jafntefli við Hollendinga í undankeppni ólympíuleikanna
íslendingar og Hollendingar skildu jafn-
ir, 2-2, í undankeppni ólympíuleikanna
í knattspymu á Laugardalsvellinum í
gærkvöldi. Þegar á heildina er litið
verða þessi úrslit að teljast góð. Að ís-
land skuli geta stillt upp jafnsterku
B-liði og raun ber vitni er í raun ótrú-
legt og ber vott um meiri breidd í
íslenskri knattspymu en margir hafa
þorað að vona.
Upphaf leiksins í gær gaf ekki tilefni
til mikillar bjartsýni. Leikur íslenska
liðsins var ráðleysislegur og fyrsta hálf-
tímann yfirspiluðu léttleikandi Hollend-
ingar það. Fyrsta mark Hollendinga,
sem kom á 13. mínútu, var um margt
dæmigert. Hennie Mayer braust
áreynslulaust upp hægri kantinn og
sendi boltann fyrir þar sem Jurry Kool-
hof afgreiddi boltann örugglega inn af
markteig.
Það var ekki fyrr en rúmlega hálftími
var liðinn af leiknum að íslendingar
komust inn í leikinn og var það fyrir
tilstilli óvæntrar en að öllum líkindum
sanngjarnrar vítaspymu. Eftir hom-
spymu klifraði Stanley Menzo, mark-
vörður Hollendinga, upp á bakið á
Guðmundi Steinssyrii til að kýla boltann
frá og írski dómarinn hafði rögg í sér
til að dæma víti. Vissulega umdeilanleg-
ur dómur en alls ekki ósanngjam.
Guðmundur Torfason tók vítaspymuna
og þrumaði boltanum inn af þvílíkum
krafti og grimmd að stuna fór um áhorf-
endur. Greinilegt að Guðmundur var
orðinn hungraður í að skora mörk. Við
markið jókst sjálfstraust íslenska liðsins
til mikilla muna.
Það vom ekki nema átta mínútur liðn-
ar af seinni hálfleik þegar Guðmundur
Torfason hafði fært Islendingum forystu.
Eftir langa sendingu ffarn völlinn náði
Guðmundur Torfason einu sinni sem
oftar að framlengja knöttinn og eftir
mistök í hollensku vörninni var Guð-
mundur Steinsson kominn á auðan sjó.
Hollendingar bmgðu á það ráð að skella
honum og Daly dæmdi aftur víti. Guð-
mundur Torfason tók að sjálfsögðu
vítaspymuna og endurtók leikinn og
þrumaði boltanum inn án þess að Menzo
kæmi neinum vörnum við.
En fagnaðarlæti íslendinga, jafht inn-
an sem utan vallar, vom varla þögnuð
þegar Hollendingar höfðu jafnað. Eftir
að há fyrirgjöf hafði verið skölluð frá
kom Mario Been og þrumaði boltanum
inn af 20 metra færi án þess að Friðrik
kæmi vömum við. Staðan því orðin 2-2
og 35 mínútur voru eftir af leiknum.
Ekki urðu mörkin fleiri og geta liðin
þakkað það markvörðum sínum. Sér-
staklega var ffammistaða Friðriks í
íslenska markinu góð og sýndi hann og
sannaði að frábær leikur hans gegn ítal-
'íu var engin tilviljun. Guðmundarnir
tveir í fremstu víglínu áttu einnig mjög
góðan dag og sköpuðu oft vandamál í
hollensku vöminni. Þeir virtust hafa
mikla ánægju af því að spila saman og
verður að teljast undarlegt að vegur
þeirra skuli ekki vera meiri erlendis en
raun ber vitni. Pétur barðist vel á miðj-
unni en frámmistaða annarra miðjuleik-
manna olli vonbrigðum. í vöminni vom
Ágúst Már og Guðni bestir.
-SMJ
„í góðu lagi að
þruma á markið“
- sagði fallbyssan Guðmundur Torfason
Guðmundur Torfason lék mjög vel
með íslenska liðinu í gærkvöldi. Fór
pilturinn vel með bolta, sendi hanri frá
sér á fyrsta takti þegar við átti og
skóp margsinnis hættu við mark
þeirra Niðurlendinga með hraðanum
sem slíku fylgdi. Þá er Gummi hár í
loftinu og vann ófá einvígin við hol-
lensku snillingana.
„Við stóðuin okkur með sóma,“ sagði
Gummi Torfa í spjalli við DV eftir leik-
inn.
„Samt ei- ég aldrei sáttur við annað
en sigur. I raun erum við hálfsvekkt-
ir, sérlega með jöfhunarmark þeirra.
Því má þó ekki gleyma að Hollending-
ar eru með gífurlega sterkt lið, í því
leika margir Evrópumeistarar sem
kunna að fara með bolta."
- Nú vöktu fimafastar vítaspyrnur
þínar mikla athygli. Er það ekki
dirfska að þruma boltanum með slíku
afli af svo stuttu færi?
„Ef maður veit hvert boltinn fer þá
er í góðu lagi að þruma á markið.
Markmaðurinn á þá minni möguleika
á að eygja boitann fyrr en hann liggur
í netinu.“
- Þú virðist í góðri leikæfingu.
„Ég er í mjög góðu formi um þessar
mundir, hef æft reglulega og vel á sið-
ustu vikum og mánuðum.
- Er eitthvað til í því sem fram hefur
komið í fjölmiðlum að þú sért á förum
frá belgíska félaginu Beveren?
„Ég er óánægður hjá Beveren og vil
ekki tjá mig að öðm leyti um þetta
mál.“ -JÖG
Góður leikur hjá íslandi
- segir Sigi Heid landsliðsþjáifari
„Þetta var góður leikur hjá íslenska liðinu
sem lék mjög agað,“ sagði Sigi Held lands-
liðsþjálfari. Hann kvað íslenska liðið b.afa
leikið til sigurs í leiknum og úrslitin vera
mjög viðunandi. „Hollendingar em með
mjög sterkt lið. í liðinu em nokkrir þeirra
sem urðu Evrópumeistarar með Ajax um
daginn og það segir sína sögu.“
- Lék einhver sig inn í íslenska A-landslið-
ið í dag með frammistöðu sinni?
„Það er nú töluverður munur á atvinnu-
mönnum og áhugamönnum og það verður
að taka inn í myndina. Hins vegar vil ég
ekki vera að gera sérstakan greinarmun
á leikmönnum erlendis og hér heima
þetta eru allt íslendingar."
Held sagðist eiga erfitt rneð að nefna
frammistöðu einstakra leikmanna. Hann
gat þó sérstaklega frammistöðu Friðriks
Friðrikssonar sem hefði oft varið vel og
væri þetta annar leikurinn í röð sem hann
sýndi góða frammistöðu.
„Ég get ekki sagt til um hvort víta-
spymudómamir vom réttir en dómarinn
var mjög vel staðsettur í bæði skiptin. Jú,
auðvitað vom mikil vonbrigði að Hollend-
ingar skyldu jafna strax eftir seinna
markið,“ sagði Sigi Held. -SMJ
Lyftir Amór þrem titlum?
Kristján Bemburg, DV, Belgiu;
„Guðjohnsen með tak á kórónunni"
er fyrirsögn belgíska stórblaðsins Het
Nieuwsbladt nú eftir helgina. Amór
er nú aftur i liði vikunnar eftir leikinn
á móti Gent. Ekki nóg með það heldur
er hann orðin stigahæsti leikmaður
Belgíu með 58 stig samtals. Franky
Van der Elst er fast á hæla Arnórs
með 57 stig. Amór, sem nú á einn leik
eftir í deildakeppninni, á góða mögu-
leika á því að vinna þrefalt í Belgíu:
sem besti leikmaður Belgíu, marka-
hæsti leikmaður í 1. deild og síðan
verða að teljast góðir möguleikar á
að Anderlecht vinni deildina. Því get-
ur svo farið að Arnór lyfti þrem
bikurum en langt er nú liðið síðan
nokkur leikmaður hefur náð því.
„Deildin skiptir öllu“
„Ég legg alla áherslu á að vinna
deildina. Það er númer eitt en auðvit-
að væri gaman að vinna alla þessa
titla. Ég hef leikið vel í vetur og að
vinna titilinn væri hápunkturinn á
góðu tímabili. Nú í vikunni tala ég
aftur við framkvæmdastjóm And-
erlecht og ég vona að þeir taki tillit
til þess hvernig ég hef staðið mig í
vetur og geri mér gott tilboð. Þá skrifa
ég strax undir nýjan samning því að
á næsta tímabili vona ég að ég standi
mig betur en núna,“ sagði Amór sem
á nú góða möguleika á að verða fyrsti
íslendingurinn er verður markakóng-
ur í Belgíu.
-SMJ
Islenska liðið
stóð sig vel
- sagði Siggi Jons sem var meðal ahorfenda
„Ég verð að sega sem er að ég var
síður en svo ánægður með fyrri hálf-
leikinn hjá íslenska liðinu en þetta
lagaðist allt eftir hléið.“
Þetta sagði Sigurður Jónsson, at-
vinnumaður hjá Sheffield Wednes-
day, eftir viðureign íslendinga og
Hollendinga. Siggi var þar meðal
áhorfenda og hvatti íslenska liðið til
sigurs.
„Síðari hálfleikurinn var opinn og
ágætur á að horfa. íslenska liðið stóð
sig þá mjög vel. Engan mun gat ég
séð á þeim leikmönnum sem spila
hér heima og hinum tveimur sem
leika erlendis. Liðið var á heildina
litið mjög jafnt.“
-JÖG
j Sárgrætilegt
I jöfhunarmark
■ „Mér gekk ágætlega í þessum
I leik en það var hins vegar sár-
I grætilegt að fá þetta jöfhunarmark
* á sömu mínútunni og við tókum
I foi*ystuna.“ Þetta sagði Friðrik
_ Friðriksson, markvörður íslands,
I sem varði sem berserkur í leiknum
■ í gœr.
I „Það kom mér á óvart hversu
| lítill munur vai- á þessum liðum,
* því íslenska og því hollenska. Við
I enun bersýnilega ekki jafoslakir
* og margur vill vera láta.
| Leikurinn var að mínum dómi
* góður og það er sorglegt að sjá
I hálftóma áhorfendabekki þegm-
■ nýkrýndir Evrópumeistarai' koma
I hingað að leika. Á égjiar við leik-
I raenn Ajaxliðsins. Ég held að
■ enginn hafi verið svikinn af lands-
I leiknum í kvöld.
Z -JÖG
Brassasigur
Brasilíumenn unnu í gærkvöldi
þriggja landa keppni þar sem lið
þeirra glímdi við Englendinga og
Skota. Brassamir unnu einir sigur í
mótinu, lögðu Skota að velli í gær-
kvöldi með tveimur mörkum gegn
engu. Leiðina að netmöskvunum
fundu þeir fóstbræður Rai og Valdo.
Brasilíumenn höfðu allnokkra xffir-
burði þrátt fyrir að skoska liðið hafi
leikið mun betur en gegn Englend-
ingum fyrir skemmstu. -JÖG
Safnaðfyrir
móttökuskermi
Á morgun, uppstigningardag.
verðui- haldið fjáröflunarmót hjá
Golfklúbbi Revkjavíkur til kaupa á
sjónvarpsskermi á Golfskálann svo
hægt sé að taka á móti sjónvarps-
sendingum frá gervihnöttum og
horfa þannig á öll stærstu golfmótin
erlendis í beinni útsendingu. Leikin
verður punktakeppni með fullri for-
gjöf og ræst út frá klukkan níu.
Stoliðfrá
Sigga Sveins
- vegabréfi hans og atvinnuleyfi þar á meðal
„Þetta kemur sér ákaflega illa fvaár
mig. I töskunni voru allir mínir nauð-
sjmlegustu pappírar, atvinnulevfið í
Þýskalandi, vegabréfið og mai'gt fleira
auk um 70 þúsunda í peningum." sagði
handknattleiksmaðurinn Sigurður
Sveinsson í samtali við DV í gær.
Fyrir nokkrum dögum var Sigurður
staddur fyrir utan Sólheima 23 í
Reykjavík og varð þá fyrir barðinu á
illræmdum þjófi eða þjófum. ..Ég kom
að bifreið minni og lagði litla rauða
tösku á gangstéttina á meðan ég setti
dóttur mína inn í bílinn. Því næst ók
ég af stað og glevmdi töskunni á gang-
stéttinni. Þegar ég kom aftur á staðinn
nokkrum mínútum síðar var taskan''
horfin og ég hef ekkert séð til hennar
síðan. Ég vil nota tækifærið til að
skora á þann sem tók töskuna að koma
henni einhvern veginn í mínar hendur
og ég mun veita þeim hinum sama góð
fundarlaun." sagði Sigurður Sveins-
son. -SK
• Annað mark íslands í uppsiglingu. Árni Þ. Árnasson leikur á belgiska mark-'
vörðinn og skömmu síðar lá knötturinn i netinu.
DV-mynd Gunnar Sverrisson
Hræðilegar lokamínútur
- og Belgar tiyggðu sér sigurinn gegn unglingalandsliðinu
„Réttlát i
>•■kk l
viti i
„Ég er mjög ánægður með þessi I
úrslit, það var mikil barátta í ís- _
lenska liðinu og allir gerðu hvað |
þeir gátu,“ sagði Guðmundui- ■
Steinsson eftir leikinn í gærkvöldi. ■
Gummi gerði Niðurlendingum I
marga skráveifuna í gær og þeir 1
raunar honum: I
„Það vannst varla tími til að *
snerta boltann því Hollendingarn- |
ir voru sífellt sparkandi aftan á ■
mann. Pústrar af því taginu em I
þó hlutir sem maður má búa við,“ I
sagði Gummi. ■
Guðmundur sagði jafhfi'amt að I
réttvísinni hefði verið fylgt eða *
fullnægt með vitaspymunum I
tveimur: -
„Dómarinn dæmdi réttilega víti |
í bæði skiptin. Það er því engin ■
ástæða til að véfengja úrskurð I
hans. í fyrra tilfellinu kastaði I
markvörðurinn mér frá markinu í *
sama mund og boltinn barst inn í I
vítateiginn. í það seinna var ég_
hins vegar sparkaður gróflega nið- |
ur í þann mund sem ég hugðist ■
skjóta.“ I
-JÖG |
„Ég er að sjálfsögðu ánægður með
leikinn og þá sérstaklega lokakaflann
þegar við vorum undir en strákamir
sýndu enga uppgjöf og unnu leikinn.
Við vissum að íslendingar >töu sterk-
ir. Því kom góður leikur þeirra mér
ekkert á óvart," sagði þjálfari ungl-
ingalandsliðs Belga. í samtali við DV
eftir að Belgar höfðu sigrað íslend-
inga, 3-2, i Evrópukeppni unglinga-
landsliða í Gai'ðabæ í gærkvöldi.
Það er alls engin skönmi að tapa
fyrir landi eins og Belgíu á knatt-
spymuvellinum en það var sannarlega
grátlegt í gærkvöldi. Islenska liðið var
yfir, 2-1, þegar aðeins 4 mínútur vom
til leiksloka en Belgum tókst á ótrú-
legan hátt að skora tvívegis og trvggja
sér þannig sigurinn.
„Það var grátlegt að tapa þessum
leik eftir að hafa verið svo nálægt tak-
markinu. Það setti óneitanlega strik í
reikninginn að við spiluðum einimi
færri mestallan síðari hálfleik og
strákarnir vom einfaldlega uppgefnir
í lokin," sagði Láms Loftsson, þjálfari
íslenska liðsins, eftir leikinn.
Skemmtilegur leikur
Leikurinn var í heild góður og
skemmtilegur á að horfa. Það var
greinilegt að islenska liðið ætlaði sér
ekkert annað en sigur. Á 12. mínútu
lá boltinn i netinu hjá Belgum en
mai'kið var dæmt af vegna rangstöðu.
Næstu mínútumar sóttu íslendingar
látlaust að en lítið gekk inni í víta-
teignum. Á 23. mínútu náðu Belgar
svo skyndilega forystunni er Spencer
Smolders brunaði fram og skaut
hörkuskoti í bláhorn íslenska marks-
ins. En íslendingum tókst að jafna
metin á 34. mínútu. Aukaspvrna var
dæmd á Belga. rétt utan vítateigs og
Haraldur Ingólfsson þnunaði boltan-
imi beint úr aukaspvmunni, vfir
vamarvegginn og efst upp í þaknetið.
lslendingar höfðu áfram undirtökin
í síðari hálfleik en með stuttu millibili
misstu þeir þrjá leikmenn út af vegna
áverka. Aðeins tveir varamenn fengu
að koma inn á og því lék liðið einum
fæn-i það sem eftir liföi af leiknum.
íslendingar náðu forystunni á 58. mín-
útu eftir vamarmistök hjá Belgum.
Ámi Þ. Ámason komst inn í sendingu
og var allt í einu á auðum sjó. Jung-
bloed kom úr mai'kinu en Ámi lék á
hann og renndi síðan boltanum auð-
veldlega í óvarið markið.
Eftir markið virtust íslendingai- hafa
leikinn í hendi sér. En á síðustu mínút-
unum hrökk allt í baklás. Á 86. minútu
komst einn leikmanna Belga upp að
endamörkum. gaf fy'rir þar sem Glenn
Dillens tókst að pota boltanum inn.
Og martröðin var ekki afetaðin þvi á
síðustu mínútu leiksins opnaðist ís-
lenska vörnin enn. Gustem gaf inn á
vítateig en þar beið Tom Golpaert
óvaldaður og skallaði í netið. Ósigur-
inn varð staðrevnd.
íslensku strákamir spiluðu ágæt-
lega og gerðu marga góða hluti á
vellinum. Margir framtíðarleikmenn
em bersýnilega í liðinu. Haraldur Ing-
ólfsson átti mjög góðan leik meðan
hans naut við. Þá áttu þeir Gunnlaug-
ur Einarsson og Bjami Benediktsson
sérlega góðan dag. Þormóður Egilsson
vakti einnig mikla athygli. Hjá Belg-
um var Tom Golpaert besti maður en
liðið er safn góðra einstaklinga sem
spila með toppliðum i Belgiu.
Dómarinn Smith frá Skotlandi, stóð I
sig ágætlega en lét þó leikmenn kom-
ast upp með fullmikla hörku.
-RR