Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987.
Fréttir
Japönsk sýningarverksmiðja í Þverholtinu:
Sól í hátækniframleiðslu
a gosi og öðrnrn dvykkjum
Fullkomnasta verksmiöja í heim-
inum til þess að framleiða drykkjar-
vörur í nýtísku umbúðir er að verða
til í Þverholtinu í Revkjavik. hjá Sól
hf. Þetta er fyrsta verksmiðja sinnar
tegundar og hún verður imr leið sýn-
ingarverksmiðja fyrir tvö japönsk
fyrirtæki vegna sölu bæði í Banda-
ríkjunum og Evrópu. Sól fer með
þessu í framleiðslu á gosdrvkkjum
og ýmsum öðrum drykkjum og jafn-
vel matvælum í vökva.
Núna í vikunni komu 60 blaða-
menn ■ og greinarhöfundar tækni-
tímaríta erlendis í heimsókn hingað
til lands á vegum Tetra Pak sem er
heimsþekkt imibúðafyrír-tæki. Þeir
skoðuðu verksmiðju Sólar sem er
hálfköruð og samkvæmt heimildum
DV datt alveg vfir suma þeirra þegar
þessi nýja tækni var kynnt þeim.
Verksmiðjan var sett saman í Jap
an og revnd þar. Þá var vinnsla
hennai' tekin upp á myndband og
það var sýnt stanslaust á Inter Pak
sýningunni sem haldin var nýverið
í Dússeldorf. Nú þegar er von á aðil-
mn víða að til þess að skoða verk-
smiðjuna þegar hún fer í gang,
jafnvel frá upprunalandinu, Japan.
Óstaðfestar fregnir af fyrirætlun-
um Sólar hf. í gosdrykkjaframleiðslu
hafa valdið nokkuiri spennu meðal
núverandi gosdiykkjaframleiðenda
hér. Davíð Scheving Thorsteinsson
forstjóri hefur haldið mikilli leynd
yfir áætlunmn fyrirtækisins varð-
andi nýju verksmiðjuna og vill enn
ekkert staðfesta um það hvers konar
gosframleiðsla verður tekin upp.
-HERB
Töluvert um böm
á fjórhjólunum
Notendur fjórhjóla eru hvattir til nærgætni við gróður og náttúru landsins.
Samkvæmt upplýsingum. sem DV
hefiir fengið hjá lögi'eglunni víða um
land. er nokkuð mikið um að börn.
ailt innan við tíu ára aldur. séu að
leika sér á fjórhjólunum.
DV hafði samband við fjóra af þeim
aðilum sem flvtja fjórhjól til landsins
og samkvæmt þein-a upplýsingum
hafa þeir flutt inn á annað þúsund fjór-
hjól. 1. apríl síðastliðinn tók gildi
reglugerð um skráningarskyldu fjór-
hjólanna. Hjá Bifreiðaeftirlitinu
fengust þær upplýsingar að aðeins
væri búið að skrá 120 fjórhjól. Svipaða
sögu er að segja annars staðar af
landinu. Til að aka fjórhjóli þarf öku-
maður að vera með póttindi á létt bifjól
(skellinöðru) en á því hefur verið mik-
ill misbrestur. Lögregluþjónar víða um
land hafa tekið mjög unga krakka á
hjólunum. jafhvel vngri en tíu ára.
Lögreglan á Seltjarnamesi sagði að
þeir væru nú þegar búnir að leggja
hald á þrjú fjórhjól. bæði vegna þess
að ekki hefði verið búið að skrá hjólin
og eins vegna réttindalevsis öku-
manna eða barna. Það skal tekið fram
að ástandið á Seltjarnamesi er hvorki
betra né verra en annars staðar á
landinu.
í DV i gær var sagt frá því er lögregl-
an í Keflavík hafði afskipti af sautján
mönnum á jafnmörgum fjórhjólum
innan landgræðslugirðingar í Litlu-
Sandvík. Svipað henti hjá lögreglunni
á Hvolsvelli, þar þurfti að hafa af-
skipti af fjórhjólamönnum innan
landgræðslugirðingar í Þykkvabæ.
Friðjón Guðröðarson sýslumaður
sagði við DV að skemmdir hefðu að
vísu ekki orðið miklar og sagðist hann
vona að þær væm ekki óbætanlegar.
„Þetta er kaosmál.“ sagði Friðjón þeg-
ar hann var spurður hvort ekki þyrfti
að hafa mikil afskipti af fjórhjólunum.
Sölumaður hjá einu af umboðunum
sem flytja inn hjólin sagði að vissulega
væri það furðulegt að hvergi mætti
aka þessum hjólum þar sem innheimt-
ur er af þeim vegaskattur eins og
öðrum farartækjum en fjórhjólin
mættu samt ekki á vegina koma.
-sme
Fjorhjolin:
Takmórkun á
notkun vegna
umferðar-
öryggis
I frétt sem dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið hefur sent frá sér vegna
gagnrýni sem fram hefur komið á
reglur um skráningu fjórhjóla, og
vegna frétta af akstri þessara öku-
tækja utan vega og spjöllum á
gróðri af þeirra völdum, vill ráðu-
neytið benda á eftirfarandi.
„Reglur þær sem ráðuneytið setti
voru settar á grundvelli gildandi
umferðarlaga með tilliti til um-
ferðar og umferðaröryggis og með
hliðsjón af ákvæðum í nýjum um-
ferðarlögum sem samþykkt voru á
síðasta Alþingi. Takmörkun á
notkun þessara tækja er því ein-
göngu gerð vegna umferðarörygg-
is. Reglurnar fjalla hins vegar ekki
um akstur út frá öðrum sjónarmið-
um, svo sem gert er í náttúruvemd-
arlögum. Að því leyti gilda um
akstur fjórhjóla sömu reglur og um
önnui- ökutæki."
Ráðuneytið bendir á að sam-
kvæmt ákvæðum náttúruvemdar-
laga og náttúruverndarreglugerð-
ar skal öllum „skylt að sýna varúð
svo að náttúm landsins sé ekki
spillt að þarflausu" og „bannaður
er allur óþarfa akstur utan vega
eða merktra vegaslóða, þar sem
hætt er við að spjöll hljótist á nátt-
úru landsins“.
I lok fréttar dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins segir „ráðuney-
tið hvetur alla notendur torfæm-
tækja til að temja sér nærgætni
við gróður og náttúm landsins
þannig að eigi þurfi að koma til
afskipta lögreglu.
-sme
Get dæmt störf Hannesar hlutlaust
- segir Ólafur Ragnar Grímsson
„Mér finnst ég ekki vera vanhæfur
og ástæðumar, sem upp eru gefnar
í bréfi lögmanns Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar, finnast mér
heldur léttvægar. Þar er nefnt sem
eitt dæmi af þremur, sem tilgreind
em, góðlátlegt grín sem ég gerði að
honum í skemmtiræðu á árshátíð
háskólakennara, þar gerði ég grín
að fjölda manns, meðal annars sjálf-
um mér. Ég tel mig fullkomlega geta
lagt hlutlaust og fræðilegt mat á
störf Hannesar Hólmsteins og ann-
arra umsækjenda, annars hefði ég
ekki tekið að mér að sitja f dóm-
nefndinni," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson. Eins og áður hefur verið
sagt frá í DV hefur lögmaður Hann-
esar Hólmsteins Cissurarsonar
mótmælt skipun dómnefndar til að
fjalla um lektorsstöðu í stjórnmála-
fræði á þeim forsendum að dórn-
nefndarmenn séu vanhæfir.
Osammála meqinkröfu bréfs-
ins
„Meginkrafan í bréfinu er sú að
ekki verði skipuð nein dómnefnd
yfir höfuð. Þvf er ég ósammála og
tel grundvallaratriði að hæfni
manna sé metin. Félagsvísindadeild
hefur alltaf skipað dómnefndir til að
fjalla um hæfni umsækjenda f fastar
kennarastöður og það á að vera ófrá-
víkjanleg grundvallarregla að
enginn sé skipaður f embætti við
Háskóla íslands nema fræðileg dóm-
nefnd hafi fjallað um störf umsækj-
enda. Þessu má ekki rugla saman
við það hverjir eigi að sitja í nefnd-
inni sem getur verið álitamál hverju
sinni. Hins vegarer líka alveg spurn-
ing hvort menn vilji yfir höfuð sitja
í dómnefnd þegar einhver umsækj-
anda tortryggir störf hennar," sagði
Ólafur Ragnar en sagði að þetta
þýddi ekki að hann ætlaði að segja
af sér. „Um þann þátt verður fjallað
innan félagsvísindadeildar áður en
það kemur í fjölmiðlum."
Menn sækjast ekki eftir dóm-
nefndarsetu
Að sögn Ólafs Ragnars er það
nokkuð almennt að menn sækist
ekki eftir dómnefndarsetu við Há-
skólann enda erfitt verk. „Ég held
að enginn okkar hafi sóst eftir að
sitja í nefndinni en hérlendis eru
ekki margir menn sem geta gefið upp
fræðilegt álit í þessari grein. Ég hefði
kosið að erlendir fræðimenn sætu í
dómnefnd en þá verða stjórnvöld að
vera reiðubúin að borga þýðingar á
innlendum ritsmíðum umsækjenda
og annan kostnað sem er samfara
því. Það má alveg benda á að það
verður leitað til erlendra prófessora
um mat á ritverkum umsækjenda
sem lögð voru fram á erlendum mál-
um og geta má þess að doktorsrit-
gerð Hannesar er skrifuð á ensku,“
sagði Ólafur Ragnar.
Telur vegið að sér sem fræði-
manni
Ólafur sagðist telja að vegið væri
að sér sem fræðimanni með vissum
hætti með þessu bréfi en hann tæki
það ekki nærri sér þar sem rökin
væru léttvæg.
Er málatilbúnaður Hannesar pólit-
ísks eðlis?
„Ég hef enga ástæðu til að ætla
það.“
Krafa Hannesar Hólmsteins verð-
ur tekin fyrir á deildarfundi i félags-
vísindadeild á fimmtudaginn og að
sögn Þórólfs Þórlindssonar deildar-
forseta verður sennilega tekin
afstaða til hennar og hún afgreidd.
-JFJ