Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1987, Side 20
20 LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1987. Knattspyma unglinga Boltinn byrjaður að rúlla hjá yngri flokkunum Nú er íslandsmótið hjá yngri flokkunum í knattspyrnu nýlega hafið og í vikunni byrjar boltinn að rúlla á fullri ferð í öllum flokkum um allt landið. Þá munu unglingar eltast við þann hnöttótta á gras- og malarvöllum víða um land en eins og margir vita er íslandsmótið í knattspyrnu langum- fangsmesta íþróttamót sem haldið er hér á landi. DV mun að sjálfsögðu gera unglingaknattspyrnunni góð skil í sumar eins og undanfarin ár og framvegis verður heil opna um yngri flokkana hér í helgarblaðinu. Vonandi sjá sem flestir sér fært að fara á leiki yngstu kynslóðarinnar í sumar og líta framtíðarmenn í íslenskri knattspyrnu augum. -RR Fyrra mark Keflvíkinga staðreynd. Árni Vilhjálmsson (nr. 8) sendir knöttinn framhjá markmanni Fram og í netið. DV-mynd Þorsteinn Auðólfur KR-ingar skoruðu 5 mörk í lokin og unnu stóran sigur gegn FH Fyrsti leikur íslandsmótsins í 5. flokki fór fram á Kaplakrikavelli um mánaðamótin og leiddu þá saman hesta sína lið FH og KR. FH-ingar urðu íslandsmeistarar í þessum ald- ursflokki í fyrra og hafa því titil að verja í sumar. En titilvömin fór ekki sem best af stað því FH-ingar stein- lágu fyrir KR-ingum í þessum leik en báðum þessum liðum er spáð mik- illi velgengni. Leikur liðanna var stórskemmti- legur og mörg gleesileg mörk litu dagsins ljós á grasvellinum í Kapla- krika. KR-ingar, sem eru nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar, hófu leikinn mun betur en það voru þó heima- menn sem skoruðu fyrsta markið og var þar á ferðinni Jón Gunnar Gunnarsson. KR-ingar jöfauðu með marki Andra Sveinssonar og í hálf- leik var staðan 1-1. Jafhræði var með liðunum framan af síðari hálfleik og liðin skiptust á að sækja en KR-ingar vom mim aðgangsharðari. Það var því nokkuð gegn gangi leiksins þegar FH-ingar náðu forystimni á nýjan leik. Jón Gunnarsson var aftur á ferðinni og skaut hörkuskoti af löngu færi sem hafaaði í netinu án þess að mark- vörður KR-inga ætti möguleika að verja. Fögnuður FH-inga var mikill en sá fógnuður stóð stutt því 5 mín- útum síðar jöfauðu KR-ingar metin með marki Andra Sigþórssonar. Eft- ir markið var allur vindur úr FH-ingum og var sem leikmenn væm hreinlega búnir að gefast upp. KR-ingar gengu á lagið og hreinlega kaísigldu Hafafirðinga á síðustu 15 mínútum leiksins. Andri Sigþórsson skoraði tvö mörk til viðbótar og þeir Valgeir Guðjónsson og Gestur Páls- son bættu hvor sínu markinu við og stórsigur KR var staðreynd. Það er ljóst að KR-ingar hafa á að skipa geysilega sterku Hði og eft- ir úrslitum í Reykjavíkurmótinu að dæma þá virðist ekkert lið standast þeim snúning. Það yrði þvi ekkert óvænt þó að liðið mundi hampa Is- landsmeistaratitlinum í 5. flokki í haust. FH-ingar verða án efa einnig í toppbaráttunni í sumar þrátt fyrir skell í fyrsta leik. Liðið hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku síðan í fyrra en margir efailegir leikraenn hafa komið upp í flokkinn og þurfa FH- ingar ekki að örvænta um framtíð- ina. Dómari var Helgi Halldórsson og dæmdi hann leikinn sérstaklega vef. Maður leiksins: Andri Sigþórsson, KR. -RR Framsigur í Keflavík Leikir í 2. flokki hófúst um síðustu helgi með nokkrum hörkuleikjum. Stórleikurinn í A-riðli var leikinn í Keflavík og áttust þar við heimamenn og Framarar. Leiknum lauk með naumum sigri Fram, 8-2, eftir að stað- an í hálfleik hafði verið 1-1. Leikur liðanna var mjög jafa allan tímann en það voru gestimir sem náðu foryst- unni með marki Jóns Guðjónssonar strax á 4. mínútu. Keflvíkingar náðu að jafaa metin á 30. mínútu þegar Ámi Vilhjálmsson komst inn fyrir vöm Fram og skoraði af stuttu færi. Skömmu síðar var mark tekið af Frömurum svo að staðan var jöfa í leikhléi. I síðari hálfleik hélt spennan áfram og bæði lið sköpuðu sér þokkaleg færi. Keflvíkingar komust yfir þegar Ein- varður Jóhannsson skoraði gott mark um miðjan seinni hálfleik. En þá tók Helgi Björgvinsson til sinna ráða og jafaaði metin fyrir Fram og undir lok leiksins var Helgi síðan aftur á ferð- inni og skoraði sigurmark Fram. Valsmenn skoruðu sjö gegn Fylki í B-riðli léku Valur og Fylkir og var sá leikur ekki eins jafa og leikurinn í Keflavík. Valsmenn höfðu algera yfirburði og unnu stóran sigur, 7-1. Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir Vals- menn en það vom Fylkismenn sem náðu þó forystunni í leiknum. Síðan fór Valsvélin í gang svo um munaði og Fylkismenn áttu sér aldrei viðreisn- ar von. Baldur Bragason og Þórður Bogason skomðu tvö mörk hvor en þeir Steinar Adólfeson, Einar Tómas- son og Gunnar Valsson gerðu eitt mark hver. -RR Takmarkið að komast í úrslit Eftir leik Vals og Stjörnunnar tók blaðamaður DV þá Inga Þórðarson og Jömnd Sveinsson tali, en auk þess að vera leikmenn Stjömunnar hafa þeir báðir' leikið í íslenska drengja- landsliðinu. Ingi Þórðarson: „Við hefðum átt að vinna leikinn og það var klaufalegt að tapa öðm stiginu í þessum leik. Mér fannst Valsliðið ekkert sérstakt og reyndar bjóst ég við því sterkara. Sumarið leggst mjög vel í mig en það er ljóst að það verður erfitt að verja titilinn í 3. flokki. Raunhæft markmið er að komast í úrslitakeppnina og ég vona að við náum einhverju af fiórum efetu sætunum. Persónulegt markmið hjá mér er að reyna að halda sæti mínu í drengjalandsliðinu, það yrði vissulega mjög gaman.“ Jömndur Á. Sveinsson: „Við vorum klaufar að vinna ekki Valsmenn í þessum leik því við vorum betra liðið. Þetta verður áreiðanlega erfitt sumar en við munum gera okkar besta í að verja titilinn. Svo er auðvitað persónu- legur metnaður í manni og það er um að gera að standa sig,“ sagði Jömndur að lokum. -RR Þeir félagar, Ingi Þórðarson og Jörundur Á. Sveinsson, ætla að verja titilinn fyrir Stjörnuna í sumar. DV-mynd Þorsteinn Auðólfur Jafnt hjá Val og Stjörnunni í baráttuleik á Hlíðarenda Hart barist inn í vítateig Valsmanna í leik Vals og Stjörnunnar. DV-mynd Þorsteinn Auðólfur Valur og Stjaman leiddu saman hesta sína í A-riðli 3. flokks á Vals- velli á þriðjudagskvöld og lauk leiknum með jafatefli, 1-1, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 0-0. Leikurinn einkenndist af mikilli bar- áttu beggja liða og ljóst var strax í byrjun að bæði lið ætluðu sér ekkert annað en sigur. Það setti þó ljótan svip á leikinn að enginn dómari mætti til leiks og tafðist leikurinn því um 20 minútur en þá tókst Vals- mönnum loksins að ná í dómara. Það er leiðinlegt að atvik eins og þetta skuli gerast í íslandsmóti og lýsir þetta einungis kæmleysi hjá félög- um að boða ekki dómara tímanlega til leiks. Stjörnumenn, sem urðu íslands- meistarar í þessum aldursflokki í fyrra, vom mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en áttu í erfiðleikum með að komast í gegn um sterka vöm Valsmanna. Gunnar Erlings- son átti hörkuskot rétt yfir mark Valsmanna á 25. mínútu og skömmu fyrir leikhlé var Gunnar aftur á ferð- inni og átti góðan skalla að marki eftir homspymu en markvörður Vals var vel á verði og bjargaði meistaralega í hom. í síðari hálfleik hélt sókn Stjörn- unnar áfram og á 55. mínútu uppskám þeir loks árangur erfiðis- ins. Kjartan Kjartansson gaf þá fallega sendingu á Magnús Schram sem afgreiddi boltann beint í netið og Stjömumenn þá komnir yfir. Garðbæingar gerðu þá þau afdrifa- ríku mistök að bakka og gefa Valsmönnum eftir miðjuna og við það fóm Valsmenn að ná betri tök- um á leiknum. Á 67. mínútu dæmdi dómarinn umdeilda vítaspymu á Stjömuna og úr vítinu skoraði Skúli Egilsson og jafaaði þar með leikinn fyrir Valsmenn. Síðustu mínútumar sóttu liðin síðan til skiptis og fengu bæði lið ágætis marktækifæri en fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. f liði Stjömunnar em margir stór- góðir einstaklingar og nægir þar að nefaa drengjalandsliðsmennina, Jör- und Á. Sveinsson og Inga Þórðarson, sem geta þó leikið betur en þeir sýndu í þessum leik. Jón Guðjónsson var besti maður liðsins að þessu sinni og þá var Gunnar Erlingsson skæður. Umsjón: Róbert Róbertsson Valsliðið getur einnig sýnt meira en það gerði í þessum leik. Mest bar á Skúla Egilssyni en aðrir léku und- ir getu. Maður leiksins: Jón Þórðarson, Stjömunni. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.