Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1987, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987.
3
DV
Fréttir
Eifiðleikar framundan í loðnuveiðum og vinnslu
Loðnuverðið hlýtur
að lækka verulega
- segir Jónas Jónsson, varaformaður verðlagsráðs sjávarútvegsins
„Það er alÝeg ljóst að loðnuverðið
hlýtur að lækka verulega frá því sem
það var i fyrra. Þá var verðið frjálst
' og voru að jafhaði greiddar 1800 til
2.000 krónur fyrir tonnið. Tap á
bræðslunni í fyrra nam 8%. Síðan þá
hefur olía hækkað um 25% og laun
varla minna en verð á loðnuafurðum
hefur staðið í stað á heimsmarkaði.
Það er því útilokað annað en verðið
lækki,“ sagði Jónas Jónsson, forstjóri
Síldarverksmiðjunnar í Örfirisey og
varaformaður verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, í samtali við DV.
Jónas sagðist vera því hlynntur að
loðnuverðið yrði áfram frjálst en full-
trúar Síldarverksmiðja ríkisins væru
því andvígir. Til þess að hægt sé að
gefa verðið frjálst þurfa allir aðilar að
vera þvi samþykkir.
„Það er því ekki um annað að gera
en ákveða verðið í verðlagsráði og
fundur í ráðinu hefur verið boðaður á
föstudaginn kemur,“ sagði Jónas.
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, sagði að
sjómenn vildu að verðið yrði áfram
frjálst. Hann sagði ljóst að með því
að hætta við frjálst loðnuverð ætluðu
verksmiðjumar að pína verðið niður.
„Þá um leið hefjast greiðslur undir
borðið eins og var áður en verðið var
gefið frjálst í fyrra,“ sagði Óskar.
Jónas Jónsson sagði að verð á lýsi
væri nú lægra en það hefði nokkru
sinni verið, eða um 200 dollarar tonn-
ið. Verð á mjöli hefði aðeins hækkað
en á móti kæmi lækkun dollarans
þannig að það stæði í stað í raun og
veru. Hann sagðist ekki eiga von á
því að mjöl og lýsi hækkuðu í verði í
nánustu framtíð.
„Það er einkum landbúnaðurinn í
Evrópu sem notar þessar vörur og
hann er á heljarþröm, sem alkunna
er, og getur ekki greitt hærra verð en
nú er fyrir mjöl og lýsi. Meira að segja
hefur verð á sojamjöli og pálmaolíu
lækkað frá því sem það var í fyrra,“
sagði Jónas.
Útlitið er því annað en bjart hvað
loðnuveiðunum viðkemur en þær hefj-
ast ekki af neinum krafti fyrr en í
. október jafnvel þótt nýtt loðnuverð
sæi dagsins ljós þar sem loðnað heldur
sig enn við Jan Mayen.
-S.dór
Loðnunæturnar eru i haugum úti í Örfirisey og mega sjálfsagt liggja ein-
hverjar vikur enn jafnvel þótt nýtt loðnuverð verði ákveðið fljótlega þar sem
enn er of langt á miðin. DV-mynd Brynjar Gauti
Flugslysin:
Enn í
rann-
sókn
„Við erum rétt að byija rann-
sóknina og hún tekur alltaf
einhveija mánuði, 2 mánuði hið
minnsta," sagði Karl Eiríksson,
formaður fiugslysanefhdar, þegar
hann var inntur eftir því hvemig
rannsókn á flugslysinu við
Blönduós miðaði.
-Haföi veðrið einhver áhrif ?
„Þú veist hvemig veðrið var og
getur sagt þér það sjálfur og þarft
því ekki að spyija. Annars vil ég
ekkert láta hafa eftir mér f'yrr en
að rannsókn lokinni,“ sagði Karl.
Varðandi fiugslysið þegar land-
græðsluvélinni TF-TÚN hlekktist
á, við Gunnarsholt í Rangárvalla-
sýslu, sagði Karl að atvik þess slyss
lægju nokkuð Ijós fyrir. Byrjað
væri að vinna að drögum að
skýrslu og þar til hún kæmi út
vildi hann ekkert segja.
-JFJ
IMI5SAN VANETTE
sendibffreið með sætum
Eigum til fyrirliggjandi NI55AIM VANETTE sendibifreiðar.
Vanette er skráður fyrir fimm manns.
kV 1957-1987'
i?.? 1
Verð aðeins kr. 479.000. - Góð greiðslukjör
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560
EFGoodrich
Bjóðum nú þessi frábæru kjör:
A: Útborgun 25%
B: Eftirstöðvar á 4-6 mánuðum
LT 215/75R15 32xll.50R15LT 235/85R16LT
LT235/75R15 33xl2.50Rl5LT 31xl0.50Rl6.5LT
30x9.50R15LT 35xl2.50R15LT 33xl2.50Rl6.5LT
31xl0.50R15LT 255/85R16LT 35xl2.5Rl6.5LT
Einnig fólksbílahjólbarðar M4RTsf
Jeppadekkin sem duga.
Vatnagörðum 14, Reykjavík, s. 83188.