Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1987, Qupperneq 21
20
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
21
Iþróttir
„Stefiii á að komast
í átta manna úrslit“
Um Ivfið að tefla
- Undanúrslitin í Mjóikurbikamum fara fram í kvöld
í úrslHum
Þrír leikir fóru fram í gærkvöldi í
úrslitakeppni fjórðu deildar. I Bolung-
arvík glímdu heimamenn við Víkverja
og skildu liðin jöín, O ö.
Segja má að úrslitin hafi verið með
sanngjamara lagi. Liðin sóttu á víxl
en færin skorti. Þó ber þess að geta
að hvort lið átti skot í marksúlu.
Á gervigrasvellinum í Laugardal
áttust við Árvakur og Grótta. Fóru
Seltimingar með sigur af hólmi, 1-2.
Mark heimamanna gerði Bjöm Pét-
ursson en mörk Seltiminga skoraði
Sverrir Sverrisson.
Á Blönduósi léku loks Hvöt og HSÞc
Vom Hvatarmenn skæðari en tókst
þeim illa að nýta færin. Þó gerðu þeir
tvö mörk áður en yfir lauk. Mývetn-
ingar náðu hins vegar ekki að rétta
sinn hlut.
Mörk Hvatarmanna áttu þeir Ingvar
Magnússon og Axel Rúnar Guð-
mundsson. -JÖG
Undanúrslitin í Mjólkurbikamum
fara fram í kvöld. Mætast þá annars
vegar Fram og Þór á Laugardalsvelli
en hins vegar Víðir og Valur á Garðs-
velli.
Ljóst er að barist verður af heift
enda ræður staða liða litlu eða engu
um þegar glímt er í bikarkeppni.
Fram lék við Þór í undanúrslitum
bikarkeppninnar fyrir fáeinum árum,
leiktímabilið 1985. Þá sigraði Fram,
3-1, eftir tvísýnan leik og framleng-
ingu.
I Garðinum leika heimamenn og
Valur. Valsmenn hafa ekki sótt gull í
greipar Víðismanna á þessu leikári.
Tvívegis hafa liðin skilið jöfii, 1-1, í
bæði skiptin.
I spjalli við DV kvaðst Þorgrímur
Þráinsson, íyrirliði Valsmanna, bjart-
sýnn á hagstæð úrslit í Garðinum.
„Leikurinn leggst ákaflega vel í
mig,“ sagði hann. „Okkur hefur geng-
ið vel á útivöllum í síðustu umferðum
og sjálfur tel ég að þetta sé allt að
ganga saman hjá okkur. Það er betri
andi í liðinu en verið hefúr, það er
létt yfir mannskapnum. Mér er ljóst
að leikurinn verður erfiður og allt
getur gerst, þetta er, jú, bikarkeppni."
Gísli Eyjólfsson, Víðismaður, sagði
að allt yrði lagt í sölumar til að sigra
Val í kvöld. Kvað hann leikmenn hafa
tekið lífinu með ró ffá síðasta deildar-
leik.
„Þegar á hólminn verður komið
munum við hins vegar berjast til síð-
asta blóðdropa, enda viljum við sigur
og ekkert annað,“ sagði Gísli.
Þess má geta að báðir leikir hefjast
klukkan 18:30. Víst er að stuðnings-
menn allra liða, sem hlut eiga að máli,
munu þyrpast á völlinn. Valsmenn
efira til að mynda til sætaferða. Fara
rútur suður í Garð frá Hlíðarenda kl.
17:30.
-JÖG
Símamynd Reuter/Michael Urban.
Maradona í Hamborg
Stuðningsmenn ítalska knattspymufélagsins Napolí og aðdáendur knattspymukappans
Diego Maradona fögnuðu hetju sinnu á flugvellinum í Hamborg í gærkvöldi. Maradona
og félagar hans komu þá til Hamborgar til að leika vináttuleik gegn Hamburger í kvöld.
- segir Eðvarð Þór Eðvarðsson
„Ég held að þetta sé allt saman að
smella saman. Ég hef æft af fúllum
krafti í langan tíma en þessa dagana
er ég i hvíld. Ég finn þá hvað ég styrk-
ist allur og um leið léttist og er það
góðs viti,“ sagði okkar sterkasti sund-
maður, Eðvarð Þór Eðvarðsson, í
samtali við DV í gærkvöldi en hann
var þá á sinni síðustu æfingu fym-
Evrópumeistaramótið í sundi sem
hefst í Strasbourg í Frakklandi á
þriðjudaginn kemur. Talsverðar vonir
• Rudi Völler.
Öruggur sigur
V-Þjóðverja
Sigurður Bjömssan, DV, Þýskalandi:
Vestur-Þjóðverjar sigmðu Frakka,
2-1, í vináttulandsleik í Vestur-Berlín
í gærkvöldi. Þjóðverjar náðu tveggja
marka forystu eftir aðeins níu mínútna
leik og var Rudi Völler, sem nú leikur
með ítalska liðinu Roma, að verki í
bæði skiptin. Fyrra markið kom eftir
vamarmistök og hið síðara eftir horn-
spymu.
Fyrri hálfleikur var hrein einstefna
hjá Þjóðverja en Frökkum tókst að
klóra í bakkann rétt undir lok hálf-
leiksins. Cantona skoraði markið í
sínum fyrsta landsleik. Seinni hálfleik-
ur var rólegur. Frökkum tókst að
komast meira inn í leikinn án þess þó
að ógna verulega þýska markinu.
Áhorfendur vom 40 þúsund. -JKS
Arvakur lá
em bundnar við Eðvarð Þór á þessu
móti og má segja að hann sé sá eini
í íslenska landsliðshópnum sem á
raunhæfa möguleika að komast í aðal-
úrslit mótsins.
„Ég stefni að því að komast í átta
manna úrslit og vona að það takist.
Ég er á toppnum hvað æfingarform
snertir á árinu. Á síðasta Evrópumóti,
sem haldið var í Sofia í Búlgaríu, haffi-
aði ég í 7. sæti í 100 metra baksundi
og í því 9. í 200 metra baksundi. Ég
er miklu sterkari núna en það em lík-
lega allir þeir sem tóku þátt í mótinu
þá, sagði Eðvarð Þór ennfremur.
„Á Evrópumeistaramótinu í Stras-
bourg á ég í höggi við sterkustu
sundmenn heimsins í dag, þar á meðal
Sovétmanninn Igor Polianski og
Frank Hofimeister frá Vestur-Þýska-
landi svo það er við ramman reip að
draga. Ég vona bara að mér takist að
hanga í þessum köppum,“ sagði Eð-
varð Þór Eðvarðsson. -JKS
Andrei !
þríbætti |
heimsmetið |
í kúluvarpi j
ítalski kraftakarlinn Alessandro
Andrei gerði sér lítið fyrir í gær-
kvöldi og þríbætti heimsmetið. í
kúluvarpi. Þetta einstæða affek
átti sér stað á fijálsíþróttamóti í
Viareggio á ítaliu. Já, gamla metið
hans Udo Bayer ffá A-Þýskalandi,
22,64 m, sem hann setti 1986, var
þríbætt.
Andrei byjjaði á því að setja ítal-
skt met, 22,19 m, síðan kastaði
hann 22,37 m og í þriðja kasti sínu
flaug kúlan 22,72 m. Heimsmetið
var hans! Við þetta komst Andrei
í vígamóð og bætti metið í tví-
gang, 22,84 og 22,91 m. Þetta er
hreint ótrúlegt affek. öll kost hans
voru yfir 22 m. -SOS
• Landsliðshópurinn sem heldur til Strasbourg ásamt þjálfara og aðstoðarmanni. Frá vinstri Guðmundur Harðarson, Eðvarð Þór
Eðvarðsson, Magnús Ólafsson, Hugrún Ólafsdóttir, Bryndís Ólafsdóttir, Ragnheiður Runólfsdóttir Ragnar Guðmundsson, Amþór
Ragnarsson og Friðrik Ólafsson. Á myndina vantar Guðfinn Óiafsson.
DV-mynd Brynjar Gauti.
„Stefnan hefúr verið
tekin á OL-lágmörkin“
- segir Guðmundur Harðarson, landsliðsþjátfarí í sundi
Norðmenn sterkir
Norskir knattspymumenn höfðu í
nógu að snúast í gærkvöldi. A-lands-
liðið lék vináttulandsleik gegn Svíum
í Osló og lauk leiknum með marka-
lausu jafhtefli, 0-0. Áhorfendur voru
23 þúsund. í næsta mánuði leika Is-
lendingar gegn Norðmönnum í
Evrópukeppninni og má af úrslitunum
í gærkvölch ætla að Norðmenn séu
með sterkt landslið um þessar mundir.
• Ólympíulið Norðmanna lék gegn
Sovétmönnum i Moskvu i undan-
keppni ólympíuleikanna og báru lægri
hlut því Sovétmenn sigruðu, 1-0. Það
var Vladimir Lyuty sem skoraði eina
mark leiksins. Áhorfendur voru 40
þúsund.
-JKS
„Ég held að ég geti fyllyrt að ekkert
annað sundlandslið, sem farið hefur utan
á Evrópumeistaramót, hefur verið í eins
góðu formi og það sem fer að þessu sinni.
Æfingar fyrir mótið hafa gengið vonum
framar og allir eru í toppæfingu,“ sagði
Guðmundur Harðarson, landliðsþjálfari í
sundi, í samtali við DV í gærkvöldi.
í dag heldur íslenska landsliðið í sundi
til keppni á Evrópumeistaramótið sem
hefst í Strasbourg í Frakklandi nk. þriðju-
dag. Hópurinn ætlar að laga sig vel að
■aðstæðum ffam að keppni. Þetta er stærsti
hópur sem farið hefúr utan til keppni ff am
að þessu. í hópnum eru þau Eðvarð Þór
Eðvarðsson, Ragnar Guðmundsson,
Magnús Ólafsson, Ragnheiður Runólfs-
dóttir, Hugrún Ólafsdóttir og Bryndís
Ólafedóttir. Þátttökuþjóðir á Evrópu-
meistaramótinu verða 30 og margar af
þeim hafa á að skipa sterkustu sundmönn-
um heimsins í dag. Nokkrir þeirra eiga
núgildandi heimsmet.
„Ég held að það sé takmark flestra í
hópnum að ná ólympíulágmörkunum fyrir
þetta mót og það á vera raunhæfúr mögu-
leiki. Eðvarð Þór er sá eini sem náð hefur
lágmörkunum. Hann er einnig sá sem á
mestu möguleikana á að komast í átta
manna úrslitin og er búist við því ytra,
og jafnvel enn lengra, sem yrði út af fyrir
sig frábær árangur. En 20-40 keppendur
taka þátt í hverri sundgrein," sagði Guð-
mundur.
„Ég hef trú á því að nokkur heimsmet
líti dagsins ljós á þessu Evrópumeistara-
móti. Þama verða samankomnir nokkrir
af sterkustu sundmönnum heimsins í dag
og nægir þar að nefna Mikael Cross ffá
Vestur-Þýskalandi, heims- og ólympí-
meistara í nokkrum greinum. Sovétmenn
og Austur-Þjóðverjar verða einnig með
sína sterkustu menn, svo eitthvað sé nefnt.
Fyrir hönd okkar sundfólks vona ég að-
eins það besta. Allt sem er betra en á
síðasta móti er mjög góður árangur," sagði
Guðmundur Harðarson landsliðsþjálfari.
-JKS
Anderson fór á 250.000 pund
Eins og kunnugt er leikur enski
landsliðsmaðurinn Viv Anderson
með Manchester United á næsta
keppnistímabili. En hann var keypt-
ur frá Arsenal fyrir nokkru. Liðin
urðu ekki ásátt um kaupverðið
þannig að málinu var skotið til sérs-
taks dómstóls sem ákvað að
Manchester United þyrfti að greiða
Arsenal 250 þúsund fyrir kappann.
í upphafi vildi Arsenal fö 450 þúsund
pund en Manchester United greiða
100 þúsxrnd pund.
-JKS
Iþróttir
Þorvaldur varði víti
- á elleftu stundu og tryggði Leiftri jafntefli, 1-1
Priöbjöm Ó. Valtýssom, DV, Eyjuiti:
„Ég tók áhættuna - kastaði mér í rétt
hom og náði að verja,” sagði Þorvald-
ur Jónsson, hetja Leifturs frá Ólafe-
firði, sem gerði sér lítið fyrir og varði
vítaspymu frá Elíasi Friðrikssyni á
síðustu mín. leiks Eyjamanna og Leift-
ursmanna í 2. deildar keppninni þegar
þeir mættust í Eyjum í gærkvöldi.
Þar með koma hann í veg fyrir að
Leiftur tapaði. Leik liðanna lauk með
jafntefli, 1-1. „Við komum hingað með
það í huga að ná a.m.k. jafntefli. Náð-
um að leika skynsamlega og halda
knettinum þegar við átti. Eyjamenn
vom meira með knöttinn en við áttum
ekki færrri marktækifæri,” sagði Þor-
valdur, sem var maður leiksins.
Þorvaldur stjómaði vamarleik Leift-
urs eins og herforingi.
Ólafsfirðingar fengu óskabyijun.
Sigurbjöm Jakobsson skoraði með
skalla eftir aðeins tvær mín. en Hlyn-
ur Stefánsson náði að jafna, einnig
með skalla, á 17 mín. Bæði liðin áttu
síðan stangarskot. Eyjamenn vom
meira með knöttinn en sóknarleik-
menn þeirra vom ekki á skotskónum.
Mikil spenna var í lokin þegar Lúð-
vík Bergvinsson var felldur inn í
vítateig og vítaspyman dæmd á Leift-
ursmenn. Elías tók spymuna en
Þorvaldur sá við honum og náði að
kasta sér út við stöng og veija.
Leiftur með með tveggja stiga (24)
forskot á næstu lið, Þrótt, Selfoss og
Víking (22 stig), í 2. deildar keppninni.
-sos
Rangers
tapaði í
Edinborg
Heil umferð fór fram í skosku
úrvalsdeildinni í knattapymu í
gærkvöldi. Úrslit leikjanna urðu
sem hér segir:
Aberdeen-Morton.......3-1
Celtic-Hearts...........1-0
Dundee United-Motherwell.1-1
F alkirk-Dundee.........0-3
Hibernian-Rangers.......1-0
St.Mirren-Dunfermline...1-1
-JKS
5ssssr
UrKta0Úrsl.
■Æ&a,ramú t-'"leiKnu-á
^ ^.rskiptSk^
S»amÚre"1
« hefurskg^ft1^09 "ka
írslltumí ,,,
1ft3a
n
MJÓLKURDAGSNEFND