Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1987, Blaðsíða 32
32
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1987.
Erlendir fréttaritarar
Það er ekki bara ólga á Sri Lanka vegna samkomulagsins um sameiningu norður- og austurhluta eyjunnar.
Tamílar i Bonn i Vestur-Þýskalandi efndu til mótmælaaðgerða fyrir utan sendiráð Indverja þar.
Simamynd Reuter
Litlar líkur á
kyrrð á Sri Lanka
Jón Qrmur Halldórssan, DV, Landan:
Mikil spenna ríkir enn á Sri Lanka.
Vopnahlé hefur að miklu leyti verið
virt en ásakanir hafa þó gengið á
víxl í austurhéruðum landsins og
kom til almennra verkfalla þar um
helgina af þeim sökum.
Skæruliðar tamíla hafa afhent
talsvert af vopnum sínum en það er
þó að líkindum aðeins brot af því sem
þeir ráða yfir. Indversku hermenn-
imir, sem nú eru nálægt sex þúsund
að tölu á svæðum tamíla, fengu um
helgina í hendur vopn frá skærulið-
um í austurhéruðunum en tafir
höfðu orðið á því að þeir gæfu sig
fram.
Ójga í höfuðborginni
1 höfúðborginni Colombo er mikil
ólga undir niðri og virðast ílestir á
því að meiri hluti almennings sé
andvígursamkomulaginu. Leiðtogar
stjómarandstöðunnar hafa snúist
gegn því og búast margir við öldu
hermdarverka öfgamanna úr röðum
sinhalesa nú þegar hlé hefur orðið á
hermdarverkum tamíla.
Innan stjómarflokksins em vem-
leg átök um samkomulagið þó
ríkisstjómin sé nú öll að baki forset-
anum, opinberlega í það minnsta.
Inn í þau átök blandast átök milli
þriggja stjómmálamanna um hver
skuli erfa leiðtogasætið eftir forse-
tann, Jayawardena, sem er áttræður
að aldri.
Vopn í felum
Þó að skæmliðar tamíla hafi af-
hent talsvert af vopnum og leiðtogi
þeirra hvetji þá til uppgjafar virðast
allar líkur á því að þeir feli vopn í
miklum mæli og geri ráðstafanir til
þess að hefja vopnaða baráttu á ný
ef þeim sýnist þörf á slíku. Leiðtogi
skæmliðanna sagði eftir samkomu-
lagið að það væri aðeins gildra fyrir
tamíla og sýnist eins líklegt að hann
hafi að lokum fallist á samkomulag-
ið nauðbeygður frekar en af sann-
færingu um ágæti þess.
Sú saga gengur nú á Sri Lanka
að Jayawardena forseti hafi einung-
is fallist á tillögu Indverja um
sameiningu norður- og austurhéraða
eyjunnar, sem var meginkrafa ta-
míla, þar eð hann hafi talið sig geta
komið því í kring að slíkt samkomu-
lag yrði fellt í atkvæðagreiðslu í
austurhémðunum þar sem tamílar
em aðeins um flömtíu prósent íbú-
anna.
Litlar líkur á kyrrð
Margt bendir til þess að þetta geti
orðið raunin þar sem íslamskir ta-
mílar á þessu svæði virðast telja sig
eiga meiri samleið með búddatrúar-
mönnum af kynþætti sinhalesa en
með hindúískum tamílum. Ef þetta
verður niðurstaðan má búast við
hemaði að nýju frá hendi tamíla.
Ef austurhémðin verða hins vegar
sameinuð norðurhémðunum í óþökk
mikils hluta íbúa þeirra og hugsan-
lega meirihluta íbúa eyjarinnar
allrar verður friður í hættu frá hendi
sinhalesa.
Eins liggur lítið fyrir um hversu
viðtæk völd héraðsstjóm tamíla
muni í reynd fá og virðast því litlar
líkur á því að kyrrð verði á Sri
Lanka á næstunni þó blóðugu stríði
hafi linnt. Margir mánuðir munu
líða uns Ijóst verður hvort þama er
aðeins um vopnahlé að ræða eða
varanlegan frið.
Sameining slóni
flugfélaganna
enn möguleg
Jón Onmr Halldóresan, DV, Landon:
Sameining tveggja stærstu flugfélaga
Bretlands, British Airways og Bntish
Caledonian, er enn hugsanleg þrátt
fyrir ákvörðun viðskiptaráðherra
Bretlands að leita umsagnar nefndar
um hringamyndanir.
Nokkur önnur flugfélög munu að
líkindum gera tilboð í British Caledon-
ian og þar á meðal em tvö erlend
flugfélög, hollenska flugfélagið KLM
og bandaríska flugfélagið Northwest
Orient.
British Airways, sem er stærsta flug-
félag utan Bandaríkjanna og á al-
þjóðaleiðum stærsta flugfélag
heimsins, hefur barist hart fyrir þess-
ari sameiningu sem félagið telur
nauðsynlegt vegna sameiningar
margra bandarískra flugfélaga í fáein
risafyrirtæki og vegna aukinnar sam-
keppni frá stórum flugfélögum í Asíu.
British Caledonian, sem flýgur bæði
innan Evrópu og til staða í Afríku,
Asíu og í Bandaríkjunum, hefur átt í
vemlegum erfiðleikum að undanförnu
og ef ekki verður af sameiningu við
British Airways má heita ömggt að
félagið verði keypt af öðm flugfélagi.
British Caledonian er eitt af fjórum
stærstu flugfélögum Bretlands og hef-
ur eitt hinna, British Midland, sýnt
áhuga á að kaupa félagið og sömuleið-
is forráðamenn Air Europe. Hin tvö
stóm flugfélögin í Bretlandi, Britannia
Airways, sem er stærra en British
Caledonian og Dan Air, sem er litlu
minna, stunda einkum leiguflug en
hafa bæði mótmælt sameiningu Cale-
donian við British Airways.
British Airways er miklu stærra en
British Caledonian og mundi eftir
sameiningu verða langstærsta flugfé-
lag Evrópu með meira en tvö hundmð
farþegaþotur í fórum til hundrað og
fimmtíu borga í heiminum.
Félagið myndi einnig verða stærsta
fyrirtækið á Gatwick flugvelli við Lon-
don en það er nú með hátt í helming
af allri flugumferð um Heathrow flug-
völl. Félagið bendir hins vegar á að
það á í samkeppni við marga tugi flug-
félaga sem fljúga sömu leið. ítök í
þessum tveimur flugvöllum skipta
miklu máli þar sem hart er nú barist
um réttindi til flugs á mestu anna-
tímum dagsins en flugvellimir em
báðir mettaðir og þurfa um þessar
mundir að anna allt upp í átján hundr-
uð þotum á degi hvetjum.
I hungurverkfalli
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmaimaha&i:
Tuttugu og fjögurra ára gömul ísra-
elsk kona hefur undanfarið verið í
bráðri lífshættu vegna sex vikna
hungurverkfalls í Vestre fangelsinu í
Danmörku. Síðustu daga hefur hún
auk þess hætt að drekka vatn og því
verið undir ströngu eftirliti Iækna.
Ástæðan fyrir hungurverkfallinu er
hið afar hægfara réttarkerfi í Dan-
mörku. Var konan handtekin í ágúst
í fyrra vegna fíkniefhamáls og sat sjö
og hálfan mánuð í einangmn. Nýlega
sló Eystri landsréttur því föstu að mál
hennar yrði fyrst lagt fyrir kviðdóm-
endur í janúar næstkomandi. Þangað
til yrði hún að sitja í fangelsi.
Verjandi konunnar segir að með
hinum langa biðtíma sýni ákæmvald-
ið og landsrétturinn ábyrgðarleysi sem
gangi í berhögg við allar mannrétt-
indayfirlýsingar.
Israelska sendiráðið í Kaupmanna-
höfn hefur haft samband við dönsk
yfirvöld vegna málsins. Dómsmála-
ráðaherra Dana segir sautján mánuði
óæskilega langan biðtíma eftir dómi
og það sé hlutverk réttarkerfisins að
forðast langvarandi gæsluvarðhald.
Var málinu því flýtt í landsréttinum
en nú em það lögfræðingamir sem
ekki geta flýtt því og því óvíst um af-
drif konunnar.
Staldra stutft við
í skemmtigörðunum
Haukux L. Hauksson, DV, Kaupmaimahö&i:
Hið vætusama sumar hefúr ekki að-
eins eyðilagt fyrir útlendingum og
Dönum er kosið hafa að eyða sumar-
leyfi sínu í Danmörku í ár. Veitinga-
menn í Tívolí og á Dyrehavsbakken
(Bakkanum) hafa orðið fyrir barðinu
á gífurlegri fækkun gesta á þeim tíma
sem vanalega er mest að gera.
Einn veitingastaðanna í Tívolí segir
gestastrauminn vera átta prósent
lægri en í fyrra og þykir það ekki svo
slæmt miðað við aðra veitingastaði
skemmtigarðsins. Staðir sem aðeins
hafa veitingar utandyra hafa orðið
fyrir allt að þrjátíu og sex -prósent
rýmun aðsóknar.
Fjöldi gesta í Tívolí og á Bakkanum
hefur ekki verið lægri en undanfarin
ár en vegna rigninganna stoppa ge-
stimir frekar stutt við. Er vonast til
að síðasti mánuðurinn muni bjarga
veltunni í ár þó ekki líti út fyrir það
í augnablikinu. 'Tívolí verður lokað
15. september og Bakkanum 1. sept-
ember.
Kennaraflótti
ffá grunnskólunum
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmannahafii:
Meira en fimm þúsund kennarar hafa
yfirgefið dönsku gmnnskólana síðustu
tvö árin og nú ætlar danska kennara-
félagið að rannsaka þennan. flótta
nánar. Mun félagið athuga nákvæm-
lega um hve marga kennara er að
ræða og hver orsök flóttans er. Rann-
sókn kennarafélagsins á einnig að
beinast að því hvar kennaramir leita
starfa eftir uppsögn sína.
Margt virðist benda til að Ijöldi
kennara leiti starfa við upplýsinga-
störf í einkageira atvinnulífsins auk
starfa við tölvur. Vonast kennarafé-
lagið til að sumir kennarar komi aftur
til skólanna vegna bættra launa og
vinnuaðstöðu. Em auk þess ófá dæmi
um kennara sem snúa aftur til síns
gamla starfs þar sem vinnuaðstæður
í einkageiranum vom harðneskjulegri
en þeir héldu í fyrstu.
1