Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Síða 15
LAUGARDAGUR 3. OKTÖBER 1987. 15 Islensk tunga Vandmeðfarnar og óreglulegar sagnir Um ábyrgð Oft eru málfræðingar og ís- lenskukennarar gerðir ábyrgir fyrir rangri málnotkun ókunnugra manna úti í bæ. Þannig hef ég orðið fyrir því að vera beðinn að hlusta andartak. Og svo hefur viðmælandinn haft yfir einhverja 'ferlega málvillu ónefnds karlmanns sem býr í há- hýsi austur í bæ. Og hvessir síðan á mig augun og segir: Finnst þér þetta nokkur hemja? Og mér er stillt upp við vegg og verð orðlaus en undir niðri sár- kvalinn af sektarkennd. Til hvers var verið að eyða stórfé í að mennta þig, maður, ef þú getur ekki komið í veg fyrir að menn sóði og subbi út móðurmálið. Þannig er nú það. Ég var svo stálheppinn að þulur nokkur í sjónvarpi beygði sögn vit- laust um daginn. Það er nefnilega svo að málfræðingar lifa og nærast á vankunnáttu þjóðarinnar í með- ferð móðurmálsins. Þannig er það okkur hvalreki að heyra vitlaust beygðar sagnir, klúðurslegt orða- lag og sjá stafsetningar- og málvill- ur í prentuðu máli. Sumir hafa af þessu atvinnu sína. Á sama hátt og eins dauði er ann- ars bra,uð, en þaö er hreina satt eins og öllum er kunnugt. Og vel má hugsa sér að snúa orðtakinu á haus og segja eins brauö er annars dauöi og það er líka hreina satt eins og öllum er kunnugt. Og þetta hvorttveggja heldur áfram að vera satt meðan til er fólk í heiminum sem ekki getur séð annað fólk í friði. Efni greinarinnar En greinin átti sem sagt að fjalla um vitlaust beygða sögn og þess vegna kemur ofanskráð málinu • ekki nokkum skapaðan hlut við og er bara ósköp venjuleg byrjun. Greinar verða að byrja á einhvern hátt og helst á einhverri krassandi spakviturri yfirlýsingu sem vitnar um djúpa vitund höfundarins. Oft- ast verða svona greinaupphöf að nokkurskonar inngangi eða út- drætti úr sjálfri greininni og gjarnan prentað með feitu letri. Margir lesendur lesa sjálfsagt bara þennan inngang og komast þá að því að þeir hafa engan áhuga á efni greinarinnar og geta þá eytt timanum í eitthvað nytsar „Og svo hefur viðmælandinn ytir einhverja ferlega málvilluónefnds karlmanns sem býr austur i bæ.“ Það sem ég vitdi sagt hafa... En meðal annarra orða og áður en ég gleymi mér, þá vil ég minna á að kveikjan að þessari grein var að ég var svo stálheppinn að heyra sjónvarpsþul beygja sögn eina vit- laust. Þetta var þulur sem var að þylja erlendar fréttir fyrir ríkissjón- varpið. Hann fjallaði um barsmíöar ír- ana og íraka á ilóanum þama suður frá. írakar vom að sökkva olíuskipum fyrir írönum og drápu marga menn „og ullu miklu tjóni". Það er sem sagt sögnin að valda sem þulinum varð hált á. Og hann er ekki sá fyrsti. Þessi sögn hefur löngum verið mönnum til trafala og hagað sér vægast sagt undar- lega. En um sögu þessarar sagnar verður fjallað í næsta þætti. Eiríkur Brynjólfsson fslensk tunga ara. Lesendur DV hafa um árabil tek- ið eftir því að gáfulegustu setning- amar í hverri kjallaragrein era rammaðar inn í meginmálið. Þetta er vitaskuld ekki nema sjálfsögð þjónusta við þá lesendur sem era í tímaþröng. Þá losna þeir við að lesa heila grein og geta þess í stað látið sér nægja að líta yfir örfáar setningar og fengið þannig allt efni hennar í'hnotskum. Vísnaþáttur Skálda, hvaða bók er það? Skálda er frægt bókarnafn í Is- landsklukku Laxness, en hvort nokkur bók á íslandi hefur áður heitið svn veit ég ekki, hef haldið að Halldór hafi búið það til. Honum væri til þess trúandi. Ekki hef ég nennt að spyija um þetta fróða menn, sem eru þó á hverju strái. En Jóhannes úr Kötlum gerði af- mæhsbók fyrir Hafstein í Hólum, sem nú er eins oft kenndur við bókaútgáfuna Þjóðskrá, fyrir all- mörgum áram. Hefur sú bók komið Út 5 sinnum og hafa engar slíkar komið út jafnoft. Ég eignaðist þessa bók nýlega. Jóhannes hafði þann hátt á að hafa aðeins eina vísu eftir hvem höfund og reyna að finna þannig jafnmargar boðlegar stökur eða erindi og dagar ársins era. Vissi ég að þetta reyndist nokkuð þung þraut, því margir, skáld og hagmæltir, áttu sama afmælisdag. En burðardagar margra líklegra ókunnir, og uröu því margar eyð- ur, enginn verðugur fyrir suma daga ársins. En allt leystist þetta að lokum. Sum þöfundarnöfnin var erfitt að ársetja og jafnvel gefa full- boðlegt nafn og fóður- eða móður- heiti. Allmargir fengu hálfgildings gælunöfn eða vora kenndir við bæi sem til era í hverju byggðarlagi. Óvíst er því hvort nokkurn tím- ann vex upp á íslandi sá ættfræð- ingur, aö hann vilji taka að sér að leysa þá gátu, hver er hvað í þess- ari fafiegu og í flestu vönduðu og eigulegu bók þar sem annars era vafamál um það. * En þótt formáli minn sé nú svona hátíðlegur ætla ég ekki að vera mjög fræðilegur í vali minu á vís- um úr bókinni. Ég læt þar að mestu hendingu ráða: Jóhannes Ásgeirsson f. 1896 og látinn fjörgamall fyrir fáum áram, fékk að eiga vísu á afmælisdegi sín- um 26. júlí, enda voru þeir Jóhann- esarnir æskuvinir og sveitungar úr Dölunum, bar aldrei skugga á þeirra samband meðan báðir lifðu. Og komst undirritaður í það vina- félag. Honum þótti gaman að tala um skáldskap og þjóðmál, velti auk þess heimspekilega höfði yfir þeim bókum og ritum öðram sem hann las. Nú kemur vísan: Alltaf finnst mér eitthvað hlýtt yfir dalnum sveima, þó að víða væri grýtt á vegunum gömlu heima. Annar vinur Jóhannesar úr Kötl- um er dagsettur 25. júlí 1908, einnig látinn fyrir nokkrum árum. Þaö er séra Helgi Sveinsson, lengi prestur í Hveragerði, t.d. flest ár Jóhannes- ar þar, líka kunningi undirritaðs, skemmtilegur gáfumaöur. Seinni hluti hans vísu er svona: Svanir okkar urðu fleygir: orðin sem á vörum lágu. - Jörðin sigldi um sumarnætur svefnlaus yfir djúpin bláu. Verö að biðja afsökunar á því, að hér brýt ég í valinu tvær höfuðregl- ur mínar. Þetta er hvorki fer- skeytla né heil. En þetta hafði gerst áður en ég veitti þvi athýgli. Kristj- án Ólason, bróðir Árna Öla og faðir Vísnaþáttur Kristjáns Karlssonar rithöfundar og bókmenntafræöings, á vísuna 27. júlí 1894. Hann var lengst ævi á Húsavík og dó þar. Þetta finn ég - því er ver: Það er sinni og skinni þraut að kynnast sjálfum sér sífellt minni og minni. Séra Magnús Guðmundsson í Ól- afsvík var fæddur 30. júlí 1896. Sérstæður maður fyrir margra hluta sakir. Hann var mikill vinur séra Friðriks Friðrikssonar, séra Bjarna dómkirkjuprests og mikill KFUM-maður, vinsæll í héraði m.a. vegna hjálpsemi sinnar við sjó- menn ef vélarbilun varð hjá þeim. Hann er fallinn frá fyrir alllöngu. Hann orti svo: Þótt brýni ég ljá, ei bítur sá, býsna fá því losa strá. Grasi smáu og grjóti blá geng ég frá, og hætti að slá. Markús Hallgrímsson mun hafa verið Dalamaður, en lengi iðnaðar- maður í Reykjavík, f. 31 júlí, aldamótaárið síðasta. Sá er þetta ritar man eftir honum gömlum manni og slitnum fyrir fjörutíu áram, þá búinn að gefa út þunnt kvæðakver. Mest munu það hafa verið hagmælskuvísur. Nú dáinn og grafinn fyrir löngu. En visan hans er svona: Auðar byggð við bláan fjörð björt er enn sem forðum daga: Dýrleg ertu, Dala jörð - dul og römm þín forna saga. Vilhjálmur Hölter var fæddur 3. ágúst 1815. Hann mun hafa verið Norðlendingur, leiðréttið mig samt ef minni mitt svíkur, og honum er hér eignuð sú vísa, sem bæði ég og fjöldi annarra, heyrði gamalt fólk fara með fyrir langalöngu: Veröld fláa sýnir sig, sú mér spáir hörðu, - flestöll stráin stinga mig stór og smá á jörðu. Næst staðnæmumst við við af- mælisvísu Guömundar mynd- höggvara frá Miðdal. Hann var fæddur 1895 og farinn veg allrar veraldar: Ilmur var í lofti og anganþeyr. Á bökkunum uxu blóm og reyr. Á ómælisleiðum allt var hljótt - Hvíldum við á skýjum þá hamingjunótt. Hans Natansson var sonur frægs ógæfumanns í Húnavatnssýslu, fæddur 9. ágúst 1816. Hann orti: Æskufjör og myndin manns má ei standa í skorðum. - Nú er ég orðinn annar Hans en þú þekktir forðum. Kristín í Haukatungu er ekki feðrað hér í bókinni og þessa stundina man ég ekkert um hana nema að hún er talin hafa ort þá eftirminnilegu vísu sem sett er við 12. ágúst 1862. Hún var á sinni tíð kunn í heimabyggð sinni, Borgar- firði, margir þá og nú hefðu viljaö ort hafa þessa þríhendu: Lifað hef ég lariga ævi laus viö hroka, í lítinn skaufa látin moka, ég loftaði aldrei stórum poka. Hér nemum við staðar í þessari ágætu bók. Ekki er ólíklegt að ég veki upp nokkra kunningja mína síöar úr þeim kirkjugarði. Utanáskrift: Jón úr Vör, Fannborg 7 Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.