Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
Fréttir
Iþróttasjóður sem leggja á niður:
Skuldar 170 milljónir
Óvíst er hvað verður um skuld-
bindingar íþróttasjóðs ríkisins
gagnvart íþróttafélögum og sveit-
arfélögmn. Með fjárlagafrumvarp-
inu fyrir árið 1988 eru framlög til
íþróttasjóðs felld niður „í samræmi
við stefnu stjómvalda um tilflutn-
ing verkefna milli ríkis og sveitar-
félaga“, eins og segir í athugasemd-
um frumvarpsins.
íþróttasjóður ríkisins hefur greitt
allt að 40% af byggingarkostnaði
við íþróttamannvirki á móti sveit-
arfélögum og íþróttafélögum.
„Ógreiddar eftirstöðvar eru á bil-
inu 165 til 175 milljónir króna,“
sagði Reynir G. Karlsson, íþrótta-
fulltrúi ríkisins, um skuldir
íþróttasjóðs.
Reykjavíkurborg á stærstu inni-
stæðuna, aö sögn Reynis, um 26
milljónir króna. Sú skuld er aðal-
lega vegna gervigrassins og sund-
lauganna í Laugardal.
íþróttafélög og samtök í Reykja-
vík eiga inni umtalsveröar íjár-
hæðir vegna framkvæmda sinna,
alls um 53 milljónir króna. Stærstu
fjárhæðirnar eru vegna íþrótta-
húss Vals við Hlíðarenda, 16-20
milljónir króna, og íþróttahúss
Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur við Gnoðarvog, 15-18
milljónir króna.
Utan Reykjavíkur er stærsta
skuld íþróttasjóðs vegna íþrótta-
húss íþróttabandalags Akraness,
um 11 mOljónir króna, að sögn
Reynis.
„Það er alveg óvíst hvað verður.
Við gerum fastlega ráð fyrir að öll
þessi ógreidda aðild íþróttasjóðs
verði greidd á ákveðnu árabili,
annaðhvort með því að ríkið greiði
beint eða í gegnum jöfnunarsjóð
sveitarfélaga.
Það er verið að ræða þessi mál
en við hjá íþróttanefnd höldum að
það þurfi lengri aðdraganda en
þessar vikur fram að afgreiðslu
fjárlaga," sagði Reynir.
-KMU
Samkeppni Reykjavíkurborgar um minjagripi:
Deilt um gripinn
sem fékk 2. verðlaun
- grunur um brot á hofundarrétti
„Ég hef ekki fariö í mál og hef ekki
hugsað mér það. Hins vegar hef ég
verið að kanna skilmála samkeppn-
innar,“ sagði Birgitta Spur, ekkja
Sigurjóns Ólafssonar myndhöggv-
ara, í samtali við DV er hún var
spurð hvort rétt væri að hún hygðist
fara í mál við Reykjavíkurborg vegna
yerölaunasamkeppni um minjagripi.
Önnur verðlaun í samkeppninni, 50
þúsund krónur, hlaut minjagripur
sem er eftirlíking listaverks Sigur-
jóns sem stendur fyrir utan Höfða.
„Það sem málið snýst um er að ein-
staklingur notar hugverk annars
manns og ekki er óskað eftir leyfi á
því. í þriðju grein höfundarréttar-
laga er skýrt tekið fram að höfundur
hefur einkarétt til að gera eintök af
verki sínu og til aö birta það í upphaf-
legri mynd eða breyttri, í þýðingu
og öðrum aðlögunum,“ sagði Birgitta
ennfremur. „Ég ætla að fara varlega
í sakirnar enda hef ég ekki ennþá
náð sambandi við lögfræðing minn.
En ég er að athuga málið og þá sér-
staklega í sambandi við brot á
höfundarrétti,“ sagði Birgitta Spur.
-ELA
Jóhannes Nordal, formaður 17 manna Irfeyrisnefndarinnar:
Þessi bíll valt eftir árekstur á mótum Freyjugötu og Baldursgötu I
gærkvöldi. Tengikassi rafveitunnar skemmdist, svo og báðir bílarnir.
Lögreglan flutti báða ökumennina á slysadeild. Gangandi vegfarandi
varð fyrir bíl á mótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar í gær.
Varð að flytja vegfarandann á slysadeild. Árekstur varð á Arnarbakka
í gær. Farþegi og ökumaður annars bílsins voru fluttir á slysadeild.
DV-mynd S
tiyggð óskert réttindi
„Það er alveg gersamlega ótvírætt
að með ákvæði til bráðabirgða eru
opinberum starfsmönnum tryggð
óskert lífeyrisréttindi í því frum-
varpi sem við höfum skilað, túlkun
BSRB er því rétt,“ sagði Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri í morgun.
Hann er formaður 17 manna lífeyris-
nefndarinnar sem skilað hefur til-
lögu að frumvarpi um samræmt
lífeyriskerfi allra landsmanna.
„Frá því var gengið að ef ekki verö-
ur samið um annað skuli þeir
launagreiðendur, sem aöild eiga að
Lífeyrissjóði opinberra starfsmanna,
greiða iðgjald sem tryggi launþegum
í sjóðunum sömu réttindi og þeir
hafa. í mínum huga leikur enginn
vafi á þessu og varaformaðurinn,
Hallgrímur Snorrason hagstofu-
stjóri, er mér sammála,“ sagði
Jóhannes.
Forystumenn Kennarasambands
íslands og Bandalags háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna halda þvi
fram að tillaga 17 manna nefndarinn-
ar skeri á þau lífeyrisréttindi sem
opinberir starfsmenn hafa nú um-
fram aðra. Þau felast meðal annars
í styttri greiöslutíma í lífeyrissjóð-
inn, að taka lífeyris getur hafist fyrr
og fullri verðtryggingu lífeyris.
Á þessu ári verður greiddur lífeyr-
ir úr Lífeyrissjóði opinberra starfs-
manna um 835 milljónir króna. Þar
af koma 604 milljónir frá launagreið-
endum beint sem svokölluð uppbót.
Hún felur í sér allar launahækkanir
á árinu og fullar verðbætur. Ef upp-
bótinni verður breytt í iðgjaldaálag
munu launagreiöendur þurfa að
punga út 10-15% ofan á greidd laun,
umfram þau 6% sem þeir greiða nú,
í stað áður nefndrar uppbótar.
-HERB
Sjávarútvegsráðherra:
Hafnaði beiðni
- um að aflétta veiðibanni
Landssamband smábátaeigenda erráðherraheimiltaðafléttabanni
fór fram á það við Halldór Ás- fari mánaðarlegt aflamagn í ein-
grímsson sjávarútvegsráöherra að hverjum fjórðungi niður fyrir tvo
hann aflétti veiðibanni á trillum þriðju af meðalafla þess mánaðar
undir 10 tonnum á Norðurlandi síðustu 3 árin á undan, vegna
dagana 25. til 31. október. Sjávarút- ógæfta. Einmitt það hefur gerst nú
vegsráðherra hefur hafnað þessari hjá trillukörlum á Norðurlandi.
beiðni. Heildarafliþeirravaríseptember
Þessi vika er hluti af banndaga- síðastliðnum 230 lestir en var 698
kerfi því sem smábátaeigendur búa til 858 lestir í september næstu þrjú
við. árin á undan og meðalaflinn 506
Rök Landssambands smábátaeig- lestir. Ráðherra tók þessi rök smá-
enda fyrir því að aflétta banninu bátaeigenda ekki til greina.
nú eru þau að samkvæmt lögum -S.dór
Slasaði skipverjinn af Akurey við komuna til Reykjavikur í gær. Skipsfélagi hann lést er dráttartaug slóst til
er verið var að draga Akurey til á síldveiðimiðunum i gær. DV-mynd S
Slys um borð í Akurey SF:
Maður lést og
annar slasaðist
Banaslys varð um borð í síld-
veiðibátnum Akurey SF um
klukkan hálí'fjögur í gær. Báturinn
var á síldveiðum á Loðmundarfiröi
er slysið varö.
Skipverjar voru með nótina úti
er vindátt breyttist snögglega. Bát-
inn tók að reka að nótinni og var
beðiö um aðstöð nærliggjnadi báts
til að draga Akurey frá svo bátinn
ræki ekki í nótina.
Dráttartaug, sem komið var á
milli bátanna, skaust upp með
miklu afli er báturinn snérist.
Tveir skipveijar urðu fyrir taug-
inni. Annar lést strax, að talið er.
Hinn slasaðist og var óskað efir
aðstoð Landhelgisgæslu til að
koma honum undir læknishendur.
Björgunarsveitamenn á Seyðis-
flrði fóru strax út á hraðbát sínum
með tvo lækna.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var á
æfrngu á Faxaflóa er beiðnin barst.
Var strax lent í Reykjavík og elds-
neyti tekið. Þyrlan þurfti að lenda
aftur á Höfn til að taka meira elds-
neyti.
Þyrlan kom á slysstað um klukk-
an 18.20 og flutti þann slasaða til
Hafnar og var hann fluttur þaðan
til Reykjavíkur með flugvél frá
Flugfélagi Austurlands.
Þrátt fyrir miklar tilraunir tókst
ekki að skera nótina úr skrúfu
Akureyjar fyrr en Þuríður Hall-
dórsdóttir GK hafði dregiö bátinn
til Seyðisfjarðar um klukkan ellefu
í gærkvöldi.
Sjópróf verða haldin á Höfn í
Hornafiröi í dag.
-sme