Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
Fréttír
Ólga hjá öiyggisvörðum Kringlunnan
TmnaðannaðuHnn
rekinn án ástæðu
„Það hefur verið mikil ólga hjá
öryggisvörðum Kringlunnar í tvo
mánuði. Bæði er það vegna þess að-
búnaðar sem við höfum þar og launa
sem eru undir löglegum lágmarks-
launum,“ sagði Freyr Guðlaugsson
sem að eigin sögn var rekinn úr
starfi á fóstudag þrátt fyrir að vera
trúnaðarmaður starfsmanna. Freyr
telur það einmitt meginskýringu
þess að honum var vikið úr staríi
fyrirvaralaust. „Ég átti hugmynd að
því að við gengum í verkalýðsfélagið
Dagsbrún til að fá ýmsar upplýsingar
um vinnutilhögun okkar. Við vorum
óhressir með að þurfa að draga upp
fána og standa í ræstingum. Einnig
töldum við að við ættum að hafa
nánari vitneskju um starfssvið okkar
og hvað okkur bæri að gera ef eldur
eða þvíumlíkt kæmi upp. Viö höfum
aðeins farið á eitt námskeið í bruna-
vömum og það er ekki nægjanlegt,“
sagði Freyr.
Hann gat ekki haft samband við
Dagsbrún á fóstudag þar sem búið
var að loka skrifstofunni þegar hann
Mikil ólga er nú meðal öryggisvarða í Kringlunni, en þeir hyggjast ganga
í Dagsbrún.
fékk uppsögnina. „Það var greinilega
gert viljandi."
- Æthð þiö að gera eitthvaö í þessu
máli?
„Mér finnst það ekki ná nokkurri
átt að fólki sé sagt upp án fyrirvara
og án ástæðna. Ég mun hafa sam-
band við Dagsbrún og í framhaldi af
því sjáum við hvað gert verður,"
sagði Freyr Guðlaugsson. -ELA
Dagsfjaman til Akureyrar:
„Alveg hræðilegt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Mér finnast þetta alveg hræðilegar
fréttir því við ætluðum að kaupa
þetta skip,“ sagði Logi Þormóðsson,
einn að forráðamönnum útgerðarfé-
lagsins Eldeyjar á Suðurnesjum sem
verið er að stofna um þessar mundir,
en Úgerðarfélag Akureyringa hf. hef-
ur keypt togarann Dagstjömuna frá
Keflavik.
Gengið var frá kaupunum um helg-
ina og greiðir ÚA180 milljónir króna
fyrir Dagstjörnuna sem er 743 tonna
skip. Vilhelm Þorsteinsson, forsljóri
ÚA, hefur sagt að í raun sé verið að
kaupa kvóta fyrir skip sem ÚA mun
láta smíða fyrir sig síðar en frekari
ákvaröanir um það skip hafa ekki
verið teknar. Dagstjarnan er með
rúmlega 2000 tonna kvóta og er sjötta
skipið í flota Útgeröarfélags Akur-
eyringa.
„Ef kaupverðið er 180 milljónir
króna þá er það um hundrað milljón-
um yfir tryggingamati skipsins og
við skulum bara vona að það farist
ekki á leiðinni norður," sagöi Logi
Þormóðsson. Hann sagði að þama
spiluðu kvótamálin mjög inn í. Skip-
ið fengi 500 tonnum meiri þorskkvóta
á Akureyri en það hefði fengið í
Keflavík og því væri skiljanlegt að
Akureyringamir hefðu ráðist í þessi
kaup. Þá sagðist hann hafa heyrt að
stór hluti kaupverðsins yrði greiddur
með skreið. „En þetta era afar slæm-
ar fréttir og við fengum aldrei
tækifæri til að kaupa skipið,“ sagði
Logi.
DV
Bárður Öm Scheving:
Sagtuppvegna
brota í starfi
„Honum var sagt upp störfum viðræður við Dagsbrún um sér-
vegna þess að hann hafði brotið af kjarasamning fyrir öryggisverði,
sér í starfi. Uppsögnin hefði ekki svo það mál á að skýrast innan tíö-
átt að koma honum á óvart því við ar.
vorum búnir að vara hann við,“ Húsið er í byggingu og við höfum
sagöi Bárður Om Scheving, einn orðið að gera okkur aö góðu bráða-
af eigendum Öryggismiðstöðvar- birgðaaðstöðu hér í húsinu, en það
innar, þegar hann var spurður um stendur til bóta þar sem við erum
ástæður þess aö Frey Guðlaugssyni að ílytja okkur um set í fraratíðar-
var sagt upp störfum . aöstöðu. Það sama gildir um starf-
„Hann hlaut ekki löglega kosn- ið, starfsviö öryggisvarða er mjög
ingu sem trúnaðarmaður, enda breytt en er smátt og smátt að
höfum við ekki fengið neina til- mótast.“
kynningu frá verkalýðsfélgi um að - Þú kannast sem sagt ekki við
hann væri trúnaðarmaður starfs- neina óánægju meðal starfsmanna.
manna hér.“
Starfsmenn kvarta yfir lágum
launumm, lélegum aðbúnaði, „Ekkitil.ViðerummeðlOmanna
ásamt því að það hafi ekki verið hóp sem starfar hér og þaö er mjög
skilgreint hvað væri á þeirra verk- góður kjarni. En þegar Kringlan
sviði. var opnuð þurftum við að ráða
„Launin eru trúnaöarmál en ég marganýjamennogámeðalþeirra
hef vissu fyrir að viö erum þó nokk- var fólk sem átti ekki heima í starf-
uð yfir þeim grannlaunmn sem inu, en það er hætt núna,“ sagði
önnur fyrirtæki á þessu sviöi Bárður Örn að lokum.
borga. Við eram aö fara af stað í -J.Mar
Mánaðarlaunin
eni 43 þúsund
„Freyr er góður maður og eins daga, en eigum siöan sjö daga
og aðrir sinnti hann sfnura störfum vaktafrí."
hér. Við styðjum Frey eindregiö og - Var Freyr kosinn löglega trún-
vfijum að hann verði endurráðinn aðarmaður starfsmanna hér?
og það gildir um meirihluta starfs- „Fundurinn var boðaður löglega
manna hér,“ sögðu tveir af þeim og á fundinn mætti fulltrúi frá
öryggisvörðum, sem starfa í Dagsbrún. Við erum ekki í neinu
Krmglunni, þegar DV hitti þá að verkalýösfélagi og vitum því lítið
máli Þeir vildu ekki láta nafn síns um rétt okkar. Við þorum varla að
getið af ótta við brottrekstur úr opnamunninntilaðspyijaþviþað
starfi. virðist jafngilda brottrekstrarsök.
„Við erura borgaðir langt undir Það er eitthvað að, það er alveg
taxta, mánaðarlaunin era 43 þús- augljóst, mannaskipti eru mjög tið,
und krónur með vaktaálagi en ættu menn eru alltaf að koma og fara,
að vera tæpar 50 þúsund krónur. þvi allir eru óánægðir, sérstaklega
Við vimium 12 tíma vaktir, í sjö með launin.“ -J.Mar
í dag mælir Dagíari
Af ástæðum, sem ekki er hægt að
flokka undir annað en ofsóknir,
hefur landbúnaðarkerfið undir for-
ystu yfirdýralEéknis lagt slátur-
húsið á Bíldudal í einelti og komið
í veg fyrir að Bílddælingar fengju
aö slátra sínu eigin sauðfé og
reyndar öðru ef út í það er farið.
Yfirdýralæknir sendi frá sér
skýrslu um saurgerla, rottugang
og matareitrun í plássinu og varp-
aði slíkri rýrð á þetta bæjarfélag
vestur á fjörðum að annað eins
hefur ekki gerst siðan Dalamenn
voru sakaðir um að eitra fyrir ætt-
armót á síðasta sumri.
Eins og vænta mátti brugðust al-
þingismenn Vestfirðinga hart við
þessum ásökunum og árásum og
Matthías Bjamason hafði forystu
um það á þingi aö leggja fram frum-
varp sem gerði ráð fyrir að Bíld-
dæhngar mættu nota sitt sláturhús
eins og þeim sýndist án afskipta
yfirdýralæknis eða annarra heO-
brigðisyfirvalda sem hafa fett
fingur út í aðbúnað í þessu slátur-
húsi. Vestfirðingar benda á að
sláturhúsið á Bíldudal sé ekki
mengaðra heldur en önnur slátur-
hús í landinu og hingað til hafa
menn getaö slátrað í sínum húsum
án þess að aðrir hafi verið að skipta
Bfldudal slátrað
sér af því hverju slátrað er.
Nú verður enginn dómur lagður
á það hvort yfirdýralæknir hefur
séð rotturnar á Bíldudal eða lagt
saurgerlana sér til munns til aö
finna út að þetta komi niður á slát-
urfénu, en hitt er öllu athyglisverð-
ara að vestfirskir þingmenn hafa
tekið af skarið með þá skoðun sína
að heilbrigðiseftirlit sé óþarft og
sóðaskapur sé ekki frágangssök
þegar sjálfstæðismál vestfirskra
sjávarplássa. eru annars vegar.
Vestfirðingar hafa löngum þótt á
undan sinni samtíð og er svo enn,
ef marka má frumvarpið hans
Matthíasar. Því nú verr og miður
bendir flest til þess að aðrir þing-
menn ætli sér að hafa frumvarpið
að engu og fella það, og að minnsta
kosti hefur sláturféð verið flutt til
íjarlægra staða til slátrunar, og
mun svo fara nema þá sláturféð
sjálft grípi til aðgerða. Það er aldrei
að vita enda rennur vestfirskt sjálf-
stæðisblóð í æðum bæði dýra og
manna eins og glöggt kom fram
þegar kýrin synti yfir Önundar-
fjörð af einskærri átthagaást.
En hvort sem slátrað verður á
Patró eða Bíldudal að þessu sinni,
stendur hitt eftir að orðstír Bíldu-
dals hefur beðið hnekki og orðið
íbúum staðarins til niðurlægingar.
Það er verið að slátra Bíldudal.
Á Bíldudal hefur enginn maður
séð rottu eða fundið fyrir saurgerl-
um í því sem þeir hafa lagt sér til
munns og sömuleiðis er það ómak-
leg og ástæðulaus ávirðing að
amast út í það af yfirdýralækni
enda þótt svo væri. Bílddælingar
mega eiga sínar rottur í friði án
þess að menn fyrir sunnan séu að
skipta sér af því og nú ætla þeir
að fara í meiðyrðamál við yfirdýra-
lækni og hreinsa sig og rotturnar
af þessum áburði.
Það er auðvitað rétt hjá Bílddæl-
ingum að bregðast svona við. Á
Bíldudal hefur ekki nokkur maður
fengið matareitrun í háa herrans
tíð og ef og þegar einhver hefur
lent í því að éta sauðfjárslátur með
bragðbæti, sem ekki er gerilsneytt,
þá er það hans vandamál en ekki
Bílddælinga. Auk þess má benda á
að saurgerlar drepast þegar kjötið
er eldað við sjötíu gráða hita og
smakkast betur á eftir. Sóðaskapur
er þar ekki meiri en annars staðar,
enda býr sómakært fólk á Bíldud-
al, segir hreppsnefndin í ályktun
sinni, sem gerir það ekki vlijandi
að eitra fyrir fólk. Rotturnar eru
til dæmis strax fjarlægðar þegar
þær þvælast fyrir í slátruninni og
hafa raunar ekki sést lengi á Bíldu-
dal eftir að eitrað var fyrir rotturn-
ar í sláturhúsinu. Það er alltaf haft
rottueitur í sláturhúsinu.
Annars er á þessu góð lausn. Það
á að leyfa Bílddælingum að slátra
eins og þeim sýnist og leyfa þeim
að leggja sinn eigin mælikvarða á
það hvað er sóðaskapur og hvað
er ekki sóðaskapur. Áðalatriði er
aö þeir éti það sjálfir sem úr slátur-
húsinu kemur, hvort sern þaö er
að mati yfirdýralæknis sauðfjár-
slátur eða eitthvað annað slátur.
Það væri og í anda vestfirskrar
sjálfstæðisbaráttu að slátra bara
fyrir eigin markað, í stað þess að
senda kjötið til fólks sem ekki kann
gott að meta.
Dagfari