Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
Viðskipti
Fasteignasalar fa um 260
milljónir í sölulaun á áii
Ætla má aö fasteignasalar fái um
260 milljónir króna í sölulaun á þessu
ári, samkvæmt áætlun DV. Þetta
skiptist þannig að um 225 milljónir
eru greiddar í sölulaun af notuðum
íbúðum og um 35 milljónir króna í
nýbyggingum.
Guðmundur Gylfl Guðmundsson,
hagfræðingur hjá Fasteignamati rík-
isins, segir að á milli 4.000 og 4.500
notaðar íbúðir skipti um eigendur á
árinu, séu seldar. Aætlar Guðmund-
ur að heildarveltan sé á bilinu 12 til
14 milljarðar.
Ef áætlað er að sölulaunin séu 1,75
prósent, en sölulaunin rokka á milli
1,5 prósent til 2ja prósenta, og að
heildarveltan sé 13 milljarðar, eru
það 225 milljónir króna í sölulaun
notaðra ibúða.
Gera má ráð fyrir að um 1.500 ný-
byggingar séu seldar á þessu ári.
Miðað við að þeir sem byggja sjálfir
og kaupa ekki í gegnum fasteignasala
séu um eitt þúsund selja fasteigna-
salar um 500 nýbvggingar. Sé reikn-
að með að meðalverð á íbúð sé 3,5
milljónir króna er heildarsöluverð-
mætið um 1,7 milljarðar króna og af
því fara í sölulaun til fasteignasala
um 35 milljónir króna.
Allt í allt, samkvæmt þessum for-
sendum, fá fasteignasalar í sölulaun
um 260 milljónir króna á þessu ári.
-JGH
Royal var snöggt æði
Royal var snöggt æði á sígarettu-
markaðnum 'íslenska, samkvæmt
tölum frá ÁTVR yfir sölu á sígarett-
um í september síðastliðnum.
Aðeins 833 þúsund sígarettna af
rauðum Royal voru þá seldar, en
þegar salan reis hæst fyrir rúmum
tveimur árum seldust tæplega 14
milljónir af rauðum Royal. Þegar í
árslok 1985 voru Royal sígaretturn-
ar dottnar niður úr öllu valdi. í
september síðastliðnum fór salan
þó í fyrsta skiptið niður fyrir millj-
ón sígarettur.
Langmestseldu sígarettur á ís-
landi eru Winston, í rauðu pökkun-
um. Af þeim seldust tæplega 12
milljónir sígarettna í september.
Winston lights kom í öðru sæti með
um 4,5 milljónir sígarettna og Ca-
mel í því þriðja með um 3,1 milljón
sígarettna.
Rolf Johansen er umboðsmaður
fyrir Winston, Camel, Salem og
Gold Coast, vinsælustu sígarettur
á íslandi. Globus er með umboðið
fyrir Viceroy, en af þeim seldust
um 1,7 milljónir sígarettna í sept-
ember.
Alls um 1,5 milljónir sígarettna
af rauöum Royal seldust í septemb-
er í fyrra og salan hefur verið á því Ágúst Kristmanns, umboðsmaður Royal, varð skyndilega sigarettukóng-
bili um langa hríð. -JGH urinn á íslandi fyrir tveimur árum. En það er liðin tíð.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn blrtast i DV á fimmtudögum.
Heftir leiðtogafundurinn
skilað sér í peningum?
„Það er enginn vafi á því að leið-
togafundurinn hefur skilað sér í
auknum viðskiptum og mun gera það
áfram til langs tíma litið en það er
ekki hægt að nefna neinar tölur 1
þessu sambandi, enda nánast útilok-
að að reikna það út,“ segir Helgi
Ágústsson í utanríkisráðuneytinu en
hann er formaður nefndar um það
hvernig við íslendingar getum best
nýtt okkur leiðtogafundinn í Reykja-
vík í fyrra, gert ha0n að fjárhagsleg-
um ávinningi.
Helgi segir að vegna fundarins hafi
íslendingar og ísland stöðugt verið í
fjölmiðlum í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. „Það er öruggt að fundurinn
hefur létt undir með fyrirtækjum
okkcr aö kynna vörur sínar og hugs-
anlega að ná fram viðskiptasam-
böndum.“
Að sögn Helga er nefndin að vinna
að gerð tillagna um það hvernig best
sé fyrir okkur íslendinga að fylgja
fundinum eftir.
Erlendum ferðamönnum til íslands
hefur fjölgaö um 15 prósent á þessu
ári. -JGH
Reagan og Gorbatsjov á toppfundinum í Höfða.
Steindauð sala á fjórhjólum
„Þessi ályktun náttúruverndar-
þings brey tir mj ög litlu gagnvart sölu
á fjórhjólum, salan er steindauð eftir
að tollar voru hækkaðir í sumar,“
segir Gylfi Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Honda-umboðsins.
Að sögn Gylfa voru tollar hækkað-
ir úr 10 prósentum upp í 90 prósent
sem þýddi að fjórhjól, sem kostaði
áður um 240 til 250 þúsund krónur,
rauk upp í 360 til 370 þúsund krónur.
Og við það datt salan niður.
Gylfi segir að sér finnist notkun
fjórhjóla mjög misskilin. „Það
gleymist gjarnan að fjórhjól eru mjög
víða notuð í praktískum tilgangi. Þau
eru notuð í búskap, af hálfu verktaka
og björgunarsveita, svo ég nefni
nokkur dæmi,“ sagði Gylfi Gunnars-
son.
-JGH
Allir leita
bjór-
umboða
Svava Bernhöft, innkaupastjóri hjá
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins,
segir að svo virðist sem allir séu
núna að leita sér að umboðum fyrir
bjór.
„Það hafa geysilega margir hringt
hingaö í þeim tilgangi að fá uppgefið
hverjir séu komnir með umboð fyrir
bjór. Þetta eru allt menn sem eru aö
leita sér aö bjórumboðum,“ segir
Svava.
Svava segist ekki vita um þá sem
eru komnir með bjórumboð á ís-
landi. „Ég veit þó um þrjú fyrirtæki
fyrir víst. Karl K. Karlsson er með
umboð fyrir Carlsberg, Rolf Johan-
sen er með Heineken og Globus er
með tékkneska bjórinn Pils,“ segir
Svava.
-JGH
Hollenski bjórinn Heineken. Rolf
Johansen hefur umboó fyrir hann á
íslandi.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 14 17 Lb.Úb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 15 19 Ub
6 mán. uppsögn 16 20 Úb.Vb
12mán. uppsögn 17 26,5 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 25,5 27 Bb.lb
Tékkareikningar 6 8 Allir
Sér-tékkareikningar 6 17 nema Vb Ib
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3 4 Ab.Úb
14 24.32 Úb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 5,5 6.5 Ab.Vb
Sterlingspund 8.25 9 Ab.Úb.
Vestur-þýsk mörk 2.5 3.5 Vb Ab.Vb
Danskarkrónur 9-10,5 lb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almcnnir víxiar(forv.) 28 29,5 Bb.Lb
Viöskiptavixlar(forv.)(1) 30.5 31
Almennskuldabréf eða kge 29.5 31 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(vfirdr) 30 Allir
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 8-9 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 28 29 Vb
SDR 8 8,25 Bb.Lb.
Bandarikjadalir 8.5 8.75 Úb.Vb Bb.Úb.
Sterlingspund 11,25 Vb Sp
Vestur-þýsk mörk 11.75 5.5 5,75 Bb.Sp,
Húsnaeðislán 3.5 Úb.Vb
Lífeyrissjóðslán 5 9
Dráttarvextir 42
MEÐALVEXTIR
óverðtr. sept. 87 29,9
Verðtr. sept. 87 8.4%
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala sept. 1778 stig
Byggingavísitala 1 sept. 324 stig
Byggingavisitala 2 sept. 101,3 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. júlí
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
(uppl. frá Fjárfestingarfélaginu):
Ávöxtunarbréf 1.2777
Einingabréf 1 2,301
Einingabréf 2 1.356
Einingabréf 3 1,422
Fjölþjóöabréf 1,060
Gengisbréf 1.0295
Kjarabréf 2.369
Lifeyrisbréf 1.157
Markbréf 1.207
Sjóðsbréf 1 1,156
Sjóösbréf 2 1.118
Tekjubréf 1.250
HLUTABREF
Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 114 kr
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjódurinn 119 kr
Iðnadarbankinn 143 kr.
Skagstrcndingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160kr.
Lítilsala
í hluta-
bréfum
„Það er litil sala í hlutabréfum
á hlutabréfamarkaðnum en þó
alltaf einhver. Það er helst að það
skapist spenna fyrir aöalfundi,
að þá myndist eftirspum en þá
er aftur freistandi fyrir eigendur
hlutabréfa að selja,“ segir Stefán
Jóhannsson, forstöðumaður
veröbréfaraarkaðar B'járfesting-
arfélagsins.
Stefán segir að langtura rainni
sala sé í hlutabréfura en öörum
veröbréfum eins og kjarabréfura.
Ástæðan sé sú að fólk telji ömgg-
ari arðgreiðslur af verðbréfum
og eins hafi það talsvert að segja
að borga þarf skatt af arði hluta-
bréfa, þegar hann hefur náö
ákveðnu marki, en tekjur af verð-
bréfum séu skattftjálsar.
Á hlutabrétaraarkaönura eru
seld hlutabréf Eimskips, Flug-
leiöa, Iðnaðarbankans og Versl-
unarbahkans. JGH