Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
7
Fréttir
Ur hrepp í bæ
Boigames fær bæjarréttindi
Sguijón Gimnaisson, DV, Borgamesi:
Þau tímamót urðu í Borgarnesi um
helgina að Borgarneshreppur varð
að Borgarnesbæ. í tilefni þess var
haldinn hátíðarfundur í Hótel Bor-
gamesi þar sem síðasti fundur
hreppsnefndar var haldinn og fyrsti
fundur bæjarstjórnar.
Smáfprskot var þó tekið og opnuð
sýning á málverkum í eigu listasafns
Borgamess á fóstudag í Samkomu-
húsinu í Borgarnesi. Kl. 14 var sett
Vesturlandsmót í sundi í íþróttamið-
stöðinni og kortéri seinna hófst
messa í Borgarneskirkju þar sem sr.
Þorbjöm Hlynur Árnason þjónaði
fyrir altari. Ki. 14 hófst svo dagskráin
í Hótel Borgarnesi. Oddviti hrepps-
nefnda.r Ewólfur Torfi Geirsson,
setti síðasta fund hreppsnefndar og
á dagskrá hans var samþykkt að
kaupa húseignina að Bjarnabraut
4-6 þar sem verður framtíðarhús-
næði þeirra safna sem eru í Borgar-
nesi en þau hafa búið við þröngan
kost um alllangan tíma. Einnig var
lagt fram bréf frá félagsmálaráð-
herra þar sem heimild var veitt til
að breyta hrepp í bæ.
Strax að hreppsnefndarfundi lokn-
um var settur fyrsti fundur bæjar-
stjómar og stýrði Gísli Kjartansson,
aldursforseti hreppsnefndar, fundi.
Á fundinum var Eyjólfur Torfi Geirs-
son kosinn forseti bæjarstjómar. En
Gísli Karlsson, er verið hefur sveit-
arstjóri, varð að sjálfsögðu bæjar-
stjóri við þessar breytingar.
Eyjólfur Torfi Geirsson, forseti
bæjarstjómar, rakti í stuttu máli
sögu staðarins og kom fram að svo
vel vill til að um 120 ár eru síðan
staðurinn hlaut verslunarleyfi og
nær 75 ár síðan Borgarnes var gert
að sérstöku hreppsfélagi en áður var
nes þetta (Digranes) hluti af Borgar-
hreppi. Nokkurn veginn jafngamall
Borgarneshreppi og starfsmaður
hreppsins í áratugi, Sigurþór Helga-
son var heiðraður fyrir vel unnin
störf.
Að lokinni ræðu Eyjólfs Torfa
Geirssonar var fundi slitið.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra flutti ávarp og ámaði
hinu nýja bæjarfélagi heilla um
ókomna framtíö.
Fjöldi manns var saman kominn á
Hótel Borgarnesi til þess að fylgjast
með þessum merku tímamótum og
eftir fundi og ræður söng Theodóra
Þorsteinsdóttir sópransöngkona
nokkur lög við undirleik Ingibjargar
Þorsteinsdóttur. M.a. var þar frum-
flutt lag eftir Birnu Þorsteinsdóttur
við texta Davíðs frá Fagraskógi í út-
setningu Björns Leifssonar en Björn
lék með í því lagi á klarinett. Kveld-
úlfskórinn söng nokkur lög undir
stjórn Ingibjargar Þorsteinsdóttur.
Hátíðargestir voru vel „meö á nótun-
um“ og kiöppuðu söngfólki og
undirleikurum lof í lófa.
Að loknum fundum og söng var
boðið til kafiisamsætis og fram borin
stærsta terta sem sögur fara af enda
réttast að segja frá henni í rúmmetr-
um. Ofan á tertu þessari var merki
Borgamess og ámaðaróskir til bæj-
arins.
Fjöldi skeyta barst og voru upp les-
in, einnig höfðu nýja bænum borist
blómakörfur.
Verðlaunaafhending var síðan
vegna sundmótsins og seinna um
daginn var dagskrá fyrir bæjarbúa
alla. Þau yngstu fengu opið hús,
unglingarnir diskótek og þaðan af
eldra var boðið á dansleik á hótelinu.
Það er ef til vill táknrænt fyrir
þennan dag að þegar hann hóf göngu
sína var þungbúið og gekk á með
rigningu en um það leyti er „bær
varð til“ braust sólin fram úr skýjun-
um og lýsti upp sali hótelsins og úti
fyrir stirndi á regndropa svo langt
sem augað eygði. Og allir voru í há-
tíðarskapi.
Skák
Skákmótið í Belgrad:
Jóhann missti af pattfléttu
- og tapaði biðskákinni við Popovic
Jóhann Hjartarson varð að bíta í
það súra eph að tapa biðskákinni við
Júgóslavann Popovic á alþjóðlega
Invest-banka skákmótinu í Belgrad í
gær. Samt er Jóhann enn 1 efsta sæti
á mótinu en deilir því með Kortsnoj,
Timman og Ljubojevic. Þeir hafa all-
ir 4 'A v. að sjö uniferðum loknum en
næstir koma Beljavsky og Popovic
með 4 v.
Jóhann átti peði minna í biðskák-
inni en staða hans var svo virk að
jafntefli virtist blasa við. Því var
Júgóslavinn ekki samsinna. Hann
fann bráðsnjalla leið stuttu eftir að
þeir tóku aftur til við taflið og bætti
stöðu sína jafnt og þétt án þess aö
Jóhann fengi rönd við reist. Er sigur-
inn var svo til í höfn lék hann hins
vegar af sér og gaf Jóhanni óvæntan
möguleika sem því miður fór for-
görðum. Jóhann átti þess kost að
fóma drottningu sinni og riddara og
þvinga fram pattstöðu og jafntefli.
Þetta sá Jóhann ekki enda var hann
búinn að gefa alla von um að bjarga
skákinni upp á bátinn.
„Ætli þetta hafi ekki verið eðlileg
úrslit miðað við gang skákarinnar,"
sagði Jóhann í gærkvöldi og virtist
hvergi brugðið við ósigurinn. Annars
hafði hann á orði að mótshaldarar
hefðu farið fremur illa með sig í
gær. Fyrst var hann vakinn upp
snemma dags og „neyddur" til þess
að sækja borgarstjórann í Belgrad
heim og síðan varð hann að bíða í
fjórar stundir á skákstað þar til bið-
skákin hófst því að Popovic átti
einnig skák við Ivanovic sem tefld
var á undan. Skákstjórar kröfðust
þess að Jóhann væri til taks á skák-
stað þótt hann hefði eins getað hvílt
sig á hótelherbergi sínu sem er
skammt frá.
í dag teflir Jóhann við Nikolic, sig-
urvegarann á Reykjavíkurskákmót-
inu í fyrra, og hefur svart. Á morgun
verður svo tefld skákin sem allir bíða
eftir: Jóhann með hvítt gegn
Kortsnoj. í lokaumferðunum teflir
Jóhann við Timman og Ljubojevic.
Það er því Ijóst að erfiðar skákir bíða
hans næstu daga og allt stefnir í
æsispennandi lokaumferðir á þessu
sterka móti.
Þannig tefldist biðskákin í gær.
Jóhann hefur hvítt en Popovic svart
og hann lék biðleik:
63.-Kh664. Db7 De2+ 65.Kh3Dc2!
Jóhann hafði ekki hugleitt þessa
snjöllu leið Júgóslavans. Hvítur er í
leikþröng. Kóngurinn er fastur og
drottningin er einnig leiklaus því að
Skák
Jón L. Árnason
hún verður að valda a-peðið og ridd-
arann í senn.
66. Rd6 Ddl! 67. Dc6
Aftur eini leikurinn. 67. Re4??
strandar á 68. - Dhl mát.
67. - Dg4+ 68. Kh2 De2+ 69. Kgl De6!
70. Kg2 Kh7 71. Kh2 f5 72. Dc7 De2+
73. Khl Dfl+ 74. Kh2 Df2+ 75. Khl
Dxg3??
Eftir frábæra taflmennsku stendur
Popovic með pálmann í höndunum
en nú verður honum illilega á í mess-
unni. Eftir 75. - f4! vinnur svartur
létt, því að bæði peð hvits á kóngs-
vængnum falla.
76. Dxa7??
Það er hér sem Jóhann missir af
fallegri jafnteflisleið. Eftir 76.
Dxg7+!! Kxg7 77. Rxf5 + gxf5 (annars
fellur drottningin) er hvítur patt og
skákin er jafntefli.
76. - Dxd6 77. Db7 Ddl +
og í þessari stöðu gafst Jóhann
upp. Eftir 78. Kg2 De2+ og síðan 79.
- Kh6 skerst biskupinn loks í leikinn
og hvítur verður óverjandi mát.
-JLÁ
Stig 1 2 3 4 5 6 1 8 9 10 11 12 Vinn
1 Kortsnoj (Sviss) 2630 0 'A 1 1 1 0 1 4'A
2Timman (Holland) 2630 1 'A 'A 1 '/i 1 0 4'A
3 Ljubojevic (Júgósl.) 2625 ‘/i '/i 1 1 '/l '/i 'A 4'A
4 Gligoric (Júgósl.) 2525 0 '/i 0 'A 0 1 0 2
5 Marjanovic (Júgósl.) 2505 0 0 0 0 0 'A 0 'A
6 Salov (Sovétr.) 2575 0 ’/i ’/i 1 '/i 'A '/i 3 'A
7 Short (England) 2620 1 '/i 1 0 1 0 0 3 'A
8 Ivanovic (Júgósl.) 2535 1 0 0 0 !ó '/l 1 3
9 Jóhann Hjartarson 2550 ’/i 1 'A 1 1 0 '/> 4 'A
10 Popovic (Júgósl.) 2560 V) 1 ’/i 'A 0 'A 1 4
11 Nikolic (Júgósl.) 2620 0 '/i 0 1 'A 1 'A 3'A
12 Beljavskí (Sovétr.) 2630 0 1 'A 1 1 0 '/l 4