Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
Utlönd
Gultfundur í Ástralíu
Lógreglan
Nær helmingur allra lögreglu-
manna í Hollandi, flestir þeirra í
einkennisbúningum, efhdu i gær
til mótmælagöngu að þinghúsinu í
Haag, höfuðborg landsins til þess
aö mótmæla fyrirhugaðri lækkun
launa þeirra, sem ríkisstjómin hef-
ur tilkynnt um.
Liðlega fimmtán þúsund lög-
reglumenn tóku þátt í göngunni og
ollu miklu umferðaröngþveiti.
Liðlega sextugur gullleitarmað-
ur, Ray Hall aö nafni, sem stundaö
hefur gullleit með haka og skóflu
aö vopni árum saman, fann nýlega
æð af næstum hreinu guili sem tal-
in er virði miUjóna dollara. Að sögn
sérfræðinga sldlaöi Hall nýlega inn
gulli sem var liölega einnar millj-
ónar dollara virði og búist er við
aö frekari gröftur með stórvirkum
tækjum hefjist bráölega þar sem
hann fann æðina.
Hall fann gulliö um eitt þúsimd
kílómetra suður af borginni Dar-
win í Ástralíu, á svæði þar sem
kínverskir gullleitarmenn störfúðu
á síðustu öld en hefur ekki verið
nýtt síðan.
mótmælir
Móðir Nancy Reagan látin
Bandaríska leikkonan Loyal Davis, móðir Nancy Reagan, forsetafrúar
Bandaríkjanna, lést 1 gær, níutiu og eins árs að aldri.
Loyal Davis, sem í æsku hét Edith Luckett, var nokkuð þekkt leikkona
á sínum tima en hún hóf feril sinn aðeins fimmtán ára aö aldri. Hún var
tvígift. Fyrra hjónaband hennar, með Kenneth Robbins, foður Nancy
Reagan, endaöi í skilnaði. Hún giftist síðar dr. Loyal Davis taugaskurö-
lækni.
Loyal Davis lék meöal annars 4 móti David Belasco og George M. Co-
han. Þá lék hún á sviði með Walter Huston, Louis Calhem og Spencer
Tracy. Hún kom siöast fram á Broadway árið 1928.
Stjómvöld í Norður-Kóreu biöa
nú fyrirhugaðra forsetakosninga í
Suöur-Kóreu, sem fara eiga fram í
desembermánuði næstkomandi, og
vonast til aö úrslit þeirra muni
aöstoða við aö leysa deilur ríkjanna
tveggja vegna ólympíuleikanna
1988.
Chin Chung Guk, varaforseti
ólympíuneöidar Norður-Kóreu,
sagði i gær aö ef núverandi ríkis-
stjóm S-Kóreu félli í kosningunum
gæti það leitt til þess að kóresku
ríkin fyndu leið til þess aö standa
sameinuð aö ólympiuleikumun.
Noröur-Kóreumenn hafa hótað
að fá kommúnistaríki til þess að
neita þátttöku í leikunum í Seoul,
hötuðborg S-Kóreu, fái þeir ekki
þann hlut í leikunum sem þeir
vilja. Þeir hafa ekki sætt sig viö
málamiðlunartilboð þau sem fram
hafa komið til þessa.
Lokuðu hófnum
Franskir fiskimenn lokuðu í gær
höíhunum í Boulogne og Calais í
Frakklandi og stöðvuðu meö því
móti alla umferð milh hafnanna
tveggja og hafnarborga í Bretlandi,
aö því er franskir embættismenn
skýrðu frá.
Fiskimennimir era aö mótmæla
því að Bretar hafa nú bannað þeim
veiöar í landhelgi sinni.
Innflutningur
bannaður
Reagan forseti tilkynnti ný höft á viðskipti við Iran í gær.
Simamynd Reuter
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
tilkynnti í gær nýjar viöskiptahöml-
ur gagnvart íran. Felast þær í því að
aUur innflutningur frá íran tU
Bandaríkjanna er héðan í frá bann-
aður og mun harðari takmarkanir
era settar á útflutning frá Bandaríkj-
unum tíl írans.
Reagan forseti lagði í gær áherslu
á að þessar efnahagsaðgerðir gegn
írönum væru ákveðnar eftir að ítrek-
að hefur verið reynt að slaka á
spennu milli ríkjanna, svo og vegna
endurtekinna ofbeldisaðgerða ír-
anskra yfirvalda.
Reagan sagði að banrnð við inn-
flutningi á vöram frá íran myndi
taka gUdi eins fljótt og mögulegt
væri og að höftin á útflutning til ír-
ans yrðu komin tU framkvæmda
innan viku eða tíu daga.
Reagan sagði að innflutningsbann-
inu væri einkum beint gegn írönsk-
um olíuvöram og yrði það í gUdi þar
tíl íranir létu af árásaraðgerðum sín-
um.
Á síðasta ári keyptu Bandaríkja-
menn olíuvörar frá Iran fyrir um sex
hundruö mUljónir Bandaríkjadala
en tahð er aö á þessu ári hafi íranir
selt slíkar vörar fyrir um einn millj-
arð doUara tíl Bandaríkjanna.
Skrifstofu sfolið
PáU VUlqáimsson, DV, Osló:
í olí ubænum Stavangri var fram-
inn einstæður þjófhaður um helg-
ina. Aöfaranótt laugardags var
heiUi skrifstofu stoUö frá fýrirtæk-
inu Maritime GMC í Stavangri.
Er starfsmenn fyrirtækisins
komu til vinnu á laugardagsmorg-
un var sérstaklega smiöuö skrif-
stofa þeirra horfln. Skrifstofan er viö olíuiönaöinn. Forstjóri fyrir-
tíu metrar á lengd, tveggja metra tækisins segir að eina hugsanlega
breið og þrír metrar að hæð. Veg- ástæðan fyrir þjófnaðinum sé aö
summerki gáfu til kynna að bí- þjófamirviljikomastaörannsókn-
ræfnir þjófar hefðu um nóttina arniðurstöðunum sem eru leynd-
losað skrifstofubygginguna frá armál. Ekkert annaö fémætt var í
granni, lyft henni með krana upp skrifstofunni, segir forstjórinn.
átengivagnvörabílsogekiðafstaö. Lögregian i Stavangri reynir nú
Maritime GMC vinnur að við- hvaö hún getur til að hafa uppi á
kvæmum rannsóknum i tengslum stolnu skrifstofunni.
Bandaríkjamenn ánægðir
Pátl Vilhjálnisson, DV, Osló:
Bandarísk stjómvöld era ánægð
með rannsókn norskra yfirvalda á
ólöglegri sölu Kongsberg Vaabenfa-
brik á hátæknibúnaði til Sovétríkj-
anna. Þetta sagði sendimaður frá
bandaríska utanríkisráðuneytinu í
Osló í gær.
Norska ríkisstjómin ætlar að setja
strangari lög um bann við sölu á
hátækni til þessarra ríkja og herða
refsingar við brotum.
Þótt bandaríski sendimaðurinn sé
ánægður með afstöðu Norðmanna er
enn ekki útséð um hvort bandaríska
þingið hættir við að samþykkja refs-
iaðgerðir gegn Kongsberg.
Myrti verðbréfasala
og framdi sjáKsmorð
Eiginkona startsmannsins, sem særðist i árásinni, leidd á brott í gær.
Sfmamynd Reuter
Ólafur Amarson, DV, New York
Maður vopnaður byssu réðst í gær-
dag inn á skrifstofu verðbréfafyrir-
tækisins Merrill Lynch í Miami á
Flórída og skaut þar einn starfsmann
til bana, særði annan og stytti sér
síðan aldur.
Maðurinn hafði fjárfest á verð-
bréfamarkaðinum í gegnum fyrir-
tækið og í hruninu á Wall Street í
síðustu viku tapaði hann um einni
milljón dollara. Mun maðurinn hafa
talið Merrill Lynch ábyrgt fyrir ófór-
um sínum og borið hefndarhug til
fyrirtækisins.
Þetta er fyrsta tílfelliö, svo vitað sé,
í sviptingum þeim sem nú eiga sér
stað á Wall Street þar sem fólk hefur
fyllst svo mikilli angist vegna eigna-
taps að það grípur til örþrifaráða.
Það var hins vegar mikið um atvik
af þessu tagi í kjölfar hmnsins 1929.