Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
19
hefur stundað keppni. Við erum
með tvö mót á ári. Fyrra mótið er
kastmót Kastklúbbsins og seinna
mótið er íslandsmót. Þá er keppt í
sjö greinum. Það eru lengdarköst,
bæði einhendis og tvíhendis,
þrenns konar lóðaköst og síðan eru
tvenns konar nákvæmisköst með
lóðum.
Þetta er nokkuð vinsæl keppnis-
grein erlendis. Norðurlandamót,
Evrópumeistaramót og heims-
meistaramót eru fastir liðir og þar
er keppt í 11 greinum. Við höfum
ekki tekið þátt í þessu síðan 1972
en þá vorum við þarna þrír saman.
Ástvaldur Jónsson.
Okkur skortir þá aðstöðu sem þarf
til að geta gert þessa íþrótt sam-
keppnishæfa.
Þessi kennsla, sem hér fer fram
innanhúss, er næstum séríslenskt
fyrirbæri og þeir útlendingar sem
hér koma eru alveg hissa á því að
sjá þessa starfsemi."
Það er nokkurn veginn sami
kjarninn sem hefur staðið að þess-
ari kennslu en það eru um 15
manns. Nú, það sýnir kannski ár-
angur kennslunnar aö fyrrum
nemendur hafa margir hverjir en-
dað sem leiðbeinendur. Þessi
kennsla hjá Kastklúbbnum hófst
1960 en þar á undan hafði Albert
Erlingsson í Veiöimanninum verið
með leiðbeiningar fyrir veiði-
menn.“
Lengst af hefur kennslan verið í
Laugardshöllinni en að sögn Ást-
valds hefur sífellt orðið erfiðara
fyrir þá stangveiðimenn að halda í
þennan tíma vegna ásóknar ann-
arra íþróttagreina í húsið. Það var
ekki mjög fjölmennt á þeirri æfingu
sem við litum inn á og er þaö sam-
kvæmt venju aö haustnámskeið
eru minna sótt en vetrarnámskeið-
in. Eftir áramót þarf vanalega að
vísa fólki frá enda fer áhugi al-
mennings á veiðiíþróttum sífellt
vaxandi. Þetta er geysilega tjöl-
breytt íþrótt og þó að vissulega geti
kostað sitt að veiða í betri laxveið-
iám þá eru möguleikarnir til að
stunda veiði það margbreytilegir
að allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.
-SMJ
Einn af þeim sem dunduðu sér
við það í Laugardalshöllinni að
kasta fram eftir parketgólfmu var
Júlíus Elhðason. Hann bar sig fag-
mannlega við „veiðarnar" og þegar
á hann var gengiö kom í ljós að
hann hafði töluvert fengist við
veiðiskap áður. Ástæða þess að
hann var þarna í Laugardalshöll
var sú að hann vildi losa sig við
ýmsar vihuhugmyndir varðandi
veiðamar og ná fullkomnun í
fluguveiðum.
„Ég hef ekkert getað kastað með
flugu, maður reyndi í sumar en
átti í erfiðleikum með að koma
flugunni út. Mér fmnst ég þegar
finna mun, ég átti erfitt með að
beita stönginni, notaði kraftinn svo
mikið en hér er það lagnin sem
ghdir. Maður lærir að beita stöng-
inni upp á nýtt hér en það er atriði
númer eitt að kunna að beita stöng-
inni.“
Júlíus er mikh veiðiáhugamaður
og hefur stundað veiðiskap í fimm
ár en að eigin sögn orðið að ein-
beita sér að maðkinum og þá
stundum orðið að horfa upp á fé-
laga sína moka fiskinum inn á
fluguna. „Það gat stundum verið
ergilegt og því er ég kominn hér.“
Júhus sagðist hafa veitt mikið
með Gunnari Bender, veiðihák og
ritstjóra, og því lá beint við að
spyija hvort Gunnar hefði ekki
getað kennt honum að veiða á
flugu? „Gunnar er svo mikið í mað-
kinum, hann viröist lítið spenntur
fyrir flugunni." Júhus taldi þó að
fluguveiði væri mun meira spenn-
andi, allt að því hstgrein. „Það er
lífsspursmál fyrir þá sem ætla aö
veiða í góðum ám að kunna að beita
flugunni."
-SMJ
Sáaðal-
legaum
háfinn
í þeim hópi, sem var að æfmgum
í Laugardalshölhmú, voru ekki
margar konur en þó mátti vissulega
sjá nokkrar. Ein þeirra heitir Emiha
Júhusdóttir og lá beint við að spyria
hana hvað drægi hana inn í Laugar-
daishöh á sólríkum sunnudags-
morgni th að æfa fluguköst?
„Það er eiginmaðurinn því hann
er með veiðideUu. Ég hef ekki komið
mikið nálægt veiðimennskunni
sjálfri fram að þessu, aðaUega verið
með háfmn.“ Emiha kvað reyndar
að eiginmaðurinn, Guðmundur
Bertelsson, væri með henni á nám-
skeiðinu en hann hefði áður verið á
svona námskeiði. En er þetta ekki
dýrt sport fyrir fjölskyldu?
„Nei, nei, við höfum mikið verið í
urriðaveiði sem er auðvitað ódýrari
enlaxveiði. Við fórum mest á yndis-
legan stað, Laxá í Laxárdal, og forum
við þangað árlega og erum þar í viku.
Þetta er uppáhaldsstaöur okkar
enda ákaflega faUegt og friðsælt
þarna. Þar er eingöngu fluguveiði
og þess vegna er ég hér til að geta
tekið þátt í því meira. Kennslan hér
er tvímælalaust mjög gagnlegt. Það
er nauðsynlegt aö læra þessa hluti
frá byijun. Ég vhdi ekki vera að láta
manninn minn kenna mér, heldur
fá leiðbeingu sérfræðinga enda er
huguveiði mikh kúnst.“ -SMJ
Emilia Júlíusdóttir ætlar ekki að iáta sér nægja að fylgjast með af bakkanum.