Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Qupperneq 33
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987.
33 •
ðv Fólk í fréttum
Rafn Hafnfjörð
Rafn Hafnfjörð prentsmiðjustjóri
var á sunnudag kjörinn formaöur
Landssambands stangaveiði-
manna.
Rafn Hafníjörð er fæddur 21. des-
ember 1928 í Hafnarfirði og lauk
sveinsprófi í oífsetprentun í Litho-
prent 1953. Hann stofnaði ásamt
öðrum Litbrá hf. 1954 og hefur ver-
ið prentsmiðjustjóri þar frá 1964 og
eigandi frá 1968. Rafn hefur haldið
margar ljósmyndasýningar frá
1961, eins og á heimssýningunni í
Montreal 1967. Hann hefur unnið
til pölda verðlauna, t.d. samkeppni
um gæðamerki fyrir íslenskar iðn-
aðarvörur 1975, og hlotið viður-
kenningar á sviði ljósmyndunar,
eins og frá útflutningsráði og AB.
Ljósmyndir eftir hann hafa verið
gefnar út víða og er Rafn núna einn
stærsti póstkortaútgefndi landsins.
Rafn var stofnandi og fyrsti ritari
félags offsetprentara. Hann hefur
verið í stjórn stangaveiðifélagsins
Strengs og hefur verið formaður
Landssambands stangaveiðifélaga
frá 1986.
Rafn kvæntist 1950 Kristínu
Björgu Jóhannsdóttur, f. 18. sept-
ember 1930. Foreldrar hennar eru
Jóhann Pétursson, skipstjóri á Pat-
reksfirði, og kona hans, Elín
Bjarnadóttir. Börn þeirra Rafns og
Kristínar eru Hjördís Hafníjörð, f.
26. nóvember 1950, gift Hirti Zakar-
íassypi, bæjaritara Keflavíkurbæj-
ar; Birna Hafnfjörð, f. 23. júní 1954,
gift Gunnari Erni Kristjánssyni
endurskoðanda; Hrafnhildur Hafn-
fjörð, f. 23. júní 1954, gift Kristjáni
Gunnarssyni, verkfræðingi í Rvík;
Elín Þóra, f. 10. nóvember 1955,
myndmenntakennari, sambýlis-
maður hennar er Steingrímur
Guðmundsson trommuleikari;
Þyri, f. 28. desember 1958, gift Elv-
ari Unnsteinssyni, lögfræðingi í
Rvík; Jóhann Hafnfjörð, f. 29. maí
1961, d. 22. janúar 1965; og Jóhann
Hafníjörð, f. 29. september 1965,
nemi í offsetprentun. Hálfbróðir
Rafns, sammæöra, var Jón Nord-
enskjöld Gústavsson sjómaður, f.
9. september 1916, sem fórst 1941.
Foreldrar Rafns voru Gunnlaug-
ur Sigurðsson, b. í Urriðakoti í
Garðahreppi, og Þuríður Sveins-
dóttir. Faðir Gunnlaugs, Gunn-
laugur, var Sigurður, b. á Móum á
Skagaströnd, Jónassonar, b. á Hlíð
í Garðabæ. Þuríður, móðir Rafns,
var dóttir Sveins sjómanns og bæj-
arfulltrúa í Hafnarfirði, eins af
stofnendum verkamannafélagsins
Hlífar og stúkunnar Daníelsher í
Hafnarfirði, bróður Magnúsar, afa
Guðmundar í. Guðmundssonar,
fyrrv. utanríkisráðherra, og lang-
afa Davíðs Á. Gunnarssonar,
forstjóra ríkisspítalanna. Annar
bróðir Sveins var Kristján, afi
Kristjáns Andréssonar, bæjarfull-
trúa í Hafnarfirði, föður Loga,
fyrrv. bæjarstjóra í Neskaupstað.
Sveinn var sonur Auðuns, hafn-
sögumanns í Hafnarfirði, Stígsson-
ar. Móðir Auðuns var Oddný
Steingrímsdóttir, b. á Hofdölum í
Skagafirði, Ólafssonar, bróður
Ragnheiðar, langömmu Benedikts
Sveinssonar sýslumanns, fóður
Einars skálds. Móðir Þuríðar var
Vigdís, systirMálfríðar, langömmu
Björns Björnssonar, prófessors í
guðfræði. Vigdís var dóttir Jóns,
þurrabúðarmanns í Selsgarði á
Álftanesi, Brandssonar, b. á Vatns-
Rafn Hafnfjörð.
enda, Jakobssonar. Móðir Jóns var
Karítas, systir Páls, prófasts í
Hörgslandi, langafa Guðrúnar,
móður Péturs Sigurgeirssonar
biskups. Karítas var dóttir Páls
spítalahaldara á Hörgslandi, Jóns-
sonar, og konu hans, Ragnheiðar
Guðmundsdóttur, systur Ólafs,
langafa Björns Þórðarsonar for-
sætisráðherra.
Afmæli
Rósa María Þóra Guðmundsdóttir
Rósa Guðmundsdóttir húsmóðir,
Einigrund 30, Akranesi, er sjötug í
dag. Rósa fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Árið 1935 lauk hún
prófi frá VÍ og tvö næstu ár dvaldi
hún í Danmörku við nám í píanó-
leik í Helsingjaeyri og við hús-
mæðranám í Sorö.
Þegar Rósa giftist settist hún að
í Ytri-Njarðvík og átti þar heima á
árunum 1941 til 1953 ásamt eigin-
manni sínum, Vésteini Bjarnasyni
frá Kirkjubóli í Dýrafirði, f. 1913,
d. 1983. Vésteinn stundaði verslun-
ar- og skrifstofustörf hjá Karveli
Ögmundssyni útgerðarmanni í
Njarðvík en eftir að Vésteinn flutti
til Akraness árið 1953 starfaði hann
hjá Fiskiveri hf. og hjá Akranesbæ,
m.a. sem bæjargjaldkeri.
Börn Rósu og Vésteins eru: Guð-
mundur, f. 1941, framkvæmdastjóri
Sjúkrasamlags Akraness. Kona
hans er Málhildur Traustadóttir
bankafulltrúi og eiga þau eitt barn.
Vésteinn, f. 1942, er bóndi í Hofs-
staðaseli, Skagafirði. Kona hans er
Elínborg Bessadóttir og eiga þau
fimm börn. Grétar, f. 1942, er raf-
eindavirki við lóranstöðina á
Keflavíkurflugvelli. Kona hans er
Gyða Ólafsdóttir og eiga þau þrjú
börn og búa í Hafnarfirði. Sigurð-
ur, f. 1944, er húsasmiður á
Akranesi. Kona hans er Hafdís
Karvelsdóttir sjúkraliöi og eiga þau
fjögur börn. Bjarni, f. 1945, er bygg-
ingafræðingur á Akranesi. Kona
hans er Steinunn Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur og eiga þau
tvö börn. Viöar, f. 1948, er forstöðu-
maöur Verndaðs vinnustaðar á
Akranesi. Kona hans er Guðrún
Víkingsdóttir hjúkrunarfræðingur
og eiga þau þrjú börn. Auður, f.
1950, er listvefnaöarkona, búsett í
Reykjahlíö í Mývatnssveit. Maður
hennar er Sveinn Baldursson vél-
stjóri og eiga þau tvö börn. Anna,
f. 1954, er húsmóðir og sjúkraliði á
Akranesi. Maður hennar er Eirík-
ur Karlsson húsasmiður og eiga
þau þrjú börn. Guðbjörg, f. 1956,
er fóstra, búsett að Hólum í Hjalta-
dal. Hennar maður er Sveinbjöm
Markús Njálsson kennari og eiga
þau tvö börn. Árni, f. 1960, er land-
fræðingur hjá Sjómælingum ís-
lands. Kona hans er Ingibjörg
Rögnvaldsdóttir bókasafnsfræö-
ingur og eiga þau eitt barn.
Foreldrar Rósu voru Jón Gísla-
son sjómaður og Margrét Brynj-
ólfsdóttir frá Eyrarbakka en þau
settust síðar að í Reykjavík. Jón
var sonur Guðlaugar Jónsdóttur
og Gísla Jónssonar í Eyfakoti á
Eyrarbakka. Guðlaug var dóttir
Jóns Brynjólfssonar, b. í Ölves-
holti, en hann var sonur Brynjólfs
Jónssonar, f. 1760, d. 1830, er bjó á
Minna-Núpi. Margrét, móðir Rósu,
var dóttir Brynjólfs Vigfússonar
trésmiðs frá Söndum í Meðallandi
og Þóreyjar Sveinsdóttur frá
Simbakoti á Eyrarbakka, af Bergs-
ætt.
Brynjólfur og Þórey áttu fjögur
börn. Auk Margrétar, sem fædd
var 1882, var Brynjólfur Karl, f.
1886, og Rósa María, f. 1896, en þessi
þríú létust með stuttu millibili á
áranum 1917-1919. Hiö fjórða var
Sveinbjörg, f. 1883, kona Jóns Jóns-
sonar, b. og alþingismanns, í
Stóradal í Svínavatnshreppi.
Systkini Rósu eru: Guðlaug, hús-
móðir í Reykjavík, en hún er látin;
Sveinberg bifreiðarstjóri, lengi bú-
settur á Blönduósi, en hann er
látinn; Guðrún, húsmóðir í Reykja-
vík; Brynjólfur, sem lést ungur í
snjóflóði á Rauðasandi; og Arn-
heiöur, húsmóðir að Breiðumýri í
Suður-Þingeyjarsýslu.
Eftir andlát móður sinnar var
Rósa tekin kornung í fóstur af Sig-
ríði Guðmundsdóttur, f. 1876, d.
1929, og Guðmundi Kristjánssyni,
skipstjóra og síðar skipamiðlara í
Reykjavík, f. 1871, d. 1949. Þau hjón-
in voru bæði Dýrfirðingar. Rósa
varð síðan kjördóttir Guðmundar.
Kristján Böðvarsson
Kristján Böðvarsson bygginga-
verkamaður, Þórunnarstræti 97,
Akureyri, er sjötíu og fimm ára í
dag. Kristján fæddist á Akureyri
og ólst þar upp í foreldrahúsum,
en var einnig mikið í sveit að
Landamóti í Köldukinn. Hann var
þar fyrst á sumrin og reyndar einn-
ig allan ársins hring á unglingsár-
unum. Hann fór síðan í vegavinnu
á sumrin en hefur mest starfað í
byggingavinnu á Akureyri.
Kona Kristjáns er Ingibjörg, f.
1916. Foreldrar hennar, sem eru
látnir, voru Steingrímur Jóhannes-
son, sem lengi var b. á Skaga í
Skagafirði, og þá m.a. á Selá, og
kona hans, Kristín Þorsteinsdóttir.
Kristján og Ingibjörg eiga eina
dóttur. Hún er Guðný Kristín, f.
1953. Maöur Guðnýjar er Gylfi
Jónsson bifvélavirki. Þau búa á
Akureyri og eiga þrjú börn.
Systkini Kristjáns urðu átta en
hann á nú þrjá bræður á lífi og eina
systur: Björn, f. 15.1.1911, var lengi
vinnumaður á Halldórsstöðum í
Kinn. Jóhann, f. 15.1.1911, var lengi
verkamaður á Akureyri, giftur
Friðriku Halldóru Einarsdóttur.
Jóhann er látinn. Ámi, f. 5.8.1914,
vann lengi hjá Vegagerð ríkisins.
Hann giftist Hólmfríði Stefánsdótt-
ur. Jakob, f. 8.3. 1916, var brúar-
smiður og vann einnig hjá
Vegagerðinni. Hann giftist Rósu
Kristjánsdóttur. Selma, f. 17.4.1918,
er húsmóðir og starfar hjá Norður-
stjörnunni en hún býr í Hafnar-
ftrði. Katrín, dó ung. Kristín, f. 17.4.
1920. d. 1949, giftist Björgvin Stef-
ánssyni, sjómanni í Hafnarfirði.
Katrín, dó ung.
Foreldrar Kristjáns voru ættaðir
austan úr Köldukinn og bjuggu á
Ófeigsstöðum í sömu sveit en fluttu
til Akureyrar eftir að þeir giftu sig
og var Böðvar lengst af daglauna-
maður á Akureyri. Foreldrar
Kristjáns voru Böðvar, d. 1930,
Björnsson, Jóhannessonar, og
kona hans, Guðný, f. 1877, Krist-
jánsdóttir, b. á Ófeigsstöðum,
Árnasonar, og Guðnýjar Guðlaugs-
dóttur af Skútustaðaættinni.
80 ára________________________
Soffía K. Löve, Mánagötu 9,
ísafirði. er áttræð í dag.
60 ára________________________
Jóhanna Pétursdóttir, Staðarvör
2. Grindavík, er sextug í dag.
Agnar Hall Ármannsson vélstjóri,
Hlíðargötu 31, Neskaupstað. er sex-
tugur í dag.
50 ára______________________
Rafn Valgeirsson, Skólavegi 6,
Búðahreppi. er fimmtugur í dag.
Sigþór Jónsson bóndi. Ási I. Ása-
hreppi. er fimmtugur í dag.
Sverrir Guðmundsson, Kópavogs-
braut 82, Kópavogi, er fimmtugur
í dag.
Halldór Erlendsson.
Halldór
Erlendsson
Halldór Erlendsson frá Dal í
Miklaholtshreppi er níutíu ára.
Hann fæddist og ólst upp að Hjarð-
arfelli en bjó ásamt konu sinni,
Önnu S. Einarsdóttur, á nágranna-
jörðinni Dal í full fjörutíu ár og
unnu þau þeirri jörð margt til um-
bóta. Þau hjónin búa nú á Dvalar-
heimih aldraðra í Borgarnesi.
40 ára
Sumarrós Hansdóttir. Vallargötu
26. Keflavík. er fertug í dag.
Sigurður Sigurjónsson. Ytri-Skóg-
um, Austur-Eyjafiöllum. er fertug-
ur í dag.
Elín Kristjánsdóttir, Neströð 1.
Seltjarnarnesi. er fertug í dag.
Már Sveinbjörnsson, Breiðvangi 46.
Hafnarfirði, er fertugur í dag.
Gísli Aðalsteinn Hjartarson, Fjarð-
arstræti 2, ísafirði, er fertugur í
dag.
Oskar Elías Bjömsson
Óskar Elías Björnsson, Faxastíg
5, Vestmannaeyjum, er sjötugur í
dag. Óskar fæddist á Bergstaða-
stræti í Reykjavík en þegar hann
var sjö ára fórst faðir hans sem var
sjómaður. Óskar var þá að mestu
alinn upp hjá Gunnari Ásbjörns-
syni og Katrínu Jónsdóttur í
Skipageröi sem var einn af hinum
svonefndu Sjóbæjum í Út-Landeyj-
um. Þegar Oskar var um ferming-
araldur missti hann móöur sína.
Var hann þá hjá móöursystur sinni
í eitt ár en fór síðan aö Beijanesi
undir Eyjafiöllum til nafna síns,
Ásbjörnssonar, sem þar bjó á móti
Andrési Andréssyni.
Óskar fór síðan til Vestmanna-
eyja á vertíð og hefur að mestu
verið í Eyjum síðan.
Kona Óskars er Sigríður, f. í Vest-
mannaeyjum 1922, Sigurðardóttir,
sjómanns, Þorleifssonar, sem ætt-
aður er úr Skaftafellssýslu, og
Margrétar Gunnlaugsdóttur en
þau eru bæði látin.
Óskar og Sigríður eignuöust sjö
börn en tvö þeirra eru látin: Ár-
mann, f. 1941, var sjómaður áður
fyrr en rak síðan Áhaldaleiguna í
Vestmannaeyjum. Hann er látinn.
Guörún, f. 1945, vinnur á Hrafnistu
í Reykjavík. Hún á tvö börn og er
búsett í Reykjavík. Margrét, f. 1948,
er gift Auðberg Óla Valtýssyni sem
er tækjavörður hjá Bæjarsjóði
Vestmannaeyja. Þau eiga tvö börn.
Óskar, f. 1955, rekur nú Áhaldaleig-
una í Eyjum. Hannes, f. 1957, fórst
við björgunarstörf þegar togarinn
Pelagus strandaði við Prestabót í
nýja hrauninu í Heimaey í janúar
1982. Hannes vann við áhaldaleig-
una hjá bróður sínum. Guðný, f.
1959, vinnur í fiski í Vestmannaeyj-
um. Ármey, f. 1960, er húsmóðir í
Vestmannaeyjum, gift Sigurði Sig-
urbjömssyni bílstjóra, en hann er
ættaður frá Blönduósi. Þau eiga tvö
börn.
Foreldrar Óskars voru Björn
Sæmundsson sjómaður og Guðrún
Jónsdóttir, ættuð frá Eyrarbakka.
Andlát
Sigurður A. Pétursson, Hring-
braut 60, Keflavík, lést að heimili
sínu 23. október.
Guðmundur Eiríksson, Frosta-
skjóli 27, Reykjavík, er fertugur í
dag.
Örn Vilmundarson, Heiöarholti 4,
Keflavík, er fertugur í dag.
Guðmundur Guðjónsson, Barrholti
35, Mosfellsbæ, er fertugur í dag.
Ingerd Hedvig S. Narby, Freyju-
götu 6, Reykjavík, er fertug í dag.
Jórunn Steinunn Jónsdóttir, Haga-
mel 21, Reykjavík, lést í Landspítal-
anum laugardaginn 24. október.
Björg Aradóttir lést í Landspítalan-
um 26. október.
Áslaug Þ. Simonardóttir frá Sel-
fossi lést í Sjúkrahúsi Suðurlands
24. október.
Séra Guðmundur Benediktsson,
fyrrverandi prestur aö Barði í
Fljótum, lést á heimili sínu, Voga-
braut 32, Akranesi, sunnudaginn
25. október.
Jóhannes Kristinsson andaðist
sunnudaginn 25. október.
Henrik Sigurðsson, Laugarásvegi
55, lést 26. október.