Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.. Stjómmál Söluskattsfrumvarp í undirbúningi: IVær söluskattsprósentur á næsta ári, 22% og 12% Söluskattur veröur líklega í tvennu lagi á næsta ári. Rætt er um aö hærra söluskattshlutfallið veröi um 22% en það lægra um 12%. í fjármálaráðuneytinu er verið aö „Tilgangur þessa frumvarps er að sporna við misnotkun valds og að- stöðu viö veitingu þeirra áhrifamiklu starfa er hér um ræðir og leitast við að fagleg sjónarmið verði sett ofar Hokkslegum,“ segja borgaraílokks- þingmennirnir Ingi Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson í greinargerð með frumvarpi sem þeir flytja á Al- þingi til aö breyta lögum um við- skiptabanka. Þingmennirnir vilja að 11. grein laganna orðist svo: „Bankastjórn ríkisviðskiptabanka, skipuð þremur bankastjórum, hefur með höndum framkvæmdastjórn bankans. Rannsakið verðhækkanir er krafa svohljóðandi þingsályktunartillögu sem alþýðuflokksmennirnir Birgir Dýrfjörð, Karl Steinar Guðnason og Karvel Pálmason flytja um verðlags- rannsókn: „Alþingi ályktar að fela viðskipta- ráðherra að láta fara fram rannsókn á þeim verðhækkunum sem átt hafa sér stað á líðandi ári með það að markmiði að leiða í ljós hverjar or- sakirnar séu, þar á meðal hvort verslunar- og þjónustufyrirtæki séu ganga frá frumvarpi um söluskatt sem Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi innan skamms. Ríkisstjómin stefnir að því að virð- isaukaskattur leysi söluskatt af um Bankaráð ræður bankastjóra og segir þeim upp starfi. Bankastjórar skulu eigi ráönir til lengri tíma en sex ára í senn. Lausar stöður banka- stjóra ríkisviðskiptabanka skulu ávallt auglýstar til umsóknar í Lög- birtingablaði og dagblöðum með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Með umsóknum skulu fylgja ræki- legar upplýsingar um menntun og fyrri störf umsækjenda. Hafi bankastjóri brotiö af sér í starfi getur bankaráð að höfðu sam- ráði við ráðherra vikið honum frá fyrirvaralaust og án launa.“ -KMU að ætla sér aukinn hlut í ágóða eða til þess að standa undir óhagkvæmri fjárfestingu. Jafnframt verði verð- myndun í innflutningsverslun athuguð sérstaklega. Sömuleiðis verði kannað að hve miklu leyti tak- mörkun á samkeppni leiði til óhóf- legs verðs á vörum og þjónustu, þar á meðal sérstaklega á flutningsgjöld- um og hvort slíkar aðstæður gefi tilefni til þess að beita ákvæðum um hámarksverð eða hámarksálagn- ingu.“ -KMU áramótin 1988-1989, eftir rúmt ár. Álagning söluskatts á næsta ári verð- ur því millibilsástand til undirbún- ings viröisaukaskatti. Lægra söluskattshlutfallið, 12%, Þingmenn Vesturlandskjördæmis, undir forystu Eiðs Guðnasonar, lögðu í gær fram á Alþingi þingsá- lyktunartillögu um að fram fari nauðsynlegar rannsóknir til að kanna hversu hagkvæmt sé aö gera göng undir Hvalfjörð utan við Lauf- ásgrunn og Hnausasker eða brú í fjaröarmynni og breyta legu Vestur- landsvegar þannig að farið sé vestan Akrafjalls um Grunnafjörð á Fiski- lækjarmela. „Með því móti styttist leiðin frá Reykjavík til Akraness um 61 km og verður 48 km í stað 109 km. Leiðin til Borgamess styttist um 45 km og verður þá vegalengdin milli Borgar- ness og Reykjavíkur 71 km í stað 116 mun einkum leggjast á þjónustu. Hærra söluskattshlutfallið, 22%, mun leggjast á vörur, meðal annars á matvæli, samkvæmt þeim hug- myndum sem nú er gengið út frá. Söluskattur á þjónustu er nú 10% km,“ segir í greinargerð þingmann- anna. Til að fjármagna framkvæmdina benda þeir á þá leið að stofna sér- stakt fjárfestingarfélag sem myndi innheimta veggjald þangað til kostn- aði væri náð en eftir það yrðu göngin þjóðareign. Þgir segja að Norðmenn háfl náð ótrúlegum árangri við lækkun kostnaöar við jarðgangagerð. Nefnt er dæmi af tvennum nýjum göngum milli eyja við Álasund, 3,5 km og 4,2 km að lengd, sem kostaö hafi rétt tæpa tvo milljarða íslenskra króna. Hver lengdarmetri í göngunum hafi kostað 171 þúsund íslenskar krónur. -KMU en á vörur 25%. Matvæli eru enn undanþegin söluskatti. Með breikk- un skattstofns, einkum með skatt- lagningu matvæla, er unnt að lækka hlutfallið niður í 22%. -KMU Frumvarp um sam- eiginlegt foival „Um leið og boðað er til alþingis- kosninga skal stjórnmálasamtökum, sem hyggjast bjóða fram lista, gefinn kostur á að taka þátt í sameiginlegu forvali til að undirbúa skipan fram- boðslista.“ Svo hljóðar fyrsta málsgrein laga- frumvarps sem Ragnar Arnalds, þingmaður Alþýðubandalagsins, hefur lagt fram um breytingu á kosn- ingalögum. Ragnar segir í greinargerð að sá hængur sé á gildandi kosningalögum að kjósendur eigi þess tæpast kost að ráða neinu um röð frambjóðenda á þeim listum sem þeir kjósa. „í frumvarpi þessu er stjórnmála- flokkum gefinn kostur á nýjum leiðum til að bjóða kjósendum sínum að velja frambjóðendur flokksins. Þó er þaö megineinkenni frumvarpsins að stjómmálaflokkunum er áfram í sjálfsvald sett hvort þeir reyna þess- ar leiðir eða halda sig við það sem verið hefur.“ í frumvarpi Ragnars er einnig opn- að fyrir þá leið að stjórnmálasamtök geti lagt fram óraðaöan lista. -KMU Frumvarp Borgaraflokks: Bankastjórar verði ráðnir til sex ára Göng undir Hvalfjörð á þessum stað yrðu um 4,5 kilómetra löng. Rannsakið verðhækkanir í dag mælir Dagfari Póker í pólitík Þá er það komið í ljós sem Dagfari spáði. Kratarnir eru búnir að draga í land í kvótamálinu af því Fram- sókn dró í land í húsnæðismálun- um. Kaup kaups. Og allt falhð í dúnalogn. Menn eiga nefnilega ekki að halda að stjórnmálaflokk- amir meini eitthvað með því sem þeir segja. Þegar Framsókn er að rífast út í húsnæðismálafrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur og lýsa yfir því aö það sé allt á skjön og ská við skynsemina er það bara til að skapa sér vígstöðu. Eins er það þegar Alþýðuflokkurinn rýkur upp á nef sér og hefur í hótunum út af kvótafrumvarpi Halldórs Ásgríms- sonar, þá er það bara til að svara fyrir sig. Einhverjar saklausar sálir tóku þetta alvarlega og almenningur hefur jafnvel haldið að allt væri upp í loft á stjómarheimilinu. Það er mikill misskilningur. Samkomu- lagið hefur aldrei verið betra. Jafnræðið er fullkomið. Hver hefur sitt klögumál uppi í erminni ef hinn skyldi fara aö rífa kjaft og enginn vandi að búa til ný þegar gömlu klögumálin eru á þrotum. Nú er búið að jafna út kvótamálinu á móti húsnæðisfrumvarpinu og þá er ekkert auðveldara heldur en að finna ný mál til að hafa upp á að hlaupa ef samstarfsflokkarnir skyldu ætlast til að fá eitthvað sam- þykkt sem hinir geta ekki sam- þykkt. En einmitt af því að menn geta ekki samþykkt hvað sem er þá verður niðurstaðan í þessum hró- keringum á ágreiningsmálum sú að öll mál eru samþykkt. Aðferðin er semsagt sú að vera á móti máli sem hinir eru með. Bera síöan fram annað mál sem öruggt er að hinir séu á móti og þannig fást samþykkt öll mál ef einhver er örugglega á móti því. Jón Baldvin var á móti of miklum íjárveitingum í landbúnaðinn. Fjárlagafrumvarpið bar það með sér. Framsókn reif kjaft og hótaði að vera á móti Jóni í öðrum málum. Þá var sett nefnd í málið og allt féll í ljúfa löð. Kratarnir samþykktu auknar fjárveitingar. Framsókn samþykkti áhugamálin hjá krötun- um. Jón Helgason er að vísu aö nöldra og tuða, eins og Páll Péturs- son orðar það, en tuðið í Jóni stafar einfaldlega af því að hann kann ekki að vera á móti máli til að fá aðra til að vera með því. Hann kann ekki aðferðina viö að búa sér til mál til að hafa kaup kaups. Heldur aö þetta sé eins og í gamla daga í pólitíkinni að menn eigi að hafa skoðanir og standa á þeim. Enda er Jón landbúnaðarráðherra á köldum klaka og jafnvel Hölustaða Páll nennir ekki að styðja hann. Sjálfstæðisflokkurinn er að mestu stikkfrí í þessum hrossaka- upum. Þó örlaði á tilburðum af hans hálfu í Útvegsbankamálinu en eins og venjulega snerist málið í höndum hans. Sjálfstæðisflokkur- inn vildi selja Útvegsbankann. Sambandið vildi kaupa. Það gat Sjálfstæöisflokkurinn ekki sam- þykkt enda má bara selja banka ef réttir menn kaupa banka. Þetta varð til þess að flokkurinn organis- eraði flokkseigendur til að gera tilboð í bankann. Þá sögðu Fram- sókn og kratar. Við viljum ekki selja. Það má ekki selja hverjum sem er ef bankinn er seldur. Og málið komst í patt. Bankinn er enn- þá óseldur. Síðan þetta herbragð Sjálfstæðis- flokksins misheppnaðist í banka- sölunni hefur flokkurinn að mestu verið til hlés í póhtíkinni og er hættur að tala við sjálfstæðismenn í Sjálfstæðisflokknum. Formaður- inn er núna aðallega að tala við sjálfstæðismenn í öðrum flokkum og biður þá um að koma heim aft- ur. Ennþá bólar ekki á neinum, enda ekki pláss fyrir fleiri í Byggðastofnun sem er það eina sem sjálfstæðisþingmenn sækjast eftir um þessar mundir. Þar er nefnilega hægt að úthluta fjármun- um almennings en sjálfstæðismenn geta ekki hugsað sér neitt eftir- sóknarverðara í pólitíkinni heldur en að ráðstafa fjármunum annarra. Nei, Sjálfstæðisflokkurinn tekur ekki þátt í pókerspili hinna flokk- anna. Hann hefur að mestu dregið sig út úr pólitíkinni meðan sam- starfsflokkamir samþykkja mál hver annars með því að vera á móti þeim. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.