Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
Útlönd
Fangamir skreyta Jólatré
Kubönsku fangarnir, sem enn halda um níutíu gíslum í fangelsinu í
Atlanta í Bandaríkjunum, skreyttu í gær jólatré uppi á þaki sjúkradeild-
ar fangelsisins. Með því viija þeir líklega koma þeim skilaboðum áleiðis
til stjórnvalda að þeir séu reiðubúnir til langrar setu ef þeir ekki fá kröf-
um sínum framgengt.
Lausn deilu fanganna við bandarísk stjórnvöld virtist þó þokast ofurlít-
iö nær i gær þegar fóngunum var send segulbandsupptaka frá Augustine
Roman, rómversk-kaþólska biskupinum, sem átti svo stóran þátt í því
a$ deilurnar viö fangana i Oakdale leystust nú í vikunni.
YQrvöld leita nú allra hugsanlegra leiöa til að finna lausn á deilunni,
sem staðið hefur yfir í tiu daga, allt frá því fangamir gerðu úppreisn og
tóku fangelsið herskildi.
Berst gegn brottvísun
Ástralski fréttamaðurinn Micha-
el Byrnes berst nú af hörku fyrir
rétti sínum til þess að dveljast
áfram við störf á Filippseyjum.
Byrnes er fréttaritari ástralska
blaðsins Australian Financial
Review í Suð-Austur Asíu. Stjóm-
yöld á Filippseyjum hafa gert
honum að hverfa úr landi. ekki síð-
ar en á morgun, fóstudag, eða sæta
fangelsun. Astæðu brottvikningar-
innar segja stjórnvöld vera að
Bymes hafi rekið áróðursherferð
gegn landinu í skrifum sínum.
í greinum sínum hefur Bymes sagt að Filippseyjar séu spilltasta ríki
Asíu í dag og hefur hann varaö ástralska kaupahéðna við því að fjárfesta
þar.
Bymes á að hitta fulltrúa sijómvalda í dag.
Stúdentaóreirðir
Háskólum og öömm mennta-
stofnunum í Venesúela var í gær
lokað cftir að alda stúdentaóeirða
haföi kostað tvö mannslíf og tíu
höfðu meiðst af völdum þeirra.
Til óeirða hefur komið í sjö borg-
um og beinast mótmæli stúdent-
anna einkum gegn ofbeldi af hálfu
lögreglunnar. Hófust mótmælin
fyrir um sex dögum þegar þrítugur
stúdent lét lífið í gæslu lögreglunn-
ar í Merida.
Yfirvöld segja hann hafi látist af
of stórum skammti af kókaini, en
stúdentaleiðtogar kenna lögregl-
unni um dauða hans.
Annar stúdent lét lífið síðastliðinn fóstudag og er lögreglumaöur sakaö-
ur um að hafa skotið hann til bana. Liðlega tvítugur trésmiöur lét svo
lífið nú í vikunni þegar hann varð áhoríandi aö átökum stúdenta og lög-
reglu.
Stradivariussýnmg
Um þessar mundir stendur yfir
sýning á stradivarius-fiðlum i
Moskvu. Á sýningunni eru fimmt-
án fiðlur, sem eru úr safni sovéska
ríkisins af sérstökura hljóöfærum.
Sýningin, sem ber heitið „An-
tonio Stradivarius og itölsk fiölu-
gerö á 17. og 18. öld“, er haldin að
tilefni þess að tvö hundruð og
fimmtíu ár eru liöin frá dauða
fiölugerðarmeistarans.
Jessica
Hahn gleðikona?
Því er nú haldið fram aö Jessica
Hahn, kirkjuritarinn sem varð
bandaríska sjónvarpspredikaran-
um Jim Bakker að falli, hafi starfaö
sem gleöikona. Þaö er meliu-
mamma frá Long Island, Roxanne
Dacus að nafni, sem heldur þessu
fram og hélt hún blaöamannafund
um máliö í gær.
Sem kunnugt er hélt Jessica
Hahn því fram að hún hefði verið
þvinguð til kynferðislegs samneyt-
is viö Bakker og í kjölfar þess varö
hann aö segja af sér.
DV
Vona að orð
Reagans hafi sem
minnst áhrif
Bandarískir embættismenn hafa
lýst þeirri von sinni að ásakanir Ron-
alds Reagan Bandaríkjaforseta á
hendur Sovétmönnum í gær muni
ekki hafa áhrif á gang mála á leið-
togafundi hans með Mikhail Gor-
batsjov, aðalritara sovéska
kommúnistaflokksins, í byrjun
næstu viku.
Reagan sakaði Sovétmenn um ný
brot á samningum um takmörkun
vígbúnaðar. Sagði forsetinn, í ávarpi
sínu til bandaríska þingsins í gær,
að stjórnvöld í Moskvu hefðu ekki
leiðrétt þær athafnir sem biytu í
bága við gerða samninga.
Sovéskir embættismenn lýstu í gær
áhyggjum og undrun yfir því að for-
setinn skyldi á þennan hátt gera
opinberlega veður út af atriðum sem
fulltrúar stórveldanna tveggja eru
að ræða á fundum sínum. Þeir tóku
hins vegar undir með bandarískum
embættismönnum og sögðust varla
telja að orð forsetans hefðu mikil
áhrif á fund hans með Gorbatsjov.
Á sama tíma og försetinn bar fram
ásakanir sínar á hendur Sovétmönn-
um, lýstu aðrir háttsettir bandarískir
embættismenn þeirri von sinni að
leiðtogarnir kæmust á fundi sínum
eitthvað á veg í átt til samninga um
helmingssamdrátt í langdrægum
kjarnorkuvopnum.
Talið er að þessi tvískinnungshátt-
ur, sem bandaríska stjórnin sýnir,
eigi rætur sínar að rekja til viðleitni
hennar til aö fullnægja kröfum and-
stæðra hópa. Annars vegar þeirra
sem vilja afvopnun, hins vegar
íhaldssamra repúblikana sem vilja
aö forsetinn sýni Gorbatsjov hörku
á fundinum.
í texta þessarar Ijósmyndar frá Washington segir að mávurinn sé að lýsa
skoðun sinni á fyrirhuguðum leiðtogafundi þar. Væntanlega hefur sú skoð-
un lítil áhrif á fundinn og nú vonast bandarískir embættismenn til þess að
hið sama gildi um skoðanir forsetans. Simamynd Reuter
Samkomulag um Gíbraltaiflugvöll
Flugfargjöld lækka
Spánverjar og Bretar komust að
samkomulagi um Gíbraltarflugvöll í
gær. Þetta var skilyrði af hálfu Spán-
verja fyrir því að losað yrði um
hömlur á farþegaflugi í ríkjum Evr-
ópubandalagsins og það gefið frjálst.
Samkomulagið sem náðist eftir tólf
tíma samningafund utanríkisráð-
herra ríkjanna, Francisco Fernández
Ordonez og sir Geoffrey Howe, felst
Utanríkisráðherrar Spánar og Bretlands, Francisco Fernández Ordonez og
Geoffrey Howe, takast í hendur að loknum löngum og ströngum samninga-
viðræðum. Símamynd Reuter
í því að öll aöstaða til móttöku far-
þega og varnings verði aukin í hinni
örsmáu nýlendu Breta á Íberíuskaga,
Gíbraltar.
Jafnframt þessu verða teknar upp
reglulegar ferjuferðir milli Gíbraltar
og Algeciras, auk þess sem samgöng-
ur á landi milli Spánar og nýlend-
unnar verða stórauknar. Þetta hefur
þó engin áhrif á yfirráð Breta yfir
Gíbraltar en Spánverjar hafa lengi
gert kröfu til yfirráða yfir klettinum.
Vegna þessa lét Francisco Franco
einræðisherra loka landamærum
Spánar og Gíbraltkr jafnframt því
sem allar samgöngur voru lagðar
niður. Þetta gerði það að verkum að
þeir sem vildu komast frá Spáni til
Gíbraltar urðu svo árum skipti að
koma við í Marokkó.
Samkomulagið breytir í engu
áhuga Spánverja á yfirráðum yfir
klettinum, en hinir 30 þúsund íbúar
hans eru allir sem einn á því að halda
áfram að vera undir yfirráöum
Breta.
Samkomulag um flugvöllinn í Gí-
braltar var forsenda þess að Evrópu-
bandalagið gæti sett nýja reglugerð
um farþegaflug innan landa banda-
lagsins sem myndi stuðla að veru-
legri lækkun fargjalda en Spánveijar
höfðu hótað að beita neitunarvaldi
yrði reglugerðin lögö fram áður en
málefni Gíbraltar hefðu verið rædd.