Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Síða 24
24
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
íþróttir
Fjóla bjargaði
Stjömustúlkum
- er Stjaman vann Hauka, 20-18
Stjömustúlkurnar héldu sigur-
göngu sinni áfram er þær unnu
verðskuldaðan sigur á Haukum í
Hafnarfiröi í gærkvöldi. Stjarnan
hafði ávallt yfirhöndina í leiknum
og sigruöu meö tveggja marka
mun, 20-18, eftir að hafa leitt, 11-10,
í hálfleik.
Eins og áður sagði var sigur
Sljörnunnar sanngjarn. Stjörnu-
stúlkurnar voru betra liðið á vell-
inum og höfðu alltaf yfirhöndina í
leiknum. Þó náðu Haukastúlkurn-
ar að jafna í þrígang en með
baráttuvilja og leikgleöi náði
Stjarnan yfirhöndinni aftur. At-
hyglisvert hve Stjörnustúlkurnar
halda haus viö mótlæti þrátt fyrir
reynsluleysi og ungan aldur. Þær
gefast aldrei upp og berjast til síð-
ustu mínútu. Haukaliðið átti ekki
góðan dag. Munaði þar mestu að
þeir íeikmenn sem hafa leikið lykil-
hlutverk í sóknarleik liðsins
undanfarið náðu sér ekki á strik.
Mikill munur á liðinu frá því í síð-
asta leik er þær unnu stórsigur á
Val. Haukarnir fengu gullið tæki-
færi á að jafna leikinn er þær fengu
vítakast á síðustu mínútu leiksins
en Fjóla, góður markvörður Stjörn-
unnar, varði vel frá Margréti T.
Lið Stjörnunnar átti góðan leik
eins og áður sagði og var þetta sig-
ur liðsheildarinnar. Erfitt er að
hrósa einhverjum einstökum leik-
mönnum en þó áttu útispilarar
liðsins þær Herdís, Ragnheiður og
Drífa einna bestan leik.
Haukarnir spiluðu þennan leik
langt undir getu og vantaði allan
þann kraft sem í liðinu býr. Sókn-
armennimir brugðust og var
leikur liðsins bitla'us. Margrét var
sú eina sem sýndi eitthvaö og átti
þátt í flestum mörkum þeirra.
• Mörk Hauka: Margrét T. 9/4,
Steinunn 4, Elva og Halldóra 2
hvor, Ragnheiður eitt mark.
• Mörk Stjörnunnar: Ragnheið-
ur 8/4, Herdís og Drífa 4 hvor,
Guðný 2, Hrund og Ingibjörg eitt
mark hvor.
-ÁS/EL
FH kafsigldi Víking
FH vann öruggan sigur á Víking-
um í gærkvöldi. Eftir að hafa haft
yfir 10-7 í hálíleik skiptu þær um
gír í seinni hálfleik og unnu stórt
22-14.
Leikurinn var ekki vel spilaður
og fór mjög rólega af stað. Liðin
skiptust á að skora og þegar flautað
var til leikhlés hafði FH þriggja
marka forystu. Eitthvað hefur Við-
ar þjálfari messað yfir sínum
stúlkum í hálfleik því liöið kom
tvíelft til síðari hálfleiks og var allt
annað að sjá til liösins. Varnarleik-
urinn ágætur og kafsigldu FH
stúlkurnar leikmenn Víkings með
vel útfærðum hraðaupphlaupum.
Kraftur FH kom Víkingum í opna
skjöldu og höföu þær ekkert svar
við honum og hreinlega gáfust upp.
• Mörk Víkings: Inga Lára 6/4,
Valdís og Eiríka þijú hvor, Jóna
og Svava eitt hvor.
• Mörk FH:Kristín 5, Eva og
Hildur fjögur mörk hvor, Inga 3,
Rut 2/1, Heiða 2, Helga og Berglind
eitt mark hvor.
ÁS/EL
Juventus missti 2 stig
Reyksprengja, sem kastað var inn
á leikvanginn í leik Juventus og
Cesena í 1. deild ítölsku knattspyrn-
unnar í síðasta mánuðj, hefur reynst
Juventus dýrkeypt. I umræddum
leik fór Juventus meðsiguraf hólmi,
2-1.
I gær ákvað sérstakur dómstóll að
leikurinn skyldi Juventus tapaöur,
2-0.1 kjölfar sprengjunnarfékk einn
leikmanna Cesena taugaáfall og var
fluttur á sjúkrahús. Sprengjunni var
fleygt úr áhorfendapöllunum á
heimavelli Juventus í Tórínó.
Juventus fékk einnig að auki 500
þúsund króna sekt. Juventus fellur
úr þriöja sæti í það fimmta við að
tapa leiknum en Cesena fer liins
vegar úr þriöja neðsta sætinu í það
tíunda. -JKS
Naumthjá Ungverjum
’Jngverjar sigruöu Kýpur, 1-0, í um meö 10 stig eftir 6 leiki en
5. riðli undankeppni Evrópumóts- Grikkir koma næstir með 9 stig
ins í knattspyrnu í Búdapest í eftir 7 leiki. Tveir leikir eru eftir í
gærkvöldi. Eina mark leiksins kom riðlinum. Hollendingar og Kýpur
á lokamínútu leiksins og var leika9.desemberogþremurdögum
Kiprich þar að verki fyrir Ung- síöar leika Hollendingar síðan aft-
verja. 5000 þúsund áhorfendur- urogþágegnGrikkjumáútivelli.
fylgdust með leiknum. -JKS
• Hollendingar eru efstir i riðlin-
Skotarge,ðu aðeins markalaust jafntefii við Lúxemborg í sjötta
riðli undankeppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu í Lúxemborg í gær-
kvöldi. Skotar, sem sköpuðu sér sárafá marktækifæri, ollu vonbrigðum en
250 Skotar fylgdu þeim í leikinn. Lúxemborgarar, sem eru flestir áhuga-
menn, hafa ekki unnið alvöruleik siðan 1972 og ekki náð jafntefli í átta ár.
Skotar höfnuðu í næstneðsta sæti í riðlinum en hefðu með stórsigri í leikn-
um getað komist í annað sætið en írar urðu efstir og komast áfram. Á
myndinni sést Maurice Johnston í baráttu við Carlo Weis.
Símamynd/Reuter
r
Spurs vann
Lakers tapaði á heimavelli
Pétur Guðmundsson og félagar
unnu í nótt góðan sigur í NBA-deild-
inni í körfuknattleik. San Antonio
Spurs lék þá á heimavelli sínum gegn
Houston Rockets og sigraði San An-
tonio með 97 stigum gegn 93.
# Los Angeles Lakers tapaði
óvænt á heimavelli sínum í nótt gegn
Portland Trailblazers, lokatölur
117-104. Þá vann Indiana Pacers
óvæntan sigur gegn Seattle Super-
sonics, 104-102, á heimavelli Seattle.
úrslit í öðrum leikjum í nótt (heima-
lið á undan): Boston Celtics-New
Jersey 130-99, Detroit-Milwaukee
115-105, Denver Nuggets-Sacra-
mento Kings 147-120, Chicago Bulls-
Utah Jazz 105-101, og Los Angeles
Clippers-76ers 88-85.
• Næsti leikur hjá San Antonio
Spurs er gegn Chicago á heimavelli.
-SK
• Pétur Guömundsson og teiagar unnu
góðan sigur gegn Houston í nótt.