Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Side 34
34
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
Fréttir
Framtíðarskipulag umferðar í Kvosinni:
Fólk ferðist fótgangandi
Þaö hefur ekki fariö fram hjá nein-
um aö miklar breytingar eru fyrir-
hugaðar í Kvosinni á næstu árum.
Þar á að rísa ráðhús, nýtt Alþingis-
hús, og þar verða byggð nokkur ný
fjögra hæða hús. í heildina mun flat-
armál bygginga þar aukast um 36
þúsund fermetra. Nokkur umræða
hefur átt sér stað um hverng um-
ferðarmálum verður háttað í Kvos-
inni en á þeim eru fyrirhugaöar
gagngerar breytingar.
í stað þess að keyra um þröngar
götur Kvosarinnar eiga ökumenn að
aka um stofn- og tengibrautir sem
hggja í kringum Kvosina og leggja
bílum sínum í jöðrum hennar og
halda síðan fótgangandi leiðar
sinnar.
Geirsgata
Stærsta breytingin mun felast í
byggingu nýrrar götu, Geirsgötu,
sem á að geta tekið við 40-50 þúsund
bílum á sólarhring en Tryggvagata
og Hafnarstræti, sem hún á að leysa
af hólmi, rúma 25-30 þúsund bíla á
sólarhring. Geirsgata mun taka við
af Kalkofnsvegi og liggja eftir Mið-
bakka og tengjast Tryggvagötu rétt
austan við Ægisgarð.
í aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir
árin 1962-1983 var gert ráð fyrir að
Sóleyjargata og Fríkirkjuvegur yrðu
breikkuð í fjórar akreinar. En sú
hugmynd mun ekki eiga fylgi að
fagna innan núverandi borgarstjóm-
armeirihluta. Þess í stað er stefnt er
að, að hluti af umferð um þessar göt-
ur færist yfir á Sætún en gert er ráð
fyrir að hún verði 6 akgreinar á
næstu árum. Þó verður að gera ráð
fyrir að einhver hluti umferðarinnar
flytjist á Suðurgötu.
Göngugötur
Austurstræti vestan Pósthússtræt-
is verður gert að göngugötu, svo og
Vallarstræti, Kirkjustræti milli
Thorvaldsenstrætis og Pósthús-
strætis. Aðalstræti breytist í SVR-
götu. Tryggvagata milli Pósthús-
strætis og Lækjargötu breytir um
legu og verður SVR-gata. Hafnar-
stræti verður lokað í báða enda en
hægt verður að aka inn götuna um
naustin og út úr henni um Pósthús-
stræti.
Bílastæði
Til þess aö minnka umferðina um
Kvosina verður að leysa bílastæða-
vandamál Kvosarinnar og hið nýja
Kvosarskipulag gerir ráð fyrir að
bílastæðaþörfinni verði að mestu
fullnægt. Samkvæmt skipulagstillög-
unum er gert ráð fyrir allt að 2620
bílastæða þörf í Kvosinni, en sam-
kvæmt skipulagstillögunum er gert
ráð fyrir allt að 2600 bílastæð-
um.
Bílastæðavandamáhð á að leysa
með bílastæðakjöllurum í- nýbygg-
ingum. í norðurhluta Kvosarinnar
eru þegar komin bílastæði í Kola-
porti og á þaki Tollstöðvarinnar og á
nýju stæði á Hafskipsplaninu. Auk
þess sem möguleikar verða á fleiri
stæðum norðan Geirsgötu. Tvö bíla-
stæöahús verða byggð við Tryggva-
götu. Bílastæði veröa og á horni
Garðastrætis og Vesturgötu. í kjah-
ara ráðhússins er fyrirhugað að
verði um 200 stæði og eins er ráðgert
að í kjallara nýja Alþingishússins
verði bílastæðageymsla, auk nokk-
urra fleiri stæða sem rúma færri bíla.
Strætisvagnasamgöngur
Skipulagstillagan gerir ráð fyrir
nýrri enda- og skiptistöð fyrir Kvos-
ina, sem staðsett er í nýrri götu, sem
myndast við að Tryggvagata er verð-
ur framlengd í gatnamót Lækjar-
götu, Hverfisgötu og Kalkofnsvegar.
I þessari götu verður eingöngu leyfð-
ur akstur almenningsvagna. Þar sem
gert er ráð fyrir að allir almennings-
vagnar aki um nýju skiptistöðina er
gert ráð fyrir akstri almennings-
vagna í báðar áttir í Aðalstræti.
-J.Mar
Þórarinn Hjaltason yfirverkfræðingur:
Það verður klippt á gamla rúntínn
í deiliskipulagi Kvosarinnar er
gert ráð fyrir að Suðurgata, hluti
af Túngötu, Vesturgötu og Grófin
verði tengibrautir.
- Er gert ráö fyrir einhveijum
breytingum á þessum götum í
framtíðinni?
„Eina gatan, sem við gerum ráð
fyrir að taki breytingum frá því
sem nú er, er Grófm, þar gerum
við ráð fyrir þremur akgreinum,
en í deiliskipulagi Kvosarinnar er
ekki gert ráð fyrir breytingum á
Suðurgötu, Túngötu eða Vestur-
götu,“ sagði Þórarinn Hjaltason,
yfirverkfræðingur hjá borgarverk-
fræðingi.
- Hvar á aðkeyrslan aö ráðhúsi við
Tjörnina að koma?
„Inn- og útkeyrsla frá ráðhúsinu
verður um Tjarnargötu."
- En að nýja Alþingishúsinu?
„Þar koma tveir möguleikar til
greina, annars vegar að inn- og
útkeyrslan komi inn á Tjarnargötu
norðan Vonarstrætis og svo hins
vegar að inn- og útkeyrslan komi
inn á Vonarstræti, austan við Odd-
fellowhúsið."
- Leggst núverandi rúntur um
miðbæinn þá niður?
„Það verður klippt á gamla rúnt-
inn samkvæmt deiliskipulaginu en
það verður hægt að keyra inn
Skólabrú, norður Pósthússtræti og
inn á Geirsgötu."
- Þolir Kvosin alla þá bílaumferð
sem kemur til með að vera þar í
framtíðinni?
„Umferöaraukningin kemur að
mestu leyti á Geirsgötu. Bílaum-
ferð um Sætún mun aukast tölu-
vert. Um Lækjargötu munu aka um
20 þúsund bílar á sólarhring sem
er nokkur aukning frá því sem nú
er. Umferð um Vonarstræti mun
líklega aukast úr 10 þúsund bílum
á sólarhring upp í 12 þúsund. Ann-
ars fer bílaumferð mest eftir því
hvernig gengur og hversu hratt
verður hægt að fjölga bílastæðum
í Kvosinni og í nágrenni hennar
því að um leið og nóg verður kom-
iö af bílastæðum verður mögulegt
að draga úr hringsóh bíla um Kvos-
ina.“
-J.Mar