Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Page 38
38- FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987. Nýjar bækur Gróður jarðar Ægisgata Sjóarinn sem hafið hafnaði Um þessar mundir er að hefja göngu sína hjá Almenna bókafélaginu nýr bókaflokkur sem net'ndur er Önd- vegiskiljur AB. Þrjár fyrstu kiljur flokksins, Ægisgata, Gróður jarðar og Sjóarinn sem hafið hafnaði, eiga það allar sameiginlegt að hafa selst í stérum upplögum í harðspjaldaút- gáfum. Ægisgata Eftir John Steinbech er ein af bestu sögum hans. Hún lýsir mannlífi í borg í Suður-Kaliforníu -æskustöðv- um höfundar. Verð kr. 350. Gróður jarðar Eftir Knut Hamsun segir frá óskrif- andi og lítt lesnum einyrkja, ísaki í Landbroti, lurknum sem trúir á gróöurmoldina, trúir á vinnuna, ein- feldnina og manndyggðina. Verð kr. 485. Sjóarinn sem hafið hafnaði Opnar lesandanum ógnvekjandi sýn inn í hugarheim nokkurra japan- skra pilta á geigjuskeiði. Bókin var mjög umdeild þegar hún kom í fyrsta sinn út hjá Bókaklúbbi Almenna bókafélagsins og seidist upp á skömmum tíma. Verð kr. 270. Við hátið skulum halda - 30 jólasöngvar með nótum eftir feðgana Hinrik Bjarnason og Bjarna Hinriksson Vaka-Helgafell hefur geflð út nýja jólasöngbók, Við hátíð skulum halda, með söngtextum Hinriks Bjarnsonar og myndskreytingum sonar hans, Bjarna Hinrikssonar. Alhr söngtext- arnir eru tónsettir af Jóni Kristni Cortes og birtast nótur sem hann hefur skrifað meö þeim öllum. Hinrik Bjarnason hefur á undan- fórnum árum samið og þýtt fjölda texta við jólasöngva frá ýmsum lönd- um. Margir textar Hinriks eru þegar sígildir og sungnir um hver jól, svo sem Jólasveinninn kemur í kvöld, Ég sá mömmu kyssa jólasvein, Snæ- finnur snjókarl og Jólasveinninn minn. Fremst í bókinni Við hátíð skulum halda er einfóld samantekt um upp- runa söngvanna, höfunda þeirra og erlend heiti. Bókin Við hátíð skulum halda er 64 blaðsíður og er unnin í Prenttækni í Kópavogi. Bókin kostar 1280 krónur með söluskatti. i.inak kÁRÁSOt. •Söngur villiandarinriár heitir Hart á móti hörðu. í nætur- klúbbi í Hong Kong haföi verið skrifað með fingri á blóðstorkið gólf- ið. Þetta var nafn manns sem heimurinn vildi að væri grafinn og gleymdur: Jason Bourne. Wasington, London, Peking, skelf- ingin fer eins og eldur í sinu um heiminn. Maðurinn sem stendur næst sjálfum forseta Alþýöulýðveld- isins er myrtur af manni sem áður hafði skilið eftir sig blóðuga hryðju- verkaslóð um víða veröld. Þjóðar- leiðtogar og undirheimafurstar - allir spyrja sömu kvíðvænlegu spurningarinnar: Er Bourne aftur kominn á kreik? Verð kr. 1.875. Söngur Villiandarinnar Söngur viiliandarinnar og fleiri sögur nefnist smásagnasafn eftir Einar Kárason sem Mál og menning hefur gefið út. Þetta er í fyrsta sinn sem Einar sendir frá sér smásögur. Söngur villiandarinnar geymir alls sjö sögur sem allar gerast í íslensk- um nútíma. Hér eru fjölbreyttar og oft kostulegar frásagnir af furðulegu hvunndagsfólki og neyðarleg atvik úr hinu daglega lííi eru gjaman látin bregða ljósi yfir ævi og persónur þeirra sem fyrir verða. Sögurnar eru sagðar í þeim hálf- kæringstón sem lesendur Einars þekkja, í senn háðskum, fyndnum og hlýjum, og bornar uppi af litríkum mannlýsingum. Söngur villiandar- innar og fieiri sögur er 172 bls. að stærö, prentuð í Prentstofu G. Bene- diktssonar. Verð kr. 1.980. Svefn og svefnleysi Setberg hefur gefið út bókina Svefn og svefnleysi sem gefur svör við spurningum svo sem: Af hverju syfj- ar okkur? Er svefnskortur hættuleg- ur? Er svefninn háður líferni? Er síðdegisblundur skaðlegur fyrir næt- ursvefn? Eru til efni sem framkalla svefn? Er gagn að heitri mjólk og hunangi? Bók þessi er fyrst og fremst ætluð almenningi. Hún er skrifuð fyrir fólk sem vili fræöast um eigin líkamsstarfsemi og langar að vita hvað það getur sjálft gert til að öðl- ast góðan nætursvefn. Verð kr. 988. 1967 en var löngu uppseld og mikil eftirspurn hvatti útgefandann til endurútgáfu. Á bókarkápu segir ennfremur: „Hann lauk aldrei barnaskólanámi, en í dásvefni talaði hann reiprenn- andi erlendar tungur, sá fyrir ævi manna og óorðna atburði, eða lýsti nákvæmlega löngu liðnum atburð- um. Verð kr. 1.490. Ný ljóðabók eftir ísak Harðarson: PrösturJ. Kadsson SVAÐILFÖRIN Ævintýri v, Myrjdif: Hatpn Knrlsdöuir Svaðilförin Eftir Þröst J. Karlsson Þröstur J. Karlsson hefur skrifaö margar ævintýrabækur og er „Svað- ilförin“ ein þeirra bóka. Svaðilförin er spennandi ævintýri fyrir stráka og stelpur á öllum aldri og segir frá þeim álfum Daða og Bússa sem taka sér ferð á hendur í loftbelg og lenda í sannkallaðri svaðilför. MEISTARISPENNUSÖGUNNAR HARTÁMÓTI Hart á móti hörðu Bókaútgáfan Setberg hefur gefið út nýja bók eftir Robert Ludlum sem HUGH IOFTING DAGFtNNUR DýRALÆKNIR í APAtAN Dagfinnur dýralæknir í Apalandi endurútgefin í þýðingu Andrésar Kristjánssonar Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur endurútgefið fyrstu bókina um Dag- finn dýralækni. Höfundur bama- sagnanna um Dagfinn dýralækni er Hugh Lofting, enskur og írskur að ætt, fæddur 1880. Fyrsta bókin, sagan um Dagfinn dýralækni í Apalandi, kom út 1920 og hlaut miklar vinsæld- ir sem ekki hafa fölnað síöan. Fyrsta bókin sem kom út á íslensku var einmitt þessi bók, Dagfinnur dýl-alæknir í Apalandi, og hlaut hún strax frábærar viðtökur í snilldar- þýöingu Andrésar Kristjánssonar. Andrés skrifar á léttu og lipru máli sem styrkir málkennd og eykur orða- forða barnanna. Verð kr. 990. Edgar Cayce undralæknirinn og sjáandinn „Bandaríkjamaðurinn Edgar Cayce, sem lést árið 1945, þá 67 ára að aldri, er tvímælalaust einhver sá athyglis- verðásti dulspekingur og sjáandi sem um getur á þessari öld,“ segir aftan á bókarkápu nýendurútgefmnar bókar hjá Erni og Örlygi. Bókin kom fyrst úr á íslensku árið Utganga um augað læst Nýlega sendi bókaforlagið Svart á hvítu frá sér ljóðabókina Útganga um augað læst eftir ísak Harðarson. Þetta er fimmta ljóðabók ísaks. Aftan á bókarkápu segir m.a.: „Út- ganga um augað læst markar nokkur þáttaskil í skáldskap ísaks. Ljóðstíll hann er nú lýrískari og fágaðri en áður, án þess að nokkuð glatist af þeim sprengikrafti sem ljóð Isaks eru ævinlega gædd. Hér eru á ferðinni nútímaljóð í bestu merkingu þess orðs. Bókin Útganga um augað læst er 88 bls. að stærð, prentuð í Prent- smiöju Árna Valdemarssonar. Verð kr. 1.590. Samuel Beckett gefinn út í fyrsta sinn á íslensku Ut er komin hjá bókaforlaginu Svart á hvítu bókin Samuel Beckett- sög- ur, leikrit, ljóð. Þetta er í fyrsta skipti sem verk eftir þann merka höfund eru gefm út í íslenskri þýöingu. Samuel Beckett er í hópi merkustu rithöfunda þessarar aldar og hefur ef til vill öðrum fremur stuðlað að róttækum breytingum á skáldsagna- gerð og leikritun eftir seinni heims- styrjöld. Beckett, sem hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1969, er áleitinn höfundur einstakur og frumlegur. Hann skilgreinir hlut- skipti mannsins á guðlausri atómöld, lýsir leitinni að tilvist og samastað í veröld sem er á mörkum lífs og dauða þar sem tungumáhð heyr varnar- stríð við þögnina. í þessari bók eru sjö leikrit, sex sögur og tíu ljóð frá fimmtíu ára ferli, þar á meðal þekktasta verk Becketts, leiktritið Beðið eftir Godot, í nýrri þýðingu, og eitt nýjasta snilld- arverkið, hin stutta og magnaða skáldsaga Félagsskapur frá 1980. Þýðandinn er Árni Ibsen. Verð kr. 2.390. KVOSIN Kvosin Torfusamtökin og Forlagið hafa sent frá sér bókina Kvosin, byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur. Höfundar bókarinnar eru Guðný Gerður Gunnarsdóttir þjóöháttafræðingur og Hjörleifur Stefánsson arkitekt. Guðmundur Ingólfsson hefur tekið ljósmyndir í bókinni. Kvosin frásögn af því hvernig höf- uðborg íslands byggðist. í bókinni er fjallað um fyrstu húsa- gerðir bæjarins, fyrstu verslunar- húsin og hvemig byggingar breyttust við afnám verslunarhafta og með tilkomu nýrra verslunarsam- banda. Hér er lýst þeim breytingum sem ný byggingarefni höföu í fór með sér, og hvaða áhrif nýjar stefnur í byggingarlist höföu á húsagerð í mið- bænum. Byggingarsaga hverrar einstakrar lóðar er rakin og greint er frá helstu stefnum í byggingarlist Norður- Evrópu um og eftir seinustu aldamót. Saga þessi er rakin í máli og fjöl- mörgum nýjum og gömlum ljós- myndum, auk teikninga af húsum og húshlutum. í bókinni eru um 500 ljósmyndir og teikningar. Nýjar ljós- myndir eru af nánast öllum húsum miðbæjarins og auk þess úrval gam- alla ljósmynda. Kvosin er 330 bls. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Verð kr. 4.975. UTL:ÍNUR Útlínur bakvið minnið eftir Sigfús Daðason Iðunn hefur gefið út nýja ljóöabók eftir Sigfús Daðason. Nefnist hún Útlínur bakvið minnið og er fjórða ljóðabók skáldsins: En áður hefur Iðunn gefið út Ljóð Sigfúsar Daða- sonar, þrjár fyrri bækur hans í einni. Útgefandi kynnir efni þessarar nýju ljóðabókar með svofelldum orðum: „Ljóðin eru að því leyti útlínur aö þau eru einatt sparlega dregin: í meitluðum ljóðmyndum skyggir skáldiö jafnt ytri heim sem innri vit- und. Skáldskapur Sigfúsar Daðason- ar á djúpar rætur í kiassískum menntum og hann ber samtíðina sí- fellt upp að ljósi sögunnar. Verð kr. 1.680.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.