Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Page 44
44
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Sarah Ferguson
gerir ekkert skemmtilegra en að
ferðast. Síðan hún giftist inn í
bresku konungsfjölskylduna hef-
ur hún ferðast til Mauritiuseyjar
í Indlandshafi, farið til Kanada að
leika sér á kanó, nokkrar búðar-
ferðir til Parísar, tvisvar á skíði til
Sviss og í heimsókn til móður
sinnar í Bandaríkjunum. Jólun-
um áætlar hún að eyða á
Mauritius aftur því hótelstjórinn
á fínasta hótelinu þar bauð henni
og Andrew að dvelja þar ókeypis
til þess að laða að gesti.
Samantha Fox,
sem er fræg söngkona í Bret-
landi, er jafnvel enn frægari fyrir
firnastóran barm sinn sem slær
jafnvel barmi Dolly Parton við. í
bandarískum dónablöðum hafa
verið að birtast nektarmyndir af
Samönthu og hefur hún gert allt
sem I hennar valdi hefur staðið
til þess að koma í veg fyrir að
þær væru birtar á Bretlandi. Hún
vill nefnilega frekar að hennar sé
mrnnst vegna sönghæfileika en
fyrii* það hvernig guð skapaði
hana.
Sean Penn
varð víst alveg óður um daginn
jegar Madonna heimtaði skilnað
frá honum. Hann var alls ekki til-
búinn að sleppa hendinni af
Madonnu og því kom þetta hon-
um á óvart. Hann virðist hafa
tekið þann pólinn í hæðina að
best sé að drekkja sorgum sínum
í brennivíni og hefur hann gert
skandal vítt ■ og breitt um Los
Angeles undanfarið með dólgs-
og drykkjulátum síðan Madonna
sleit sambandinu.
Krakkarmr drogu ekkert af sér við verkið þótt vinnudagurinn vaeri langur.
DV-myndir S
Borðið er þarna að fyllast af skreytingum. Á myndinni eru Margrét, Anna
María, Kristín og Davíð.
TröILa-
Fyrir nokkru kom upp sú hugmynd meðal nemenda í Breiðholtsskóla að
hefja fjáröflun fyrir kaupum á sjónvarpi og myndbandstæki fyrir skólann.
í því skyni settist hópur nemenda niður við framleiðslu jólaskreytinga úr
trölladeigi og unnu þeir samileytt að þessu verkefni í 24 klukkustundir. Af-
raksturinn er 600 skreytingar sem koma eflaust til með aö ganga verulega
upp í tækjakaup ef vel gengur aö selja þær. Skreytingarnar munu verða til
sölu fyrir íbúa neðra Breiðholts.
Óvenju-
leg
sýning
Tryggvi Gunnar Hansen er líklega
þekktastur fyrir að vera einn af fáum
sem enn kann að hlaöa torfvegg á
réttan hátt. En honum er fleira til
lista lagt og hefur hann nú opnað
sýningu á fjölbreytilegum verkum
sínum í Ásmundarsal. Sigríður Ey-
þórsdóttir sýnir einnig verk sín á
sýningunni.
Sýning þeirra er um margt sérstæð
og Tryggvi sýnir meðal annars for-
vitnilegar hugmyndir sínar um
byggingu torfhúsa með gleri. Tryggvi
sýnir einnig safn heimatilbúinna
hljóðfæra sem hann hefur búiö til
og á það til að taka í þau fyrir sýning-
argesti. Á sýningunni er einnig fjöldi
málverka og ljósmynda.
Listamennirnir Tryggvi Hansen og Sigriður Eyþórsdóttir standa fyrir framan
Ijósmynd af skúlptúr Sigríðar.
:
Hér sést hluti þeirra hljóðfæra sem Tryggvi smiðaði
og er þarna verið að spila fyrir sýningargesti.
DV-myndir HS
Tryggva dreymir um að byggja einhvern tíma torfhús
með gleri og hér stendur hann fyrir framan eina af
hugmyndum sinum um þannig hús.
Verðandi
leikstjóri?
Þau hjónin Ibrahim Mousa og
Nasstasja Kinski vekja mesta at-
hygli á kvikmyndahátíðinni i Kairó í
Egyptalandi. Simamynd Reuter
Hin þýskættaða Nastassja Kinski,
sem gift er kvikmyndaframleiðand-
anum Ibrahim Mousa, er nú stödd á
Egypsku kvikmyndahátíðinni. Hún
hefur nýlokið við leik i kvikmynd
sem er á hátíðinni og ber heitið „Int-
ervista". ítalski leikstjórinn Felhni
leikstýrir þeirri mynd.
Nastassja Kinski tilkynnti það á
blaðamannafundi að hún væri reiðu-
búin að leikstýra sinni fyrstu
kvikmynd ef eiginmaður hennar,
Ibrahim, væri tilbúinn til þess að
framleiða hana. Það verður eflaust
forvitnileg útkoma ef af veröur.