Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1987, Síða 6
6
Viðskipti
Fyrirtæki sem lækkað hafa strax:
Viðbrógðin láta
ekki á sér standa
Þau fyrirtæki sem selja vörur sem
lækka eiga í veröi um áramótin en
hafa ekki beöiö eftir því heldur lækk-
að vörurnar strax, hafa fengiö góð
viöbrögð. Þannig fékk fyrirtækið
Teppaland fjórar fyrirspurnir í síma
aðeins 6 mínútum eftir að þeir aug-
lýstu verðlækkun á einni útvarps-
stöðinni. Almenningur er greinilega
í gífurlegum stellingum vegna verö-
breytinganna um áramótin og fylgist
grannt með.
Teppi eiga að lækka í vérði um 20
prósent um áramótin. Af teppafyrir-
tækjum voru það Teppaland og
Litaver sem fyrst brugðust við verð-
lækkuninni með verðlækkun. Bæði
fyrirtækin hafa lækkað verð á gólf-
teppum um 10 prósent og gólfdúkum
um 15 prósent. „Einn var búinn að
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 20-22 Lb.lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 20-24 Úb
6mán. uppsögn 22-26 Ab
12 mán. uppsögn 24-30,5 Úb
18mán.uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp.lb
Sértékkareikningar 10-23 Ib
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán með sérkjör- 19-34,5 Úb
um Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 6 7,25 Ab.Sb, Vb
Sterlingspund 7,75-9 AbVb, Sb
Vestur-þýskmörk 3-3,5 Ab.Sp. Vb
Danskar krónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 33-34 Sp
Viöskiptavixlar(forv) (1) 36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 35-36 Úb.Vb. Sb.Sp
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) 35-39 Sp
Utlan verötryggð
Skuldabréf 9.5 Allir
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 31-35 Úb
SDR 8-9 Vb
Bandaríkjadalir 9 10,5 Vb
Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb
Vestur-þýsk mork 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 49.2 4,1 á mán.
MEÐALVEXTIR
överðtr. des. 87 35
Verðtr. des. 87 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala des. 1886 stig
Byggingavisitalades. 344stig
Byggingavísitala des. 107,5stig
Húsaleiguvísitala Hækkaói 5% . okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1,3478
Einingabréf 1 2,484
Einingabréf 2 1,454
Einingabréf 3 1,534
Fjolþjóðabréf 1.140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,502
Lifeyrisbréf 1.249
Markbréf 1,273
Sjóðsbréf 1 1,221
Sjóðsbréf 2 1,080
Tekjubréf 1,308
HLUTABREF
Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 130kr.
Eimskip 365 kr.
Flugleiðir 252 kr.
Hampiðjan 136kr
Hlutabr.sjóöurinn 141 kr.
Iðnaðarbankinn 154 kr.
Skagstrendingur hf. 186 kr.
Verslunarbankinn 133 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á timmtudögum.
afpanta teppi í stórt verk á mánudag-
inn. En í morgun kom hann aftur og
staðfesti fyrri pöntun. Verðlækkun
núna hefur greinilega haft áhrif á
eftirspumina,“ segir Pétur Guö-
mundsson, skrifstofustjóri Litavers.
„Það hefur verið hringt gríðarlega
mikið í okkur eftir að við auglýstum
verðlækkun á hreinlætis- og blönd-
unartækjum um 15 prósent," sagði
Hannes Hjartarson, afgreiðslumaður
hjá Byggingavörum Sambandsins, í
gær. „Það hefur selst mikið af blönd-
unartækjum á þessum tveimur
dögum sem afsláttur okkar hefur
verið í gangi.“
Urðum að fíra verðinu niður
Sjónvarpsmiðstöðin hefur auglýst
11 prósenta verðlækkun strax. „Það
dugði. Salan var dottin niður en hún
hefur tekiö við sér aftur. Við urðum
að fíra verðinu niður strax í sam-
keppninni og það er komin eðlileg
desembersala aftur,“ sagði Már Elí-
son, verslunarstjóri í Sjónvarpsmið-
stöðinni.
En hvað með þá sem boðið hafa upp
á sérstakt jólatilboð í desember?
„Það hefur ekki orðið neitt hrun í
sölu þeirra vara sem eru á jólatilboð-
um enda er þegar komin um 7 til 10
prósenta lækkun á þessar vörur
vegna tilboðsins. En hins vegar hef
ég orðið var við mikla minnkun í
sölu á mjög dýrum hljómílutnings-
tækjum. Þar hikar fólk og vill bíða.
Annars finnst mér að fólk ætti að
spyija sig betur út í þessar verðlækk-
anir sem ríkisstjórnin boðar. Til
dæmis hvor verður á undan, gengis-
lækkunin eða tollalækkunin,“ sagði
Birgir Skaptason hjá Japis.
Við ljúkum þessu hjá fyrirtækinu
VatnsvirKjanum. Það brást við með
verðlækkun strax á hreinlætistækj-
um og blöndunartækjum. Og hver
eru viðbrögðin? „Fólk hefur greini-
lega tekið við sér, það er búið að vera
nóg að gera,“ sagði Ari Schröder
sölumaður við DV í gær.
-JGH
Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur:
Hef ekki trú á
að gengið verði
fellt um áramótin
- „genginu haldið uppi með handafli“
„Fastgengisstefna ríkisstjómar-
innar er oröin ansi hæpin og vegna
þeirrar verðbólgu sem nú er, eðá
um 30 prósent, má segja að stjórn-
völd haldi genginu uppi með
handafli. En að þessar breytingar
á óbeinum sköttum um áramótin,
sem leiða til verðlækkunar ýmissa
vara, sé bein ávísun á gengisfell-
ingu tel ég ekki vera. Ég hef ekki
trú á að stjómvöld felli gengið um
áramótin."
Þannig svarar Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Verslunar-
ráös íslands, spumingunni um
hvort þær verðbreytingar sem í
vændum eru um áramótin og tví-
mælalaust em mál málanna í
viðskiptalífinu í dag þýði í rauninni
að stjórnvöld ætli að fella gengið
um áramótin.
Verðbólgan á íslandi og
í viðskiptalöndunum
„Það sem skiptir máli varðandi
gengisfellingu er mismunurinn á
verðbólgu hérlendis og í viðskipta-
löndum okkar. Hann er alltaf að
aukast, okkur í óhag. Það er aðeins
spuming um hvenær gengið verð-
ur fellt en ekki hvort, þó það gerist
ekki á næstu vikum,“ segir Vil-
hjálmur.
Áralangt baráttumál
Verslunarráðsins
Að sögn Vilhjálms hefur það ve-
rið áralangt baráttumál Verslunar-
ráðs íslands að samræma tolla og
vömgjöld þannig að ráöið fagnar
þessum breytingum. „Svo að við
tökum dæmi af handahófi þá er
engin lógik í því að diskar séu toll-
aðir sem lúxusvara á meðan matur
sleppur við tolla. Þetta hefur nú
verið samræmt meira."
Forsendur stjórnarinnar
öfugsnúnar
Vilhjálmur telur að forsendur
ríkisstjómarinnar um tekjur af
þessum skattabreytingum og jafn-
Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs íslands. „Stjórnvöld halda
genginu uppi með handafli. En að
þessar breytingar á óbeinum
sköttum um áramótin sé bein ávís-
un á gengisfellingu tel ég ekki
vera.“
framt lækkun verðbólgunnar komi
nokkuð á óvart. „Dæmið gengur
út á að lækka tolla, breyta vöru-
gjaldinu, hækka söluskattinn og
auka niðurgreiðslur stórlega. Þess-
ar aðgerðir eiga að skila auknum
tekjum í ríkissjóð upp á 600 milljón-
ir króna. En á sama tíma er sagt
að verðlag eigi að lækka, það er að
framfærsluvísitalan verði óbreytt,
byggingarvísitalan lækki um 2 pró-
sent og lánskjaravísitalan lækki
um 0,8 prósent. Þá snýst málið um
það hvemig það komi heim og sam-
an að ríkissjóður fái meiri skatt-
tekjur af fólki en í leiðinni eigi
almenningur að veröa ríkari þar
sem verðbólga minnki og pening-
amir í buddunni dugi betur. Þaö
sýnir best inn á hvaða brautir
menn eru komnir í rökum og því
er eðlilegt að menn spyiji hvort
ekki sé rétt að halda rösídega áfram
á sömu braut," segir Vilhjálmur
Egilsson.
-JGH
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987.
Starfsmenn hjá Smith og Norland hf. höfðu í nógu að snúast við að taka
þvottavélar úr gámi í gær. Ný sending og roksala. DV-mynd KAE
Saga úr einni verslun:
Tvö hundruð
þvottavélum
ekið út á
þremur
„Hér hefur ríkt geðveikisástand.
Við erum búin að vera sex í afgreiðsl-
unni og ekki haft undan. Sem dæmi
höfum við selt vel á annað hundrað
þvottavélar frá því á laugardaginn
og með þeim sem höfðu keypt nokkr-
um dögum áður, þá höfum við ekiö
um 200 þvottavélum út til kaupenda
á síðustu þremur dögum,“ sagði
Guðmundur Haraldsson, sölumaður
hjá Smith og Norland hf., en þvotta-
vélar eru á meðal þeirra hluta sem
eiga að hækka í verði um áramótin
samkvæmt ákvörðun fjármálaráðu-
neytisins. Hækkunin nemur um 15
prósentum.
ísskápar og uppþvottavélar eiga
líka að hækka í verði um 15 prósent
dögum
og segir Guðmundur að þeir hafi selt
grimmt af þessum vörum. „Það fara
um 30 til 40 ísskápar á dag og salan
á uppþvottavélum er líka með ólík-
indum. Við áttum 23 vélar af einni
tegund uppþvottavéla hjá okkur í
gærmorgun, en um hádegið, fjórum
klukkustundum síðar, voru þær all-
ar seldar."
Að sögn Guðmundar hafa þurrkar-
ar selst ágætlega þrátt fyrir að þeir
eigi að hækka í verði um áramótin.
„En það eru jafnframt dæmi um
marga er höfðu hugsað sér að kaupa
bæði þvottavél og þurrkara fyrir jól-
in en kaupa aðeins þvottavélina og
ætla að láta þurrkarann bíða.“
-JGH
Gífurlega
mikið hringt
Fólk hringir nú gífurlega mikið í
verslanir til að spyijast fyrir um verð
vara sem rætt er um að lækki og
hækki eftir áramótin. Mörgum kaup-
mönnum finnst að sá listi sem
íjármálaráðuneytið hefur sent frá
sér um einstakar vörur sé ekki nægi-
lega tæmandi og því beri á því að
fólk sé hálfringlað yfir breytingun-
um.
Sem dæmi má nefna að á listanum
stendur að íþróttavörur lækki í verði
eftir áramótin um 10 til 40 prósent.
Þegar svo fólk hringi og spyrji nánar
út í málið kemur í ljós að verð á
íþróttafatnaði og íþróttaskóm er
óbreytt en ýmsar aðrar íþróttavörur
lækka.
Hringingar i verslanir gera því sitt
gagn og best að kynna sér allar verð-
breytingar í botn þessa dagana.
-JGH
Eykst salan í
fötum og bókum?
Ýmsir kaupmenn, sem DV ræddi
við í gær, töldu ekki óeðlilegt að jóla-
salan í verslunum breyttist þá 13
daga sem eftir væru til jóla vegna
yfirlýsingar ríkissjómarinnar um
verölækkun ýmissa vara um ára-
mótin. Spáðu menn því helst að
fatnaður og bækur yrðu vinsælli
jólagjafir en ella en óbeinir skattar á
þessum vömm breytast ekki um ára-
mótin og því lækka þær ekki.
Eins spáöu sumir því aö fólk, sem
hefði ákveöið að gefa sjálfu sér
myndbandstæki, hljómflutningstæki
eða sjónvarp í jólagjöf, frestaði þess-
um jólagjöfum fram í janúar. -JGH