Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Side 2
2
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988.
Fréttir
Söluskattur á matvörur leiðir til víðtækari verðhækkana en áður var talið:
Jafnvel Jón Baldvin hissa á
verðhækkun á kótelettum
Nú er ljóst aö einu matvörumar
sem ekki hækka í veröi við sölu-
skattsbreytinguna er kindakjöt í
heilum skrokkum og mjólk. Állar
aörar kjötvörur munu hækka í
verði og þeim mun meira sem þær
eru unnar. Meira að segja niöur-
sneiddar kótelettur munu hækka í
verði vegna þess aö söluskattur
kemur á vinnuna við aö sneiða þær
niöur, sem og á umbúðirnar utan
um þær.
„Þaö kemur mér ekki á óvart
þótt unnar kjötvömr hækki í veröi
enda við því búist og þeim mun
meira sem þær eru meira unnar,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
íjármálaráðherra í samtali við DV.
Hann sagði það aftur á móti koma
sér á óvart ef venjulegar kótelettur
hækkuðu í verði.
Steinþór Skúlason, sölustjóri hjá
Sláturfélagi Suðurlands, tók dæmi
af kótelettum sem kosta 450 krón-
ur. Af þeirri verðmyndun er kjöt
400 krónur en 50 krónurnar era
annar kostnaður og á hann kemur
söluskattur. Sagði Steinþór að
hækkunin sem kemur á þennan
kótelettupakka væri 3,25%.
Hann sagði að eftir því sem kjöt-
vörurnar væru meira unnar og
meira væri af öðru efni en hreinu
kjöti i þeim, þeim mun meira
myndu þær hækka í verði. Nefndi
hann sem dæmi pylsur og bjúgu
og ýmsar gerðir af áleggi. Taldi
hann að pylsur og bjúgu myndu
hækka um allt að 20% við sölu-
skattshækkunina.
Alveg sömu sögu er að segja af
mjólk og mjólkurvörum. Hreint
skyr og mjólk hækka ekki í verði
vegna aukinna niðurgreiðslna eins
og á kjöti. En þegar farið er að
vinna hinar ýmsu gerðir af jógúrt
eða berjaskyri fer það aö hækka
því söluskattur kemur á allt annað
en mjólkina sjálfa. Eins er með
osta, söluskattur kemur til að
mynda á umbúðirnar og þaö veldur
hækkun.
Gunnar Snorrason, kaupmaður í
Hólagarði, sagði í samtali við DV
að það væri mikil vinna og flókin
að verðleggja allar þessar vörur
eftir söluskattsbreytinguna.
-S.dór
Á leið upp í brekkur Hliðarfjalls í skíðalyftum í fyrsta sinn á vetrinum. DV-mynd: GK
Hlíðarfjall:
Góð aðsókn fyrsta daginn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Ak-
ureyri var opnað um helgina. Strax
á laugardag komu þangað nokkur
hundruð manns í góðu veðri.
Ekki hafa allar lyftur verið opnað-
ar enn, en að því verður unnið í
vikunni og strax um næstu helgi
verða aUar lyftur opnar og starfsem-
in komin í fullan gang.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins:
Orð Karvels sógð í
hita augnabliksins
„Ég lít svo á að Karvel Pálmason
hafi sagt þessi orð í hita augna-
bliksins og met þau út frá því,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson,
fjármálaráöherra og formaöur Al-
þýðuflokksins, þegar DV spurði
hann um eldmessu Karvels yfir
forystu Alþýðuflokksins við kvó-
taumræðumar í efri deild Alþingis
síöastliðið fimmtudagskvöld.
Jón Baidvin sagði aö það heföi
verið vitaö frá upphafi að þing-
menn Alþýöuflokksins á Vestfiörð-
um myndu ekki styðja ríkisstjóm-
ipa ef kvótakerfið yrði óbreytt. í
stjórnarsáttmálanum er líka gert
ráð fyrir endurskoðun og brey ting-
um á því. í hinu mikla tímahraki á
Alþingi fyrir jól heföi ekki unnist
timi til að ljúka þeirri endurskoð-
un. Því hefði verið ákveðið að halda
áfram endurskoðun á kvótakerf-
inu.
Einnig benti Jón á að þingmenn
Alþýöuflokksins hefðu fengiö fram
ákveðnar breytingar á frumvarp-
inu, sem allar væm til bóta. Néfndi
hann í því sambandi breytingar
sem gerðar vom á 10. grein frum-
varpsins, smábátagreininni og
ákvæðinu um áframhaldandi end-
urskoðun á kvótakerfmu.
„Kvótakerfið er því ekki óbreytt
frá því sem það var. Vaxandi óán-
ægja er með þetta kerfi en menn
hafa samt ekki bent á neinar lausn-
ir í því sambandi. Því munum við
vinna áfram aö breytingum á kerf-
inu og þær munu koma í Ijós á
næstu árum,“ sagði Jón Baldvin.
-S.dór
Tolla- og vörugjaldsbreytingin:
Verið er að
segja fólki
rangtfrá
staðreyndum
- segir formaður Neytendasamtakanna
„Eg gagnrýni það harðlega að
stjórnvöld hafa verið að segja fólki
rangt frá staðreyndum með yfirlýs-
ingum vegna tolla og vömgjalds-
breytinganna. Fólki hefur verið sagt
að þessi eða hinn hluturinn lækki í
veröi um ákveðna prosentutölu sem
allir geta séð að mun aldrei stand-
ast,“ sagði Jóhannes Gunnarsson,
formaöur Neytendasamtakanna, í
samtali við DV.
Jóhannes nefndi sem dæmi að talað
væri um aö álagning kaupmanna í
krónutölu muni lækka vegna þess
að vara lækkar vegna tolla og vöru-
gjaldslækkunar og álagningin er í
prósentum. Þetta mun ekki gerast
því kaupmenn ætla að halda
óbreyttri krónutöluálagningu.
Annað dæmi nefndi Jóhannes sem
er að erlendis hækka vörur bara einu
sinni á ári og þá um áramót. Lang-
flestar vörur sem við flytjum inn
koma frá Evrópulöndum og vegna
þess að dollarinn hefur verið að
lækka hefur Evrópumyntin hækkað.
Þegar nú þetta kemur saman Uggur
ljóst fyrir aö vörurnar munu ekki
lækka í verði. í besta falli munu þær
verða á óbreyttu verði.
Jóhannes benti á aö ef toUa- og
vörugjaldslækkunin hefði ekki kom-
ið til hefðu þessar vöru að sjálfsögðu
hækkað í verði.
„Það sem ég gagnrýni því er að
fólki skuli ekki sagt satt og rétt frá.
Varan lækkar ekki eins og yfirvöld
hafa haldið fram og birt lista um.
Síðan verður kaupmönnum kennt
um allt saman,“ sagöi Jóhannes.
Enn eitt dæmi nefndi hann sem er
er lækkun á kjamfóðurgjaldi sem tók
gildi um áramót. Sú lækkun á að
verða tíl þess að svínakjöt og kjúkl-
ingar eiga aö lækka í verði. Látiö
hefur verið í veðri vaka að þessi
hækkun komi þegar í stað til fram-
kvæmda. Jóhannes sagði að aUir
gætu séð hversu fiarstæðukennt það
væri. Það yrði ekki fyrr en þeim dýr-
um sem nú era alin á ódýrara
kjarnfóðri verður slátrað að hægt er
að vonast eftir verðlækkun.
-S.dór
Kaupmannahafnarflug:
Tóf vegna
vélarbilunar
Mikil röskun hefur orðið á áætlun Hann sagði að fyrirgreiðsla hefði
Flugleiða yfir helgina vegna bUunar verið mjög lítil á KastrupflugveUi og
sem kom í ljós í DC-8 vél félagsins hefðiþaðtafiðfyrirviðgerðvélarinn-
þegar hún var að undirbúa flugtak ar. Vélin var á leið til Gautaborgar
úti í Kaupmannahöfn á fóstudaginn. og síðan til Keflavíkur. 50 farþegar,
Að sögn Svavars Eiríkssonar, flug- sem voru á leið tU Keflavíkur, urðú
umsjónarmanns hjá Flugleiðum, að dveljast í Kaupmannahöfn yfir
vora farþegar komnir um borð og nóttina en leiguflugvél var fengin
vélin á leið í flugtaksstöðu þegar bU- fyrir Gautaborgarfarþegana. Það tók
un í mótor kom i ljós. þá um 13 tíma að komast á áfanga-
„BUunin er innvortis í mótornum stað frá því þeir fóru frá Keflavík.
en við þurftum að senda út varamót- _§MJ
or og viðgerðarmenn," sagði Svavar.