Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Side 27
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988. 39 Sandkom Senor Hrafn-og mynd hans, Hrafninn flýgur, skemmtu Spánverjum í des- ember. „Hrafninn" á spænsku Kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar, Hrafninn flýgur, var sýnd á Spáni í desember. Myndin var aðalsýning á Stöð 1 þar í landi kl. 15 á sunnudegi, eða á besta tíma. Margir íslendingar sáu þessa útsendingu og höfðu gaman af, ekki síst vegna þess að myndin var „döbbuð" eins og það heitir víst á fagmáli. Það er að segja á mannamáli að spænskt tal var sett inn á myndina eins og siður mun þar í landi með erlendar myndir. Veltust íslending- arnir sem sáu myndina um af hlátri þegarFlosi Ólafsson og Helgi Skúlason fóru ham- fórum bölvandi og ragnandi á spænsku. „Samsýn" á Kanarí Sem kunnugt er tóku ferða- skrifstofurnar Útsýn og Samvinnuferðir/Landsýn, þessir erkifiendur, höndum saman í starfsemi sinni á Kanaríeyjum í vetur, eftir að hafa bitist um farþega þangað ásamt Flugleiðum undanfar- in ár. Þetta kom í kjölfar þess að mikið tap var á Kanarí- klúbbnum svokallaöa í fyrra sem þessir þrír aðilar ráku, og nam tapið 8 milljónum króna. Margir spáðu illa fyrir • samvinnu Utsýnar og Sam- vinnuferða en hún mun samt sem áður hafa gengið vel. Eitthvað vafðist þó fyrir Kjartani L. Pálssyni farar- stjóra þar að bjóða farþega sífellt velkomna „fyrir hönd Ferðaskrifstofunnar Útsýnar og Ferðaskrifstofunnar Sam- vinuferða/Landsýnar". Kjartan L. Pálsson hefur löngum kunnaö aö koma oröum aö hlutunum og samsuöa hans á Kanarí sannar þaö. Fannst honum þetta helst til löng rulla og skýrði því sam- starfið „Samsýn". Það skyldi þóaldrei vera... ? „Töframenn” í Njarðvík Máttur auglýsinganna er mikill og margir eru þeir sem spila úr sínum spilum sam- kvæmt því. Gott dæmi gat að líta fyrir helgina í fyrirsögn á íþróttasíðu DV: „Bandarískir töframenn keppa á Suður- nesjum". - Hér var þó einungis um að ræða körfu- boltalið frá háskóla í Florida og leyfir undirritaður sér að fullyrða að ekki voru neinir töframenn þar á ferð. Valur Ingimundarson, þjálfari og leikmaður Njarðvíkur, virð- ist hafa verið á sama máh því í liðinu sem hann valdi til að keppa við „töframennina" voru 7 Njarðvíkingar, einn Keflvíkingur, einn Grindvík- ingur og einn KR-ingur fékk að fljóta með fyrir náð og miskunn. En hvað varðar „töframennskuna" er sjálf- sagt að taka fram að háskóla- liðíkörfuknattleikí Bandaríkjunum skipta þús- undum og er „Gainsville Fiorida" ekki meðal þeirra þekktustu eða bestu. Hallur Hallsson var einn þeirra fréttamanna sjónvarpsins sem fengu á baukinn i áramótaskaupinu. Ólgaá fréttastofu Fréttamenn á fréttastofu sjónvarpsins munu sumir hverjir a.m.k. hafa verið salt- vondir eftir að hið árvissa ármaótaskaup sjónvarpsins hafði verið flutt. Þar var farið dálítið illa með suma frétta- menn stofnunarinnar og þá einna helst fréttastjórann sjálfan, Ingva Hrafn, og einn- ig fréttamennina Hall Halls- son og Ólínu Þorvaröardótt- ur. Þóttu þau hggja vel við höggi en ekki munu allir vera hrifnir af þvi að sjónvarpið sé að ráða menn til að gera grín að starfsmönnum frétta- stofunnar og borga þeim stórfé fyrir. Umsjón: Gylfi Kristjánsson Símavarsla °9 ritarastörf Félagasarritök með sameiginlega símaþjónustu óska að ráða starfsmann. Upplýsingar um starfsreynslu, menntun og óskir um laun sendist til afgreiðslu blaðsins,merktSH 123, fyr- ir 15. janúar nk. Chrysler Fifth Avenue árg. 1984 Amerískur lúxusbíll eins og þeir gerast bestir. Sjálf- skiptur, vökvastýri, V-8, 318 cc. in. vél, rafmagn í rúðum, centrallæsingar, rafmagnssæti, leðurklæðn- ing, útvarp, segulband, veltistýri, loftkæling o.fl. o.fl. Bifreiðin er aðeins ekin 14 þús. km og er sem ný. Verð 950 þús. - Góð kjör eða skipti. KOTA&EIA og kostir nnarsem mpqru narfæöis lcöTTAGE CHElSf HH ' f' N *•¥* V NEYSLUTILLÖGUR: Morgunverður: Borðið hana óblandaða beint úr dósinni. Hádegisvérður: Setjið kúf af KOTASÆLU ofan á hrökkbrauðsneið eða annað gróft brauð og þar ofan á t.d. tómatsneið, papriku- sneið, blaðlauk, graslauk, karsa eða steinselju og kryddið t.a.m. með svörtum pipar. Kvöldverður: Saxið niður ferskt grænmeti og notið KOTASÆLU í stað salatsósu. Ef þið viljið meira bragð, getið þið bætt við sítrónusafa og kryddi. Athugið að: í 100 g af KOTASÆLU eru aðeins 110 he (440 kj). í KOTASÆLU eru öll helstu næringarefni mjólkurinnar. KOTASÆLA er mjög rík af próteini og vítamínum. 4. KOTASÆLA er óvenju saðsöm miðað við aðrar fitulitlar fæðutegundir. Notkunarmöguleikar KOTA- SÆLU eru nær óteljandi. KOTASCIA fitulítil og freistandi JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 SÓLBAÐSSTOFAN ÁNANAUSTUM Músík- leikfimi Námskeiðin hefjast 11. jan innritun hafin. ★ Sérsalur Tækjasalur Eimgufa Góðir Ijósabekkir Leiðbeinendur í sal OPNUNARTIMI: Mánud.-fimmtud. kl. 10-22. Föstud. kl. 10-20. Laugard. og sunnud. kl. 10-17. RŒKTIW 9.107 Sólbaðsstofan, Ánanaustum 15, Reykjavík, sími 12815

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.