Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988. 13 Neytendur Hvað kostar í skíðalyfturnar? Á höfuðborgarsvæðinu ber helst að nefna Bláíjallasvæðið. Þangað renna sjálfsagt flestir hýru auga. Þar fer færi að verða aflsæmilegt þó betra megi það vera. í Bláfjöllum er hægt að kaupa árskort sem kostaði í fyrra 5.700 kr. en lækkar nú niður í 5.000 kr. fyrir fullorðna og 2.500 kr. fyrir börn. Dagskort kosta 450 kr. fyrir fuilorðna en 200 kr. fyrir böm. Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga er opið til klukkan 10 á kvöldih. Þá er hægt að kaupa kvöldkort á 350 kr, stykkið og 150 kr. fyrir böm. Einstaka miða er einnig hægt að kaupa, þó minnst 8 stk. í einu sem kosta fyrir fullorðna 200 kr. og 100 kr. fyrir böm. Tveir miðar notast þá í stólalyftur og einn í toglyftur. Verð fyrir skíðakennslu hefur enn ekki verið ákveðið en var í fyrra á bibnu 600-1.200 kr. á tím- ann. í Bláfjöllum er einnig hægt að fá leigð skíði, skó og stafi fyrir um 700 kr. Á skíðasvæðinu í Skálafelli, þar sem enn vantar þó nokkuð á að skíðafæri geti talist gott, kosta árs- kortin það sama og í Bláfjöllum. Þar em þó seldir fjölskyldupakkar þar sem verð fyrir karlmanninn er 5.000 kr., fyrir konuna 3.500 kr. og fyrir bam 2.000 krónur. Þannig kostar það jafnmikið fyrir fiogurra manna fjölskyldu að fara tíu sinn- um á skíði og það hefði kostað ef dagskort hefðu verið keypt. Allt umfram það sparast því. Dagskort- in kosta 450 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir böm. Félagsmenn í skíðadeild KR fá 20% afslátt af lyftugjaldi auk annarra hlunninda með því að greiða 1500 kr. í félags- gjald. Skíðakennslu er einnig hægt að fá í Skálafelli. Verð hefur enn ekki verið ákveðið. Á Akureyri fer skíðafæri nú að verða allgott. Skíðamenn norðan- lands verða því aðeins fyrr á ferðinni en Sunnlendingar. Árs- kort norðanmanna kosta 6.200 kr. fyrir fullorðinn og 3.100 fyrir böm. Dagskortin kosta 410 kr. og 200 kr. fyrir bömin en kvöldkortin 210 kr. og 90 kr. Sá háttur hefur verið hafður á að kaupi fólk skíðakennslu í Hlíð- arfjalli þarf það ekki að borga rútuferð úr bænum upp í fjaU. Ekk- ert er þó enn ákveðið um verð á kennslunni. Leigi maður skíði kostar það 780 kr. fyrir daginn. Á Vestfjörðum er helsti skíða- staðurinn ísafjörður. Þar hefur undanfarið verið auð jörð. Vonir standa þó til að lyfturnar þrjár, sem þar eru, verði brátt virkjaðar. Verð þeirrar þjónustu sem þar er veitt hefur enn ekki verið ákveðið. Rétt er þó að geta þess að hópafsláttiu- er gefinn. ísfirðingar bjóða upp á kennslu, leigu á skíðum og veit- ingaaðstöðu með svefnplássi fyrir - 50 manns. -ÓTT Stólalyfta í Bláfjöllum. s Hraðaðu þér s til umboðsmannsins °g tryggðu Pér númer - / S NÚNA! / 25 milljónir á tromp! 45 milljónir á númerið allt! Rík ástæða fyrír þig til að taka þátt! Happdrætti Háskólans hefur hæsta vinnings- hlutfall í heimi! 70% af veltunni fara til vinnings hafa! Allir vinningar eru greiddir út í beinhörð um peningum sem vinningshafar ráðstafa að eigin vild. Vinningarnir eru undanþegnir skatti! Vinnmgamir 1988: 9 á 5.000.000 kr/ 108 á 1.000.000 kr./ 108 á 500.000 kr/ 324 á 100.000 kr./ 1.908 á 25.000 kr./ ' 10.071 á 15.000 kr./ 122.238 á 7.500 kr/ 234 aukavinningar á 25.000 kr./ Samtals 135.000 vinningar á 1.360.800.000 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.