Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 11. JANUAR 1988.
15
Paul Watson tH landsins:
Þegjumþunnu
hljóði
Konráö Friðfinnsson skrifar: œilljónir fyrir réttu ári. Slíkri iöju
Foraprakki Sea Shepherd samtak- hljótum við að sjálfsögöu að mót-
anna, Paul Watson, er sagður mæla hástöfum.
væntanlegur hingaö til lands í kjöl- Kröftugust yrðu þau mótmæli
far fundahalda Alþjóða hvalveiöir- með þeim hætti að ekki verði birtur
áðsins sem fyrirhuguð eru í stafkrókur í fjölmiðlum varðandi
Reykjavík bráðlega. dvöl Watsons hér á landi. Ég skora
Watson þessi hyggur á fyrir- hér með á aUt flölmiðlafólk að hug-
lestra, væntanlega skjólstæðingum leiða þetta í fullri alvöru.
sinum í hafinu tU handa. Um það Það mun, að minu mati, draga
er iítið nema gott að segja. - Áður tennurnar úr kauða á eftirminni-
en lengra er haldið vil ég taka fram legan hátt. - Hins vegar stendur
að afstaða mín i ncfndu máli er mér á sama hvað Paui Watson og
óbreyttogálithvaladrápinennsem kumpánar aðhafast á íslandsmið-
hingað til mikla timaskekkju. um næsta sumar. En krafan nú
Það breytir samt ekki þeirri stað- ætti að vera: Ekki eitt einasta orð
reynd að menn tengdir samtökum um heimsókn Watsons. Sýnum þó
Watsons unnu hér spcllvirki á eig- fyllstu kurteisi.
um islenskra þegna upp á margar
Lesendur
„Spellvirki voru unnln á eigum íslenskra þegna fyrir um árl,“ segir I bréflnu. - Hvalvelðibótar mara I kaii I
Reykjavíkurhöfn efttr árás hryðjuverkamanna.
Úti að borða:
Heldur
óskemmti-
leg
reynsla
A.S. skrifar:
Við erum 11 stelpur úr Ritaraskól-.
anum og viljum lýsa heldur
óskemmtilegri reynslu sem við urð-
um fyrir á veitingastaö. Þannig var
að við ákváðum að fara út að borða
saman, fimmtudaginn 10. des. sl., og
til allrar óhamingju völdum við
pitsustaðinn E1 Sombrero.
Við hringdum kl. 13 og pöntuðum
borð fyrir 11 manns en þegar við
komum kl. 21 um kvöldið haíði að-
eins verð gert ráð fyrir 10! Ekki var
bætt við borði svo að sú ellefta þurfti
hreinlega að troða sér á milli hinna.
Þjónustan var allan tímann alveg
hræðileg og einkenndist af fádæma
ókurteisi í garð okkar, m.a.s. af hendi
eigandans sjálfs. - Stúlka nokkur,
sem þjónaði líka til borðs, sýndi samt
góða framkomu og kurteisi.
Jæja, en sagan er ekki búin. Þegar
við ætluðum að borga komst ein okk-
ar að því að hún hafði gleymt skil-
ríkjunum heima en var með ávísun
sem hún framseldi ekki sjálf. Eigand-
inn æstist þá allur og sakaði hana
um ávísanafals og þegar önnur
bauðst til að framselja ávísunina fyr-
ir hana þreif hann af henni skilríkin
og grandskoðaði þau áður en hann
lét loks undan.
Af og til beindi hann tíl okkar
skömmum um hvaðeina og hafði
greinilega á okkur öllum illan bifur.
Við vorum fegnar að komast burtu
af þessum stað og borguðum í flýti
en kvörtuðum yfir slælegri þjónustu
um leið og við fórum. Fleira mætti
nefna en það verður ekki gert að
sinni.
Nokkrum dögum síðar hringdi
stelpan, sem var með ávísunina, í
eigandann til að ræða þetta mál og
fá þótt ekki væri nema afsökunar-
beiðni af hans hálfu. Þegar hann
þekkti hana aftur leyfði hann henni
ekki einu sinni að komast að í síman-
um, heldur æsti sig og sagði að við
þyrftum ekki að búast við góðri þjón-
ustu fyrir 900 króna máltíö - lágmark
2000 krónur fyrir góða þjónustu!
Síðan bætti hann við aö við heföum
bara átt að fara á einhvem annan
„fínni“ stað hefðum við ætlað að fá
almennilega þjónustu. Þetta væri
„bara restaurant.“ Enn fleira mætti
segja um þennan eftirminnilega
kvöldverð en hér verður látið staðar
numið.
ÆuuuESTune
Stórfelld verðlækkun
á nyjum vetrarhjólbðrðumli
Vegna tollalækkunar og hagstæðra magninnkaupa getum við nú boðið BRIDGESTONE
„ÍSGRIP" vetrarhjólbarðana á ótrúlegu verði.
Dæmi um verð:
STÆRÐ VERÐ STAÐGREIÐSLUVERÐ
155SR 13 W03 Kr. 2.740.- Kr. 2.550.-
165SR 13 W03 Kr. 3.010.- Kr. 2.810,-
175/70 SR 13 W03 Kr. 3.010.- Kr. 2.810,-
185/70 SR 14 W02 Kr. 3.700,- Kr. 3.440.-
Að auki getum við boðið mjög hagstæð greiöslukjör.
VILDARKJÖR VISA eða EUROCREDIT: Lág eða engin útborgun — og jafnar mánaðarlegar
greiðslur allt upp í 8 mánuði!
Nú er allra veðra von og þvl engin ástæða að bíða lengur með að kaupa vetrarhjólbarðana. Hafið
því hraðar hendur, því aðeins takmarkað magn er til á lager.
DEKKJAMARKAÐURINN,
Nýja Bilaborgarhúsinu, Fosshálsi 1,
Simi 68 12 99