Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988.
Neytendur
Skíðapakkar:
Verð á skíðum, skóm,
bindingum og stöfum
Þrátt fyrir snjólaus jól víðast hvar
um landið er hljóðið í skíðakaup-
mönnum á höfuðborgarsvæðinu
nokkuð gott. Verslun með skíði og
skíðafatnað hefur gengið nokkuð vel
miðaö við snjóleysið. Einstaka kaup-
maður hefur þó kvartað htillega.
Kaupmenn eru sammála um að eft-
ir tollaniðurfellingu síðasta árs á
skíðum sæki almenningur mun
meira í að kaupa skíði. Kaup á skíð-
aútbúnaði koma verulega minna við
pyngju neytandans en áður var. Yfir-
standandi tollabreytingar koma þó
ekki til með að breyta verði skíðaút-
búnaðar.
En hvað skyldi útbúnaður fyrir
byijanda eða meðalmann kosta?
Nokkrir kaupmenn tóku til skíða-
pakka fyrir okkur og kynntu verð
þeirra. I skíðapakka er eftirfarandi:
skíði, stafir, skíðaskór, bindingar og
ásetning þeirra. Rétt er að taka fram
að talsverður munur er á pökkum á
miiii verslana. Tegundir eru sjaldn-
ast þær sömu og verð mismunandi
eftir lengd skíða. Einnig má gera ráð
fyrir að vörur hafi staðið mislengi á
lager. Verðið kemur út á eftirfarandi
hátt:
Útilíf
Ágætt er að hafa í huga aö við val
á skíðum er mælt með að lengd skíöa
fari eftir lengd skíðamanneskjunnar.
í versluninni Útilíf er hægt að kaupa
skíði að lengd frá 70-190 cm. Skíða-
pakki í stærðinni 70-90 cm kostar
6.600 kr., 100-120 cm kostar 6.900 kr.,
130-150 cm kostar 8.300 kr„ 160-165
cm kostar 9.870 kr. og 160-185 cm
kostar 10.500 kr. Skíði í betri gæða-
flokki fyrir lengra komna kosta
15.700 kr. Keppnisskíði kosta um
21.000 kr. Gallar á böm kosta frá 4.
500-6.000 kr. en á fullorðna frá
7.600-18.000 kr.
Sportval
Sportval við Hlemm og í Kringl-
unni hafa á boðstólum pakka upp í
110 cm sem kostar 7.990 kr„ annan
frá 120-140 cm á 9.690 kr. Fyrir ungl-
inga og kvenfólk (160-175 cm) kostar
pakkinn 12.690 kr. en fyrir karlmenn
af stærðinni 180-195 cm kostar pakk-
inn 13.490 kr. Skíði, sem í versluninni
eru nefnd klassaskíði, kosta 16.850
kr. Skíðagaliar eru í miklu úrvah og
kosta frá 3.200 krónum fyrir böm og
aUt upp í 22.000 kr. fyrir fullorðna.
Hummelbúðin og Vesturröst
Hummelbúðin og Vesturröst bjóöa
upp á skíöapakka í stærðinni 80-120
cm sem kostar 7.950 kr. fyrir ungl-
inga og 120-170 cm löng skíði sem
kosta 9.500 kr. Góður útbúnaður fyr-
ir fullorðna kostar um 14.000 kr. Það
er þó ekki pakki þar sem um ótelj-
andi leiðir er að ræða þegar velja á
saman tegundir af skíðum, skóm og
Algengur skiðapakki: Skíöi, skór, bindingar og stafir. Verðið er 12.690 kr.
DV-myndir KAE
Hér er skíðagalli á meðalverði 7.990
kr., hanskarnir kosta 1.990 kr. og
gleraugun 790 kr. Hárbandiö kostar
395 kr.
bindingum.
GaUar kosta frá 3.000 kr. upp í 14.500
kr. það besta.
Bikarinn
Bamastærðir em tvær í Bikamum
við Skólavörðustíg. Annars vegar frá
því minnsta upp í 120 cm sem kostar
6.950 kr. og hins vegar 120-150 cm
stærð á 9.950 kr. UngUnga- og fuUorð-
insstærð er sett í einn flokk eða frá
140-185 cm og kostar 11.950 kr.
Bamagallar kosta tæpar 5.000 kr„
fyrir 10-16 ára 6.000 kr. og fyrir full-
orðna er verðið allt frá 8.500-18.000
kr. Algengast er þó að fólk kaupi
galla á 8-10.000 kr.
Óteljandi möguleikar
Skíöapakkar em eins og sjá má
mjög mismunandi. Endalaust er
hægt að velja saman í pakka. Ein-
hvem gæti t.d. langað í eina tegund
af skíðum og aðra tegvmd af skóm.
Úrval í verslunum er það mikið að
fólki er þaö í sjálfsvald sett hvernig
það velur saman útbúnað sinn. Al-
gengt er að þó að kaupandi komi og
velji eitthvað annað en uppsettan
pakka verslunar þá gefi kaupmenn
7-8% afslátt af verðinu.
-ÓTT
Ekki er líklegt að maður þessi hafi
keypt sér skíðapakka í Kringlunni
en hann virðist ánægður og til alls
líklegur.
Komumst við
á skíði?
Óhætt er að segja að einmuna tíð
hafi veriö hér á landi síðustu mán-
uði, a.m.k. á höfuöborgarsvæðinu.
Snjórinn lét ekki sjá sig fyrr en á
þrettándanum, ökumönnum til mik-
ils léttis. Jólin vom haldin ýmist
rauö eða græn en í fæstum tilvikum
hvít eins og flestir muna. Ætla mætti
að fólk sæi vanalega fyrir sér alhvíta
jörð og hvít tré falla saman við jóla-
ljós í öUum regnbogans Utum. Börn
að leik úti við að byggja snjóhús,
íklædd skjóUIíkum á borð við húfur,
trefla og vettlinga. Raunin hefur orö-
ið önnur um þessi jól.
En skyldu nú aUir vera jafnglaðir
yfir snjóleysinu? Ekki er ólíklegt að
skíðaáhugamenn hafi verið orðnir
vondaufir yfir að fá vetur sem byði
upp á gott skíðafæri. En eitthvað
virðist nú vera að rætast úr fyrir
þeim sem farið var að lengja eftir því
að 'spenna á sig skíðin.
Veðurfræðingar halda því fram að
þegar daginn taki aftur að lengja
kólni í veðri. Minna sé um umhleyp-
inga og snjór líklegri til að festast í
sessi.
Þótt spámenn geti ekki lofað snjó-
komu verður það að teljast afar
Uklegt að skíðamenn fái óskir sínar
uppfylltar og geti von bráðar rennt
sér um hin ýmsu skíðasvæði lands-
ins. -ÓTT
Salat í
Það er hægt að hafa staögott salat
sem aðalmáltíð ef vfll. Það er líka
tilvalið að hafa gott salat í nestis-
pakkann í staðinn fyrir samlokuna
klassísku. En hér koma tvær upp-
skriftir að staðgóðum salötum.
Blandað hrísgrjónasalat
1 boUi brún hrísgijón
2 boUar vatn eða grænmetissoð
Salt eftir smekk
3 msk. mataroha
3 msk. mysa
1 hvítlauksbátur, marinn
Nýmalaður pipar
1 rauð paprUía
matinn
1 græn paprika
200 g sveppir
6 seUerístilkar.
Látiö suðuna koma upp á söltuðu
vatni og heUið hrísgijónunum þar
í. Látið lok á pottinn og látið maUa
í 40-45 mínútur eða þangaö tU hrís-
grjónin eru orðin meyr. Látið síðan
renna af hrísgijónunum ef með
þarf og skohð þau upp úr köldu
vatni svo að þau loði ekki saman.
Látið vatnið renna vel af þeim og
látið þau kólna vel. Hreinsiö pa-
prikumar og skerið þær í þunnar
sneiðar. Skeriö sveppina smátt
ásamt seUeríinu. Blandið græn-
metinu saman við hrísgijónin.
Þeytið saman matarolíu, mysu,
hvitlauk og pipar og blandið vand-
lega saman við salatiö. Kæhð.
Mexíkanskt eggjasalat
225 g rauðar nýmabaunir,
soðnar
Zi poki frosin maískom, soðin
1 stór rauð paprika
2 msk. mataroUa
2 msk. mysa
1 msk. tómatkraftur
1 tsk. paprika
V, tsk. Tabasco sósa
4-6 harðsoðin egg
Blandið saman baununum og
maískomunum. Fræhreinsið pa-
prikuna og skerið hana smátt.
Bætiö henni saman við. Þeytið
saman oUuna, mysuna, tómat-
kraftinn og Tabasco sósuna.
Blandið síöan salatsósunni saman
við baunimar.
Látið salatið á stórt fat. Skerið
harðsoðnu eggin í báta og raðið
þeim meðfram kantinum.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðiun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
íjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks______
Kostnaður í desember 1987:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.