Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988. 45 Birgir Sigurðsson er þýðandi verksins og hér ræðir hann verkið við Stefán Baldursson, fyrrverandi leikhússtjóra. Árni Bergmann, ritstjóri Þjóðviljans, og Þórunn Sigurðardóttir voru meðal frumsýningargesta. DV-myndir KAE Fyrir skömmu frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur verkiö Algjört rugl í Iönó. Með helstu hlutverk fara Guörún Gísladóttir, Harald G. Haralds og Valgerö- Leikritiö er nútímaverk eftir bandaríska höfundinn Christopher Durang ur Dan. og í þýöingu Birgis Sigurðssonar. Bríet Héðinsdóttir er leikstjóri verks- Ljósmyndari DV brá sér á frumsýninguna og tók nokkrar myndir af frum- ins. sýningargestum í leikhléi. Hér sjást í hrókasamræðum Arnór Benónýsson leikari og rithöfundarnir Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn ræðir hér við Knút Hallsson ráðuneytis- Þorsteinn Jónsson frá Hamri og Birgir Sigurðsson sem fékk viðurkenningu stjóra og Sigurður Pálsson fylgist íbygginn með. Rithöfundasjóðs að þessu sinni. DV-myndir KAE Á gamlársdag var að venju veitt árleg viöurkenning Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins og að þessu sinni fékk leikritaskáldið og þýðandinn Birgir Sigurðsson hana. Birgir á meðal annars heiðurinn af verkinu „Dagur vonar“ sem sýnt hefur verið nú um nokkurt skeið. Auk þess þýddi Birgir leikritið„Aigjört rugl“ eftir Christopher Durang sem nýverið var tekið til sýninga hjá LR. Viöurkenningin, sem jafnframt er peningastyrkur aö upphæð 250 þús- und krónur, var nú í fyrsta sinn afhent í nýja Útvarpshúsinu aö við- stöddu fjölmenni. Markús örn Antonsson útvarpsstjóri, Inga Jóna Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs, Birgir isleifur Gunnarsson menntamálaráðherra og Vigdís Finnbogadóttir forseti fylgjast með afhendingu viðurkenningarinnar. Á milli þeirra grillir i Elfu-Björk Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra RÚV, og Andrés Indriðason rithöfund. Sviðsljós Olyginn sagði... Mick Jagger er orðinn leiður á því að búa í Bandaríkjunum. Hann átti glæsilegt hús í Manhattan í New York sem hann bjó iðu- lega í með konu sinn, Jerry Hall, en hann hefur nú selt það fyrir 115 milljónir króna. Þau skötuhjúin keyptu sér annað viðlíka hús í Kensingt- onstræti í London fyrir svip- aða fjárhæð þar sem þau hyggjast búa í framtíðinni. Sophia Loren var ásamt manni sínum, Carlo Ponti, ákærð fyrir níu árum á Ítalíu fyrir að flytja fjármuni frá landinu á ólögmætan hátt. Á þessum tíma hafa þau ekki getað komið til ítaliu án þess að eiga yfir höfði sér máls- höfðun. Nú, níu árum síðar, hafa þau verið sýknuð af þessum sökum og geta því flust aftur til landsins ef þau vilja. Þó er ekki víst að þau hafi áhuga á því. ' Marie Christine, prinsessa af Kent, er þýskætt- uð. Hún giftist Michael prins af Kent árið 1978. Nýlega bárust þær fréttir úr kvik- myndaheiminum að í bígerð væri kvikmynd um ævi henn- ar og á Meryl Streep að fara með hlutverk hennar. Marie er sögð ekki par hrifin af þessu því að þá rifjast upp tengsl föður hennar við nasi- staflokkinn og ýmislegt úr hennar eigin fortíð sem hún kærir sig ekki um að verði haft í hámæli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.