Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988. 5 _____________________________________________Fréttir Mikil leit gerð að tveimur mönnum á Vestfjörðum: Mistök að láta ekki vita um áætlun okkar - sagði Sigurður Jónsson en þeir félagar vissu ekkert um leitina Víöa á landinu er færð slæm og mikil hállca á vegum. Á Aust- urlandi eru flestir fjallvegir ófærir. Fjaröarheiði hefur veriö lokuö í nokkra daga og ekki er ákveðið hvenær hún verður opn- uö. Fagridalur er ófær. Þó hafa vel útbúnir jeppar komist dalinn við illan leik. Oddsskarö er ófært og hefur fólk veriö flutt með snjó- Ágæt færö er á milU Reyðar- fjarðar og Fáskrúðsflarðar. Möðrudalsöræfi eru ófær. Holtavöröuheiöi er ófær og verður hún ekki opnuð fyrr en á morgun. Klettsháls er lokaður og eins er ófært á ii-i.'i ísafjarðar og Þingeyrar. Líkíega veröur byrjað að moka þar í dag. Vegagerðin vill ‘benda végfar* endum á að mikil hálka er á vegura víöa um land. „Það voru mistök að láta fólk ekki vita að við hygðumst gista á fjallinu tefðist ferð okkar. Við lögðum á stað á laugardagsmorgun. Við vorum á gönsguskíðum. Skíðafæri var verra en við héldum. Minni snjór og víða bert grjót. Á laugardaginn versnaði veður og komumst við lítt áfram. Skyggni var lélegt. Við gerðum okk- ur náttstað skammt frá Svartafelh. Þá áttum við stutt eftir að Galtarvita, en þangað var fór okkar heitið,“ sagði Sigurður Jónsson, en mikil leit var gerð að honum og félaga hans, Jóni Ottó Gunnarssyni. Þegar ekki fréttist til þeirra félaga var hafin mikil leit. Um áttatíu manns tóku þátt í henni. Sigurður og Jón Ottó skiluðu sér sjálfir til byggða á sunnudagsmorgun. Var þá liðinn sólarhringur frá því þeir lögðu af stað. „Okkur leið ágætlega um nóttina. Við vorum vel útbúnir. Við vorum með svefnpoka og hlífðarpoka. Við pökkuðum okkur inn og sváfum vel. Það var um klukkan fjögur um nótt- ina sem við lögðum af stað til byggða. Veður hafði skánað töluvert, þó var enn slæmt skyggni. Við höfðum ekki hugmynd um að byrjað væri að leita að okkur. Við fréttum það ekki fyrr en við komum á lögreglustöðina á Bolungarvík. Þar ætluðum við að fá að hringja og fá ættingja til að sækja okkur. Mér sýnist sem leitarmenn hafi veriö mjög nærri okkur um nótt- ina þegar við vorum á leið til byggða," sagði Sigurður. Þeir félagar eru báðir tuttugu og tveggja ára gamlir og hafa náð sér eftir ævintýrið. -sme 1 Já, ævintýrin gerast enn. Við byrjum árið 1988 með tilboði sem er svo ótrúlegt að líkja má við ævintýri. En eins og öll ævintýri tekur það enda, þannig að ef þú vilttaka þátt í þessu einstaka ævintýri skaltu vera með frá byrjun. Það er of seint þegar það er á enda. PANASONIC NV-H65 HI-FI STEREO NV-H65 er eitt besta og fullkomnasta myndbandstæki sem framleitt hefur verið. Mynd og hljómgæði eru í ótrúlega háum gæðaflokki, tækni- legir eiginleikar eru með ólíkindum og öll bygging tækisins ber augljósan vott um yfirburða tæknigetu Panasonic, mesta myndbandstækja- framleiðanda heims. HVERS VEGNA HI-FI STEREO? Nærri allar áteknar myndbansspólur í dag eru HI-FI, hvort sem þær eru fjölfaldaðar hér eða erlendis. Allar eigin upptökur tekur þú upp í HI-FI og losnar við allt suð og bjögun, þannig vinna hljóm- og myndgæði saman við að auka áhrifamátt myndarinnar. Með NV-H65 stígur þú skrefið til fulls inn í framtíðina. Alfullkomin fjarstýring. HQ myndgæði (High Quality). Hraðanákvæmni 99,999%. HI-FI STEREO hljómgæði. Tíðnisvið 20-20.000 Hz. „Simul", hægt að taka upp myndútsend- ingu á sama tíma og hljóð er tekið upp úr útvarpi í stereo (t.d. hefur Eurovision verið send út þannig hérlendis). Hrein og truflunarlaus kyrrmynd. Mynd fyrir mynd, truflunarlaus. Hraðastillanleg truflunarlaus hægmynd frá 1/5 til 1/30. Rafeindastýrðir snertitakkar. Tvöfaldur hraði. Mánaðar- upptökuminni með 8 prógrömmum. 24 tíma skynditímataka. Stafrænn teljari sem sýnir klukkutíma, mínútur og sekúndur. Sjálfvirk bakspólun. Sjálfvirk gangsetning við innsetningu spólu. 99 rásir. 32 stöðva minni. Sjálfvirkur stöðvaleitari. Fínklipping, klippir saman gamla og nýja upptöku án truflana. Heyrnartólstengi með styrkstilli. Læsanlegur hraðleitari með mynd. Leitari með mynd áfram. Leitari með mynd afturábak. Myndskerpustilling. Fjölvísir sem leyfir þér að fylgjast með öllum gjörðum tækisins. Fjölþættir tengimöguleikar. Tækið byggt á steyptri álgrind. Og ótal margt fleira. Verðáður 73.900,- Verð nú 66.500,- Tilboð 49.850,- stgr. (Miðað við gengi 4.1.88 og aðeins eina sendingu) JAPISS BRAUTARHOLT2 • KRINGLAN • SiMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.