Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Page 26
. .38
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988.
Smáauglýsingar Merming
i>v
Kraftur í
Musica Nova
Anna Guðný Guðmundsdóttir, Þóra Fríða Sæmundsdóttir, Þóra K. Jo-
hansen og Maarten van der Valk á æfingu vegna tonleikanna í Norræna
húsinu.
■ Verslun
E.P. stigar hf. Framleiðum allar teg.
tréstiga og handriða, teiknum og ger-
um föst verðtilboð. E.P. stigar hf.,
Súðarvogi 26 (Kænuvogsmegin), sími
35611. Veljum íslenskt.
Útslalan er hafin, mikil verðlækkun.
Dragtin, Klapparstíg 37, sími 12990.
Maril/n Monroe sokkabuxur með
gbmsáferð. Heildsölubirgðir:
S.A. Sigurjónsson hf., Þórsgötu 14,
sími 24477.
■ Bflar til sölu
Wagoneer Limited, árg. ’84, dýrasta
gerð með öllum búnaði, þ.á m. þak-
lúgu, ekinn 48 þús. km, rautt leður
að innan. Uppl. í síma 686644.
■ Þjónusta
,,Topp“-bílaþjónustan. Skemmuvegi
M-44, s. 71970. Aðstaða til að þvo og
bóna. Verkfæri, ryksuga, logsuðutæki
og lyfta á staðnum. Ymsir hlutir til
smáviðgerða. Þvoum og bónum bílinn.
„Topp“-þjónusta. Opið virka daga kl.
9-22 og helgar 9-18.
Það er kraftur í Musica Nova
þessa dagana. Félagið var með aðra
tónleika ársins í gærkvöldi í Norr-
æna húsinu og var býsna margt
áheyrenda. Þó ekki eins margt og
um daginn þegar húsið var troðið
og efnisskráin seldist upp þrisvar.
Þarna var komin Þóra Kristín
Johansen semballeikari, íslensk
kona búsett í Hollandi, og Maarten
van der Vaík, slagverksleikari frá
Hollandi, sem búsettur er hér í
Reykjavík.
Efnisskráin var allskemmtileg og
fróðleg. Þar voru m.a. tvö ný verk
eftir Islendinga, Hoquetus Minor
eftir Þorkel Sigurbjömsson og By
the skin of my teeth, eftir Lárus
H. Grímsson. Verk Þorkels er að
einhverju leyti samið í anda
„hikstamúsíkanta" á miðöldum
sem höfðu gríðarlega gaman af að
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Svo kann að fara að um 40 manns
missi atvinnu sína ef ekki tekst aö
selja Skógerð iðnaðardeildar Sam-
bandsins á Akureyri.
Rekstur skógerðarinnar hefur
gengið erfiðlega að undanfórnu og
nokkurt tap hefur verið á rekstrin-
um. Iönaðardeildin hefur því ákveðið
að selja skógerðina en takist það ekki
Mikið var um rúðubrot í vesturbæ
Kópavogs aðfaranótt sunnudagsins.
Rúður voru víða brotnar. Ráðist var
að skólunum, Kársnesskóla og Þing-
hólsskóla. Einnig voru rúður brotnar
„láta tóna skjótast á milli radda líkt
og söngvaramir væru með hiksta”.
Þorkell samdi þetta verk fyrir Þóru
og Maarten og léku þau það af
Tónlist
Leifur Þórarinsson
miklu öryggi. Verk Lárusar er
einnig samið fyrir Þóru, sem lék
þarna á sembal og hljóðgervil en
höfundurinn stjórnaði segulbandi
með „sampler" hljóðum og skrúf-
aði frá og fyrir hljóðblandara. Þetta
hljómaði ágætlega án þess að
hreyfa verulega við manni.
Það sem helst snart mann á þess-
um tónleikum var helmingur af
Deux Esquisses eftir Spánverjann
verður starfsemi hennar hætt.
Rætt hefur verið um að Akureyrar-
bær kaupi skógerðina og eru
umræður þar að lútandi að hefjast
þessa dagana. Skógerð iðnaðardeild-
ar framleiðir m.a. hina vinsælu ACT
skó en talið er að aðalástæðu erfið-
leikanna nú megi rekja til tíðarfars
i landinu undanfama mánuði því að
kuldaskór hafa lítið sem ekkert selst.
í sundlauginni og í verslun þar
skammt frá.
Á annan tug rúða voru brotnar.
Lögreglan leitar þeirra sem voru að
verki. -sme
Enrique Raxach. Þar var talsverð
alvara á ferðinni og fallega farið
með blæbrigði, sömuleiðis voru
góðir taktar í Star-Stream eftir Bar-
böra Woof frá Ástralíu. Hins vegar
virkaði útpældur „prímitívismi í
Dubbelspoor eftir Hollendinginn
Lous Andriessen heldur dapurlega
Ahöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar
bjargaði breskum flugmanni eftir að
hann nauðlenti í sjónum, tvær til
þrjár sjómílur út af Öndverðamesi.
Það var laust eftir klukkan átján á
laugardag að flugmaðurinn hafði
samband við Reykjavík og sagði
hann að lítið eldsneyti væri eftir á
vélinni og óvíst væri hvort honum
tækist að ná til lands. Flugvélin var
að koma frá Straumfirði á Græn-
landi. Var ákveöið að hann reyndi
að ná til flugvallarins að Rifi á Snæ-
fellsnesi.
Flugvél Flugmálastjórnar fór á
móti flugvélinni og þyrla Landhelgis-
„Við teljum það skýlaust samn-
ingsbrot að ráðinn hafi verið
reynslulitill maður og án starfsþjálf-
unar og það án þess að staöan væri
auglýst. Við höfum haft samband við
dómsmálaráðuheytið vegna þessa,"
sagði Einar Bjarnason, formaður
Landssambands lögreglumanna.
Á Blönduósi sagði varðstjóri upp
störfum og vildi síðar draga uppsögn
sína til baka. En á það féllst sýslu-
maður ekki. Staða varðstjóra var
lögö niður um áramótin og var ráö-
inn maður'í stöðu óbreytts lögreglu-
manns þess í stað.
Sú staða var aldrei auglýst og sagði
þó þar kæmu Anna Guðný Guð-
mundsdóttir og Þóra Fríöa
Sæmundsóttir inn í spilið með
píanó og selestu og legðu sig allar
fram. En í heild voru þessir tónleik-
ar mikill menningarauki og leikur
þeirra Þóra og Maartens var sann-
arlega í háum gæðaflokki. LÞ
gæslunnar skömmu síðar. Klukkan
19.10 nauðlenti vélin í sjónum. Þá
átti þyrlan eftir um 10 mínútna flug
að slysstaðnum. Áhöfn þyrlunnar
gekk vel að finna björgunarbátinn
og greiðlega gekk að ná flugmannin-
um um þorð í þyrluna.
Hann var nokkuð kaldur þegar
hann kom um borð og var haldið
með hann á Borgarspítalann. Þar
hafði hann skamma viödvöl og hélt
af landi brott síðdegis. Áöur spjallaði
hann viö blaðamann DV, og birtist
það viðtal á baksíðu. -sme
Einar Bjarnason aö Landssamband
lögreglumanna liti þannig á að frá-
farandi varðstjóri hefði verið með
umsókn í þá stööu. Hann hefði viljaö
draga uppsgn sína til baka og það
jafngilti umsókn í lausa starfið.
Jón ísberg sýslumaöur sagði að
hann hefði áður fallist á að draga til
baka uppsögn frá sama varðstjóra.
Nú hefði það verið sitt mat og ráðu-
neytisins að fallast ekki á að draga
uppsögnina til baka. Landssamband
lögreglumanna telur þessa ákvörðun
sýslumanns skýlaust samningsbrot.
-sme
Bíll valt eftir árekstur á Sandskeiði á laugardag. Tveir bilar, fólksbíll og
jeppi skullu saman. Við áreksturinn valt jeppinn. Ökumaður jeppans var
fluttur á slysadeild. Báðir bílarnir eru mikið skemmdir. DV-mynd S
Skógerð iðnaðardeildar:
Missa 40 manns at-
vinnu sína?
Söng-debut
skólann áður en hún fór til
framhaldsnáms í Vín og er ekki að
efa að hún hefur fengið góða leið-
sögn á báðum stöðum.
Eitt fannst mér einkennandi og
truflandi; hvað textaframburður-
inn var linur í íslensku lögunum.
Þetta er reyndar talsvert áberandi
hjá íslenskum söngvurum í seinni
tíð, sérstaklega háu röddunum.
Við, sem eram alin upp við texta
Stefáns og Einars Kristjánssonar,
gerum eiginlega kröfur til að heyra
og skilja hvert einasta orð sem er
kannski óþarfi? Hvað sem þessu
líður voru þetta mjög ánægjulegir
tónleikar þar sem margt var flutt
af næmni og vandvirkni án þess
aö til mikilla átaka kæmi þó í tján-
ingunni.
LÞ.
Svanhildur Sveinbjömsdóttir
messósópran debúteraði í Norræna
húsinu á laugardaginn. Undirleik-
ari var Ólafur Vignir Albertsson.
Efnisskráin var býsna fiölbreytt,
Tónlist
Leifur Þórarinsson
.Gluck, Poncielli, íslenska runan
Páll, Sigfús og Árni Thorst., og
Helmut Neumann, sem semur
einnig við íslenska texta, þá
Brahms, Vier eraste Gesánge, og
aríur úr Werther og La forza.
Svanhildur hefur ljómandi rödd
og kann greinilega margt fyrir sér.
Hún hafði stundað nám við Söng-
Verð á hörpudiski lækk-
að um 7% íVerðlagsráði
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins hefur ákveðið nýtt verð á
hörpudiski. Nýja verðið er 15,50
krónur fyrir kílóið af 7 sentímetra
hæö og yfir en 12,90 fyrir 6 að 7
sentímetra hæð. Þetta er 7% verð-
lækkun frá því sem verið hefur.
Bæði kaupendur og seljendur i
yfirnefnd stóðu að verðlagning-
unni. Segja menn verðið orðið svo
lágt nú að bæði útgerð og vinnsla
muni tapa á áframhaldandi veiðum
og vinnslu á hörpudiski.
Ástæða lækkunarinnar er mikil
verðlækkun sem átt hefur sér stað
á Bandaríkjamarkaði í haust og
vetur. Að jafnaði er verð óstöðugt
á hörpudiski á Bandaríkjamarkaði.
Kemur það til af því að með jöfnu
millibili aukast veiðar Bandaríkja-
manna sjálfra á hörpudiski mjög
mikiö og verður þá offramboð, sem
veldur verðlækkun. Þá hafa ýmsar
þjóðir, sem selja á Bandaríkja-
markaði, aukið mjög hörpudisk-
sveiðar sínar sem verður til þess
að auka enn á framboðið á mark-
aðnum.
Ef verðið hækkar ekki alveg á
næstunni gæti svo farið að hörpu-
disksveiðar og vinnsla hér á landi
stöðvist þar eð ekki er hægt til lang-
frama að selja á þessu verði.
-S.dór
Kópavogur:
Mörg rúðubrot í vesturbænum
Flugmanni bjargað
úr björgunarbáti
Varðstjórinn á Blönduósi:
„Skýlaust samningsbrot‘ ‘