Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988.
41
Fólk í fréttum
Júlíus Vífill Ingvarsson hefur
veriö í fréttum DV vegna umræöna
um innflutning á Subaru fióðabíl-
um. Júlíus Vífill er fæddur 18. júní
1951 í Rvík og ólst upp hjá Helga
Sívertsen, forstjóra í Rvík, og konu
hans, Áslaugu Sívertsen. Hann var
í söngnámi í Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1973-1976 og í söngnámi
í Hochschule fúr Musik und dar-
stellende Kunst 1977. Júlíus lauk
lögfræðiprófi frá HÍ 1979 og var í
söngnámi í Conservatorio G.B.
Martine í Bologne í Ítalíu 1979-1982
og vann til verðlauna í söngva-
keppninni A. Pertile í Bologne 1980.
Júlíus söng aðalhlutverkið í Meyj-
arskemmunni í Þjóðleikhúsinu
1982 og aöalhlutverk hjá íslensku
óperunni í Töfraflautunni í
1982-1983, Mikado 1984, Rakaran-
um í Sevilla 1985, Leðurblökunni
1985 og með Sinfóníuhljómsveit-
inni í Carmina Burina 1986. Júlíus
hefur verið framkvæmdastjóri
Ingvars Helgasonar hf. frá 1. júlí
1982 og verið formaður Félags ís-
Júlíus Vvfill
lenskra einsöngvara frá 1986.
Kona Júlíusar er Svanhildur
Blöndal, f. 16. janúar 1957, heilsu-
gæsluhjúkrunarkona. Foreldrar
hennar eru Kjartan Blöndal, fram-
kvæmdastjóri Sauðíjárveikivarna,
og kona hans, Þóra Blöndal. Sonur
þeirra er Helgi Vífill, f. 15. maí 1983.
Sonur Júlíusar er Halldór Kristinn,
f. 30. júlí 1973. Systkini Júlíusar eru
Helgi, f. 9. apríl 1949, framkvæmda-
og sölustjóri Ingvars Helgasonar
hf., kvæntur Halldóru Tryggvad-
óttur, Guðmundur Ágúst, f. 13.
apríl 1950, framkvæmdastjóri íjár-
málsviðs Ingvars Helgasonar hf.,
kvæntur Guðríði Stefánsdóttur,
Júlía Guðrún, f. 7. ágúst 1952, kenn-
ari, gift Markúsi Möller, hagfræð-
ingi í Rvík, Áslaug Helga, f. 21. júní
1954, kennari, gift Eggerti B. Ólafs-
syni hdl. í Rvík, Guðrún, f. 20. júlí
1955, sjúkraliði, gift Jóhanni Guð-
jónssyni, mjólkurfræðingi í Rvík,
Elísabet, f. 5. september 1957, versl-
unarmaður í Rvík, gift Gunnari
Haukssyni aðalgjaldkera, og Ingv-
Ingvarsson
ar, f. 5. júní 1960, læknanemi,
kvæntur Helgu Þorleifsdóttur,
myndlistarnema.
Foreldrar Júlíusar eru Ingvar
Helgason, stórkaupmaður í Rvík, .
og kona hans, Sigríður Guðmunds-
dóttir. Föðursystkini Júlíusar sem
upp komust, eru Guðrún, fv. skóla-
stjóri Kvennaskólans, Lárus, yfir-
læknir í Rvík, og Sigurður,
sýslumaður á Seyðisfiröi. Faöir
Ingvars var Helgi, yfirlæknir á Víf-
ilsstöðum, bróðir Ingunnar, ömmu
Vigfúsar Ing'/arssonar, prests á
Egilsstöðum, og Soffia, amma
Sveinbjarnar I. Baldvinssonar rit-
höfundar. Helgi var sonur Ingvars,
prests á Skeggjastöðum, Nikulás-
sonar. Móöir Ingvars var Oddný,
systir Páls, langafa Megasar. Bróð-
ir Oddnýjar var Jón, langafi
Jónatans, föður Halldórs, forstjóra
Landsvirkjunar. Oddný var dóttir
Jóns „dýrðarsöngs", b. í Hauka-
tungu í Kolbeinsstaðahreppi,
Pálssonar. Móðir Helga var Júlía
Guðmundsdóttir, b. á Keldum,
Brynjólfssonar, forfóður Keldna-
ættarinnar. Móðir Ingvars var
Guörún, systir Páls, föður Lárusar
leikara. Guðrún var dóttir Lárusar,
smáskammtalæknis í Rvík, Páls-
sonar, b. í Arnardranga í Land-
broti, Jónssonar. Móðir Páls var
Guðný Jónsdóttir „eldprests"
Steingrímssonar.
Móðursystkini Júliusar eru
Hrefna, gift Pétri Péturssyni, fv.
alþingismanni, Jóhannes, deildar-
stjóri búvörudeildar SÍS, Guöjón,
rafvélavirki í Hafnarfirði, Einar,
flugvélstjóri hjá Flugleiðum, og
Birgir, véla- og framleiðslutækni-
fræðingur í Hafnarfirði. Sigríöur
er dóttir Guðmundar, bifreiða-
stjóra í Hafnarfiröi, Jónssonar, b.
í Nabba í Flóa, Jónssonar. Móðir
Guðmundar var Guðfinna Helga-
dóttir, b. í Hellukoti í Stokkseyrar-
hreppi, Snorrasonar, b. á
Rauðalæk í Holtum, Árnasonar.
Móöir Sigríðar var Elísabet, systir
Sigurjóns, forstjóra Hrafnistu, föð-
ur Báru, kaupmanns í Rvík. Elísa-
Júlíus Vifill Ingvarsson.
bet var dóttir Einars, stýrimanns í
Gestshúsum i Hafnarfirði, Ólafs-
sonar, bróður Kristbjargar,
langömmu Sigríðar Dúnu Krist-
mundsdóttur, fv. alþingismanns.
Móðir Elísabetar var Sigrlður
Jónsdóttir, systir Siguröar skóla-
stjóra, föður Steinþórs jarðfræð-
ings, föður þeirra Gerðar kennara
og Sigurðar prófessors.
Afmæli
Caroll Baldwin Foster
Caroll Baldwin Foster, fv. yfir-
maður Menningarstofnunar
Bandaríkjanna á íslandi, til heimil-
is aö Vesturgötu 52, Reykjavík, er
áttræður í dag. Hann fæddist í Nor-
folk, en foreldrar hans eru bæði af
enskum ættum. Foster stundaði
nám í byggingalist og listfræði viö
Fíladelfíuháskóla en hann hafði
alla tíð mikinn áhuga á blaða-
mennsku og starfaði löngum sem
blaðamaður. Á námsárunum tók
Foster sér frí frá námi í tvö ár og
var þá yngsti meðlimur hins kunna
Byrde-leiðangurs til suöurpólsins
1928. Foster var svo forstjóri Menn-
ingarstofnunar Bandaríkjanna í
Bangraden (Pakistan) í fjögur ár.
Hann starfaði síðan sem fréttamað-
ur í nokkur ár við OVA í Was-
hington DC og við sjónvarpsstöðv-
ar þar í borg, en var síðan skipaður
yfirmaður Menningarstofnunar
Bandaríkjanna í Afríku en því
starfi gegndi hann í þrjú ár. Aö því
starfi loknu vann Foster aftur við
blaða- og fréttamennsku en 1967
var hann skipaður yfirmaður
Menningarstofnunar Bandaríkj-
anna á íslandi. Eftir þriggja ára
starf hér á landi kaus Foster enn
að starfa við blaöamennsku í Was-
hington.
Fyrri kona Fosters lést úr berkl-
um ung að árum en þau eignuöust
einn son, alnafna föður síns, sem
er doktor í hagfræði og prófessor
við Californiuháskólann í Pasa-
dena.
Kona Fosters er Helga Weiss-
happel Foster listamaður, f. 6.11.
1919, en Foster hefur nú verið bú-
settur hér á landi í tíu ár. Foreldrar
Helgu voru Benedikt Waage, kaup-
maður í Reykjavík og forseti ÍSÍ,
og Elísabet Einarsdóttir söngkona.
Foster treystir sér ekki til aö taka
á móti gestum í tilefni afmælisins
en hann hefur átt við langvarandi
veikindi að stríða.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast blaðinu í síðasta lagi tveimur
dögumfyrirafmælið.
Munið að senda okkur myndir.
85 ára__________________________
Anna Halldóra Karlsdóttir, Álf-
hólsvegi 141, Kópavogi, er áttatíu
•og fimm ára í dag.
Jónatan Sveinsson, Reykjavíkur-
vegi 40, Hafnarfiröi, er áttatíu og
fimm ára í dag.
Ingólfur Árnason, Steinahlíð 3H,
Akureyri, er áttatíu og fimm ára í
dag.
80 ára______________________
Þórunn Oddsdóttir, Merkigerði 8.
Akranesi, er áttræð í dag.
75 ára_____________________
Jóhannes Guðfinnsson, Stýri-
mannastíg 9, Reykjavík, er sjötiu
og fimm ára í dag.
70 ára_________________________
Páll Sigurðsson, Blesugróf 3,
Reykjavík. er sjötugur í dag.
Ingibjörg Fjóla Ingvarsdóttir.
Torfufelli 33, Reykjavík. er sjötug í
dag.
Ólafur Ásgeirsson. Víðihvammi 6,
Kópavogi, er sjötugur í dag.
60 ára_______________________
Jón Mariasson, Þórufelli 6. Reykja-
vík, er sextugur í dag.
ísak Jón Sigurðsson, Hjaltabakka
12. Reykjavík. er sextugur í dag.
Ásta Hildur Sigurðardóttir. Heiðar-
vegi 36. Vestmannaeyjum. er
sextug í dag.
50 ára__________________________
Hrafnkell Ársælsson, Skiphclti 56.
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Selma K. Jónsdóttir, Hólagötu 1.
Vatnsleysustrandarhreppi, er
nmmtug í dag
Björgvin Hagalinsson. Furugrund
38, Akranesi, er fimmtugur í dag.
Hallfreður B. Lárusson. Silfurgötu
42, Stykkishólmi, er fimmtugur í
dag.
Stefán Steingrimsson, Melabraut
17. Blönduósi, er fimmtugur i dag.
Sveina Andrésdóttir, Lagarási 2A,
Egilsstaðahreppi, erfimmtug í dag.
Halla Bjarnadóttir, Vatnsleysu II.
Biskupstungnahreppi. er fimmtug
i dag.__________________________
40 ára__________________________
Dagný Helgadóttir. Miðleiti 2.
Reykjavík. er fertug í dag.
Steinunn M. Valdimarsdóttir.
Starrahólum 2. Reykjavik. er fer-
tug í dag.
Helga Kristjánsdóttir. Lágholtsvegi
10. Reykjavík. er fenug í dag.
Vignir Evþórsson. Þingási 17.
Reykjavík. er fertugur i dag.
Guðný Guðmundsdóttir. Hamra-
borg 14. Kópavogi. er fertug í dag.
Hulda C. Guðmundsdóttir. Kross-
eyrarvegi 7. Hafnarfirði. er fenug
i dag.
Benedikta Ásgeirsdóttir. Höfðastig
6. Bolungarvík. er fenug í dag.
Indriði Stefánsson. Alfgeirsvöllum.
Lýtingsstaðahreppi er fertugur í
dag.
Hálfdánía Jónasdóttir. Öldugötu 3.
Dalvík. er fertug í dag.
Guðmundur Guðmundsson
Guðmundur Guömundsson,
fyrrv. forstjóri Trésmiðjunnar Víð-
is, andaðist sunnudaginn 13.
desember. Guðmundur var fæddur
4. júní 1910 í Önundarholti í Vill-
ingaholtshreppi en íluttist til
Reykjavíkur 1911. Hann missti
sjónina á ööru auga vegna slyss á
áttunda ári, sjónin á hinu auganu
fór dvínandi þar til hann varð al-
blindur um tólf ára aldur og gat
hann því ekki stundað skóla. Ekki
lét Guðmundur það aftra sér og rak
húsgagnavinnustofu í Reykjavík
1930-1945, fyrst að Ljósvallagötu 12
til 1938 og síðan að Víðimel 31 til
1945. Hann stofnaði Trésmiðjuna
Víði hf. 1945 og var forstjóri hennar
á Laugavegi 166 í Reykjavík þar
sem hann byggði stórhýsi. Þar rak
hann stærstu trésmiðju landsins
með um hundrað manns í vinnu
þegar flest var. Trésmiðjan Víöir
hf. flutti 1975 að Smiðjuvegi 2 í
Kópavogi þar sem Guðmundur
byggði 7300 fermetra verksmiðju-
hús og þar var hann forstjóri
fyrirtækisins til. 1983 þegar aðrir
aöilar tóku við stjórn og rekstri
þess. Guömundur stofnaöi 1985 tré-
smiðjuna Viöju hf. ásamt sonum
sínum og var stjórnarformaður
fyrirtækisins til dauðadags. Guð-
mundur var varamaður í bankar-
áði Iðnaðarbanka íslands 1960-1978
og sat í stjórn Félags húsgagna-
verslana frá 1961 og var formaður
1968-1970. Hann var í stjórn
Reykjaprents, útgáfufélags Visis,
og Frjálsrar fjölmiölunar og sat í
fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins.
Fyrri kona Guömundar var Guð-
rún Axelsdóttir, f. 27. janúar 1931.
Foreldrar hennar voru Axel
Grímsson, brunavörður í Rvík, og
kona hans, Marta Kolbeinsdóttir.
Seinni kona Guðmundar er Ólafía
Ólafsdóttir, f. 31. október 1926. For-
eldrar hennar voru Ólafur Kr.
Ólafsson, b. á Áshóli i Ásahreppi í
Rangárvallasýslu, og kona hans,
Sigríður Sigurðardóttir. Synir
Guðmundar og Ólafíu eru Ólafur
Kristinn, f. 6. ágúst 1956, tölvuráð-
gjafi hjá Hug hfi, kvæntur Sigrúnu
Konráðsdóttur; Gísli ísfeld, f. 5.
nóvember 1957, framkvæmdastjóri
‘Viöju; Björn Ingi, f. 5. maí 1964,
viðskiptafræðinemi við HÍ; Sigurð-
ur Vignir, f. 26. september 1966,
nemi í Myndlista- og handíðaskól-
anum, og Guðmundur Víöir, f. 15.
september 1969, verslunarskóla-
nemi. Bræður Guðmundar voru
Bjarni Valdimar, f. 11. júní 1898,
d. 8. desember 1973, læknir á Sel-
fossi, kvæntur Ástu Magnúsdóttur,
og Gísli ísfeld, f. 12. mars 1903, d.
15. janúar 1936, vélstjóri.
Foreldrar Guðmundar voru Guð-
mundur Bjarnason, b. í Önundar-
holti í Flóa, og kona hans, Hildur
Bjarnardóttir. Faðir Guðmundar
var Bjarni, b. í Önundarholti, Guð-
mundsson. Móðir Bjarna var Gróa,
systir Gests á Hæli, langafa Stein-
þórs Gestssonar, fyrrv. alþingis-
manns á Hæli. Gróa var dóttir
Gísla, b. á Hæli í Gnúpverjahreppi,
Andlát
Gamalíelssonar og konu hans. Val-
gerðar Jónsdóttur. systur Guðlaug-
ar. langömmu Sigurborgar, móður
Emils Jónssonar ráðherra. Móðir
Guðmundar í Önundarholti var
Valgerður Eiríksdóttir, b. i Kamp-
holti í Flóa, Helgasonar, b. og
hreppstjóra í Sólheimum, Eiríks-
sonar, b. í Bolholti. Jónssonar, sem
Bolholtsættin er kennd við. Hildur
var dóttir Björns, b. í Króki í Gaul-
verjabæjarhreppi, bróður Sigurð-
ar, afa Andrésar Gestssonar
nuddara. Björn var sonur Snæ-
bjarnar, b. á Ásgautsstöðum í Flóa,
Sigurðssonar og konu hans, Höllu
Þorsteinsdóttir, b. á Hóli í Stokks-
eyrarhreppi, Jónssonar. Móðir
Hildar var Þuríður, systir Kristín-
ar, móður Markúsar ívarssonar
vélstjóra, annars eiganda Vél-
smiðjunnar Héðins. Hildur var
dóttir Magnúsar, b. í Traustholts-
hólma í Flóa, Guömundssonar.