Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988. Útlönd Hefur fullt traust á Meese Ronald Reagan Bandaríkjaforseti á blaöamannafundinum í gær. Sfmamynd Reuter Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hafnaði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu i gær öllum kröfinn um að Edwin Meese, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, yrði látinn segja af sér. Sagði forsetinn að hann sæi engar sannanir þess að Meese hefði brotiö af sér og sagöi að ráðher- rann, líkt og aörir Bandaríkja- menn, teldist saklaus þar til sekt væri sönnuö. Forsetinn sagðifréttamönnum að hann hefði fullt traust á Meese sem undanfarið ár hefur sætt rann- sóknum vegna gruns um lagabrot. Viöurkenndi forsetinn aö ásakanir á hendur Meese væru margar en hins vegar heföi ekkert verið sann- aö. Undanfariö ár hefur sérstakur saksóknari haft mál Meese til meö- ferðar. Þótt hann hati þegar lýst því yfir að hann muni ekki form- lega ákæra Meese er búist við að skýrsla hans veröi mjög neikvæð og óttast repúblikanar að hún kunni að hafa slæm áhrif á gengi frambjóðanda þeirra í forsetakosn- ingunum í haust. Sprengjuárás á hótel Að minnsta kosti átta manns létu lifiö og yfir tuttugu særðust í árás- um sem gerðar voru á hótel og klúbb í Khartoum i Súdan síðast- liðinn sunnudag. Árásirnar voru gerðar á Hótel Acropole og Súdan- klúbbinn í Khartoum og beittu ár- ásarmennirnir bæði skotvopnum og hendsprengjum við verknaðina. Ekki hafa borist áreiðanlegar fréttir af mannfalli meðal inn- fæddra í borginni. Ljóst er hins vegar að fimm útlendingar, þeirra skylda, létu lífið. Tveir ungir Súdanbúar iiggja í valnum eftir árásina á sunnudag. Simamynd Reuter i meðal fiögurra manna bresk fiöl- Ókeypis klæðnaður Loftmynd af fatahaugnum i Norður-Karólinafyfki, þar sem fólk gat tekið eins og það vildi fyrir grunngjald sem nam á þriðja hundrað krónum. Simamynd Reuter Sérkennileg uppákoma átti sér stað í Anson-sveit í Norður-Karólína- fylki í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Ótilgreindur aðili í New York ákvað þá að losa sig viö mikið magn af fatnaði og lét aka tonnum af flík- um út á bersvæði i sveitinni. Var fótunum dreift þar á bersvæði og hverj- um sem var heimilaö að ná sér í eins mikið og þurfa þótti. Þurfii fólkið aöeins aö greiöa fimm dala stöðugjald fyrir bifreiöir sínar eða sem nemur eittlivaö á þriðja hundrað krónum. Hluti af fatnaði þessum var framleiðsla frá frægum hönnuöum. Ekki fékkst gefið upp hver sendi fótin þvi að eigandi landsins, sem þeim var dreift á, kvaðst bundinn þagnarheiti. Felldi tvo lögreglumenn Hálffertugur maður gekk í gær- kvöld berserksgang í Höfðaborg í Suður-Afríku og skaut tvo lög- reglumenn til bana áöur en lögregl- unni tókst að ráða niðurlögum hans. Að sögn lögreglunnar stóðu átök- in við manninn, Christopher du Plooy, í fiórar klukkustundir og lauk ekki fyrr en lögreglumanni tókst að varpa aö honum hand- sprengju. Du Plooy mun hafa haft sjálfsmorð i huga en nágrannar hans segja að hann hafi nýlega ver- ið látinn laus af geðsjúkrahúsi. Annar lögreglumannamia sem Du Plooy felldi var Hendrik Bam- Logregiuvorour vio porpio tdend- ^rd, einn þeirra foringja óeirðalög- ale í Suöur-Afríku, þar sem að reglunnar í Suöur-Afríku sem þel- minnsta kosti fimm hundruð dökkir þar hafa óttast mest. Bam- manns hafa (allið í átökum hvítra lék lykilhlutverk í bælingu á og svartra »rá upphafi árs 1987. óeiröum þeldökkra á árunum 1984 Simamynd Reuter til 1986. Skæruliðar gripnir á landamærunum Palestínsk börn keyptu sér leikfangabyssur þegar fimm daga útgöngubanni í Nablus á Vesturbakkanum var afiétt. Um svipað leyti laumuðust palestín- skir byssumenn frá Jórdaníu yfir ísraeisku landamærin. Simamynd Reuter ísraleskir hermenn særðu og tóku til fanga palestínska byssumenn sem komu frá Jórdaníu yfir ísraelsku landamærin. ísraelskur hermaður særðist lítilsháttar í átökunum. Tveim skæruliðum tókst að flýja til baka og að sögn ísraelskra heryfir- valda voru þeir eltir af jórdönskum hermönnum. Þetta er í annað sinn á sex mánuð- um að palestínskir skæruliðar laum- ast inn í ísraels frá Jórdaníu. Sam- kvæmt yfirlýsingu talsmanns ísra- elska hersins gera Jórdanir þó allt sem í þeirra valdi stendur til þess að hindra slíkar árásarferðir frá Jórd- aníu. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu er búist viö að ísraelsk yfirvöld krefiist harðari aðgerða af hálfu jórdanskra yfirvalda. Jórdönsk yfirvöld vísuð árið 1986 palestínskuu skæruliðasamtökun- um A1 Fatah úr landi eftir að friðar- viðræður milli Husseins konungs og Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka Pal- estínumanna, fóru út um þúfur. Stjórnmálaskýrendur segja að bæði Jórdanía og Egyptaland séu undir miklum þrýstingi vegna hins mikla stuðnings araba almennt við uppreisnina á herteknu svæðunum. Samið um atkvæðin Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux: Franskir stjórnmálamenn sitja og funda og velta því fyrir sér hvernig þeir geti náö sem flestum hinna 577 þingsæta í komandi þingkosningum 5. og 12. júní. í kosningunum til þingsins er Frakklandi skipt í jafn- mörg eins manns kjördæmi og eins og staðan er nú hjálpar það ekki hægri flokkunum því að Sameining- arflokkur lýðveldisins (RPR) og Lýð- ræðisbandalagið (UDF), svo ekki sé minnst á Þjóðfylkinguna, bjóða allir fram í sama kjördæmi og bítast um kjósendur. Auöveldar þaö kjör fram- bjóöenda Sósíalistaflokksins sem er langsamlega stærsti flokkurinn til vinstri. Núverandi meirihluti á þinginu og fyrrverandi samstarfsaðilar í ríkis- stjórn, RPR og UDF, samþykktu í gær að bjóða sameiginlega fram undir merki URC, Bandalags sameingingar og miðju. Neita þeir öllu samstarfi við Þjóðfylkingu Le Pens. Frönsk kosningalög gefa fiokkum möguleika á alls kyns braski og samningum, sérstaklega milli hinna tveggja umferða. Le Pen veit að í mörgum kjördæmum þarf URC á stuðningi hans að halda ef vinna á sósíalista. Þessa stöðu ætlar hann aö nota sér til hins ýtrasta og sósíalistar reyndar líka. Þeir hafa boðið miðju- mönnum úr UDF, séu þeir gegn Le Pen og vilji vinna með Mitterrand forseta að loknum kosningum, stuðning sósíalista í sumum kjör- dæmum. Það er að segja sósíalistar eru tilbúnir að draga sinn frambjóð- anda til baka og styðja miðjumann. Pierre Mauroy, formaður Sósíalista- flokksins, lýsti því yfir í gær að sínir menn væru tilbúnir aö gera þetta í 30 til 50 kjördæmum. Menn eru þegar byrjaðir að semja og að minnsta kosti í einu kjördæmi hefur UDF þingmað- ur lýst yfir stuðningi við Mitterrand. Sósíalistar hafa meðbyr og geta því leyft sér tilboð af þessu tagi. Ef hug- myndir Mitterrands um eins konar lýðræðisfylkingu vinstri og miðju manna eiga að koma til framkvæmda veröa að vera einhverjir miöjumenn á þinginu. En allir þessir samningar eru enn sem komið er mest í orði, bæði til hægri og vinstri. Samstarf RPR og UDF er kannski leið til að bjarga því sem bjargað verður fyrir hina hefðbundnu hægri flokka en eftir er að vita hvort þetta samstarf gengur upp. Þótt Valery Giscard d’Estaing og fleiri frammámenn í UDF væru á fundinum í gær lét Ra- ymond Barre ekki sjá sig. Hann lýsti því meira að segja yfir í viðtali að hann teldi að sósíalistar myndu sigra í kosningunum. Hefndarmorð á hindúum Sérþjálfaðar sveitir sitja enn um Gullna hofið í Amritsar og í gær tókst þeim að komast inn í kjallarabyggingu hofsins. Simamynd Reuter Byssumenn síkha myrtu í gær tutt- ugu og níu hindúa í hefndarskyni fyrir umsátur yfirvalda um Gullna hofið í Amritsar í Punjab. Aftakan átti sér stað í Chandigarh, höfuðborg Punjab. Lögreglan í Chandigarh kvaðst hafa átt von á hefndarmorðum sjálf- stæðissinna en fiöldi árásanna kom á óvart. Undanfarna tvo daga hafa sjötíu og þrír menn verið myrtir af sikhum. Auk þess sem sikharnir myrða andstæðinga sína hafa þeir margsinnis ráðist á hindúa til þess að hræða þá svo þeir fari frá Punjab. Umsátrið um Gullna hofið heldur áfram en þrjátíu byssumenn eru enn á helgasta stað hofsins þar sem hin helga bók sikha er geymd. Lögreglan hefur lýst því yfir að hún muni ekki skjóta þar inn. Embættismenn hafa lýst því yfir að að þeir séu ákveönir í að binda enda á hlutverk hofsins sem virki sjálfstæðissinna og munu sérþjálfað- ar sveitir ekki víkja af verðinum. í gær komust þær inn í kjallara sem tengir turnana tvo sem byssumenn- irnir hafa notað sem vígi. Notuðust þær við handsprengjur og táragas er þær brutu sér leið inn. Um þrjátíu manns hafa fallið í umsátrinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.