Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988. LífsstOl Skyggmlýsingafundur hjá breskum miðli: Hefiir séð látna sitja á kistunni og dingla fótunum við eigin jarðarför - og horfa á kirkjugestina „Þessi ungi maöur lést ekki af slys- fórum heldur hjálpaði hann sér sjálf- ur yfir um. Hann vill koma skilaboð- um til móður sinnar í gegnum þig,“ segir Glady’s Fieldhouse, breskur miðill, sem nýlega var stödd hér á landi og hélt m.a. skyggnilýsinga- fundi. Er líf eftir þetta líf? Þessi spurning hefur brunnið á vörum manna um ómunatíð. Þó seint verði hægt að sanna eða afsanna kenningar um þessi mál telja margir að þeir hafi fengið fullnægjandi sannanir fyrir tilveru annars lífs. Þessir einstakl- ingar hafa stofnað félög eins og Sál- arrannsóknarfélag íslands. Tilgangur félaga þessara er að leita eftir sönnunum um að líf sé að loknu þessu. Til þess er meðal annars feng- ið fólk, sem talið er að hafi skyggni- gáfu, til að halda fundi og fræðsluer- indi. Skyggni, dulheyrn og dulnæmi Glady’s Fieldhouse er breskur mið- ill sem kom til landsins á vegum Sálarrannsóknarfélagsins. Glady’s er viðurkenndur miðill í heimalandi sínu og hefur starfað sem slíkur í áratugi. Hún hefur ferðast víðsvegar um heiminn og haldið fundi í mörgum löndum. Stór hluti starfsins er að reyna aö sanna tilvist annars lífs. Ótal blaða- og sjónvarpsviðtöl hafa verið tekin við hana. Þar hefur hún reynt að sýna og sanna hæfileika sína sem eru almenn skyggni, dul- heyrn og dulnæmi. Skyggni er hæfileiki til að sjá fram- hðið fólk, dulheyrn hafa þeir sem heyra raddir og hljóð að handan og dulnæmi skilgreinir þær tilfmningar sem látið fólk hefur. Til að kynnast betur hæfileikum þessarar konu fór blaðamaður DV á skyggnilýsingafund sem hún hélt. Fólk af báðum kynjum, áöllumaldri og úr báðum heimum Fundurinn var haldinn í sam- komusal Hótel Lindar. Þaö vakti strax athygli hversu blandaður hóp- ur fólks kom á fundinn. Þarna var fólk á öllum aldri og af báöum kynj- um. Enginn einn aldurshópur var fjölmennari en annar. Salurinn var fullskipaður. í loftinu var spenna og fólk talaði í hálfum hljóðum. Andrúmsloftið í salnum var svo sannarlega ekki líkt því sem geristá bingósamkomu. Við enda salarins var borð sem miðillinn sat viö ásamt manni sínum og tveim fulltrúum Sálarrannsókn- arfélagsins. Annar þessara fulltrúa reyndist vera túlkur miðilsins. Þegar setja átti fundinn kom í ljós að hljóð- kerfið í salnum virkaði ekki. Eftir árangurslausar tilraunir til að reyna að koma skikkan á hlutina byrjaði fundurinn. Hann var settur með kynningu á miðlinum. Er eins og sími Glady’s Fieldhouse er kona á sjö- tugsaldri. Hún er fínleg og hefur góð- legt andlit. Glady’s stóð sjálf upp og kynnti sig. Hún hélt stutta tölu um hæflleika sína og hvernig hún beitti þeim. Hún líkti sér við síma. „Miðilhnn er eins og hvert annaö tæki,“ sagði Glady’s. „Við getum lítið gert annað en sagt frá því sem við upplifum. Það er jafnframt nauðsyn- legt að svarað sé hátt og hiklaust þegar til fólks er talað. Þeir fyrir handan hafa engan áhuga á að halda sambandinu opnu ef ekkert heyrist á þessum enda línunnar,” bætir hún við. „Ég vh jafnframt hvetja fólk til að svara skilmerkilegá, helst já, nei eða ég veit ekki. Jafnframt afþakka ég alla hjálp og aðstoð viö að lýsa fólkinu. Við erum að reyna að finna sannanir hér í kvöld og þaö yrði til- gangslítið ef mér yrðu sagðir hlutirn- ir áöur en máhn eru rakin th hlít- ar,“ segir Glady’s. Oft bregður'fyrir glettni í fram- komu hennar. Einu sinni slokknuðu ljósin í salnum og spurði hún hver væri nú að koma að handan og hló dátt á eftir. Hún byijaði að einbeita sér og fljótlega kom einhver í gegn. Er einhver Jónsson hér inni? „Er einhver Jónsson hér inni?“ spyr hún fyrst? Þrír menn rétta upp hönd. „Mér finnst eins og það komi úr þessari átt,“ segir hún og bendir inn- ar í salinn. Næst segir hún frá því að th sín sé komin viröuleg kona sem hafi dáið fyrir fimm árum. Jónsson- urinn, sem átti hlut að máli, kannað- ist ekkert við konuna þrátt fyrir að henni væri lýst vandlega. Að end- ingu var hætt við að rekja þetta mál því framhðna konan var fyrst og „Það má líkja mér við síma. Ég er einungis áhald til að koma á sambandi milli tveggja heima. Ef samband er slæmt öðrum megin er erfitt að koma skilaboðunum á milli. íslendingar er áhugasamnr en felmnir. Þeir halda oft að ég geti komist að öllum þeirra leyndarmálum. Þó að svo væri hefði ég engan áhuga á því.“ Úrval Tímarit fyrir alla HENTAR ÖLLUM ALLS STAÐAR - Á FERÐALAGINU JAFNT SEM HEIMA MEÐAL EFNIS: Skop 2 • Baun sem á þúsund gervi 3 • Bylurinn mikli 88 7 • Baráttan við krabbameinið 13 • Að fara úr öskunni í eldinn 19 • Vísindi fyrir almenning: Útblástur án köfnunarefnis 22 • Blýlaust bensín eyk- ur hættu á krabbameini 25 • Heitir þú Þóra, Jón eöa Guðmundur? 28 • Dularfull dauðsföll í Kongó 32 • Staðreyndir um tilraunir á dýrum 41 • Þetta er mitt sæti en ekki þitt, karl minn 49 • Þegar Herald of Free Enterprise fórst 56 • Hugsun í orðum 86 • Hetjusaga fjölskyldu 87

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.