Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988.
Hústökuslagur
í Hollandi
Til nokkurra átaka hefur dregið undanfarið milli hústökufólks í Hollandi
og óeirðalögreglu landsins. Meðfylgjandi mynd er frá slag sem átti sér stað
í Nijmegen nú í vikunni þar sem sjö manns voru handtekin fyrir að yfirtaka
auð hús með ólöglegum hætti.
Erlend myndsjá
Nautafimleikar?!?
Það getur ýmislegt borið við á nautaatsleikvöngum, en meðfylgjandi ljósmynd verður þó að teljast nokk'uð
sérstök. Ekki er annað að sjá en blessað nautið hafi ákveðið að bregða sér í fimleika. Að minnsta kosti stendur
það á höfði á myndinni, sem bendir til þess að það hafi einhveija fimi í gólfæfingum, þótt engum sögum fari
af æfingum á slá eða hesti.
Ef til vill er gripurinn þó aðeins að lýsa fyrirlitningu sinni á slökum nautabana með því að steypa sér koll-
hnís. Eða þá nautabaninn hefur hvíslað að því að það yrði ekki sett í steikur. Hver veit svo sem?
Myndin var annars tekin á San Isidro-nautaatinu á Spáni um síðustu helgi.
Sovéski
herinn
kveður
Brottflutningur sovéska herliðsins
frá Afganistan er nú hafmn og á
meðfylgjandi ljósmyndum eru her-
menn úr fyrstu sveitunum, sem
hverfa á brott, að kveðja íbúa Kabúl,
höfuðborgar Afganistan.
Ungir sem aldnir flykktust út á
götur borgarinnar, sumir til að
þakka sovésku hermönnunum veitt-
an stuðning en aðrir til að fagna
brottför þeirra.