Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988. 11 Utlönd rJ X / fararbroddi tæknilegra framfara 7£ 16 ár Eftir aö Israelsmenn lokuöu skólum á herteknu svæðunum hefur kennsla farið fram á hinum margvíslegustu stöðum, meðal annars í görðunum fyrir framan skólana. Simamynd Reuter Þegar hraða er þörf. Þegar tíminn er peningar. Þegar ekki er flogið. Fjórhjóladrifni fjölskyldubíllinn frá SUBARU er kjörbíll manna á uppleið í krefjandi störfum. SUBARU kemst leiðar sinnar með öllum þeim krafti og nútímaþægindum sem japanskt hugvit hefur upp á að bjóða. SUBARU á stöðugrí uppleið. Æ=g=S ■ k Ingvar g - = _ - Helqason hf. g- ■ b g - Sýningarsalurinn, Rauðagerði Simi: 91 -335 60 s| Vinsæl neðan- Jarðarkennsla I bænum E1 Bireh á Vesturbakk- anum er það algeng sjón að sjá hóp ungra bama sitja í görðunum fyrir framan skólana. Vegna óeirðanna hafa skólarnir þeirra verið lokaðir frá því í febrúar en Palestínumenn eru sammála um að börnin verði að halda áfram að læra. Þess vegna fer kennslan fram í skólagarðinum en auk þess er not- ast við heimilin, bakgarða, kirkjur og moskur. Sjálfboðaliðar kenna börnunum arabísku, ensku, stærð- fræði, vísindi, sögu, listir og leik- húsfræði. „Við lærðum meira í skólanum en hér er okkur kennt betur og hér er líka betra að vera,“ er haft eftir einum níu ára snáða sem sat ásamt félögum sínum fyrir framan skól- ann sinn sem nú er lokaður. ísraelsmenn lokuðu skólunum á herteknu svæðunum í þeirri trú að það myndi hjálpa til þess að bæla niður uppreisnina á Vesturbakk- anum og Gazasvæðinu sem nú hef- ur staðið í sex mánuði. Palestínu- menn standa hins vegar enn fastar saman nú en áður auk þess sem bæði kennararnir og börnin segjast hafa gaman af neðanjarðarskóla- kerfmu. Kennslan í skólunum fór fram eftir jórdönsku mynstri en nú eru gerðar tilraunir með nýja kennsluhætti, meðal annars vegna þess að aöstæðurnar leyfa ekki annað. Skólamálin hafa þjappaö fólki saman og vakið áhuga margra á stjórnmálum sem annars hafa látið þau sig litlu skipta. Auk skóla- nefnda hafa verið settar á laggirnar nefndir er sjá um öryggismál, land- búnað, heilbrigðismál og lögfræði- lega aðstoð. Um þrjú hundruð þúsund börn á Vesturbakkanum eru á skólaaldri og er talið að um fjörutíu prósent þeirra njóti neðanjaröarkennslu. Sagt er að margir vonist til þess að hinar nýju kennsluaðferðir geti komið í stað hinna hefðbundnu sem eru mjög formfastar. Prófessor í listasögu múhameðstrúarmanna bauðst til þess að kenna listir í bænum E1 Bireh. Hingaö til hefur aöallega verið fiallað um leirkera- smíði þar sem prófessorinn er með slíkt verkstæði heima hjá sér. Bæði prófessorinn og nemendurnir njóta samverustundanna. Prófessorinn vegna þess að hún hefur aldrei kennt börnum áður og þau vegna þess að þau hafa aldrei komiö á leirkeraverkstæði áður. Alls var átta hundruð grunnskól- um á Vesturbakkanum lokað í febrúar, fimm háskólum og tíu framhaldsskólum vegna þess að mótmælaaðgerðir voru.tíðar þar. Nýlega tilkynntu ísraelsk yfirvöld aö 23. maí verði leikskólar og grunnskólar opnaðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.