Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988.
17
Lesendur
Þróast gengismál hér á svipaðan hátt og í sumum ríkjum Suður-Ameríku, þar sem gjaldmiðillinn er næsta lítils virði?
Lággengissinnar sigruðu
Júlíus Einarsson skrifar:
Þá hefur verið tilkynnt ein gengis-
fellingin enn. Ekki eru nema tveir
eöa þrír mánuðir síðan sú síðasta var
framkvæmd og þá um 6%. Þegar svo
er komið, að gengi er fellt meö
tveggja til þriggja mánaða millibili,
þá má reikna með sama áframhaldi,
líkt og gerðist í sumum Suður-
Ameríkuríkjunum, sem lentu í vand-
ræðum vegna erlendra skulda.
En lággengissinnar hér á íslandi
hafa sem sé sigrað eina ferðina enn.
Það er gaman að sjá framan í þá að-
ila nú aö þessari aðgerð ákveðinni,
sem fremstir stóðu í rööinni um að
krefjast gengisfellingar til „hags-
bóta“ fyrir útveg og fiskvinnslu. Nú
fullyrða þeir hver á eftir öðrum, að
engin lausn sé í því að fella gengið!
Og auðvitað er það rétt, það er eng-
in lausn, ekki einu sinni fyrir ferða-
mannaiðnaðinn svokallaða, því hér
hækkar allt að sama skapi og gengis-
fellingu nemur eða meira en það, svo
að ferðamenn fá ekkert meira fyrir
sinn gjaldeyri hér.
Og tökum eftir því að hvaöa ráð-
stafanir, sem gerðar verða til að
hindra að gengisfellingin hafi ekki
áhrif á launaskrið og verðhækkanir,
munu til einskis. Einfaldlega vegna
þess aö þegar gengisskráning er
komin svo gjörsamlega úr böndun-
um, eins og hér er, að gengi er fellt
á fárra mánaða fresti þá ræður eng-
inn, hvorki Seðlabanki né ríkisstjórn
við málin lengur.
Nú munu sömu aðilar og fengu
þessari gengisfellingu áorkað koma
aftur á sjónarsviðið eftir svo sem
viku, hálfan mánuð og segja sem
svo; ja, þar sem áhrif gengislækkun-
arinnar koma ekki fram fyrr en eftir
nokkra mánuði, þá verður ríkis-
stjórnin að koma okkur til aðstoðar
með „öðrum hætti“ (eins og það er
gjarnan orðað) nú þegar. - Síðan
munu ótaldir þrýstihópar koma 1
sviösljósið og knýja á um enn eina
lækkun gengis og svo koll af kolli,
þar til öll sund verða lokuð.
Þegar ég skrifa þetta er enn ekki
að fullu ákveðið hve mikil þessi geng-
islækkun verður, en ef hún verður
lægri en 15% þá er sjálfgefið að það
er ekki nema skammtímalausn fyrir
lággengissinna, þeir munu því koma
aftur að tveimur mánuðum liönum
og bera nákvæmlega sömu rök á
borð fyrir ráðamenn og þeir gerðu
fyrir þessa gengisfellingu. - Segja
má að hér stefhi allt í eina átt, niöur
- og það mjög hratt.
Ekið á bíl -
K.B. hringdi:
Það var miftvikudagskvöldið hinn
4. þ.m. aft ekið var efta bakkað á
bifreift mina, Suzuki Swift árgerð
1987 og sem stóð á bilastæftinu viö
Hraunberg 4, fyrir framan sólbaðs-
stofuna. Þetta hefur gerst á bilinu
milli kl. 21 og 22 um kvöldið.
vHni vantar
Ég bið þann sem þarna á hlut aft
máli svo og aftra sem kynnu aft
hafa orftift vitni aft þessum atburði
aft hafa samband vift lögregluna -
eöa mig sjálfa. Síminn hjá mér er
77004. Vinsamlega hringið ekki fyrr
en eftir kl. 21.80 aft kvöldi.
Sparkvöllur við
Skeljagranda?
Fimm barna faðir hringdi:
Fyrir síðustu borgarstjómarkosn-
ingar sagöi borgarstjóri í útvarps-
þætti aö borgin hygðist útbúa spark-
völl/leiksvæði á milli Skeljagranda
og Öldugranda.
Ekkert bólar á framkvæmdunum
ennþá.
Góð skrifstofuaðstaða
á annarri hæð, ca. 110 m2, sem má skipta niður, við
Síðumúla til leigu. Góð sameiginleg aðstaða. Upplýs-
ingar í síma 687187.
fFélagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
FJÖLSKYLDUDEILD
FÉLAGSRÁÐGJAFI
Laus er staða félagsráðgjafa við Fjölskyldudeild. Um
er að ræða stöðu fulltrúa sem fer með sérverkefni á
sviði barnaverndarmála, einkum ráðgjöf vegna vist-
ana barna á vistheimili og fjölskylduheimili, ráðgjöf
á mæðraheimili og fl. Reynsla á meðferðarstarfi áskil-
in.
FORSTÖÐUMAÐUR
Laus er staða forstöðumanns í Unglingaathvarfi.
Áskilin er félagsráðgjafamenntun eða önnur mennt-
un á sviði sálar- eða uppeldisfræði, ásamt starfs-
reynslu í meðferðarmálum.
Upplýsingarum báðarstöðurnarveitiryfirmaður Fjöl-
skyldudeildar í síma 25500.
Umsóknir berist fyrir 1. júní nk.
4
ARKLAnmariiD©
GASGRILL m/kút og yfirbreiðslu
Verð kr.
14.500,-
TIL SÝNIS OG
Dalshrauni 13, Hafnarfirði
ÍX
rwo
Rennilásar, reimar og spennur
einkenna nýjustu skóna á mark-
aðnum í dag. Á morgun verður
litið inn í nokkrar verslanirsem
versla með skó og athugað hvað
er vinsælt í karlmanna- og kven-
skótískunni þessa dagana. Litið
verður á eins konar sandala fyrir
konur og sígilda skó fyrir karl-
menn. Hvaðervinsælast og hvað
kostar það? í Lífsstíl á morgun.
Nú er veðrið til að grilla úti. I
Lífsstíl á morgun fjöllum við
um grill. Við sýnum nokkrar
gerðir, gefum góð ráð og upp-
skriftir að gómsætum réttum.
Gasgrill og kolagrill verða í
Lífsstíl.
Þá hafa gaseldavélar ruttsér
til rúms hér á landi. DV athug-
aði gaseldavélar og hvaða
kostirfylgja eldun á gasi.