Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Robert
Redford
sem er þekktur fyrir að vera sér-
lega vandfýsinn á hlutverk,
breytti út af vananum um daginn.
Framleiðandi sjónvarpsþáttarins
„Lagakrókar", sem sýndir eru á
Stöð 2, bauð honum að leika
gestahlutverk í þáttunum. Robert
Redford tók tilboðinu samstundis
öllum á óvart. Ástæðan mun vera
sú að Redford er mikill aðdáandi
þáttanna, en þeir þykja vel gerð-
ir. Redford hefur aldrei áður leik-
ið í sjónvarpsþætti.
Brooke
Shields
og móöir hennar, Teri Shields
voru nýlega aö bíða eftir flugvél
í flughöfninni í Los Angeles þegar
bíræfnum þjófi tókst að hrifsa frá
þeim veski. Lífverðir þeirra náðu
þjófnum ekki og þær töpuðu pen-
ingum fyrir tæpa milljón og lík-
lega öðru eins í skartgripum. En
þær ættu þó ekki að vera á flæði-
skeri staddar þrátt fyrir þetta
áfall.
Joan
Collins
er hjátrúarfull með afbrigðum.
Hún er búsett í Kalifomíu þar
sem jarðskjálftar eru tíðir. Joan
hefur mikla trú á spádómum
Nostradamusar og þóttist lesa
það út úr spádómum hans að
Kalifomía muni leggjast í rúst í
geysiöflugum jarðskjálfta í maí á
þessu ári. Joan Colhns vill hafa
vaðiö fyrir neöan sig í þessum
efnum og hefur því flutt til Lon-
don og mun búa þar þangað til í
júní.
Heiðursgesturinn Arnór Benónýs-
son stóð i ströngu.
„Krúttmagamir''
fóm á kostum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Krúttmagakonurnar“ á Akureyri
eru ekki í vandræðum með að
skemmta sér þegar þær haida sín
árlegu „krúttmagakvöld", en þær
semja alltaf skemmtiatriði sín og
flytja þau sjálfar.
Á fyrsta „krúttmagakvöldinu“ að
þessu sinni sem fram fór í Sjallanum
aö vanda var húsfyllir hressra
kvenna sem lokuðu karlpeninginn
úti þar til um miðnætti að „hleypt
var til“. Heiðursgestur kvöldsins var
þó karlkyns, eins og venjulega, og
að þessu sinni var Það Arnór Benón-
ýsson nýskipaöur leikhússtjóri á
Akureyri.
Konurnar snæddu sjávarrétti áður
en þær tóku til við skemmtiatriðin
og að þeim loknum „hituöu þær upp“
fyrir komu karlanna með léttum
dansi og með því að marsera um allt
húsið.
Það er óhætt að segja að mikil glað-
værð hafi ríkt í Sjallanum þetta
kvöld, en við látum myndirnar um
að skýra frekar hvað þar fór fram.
„Fanney Fjalar“ er af hinni þekktu tónlistarfjölskyldu og bara nokkuð lík
Eiríki frænda. DV-myndir GK
Kvikmynda-
hátíð í Mílanó
ítalir halda sína kvikmyndahátíö
eins og aðrar þjóðir, enda framleiöa
ítalir mikiö af kvikmyndum. Á þeirra
hátíð sem haldin var í Mílanó fyrir
skömmu voru veitt svipuð verðlaun
og á óskarsverðlaunahátíö amer-
ískra.
Meðal gesta á hátíðinni nú voru
Charlton Heston og aö sjálfsögðu
Sophia Loren. Einnig mátti sjá ít-
alska forsætisráöherrann, Giuho
Andreotti. ítalska kvikmyndahátíðin
er nefnd „Telegatto" á frummálinu.
Meðal gesta á ítölsku kvikmyndahátiðinni voru italski forsætisráðherrann
Giulio Andreotti og leikararnir Charlton Heston og Sophia Loren.
Simamynd Reuter
Hollendingurinn Peter van Der Meer þykir allra manna færastur að stæla
Michael Jackson og hann sýndi íslendingum taktana á skemmtistaðnum
Evrópu. DV-myndir GVA
Skemmtistaðurinn Evrópa fékk
nýlega til sín þekkta eftirhermu sem
stældi stórsöngvarann Michael Jack-
son með tilþrifum. Tilefnið var það
að til stendur aö halda „stjömustæl-
ingakeppni" meðal íslendinga sem á
að fara fram helgina 27.-28. maí. Það
var Hollendingurinn Peter van Der
Meer sem stældi goðið og þykir
reyndar alveg ótrúlega líkur Jackson
í útliti og tilburðum.
Stjörhustælingakeppni hefur verið
í gangi víðs vegar um heim og er
oröin að hálfgerðu æði og fjöldi
manns, eins og Peter van Der Meer,
hefur atvinnu af því að troða upp í
gervi stórstjarna. Það verður fróðlegt
að sjá hvort æðið heltekur íslendinga
á sama hátt.
Fjöldi manns mætti til að fylgjast með tilþrifum Hollendingsins.