Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Side 20
20
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988.
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988.
íþróttir
Aschaffenburg víll fá landsliðsfýririiðann
AUi efstur á
óskalistanum
Sjónvarpsstöö Radio Luxemburg
skýröi frá því í gærdag aö Atli Eð-
valdsson, landsliðsfyrirliði íslands,
væri efstur á .óskalista hjá Viktoria
Aschaffenburg, sem er yfirburöalið í
3. deildinni vestur-þýsku og er taliö
eiga víst sæti í 2. deild næsta vetur.
Félagiö hefur þegar gert þriggja ára
samning við Rudi Bommer, sem til
þessa hefur leikið við hliö Atla hjá
Uerdingen og áður Dusseldorf, og
ætlar sér greinilega stóra hluti i ná-
inni framtiö.
„Þeir höfðu samband við mig og
ég er búinn að fara og líta á aðstæður
hjá þeim. Þetta er allt mjög jákvætt,
en ég ætla samt sem áður að halda
öllum mínum möguleikum opnum
frameftir sumri. Eins og er hugsa ég
fyrst og fremst um ísland og Val, og
ætla að leika þar til haustsins, hvað
sem á gengur," sagði Atli í samtali
við DV í-gær.
„Mér sýnist bjart fram undan hjá
mér, allavega las ég það í stjörnuspá
sem ég rakst á í blaði héma um síð-
ustu helgi. Þar stóð að ég væri á
réttri braut hvað atvinnuna snerti,
það væru vinnuskipti framundan og
þau væru til mikilla bóta!“ bætti
landsliðsfyrirliðinn við. -SB/VS
Bolvíkingar óhressir:
Vilja fá sæti
ÍBÍ í 3. deiidinni
Knattspyma:
AC Milano
sigraði
Man. litd
AC Milano, hinn nýkrýndi
meistari Ítalíu, lagði Manchester
United að velli í vináttuleik á Old
Trafford I Manchester í gær-
kvöldi, 3-2. ítalimir skomöu
þrisvar á fyrstu 19 mínútum síð-
ari hálfleiks, Claudio Borghi tvö
og Pietro Virdis eitt, en undir lok-
in náðu Jesper Olsen og Brian
McClair aö koma Man. Utd á blaö.
• Austurríkismenn gerðu sér
lítið fyrir í gærkvöldi og gersigr-
uðu Ungverja, 4-0, í vináttulands-
leik sem háður var í Búdapest.
Austurríki leikur sem kunnugt
er í sama riðli og ísland í næstu
heimsmeistarakeppni. Rupert
Marko skoraði þijú mörk og
Ralph Hasenhuettl eitt.
-VS
Knattspyrnumenn í Bolungarvik
eru mjög óhressir með þá ákvörðun
mótanefndar KSÍ að láta aðeins níu
lið leika í SV-riðli 3. deildarinnar í
sumar, eftir að ísfirðingar drógu lið
sitt úr keppni. Knattspyrnuráð
UMFB hefur sent frá sér eftirfarandi
tilkynningu:
„Af gefnu tilefni vilja Bolvíkingar
mótmæla harðlega þeim vinnu-
brögðum KSÍ að ætla aðeins níu lið-
urn þátttökú í suövesturriðh 3. defid-
ar, eftir furðulega úrsögn ÍBÍ úr ís-
landsmótinu, aðeins hálfum mánuði
fynr fyrsta leik.
Ákveðið var fyrir tveimur árum að
framvegis skyldu vera tíu lið í þess-
um riðli og á síðasta ári var einnig
ákveðið að átta lið skyldu vera í
norðausturriðlinum. í því tiifelli var
ákveðið á síöasta þingi KSÍ að HSÞ-c
skyldi vera áttunda liðið í norðaust-
urriðhnum. Það varð í þriðja sæti í
úrshtakeppni 4. deildar á norðaust-
ursvæðinu.
Eftir að ÍBÍ hætti í suðvesturriðlin-
um töldum við Bolvíkingar að við
kæmumst inn sem tíunda hð í riölin-
um, þar eð við urðum í þriðja sæti í
úrshtakeppni 4. deildar á suðvestur-
svæðinu í fyrra, eftir mikla baráttu
við Gróttu. Og nú spyrjum við: Gild-
ir ekki sama reglan hvort liðið er í
suðvesturriðli eöa norðausturriöli?
Hver er ástæðan fyrir því að ekki er
bætf tíunda liðinu i riðilinn, enda
þótt sá fjöldi væri samþykktur á sín-
um tíma? Við erum ansi hræddir um
að htil keppni geti orðið á botni deild-
arinnar þegar aðeins eitt hð fellur,
eins og var fyrir nokkrum árum.
Við Bolvíkingar væntum svara frá
mótanefnd KSI hið fyrsta.“
Brons á móti smáþjóðanna
- Landsliðið í blaki karia náði góðum árangri í Lúxemborg
Karlalandsliðið í blaki hélt til V-
Þýskalands 8. maí og var þar í æf-
ingabúðum í fjóra daga. Þar var með-
al annars leikið við B-landslið V-
Þýskalands og fór leikurinn 3-0:15-5,
15-5 og 15-10 fyrir Þjóðverja. Leikur-
inn var Þjóðverjum léttur en kom sér
vel fyrir íslenska liðið því að hann
hjálpaði mjög við að ná niður land-
sleikjaskrekknum hjá nýhðum
landshðsins. Á miðvikudag var síöan
haldið til Lúxemborgar á Evrópumót
smáþjóða 1988.
Þátttakendur í Evrópumóti smá-
þjóða voru auk íslands Lúxemborg,
Gíbraltar, Kýpur, Mónakó, San Mar-
ínó, Færeyjar, Liechtenstein og
Malta. Keppt var í tveimur riölum. í
riðh með okkur voru Kýpur, Liech-
tenstein, Mónakó og Malta.
Á fimmtudagsmorgni var keppt við
hö Möltu. ísland vann leikinn, 3-2.
Fyrsta hrinan var mjög létt og fór
15-4, í þeirri næstu tóku Möltubúar
kipp og knúðu fram 17-15 sigur í
spennandi hrinu. Þriðja hrinan var
einnig þeirra en í þeirri ijórðu sögðu
íslensku strákarnir stopp og unnu
hana 15-9 og þá fimmtu og síðustu
15-13 og leikinn þar með.
Um kvöldið var síðan leikið gegn
-Liechtenstein. Sá leikur var stuttur
og léttur og honum lyktaði 3-0:15-7,
13-15 og 4-15; með sigri íslands. Lið
Liechtenstein átti aldrei möguleika
gegn okkar mönnum.
A laugardagsmorgni mættu ís-
lensku strákarnir sterku hði Kýpur.
Sá leikur var nokkuð jafn og átti ís-
land góða möguleika á að vinna
hrinu þar. En Kýpurbúar voru ekki
á þeim buxunum og gerðu út um leik-
inn í þremur hrinum, 3-0: 16-14,
15-10 og 15-7.
Seinna um daginn var leikið gegn
liði Mónakó. íslendingar voru ekkert
að tvínóna við hlutina hér og unnu
leikinn örugglega, 3-0:15-7,15-11 og
15-8 og unnu sér þar með rétt th
þess að leika til úrslita um þriðja
sætið í mótinu. Sá leikur fór fram'
daginn eftir. Andstæðingarnir voru
lið San Marino. Leikurinn byrjaði
ágætlega og þó nokkuö jafnt hefði
verið höfðu íslendingarnir alltaf
frumkvæðiö og unnu tvær fyrstu
hrinurnar, 15-13 og 15-12. í þriðju
og fjórðu hrinu hefur sigurvissan lik-
lega sljóvgað einbeitni okkar manna,
San Marino-liöið gekk á lagið og
vann þær, 16-14 og 15-7. Úrslitahrinu
þurfti til og í hana mættu íslensku
leikmennirnir ákveðnir í að berjast.
Hrinan var jöfn og spennandi en ís-
land var alltaf yfir og vann hana,
15-12, og tryggði sér þar þriðja sætið
og bronsið.
Jafnbestir íslensku leikmannanna
voru nýliðamir Einar Þór Ásgeirs-
son og Vignir Hlöðversson en þeir
voru báðir mjög sterkir í sókninni
af kantinum.
Lið Lúxemborgar og Kýpur léku til
úrslita um gullið og vann Lúxemborg
þann leik nokkuð örugglega, 3-1.
DV-lið 1. umferðar
Þorvaldur Jónsson
Leiftri
Jóhann Magnússon Viðar Þorkelsson Sigurður Björgvinsson
ÍBK Fram ÍBK
Theodór Jóhannsson Rúnar Kristinsson Valur Valsson Sigurður M. Harðarson
Völsungi KR Vai ÍA
Björn Rafnsson Óli Þór Magnússon Trausti Omarsson
KR ÍBK Vikíngi
Frétta-
stúfar
ÍR - Selfoss í kvöld
Keppnin í'2. deildinni í knatt-
spyrnu hefst í kvöld þegar ÍR-
ingar taka á móti Selfyssingum
á gervigrasinu í Laugardal.
Leikurinn hefst kl. 20.
Fræðsla um næringu
Hehbrigðis- og rannsóknaráð
ÍSÍ gengst fyrir fundi til kynn-
ingar á bæklingi sem nýlega er
kominn út á þess vegum og
nefnist Næring íþróttafólks.
JómGíslason næringarfræðing-
ur mun flytja erindi á fundinum
og síðan verða fyrirspurnir og
umræður. Fundurinn verður
haldinn í íþróttamiðstöð ÍSÍ
annað kvöld, fimmtudaginn 19.
maí, kl. 20 til 21.30. Ráðið hvetur
þjálfara og aðra þá innan
íþróttahreyfmgarinnar er hug
hafa á að kynna sér málið tíl
að koma á fundinn.
Prytz til Ítalíu?
Sig. Bjömsson, DV, V-Þýska landi:
Robert Prytz, sænski knatt-
spyrnumaðurinn hjá Bayer
Uerdingen, hefur fengið tUboð
frá tveimur ítölskum félögum,
Como og Verona. Þau eru reiöu-
búin til að greiða 2,4 miUjónir
marka fyrir kappann.
Þá er búist við að Andreas
Brehme hjá Bayern Munchen
fylgi félaga sínum Lothari Matt-
háus til Inter Milano. Félögin
hafa komist að samkomulagi en
fyrst þarf Inter að losa sig við
Belgann Enzo Scifo sem hefur
valdiö vonbrigöum á nýliðnu
keppnistímabili.
Pfaff til Parísar
Jean-Marie Pfaff, belgíski
landsUðsmarkvörðurinn, er að
yfirgefa Bayern Munchen og
leikur væntanlega með Matra
Racing frá París næsta vetur.
Þar fær hann hærri laun en
Þjóöverjarnir borga honum og
sagði í íþróttaþætti þýska sjón-
varpsins um síðustu helgi: „Á
eftir rigningunni kemur sól-
skin!“
Rush skoraði tvö
Ian Rush skoraði tvö mörk þeg-
ar ensku meistararnir Liverpo-
ol sigruðu StjörnuUð Englands,
3-2, í æfingaleik. Rush, sem
leikur með Juventus á Ítalíu,
hefur ekki skorað mikið fyrir
ítalska liðið en um leið og hann
komst á ný í rauða búninginn
skoraði kappinn. Þriðja mark
Liverpool skoraði Ronnie Whel-
an en mörk enska stjörnuUðs-
ins skoruðu þeir Chris Wadle
og Mick Harford.
„Korkurinn“ fékk ágóða-
leik
Nýkrýndir enskir bikarmeist-
arar í knattspyrnu, Wimbledon,
léku gegn stjörnuliði Englands
á dögunum og var um ágóðaleik
að ræða fyrir Alan Cork, leik-
mann Wimbledon. Jafntefli
varð 2-2.
Archibald með?
Síðari leikimir um sæti í hinum
ýmsu deildum í ensku knatt-
spyrnunni fara fram í kvöld.
Blackburn Rovers tekur þá á
móti Chelsea sem vann fyrri
leikinn á útivelU, 0-2. Líkur eru
á því að Steve Archibald leiki
með Blackbum í kvöld og þá
jafnvel í byrjunarliðinu. Þá er
Uklegt að Ossie Ardiles leiki
einnig með liðinu gegn Chelsea.
í hinni viðureigninni, þar sem
barist er um 1. defldar sæti, eig-
ast við Bradford City og Midd-
lesborough. Bradford sigraði í
fyrri leiknum, 2-1, og verður
því hart barist í kvöld á heima-
vefli Middlesborough. Uppselt
er á leikinn, 28 þúsund áhorf-
endur.
21
Iþróttir
Hvalreki a fjörur Fram i knattspymunm:
Guðmundur
Torvason
Cmmím
rrdmard
verður löglegur með Fram 16. eða 21. júní
„Ég hef tekið þá ákvörðun að leika með Fram 1 sum-
ar. Það verður óneitanlega gaman að hitta gömlu fé-
lagana á nýjan leik og stefnan verður tekin á topp-
inn. Fram hefur alla burði til að gera stóra hluti 1
sumar,“ sagði Guðmundur Torfason 1 samtali við DV
í nótt en Guðmundur hyggst halda heim til íslands
og leika með Fram í sumar eftir að hafa leikið 1 Belg-
íu undanfarin tvö ár sem atvinnuknattspyrnumaður.
Winterslag, liö Guömundar, á að leika mjög
miklilvægan leik á laugardaginn gegn Loker-
en í belgísku 1. deildar keppninni en með sigri
í þeim leikur heldur Winterslag sæti sínu í
1. deild. Óvíst er hvort Guðmundur getur leik-
ið þann leik vegna meiösla en ef hann leikur
ekki verður hann löglegur með Fram 16. júní
en sama dag leikur Fram gegn KR í fimmtu
umferð íslandsmótsins.
Gífurlegur styrkur fyrir Fram
„Ég gaf forráðamönnum Winterslag fyrir
nokkru svar um aö ég myndi ekki leika áfram
með félaginu að loknu þessu keppnistímabili.
Ef liðiö fellur í 2. deild kæmi alls ekki til
greina af minni hálfu að leika í þeirri deild.
Síðan hafa önnur lið komið inn í myndina en
ég skoða þau mál þegar að þeim kemur en
það verður ekki fyrr en i haust,“ sagði Guð-
mundur Torfason ennfremur.
Ekki þarf að fara mörgum orðum um hvað
það er gífurlegur styrkur fyrir Fram aö end-
urheimta Guðmund til félagsins. Fyrir tæpum
tveimur árum skrifaöi Guömundur undir
samning við belgiska liðið Beveren og lék með
liðinu eitt leiktímabil. En síðan lá leiðin tfl
Winterslag og meö því liði hefur Guðmundur
leikið í vetur. Guðmundur lék síðast meö
Fram þegar liðið varö íslandsmeistari 1986
og varð markakóngur mótsins með 19 mörk.
Guömundur kemur heim um helgina og leik-
ur meö íslenska ólympíulandsliðinu gegn
Portúgölum og ítölum sem á dagskrá eru 24.
og 29. maí.
Ómar Torfason löglegur í júni
Ómar Torfason er eins og fram hefur komið
í DV einnig á leið í Fram eftir að hafa leikiö
undanfarin ár í Sviss með Luzern og Olten.
Ómar verður löglegur meö Fram seinni hluta
júnímánaöar. -JKS/SK
• Guömundur Torfa-
son skoraði 19 mörk
siðast þegar hann lék
með Fram i íslands-
mótinu 1986. Þá jafn-
aði hann markamet
Péturs Péturssonar.
Hvað skorar hann
mörg mörk fyrir Fram
i sumar?
DV-mynd Brynjar
Gauti
• Hannes Leifsson, sem áður lék með Stjörnunni og Fram, hefur nú ákveðið að leika
með og þjálfa Ármenninga næsta keppnistímabil. Glímufélagiö Ármann verður 100
ára í ár. DV-mynd Brynjar Gauti
\
Hannes þjálfar og
leikur með Ármanni
- Liðið stefnir á 1. deildar sæli
„Ég hef ákveðið að þjálfa Ármenn-
inga næsta vetur og einnig mun ég
leika með liðinu. Þetta er spennandi
verkefni og ég hlakka mikið tfl,“
sagði Hannes Leifsson handknatt-
leiksmaöur í samtali við DV í gær
en Hannes lék með Fram í vetur og
stóð sig mjög vel.
Mikið átak er framundan hjá hand-
boltamönnum í Ármanni. Lið félags-
ins hefur leikið í lægri defldunum
undanfarin ár utan keppnistímabilið
1986-1987 er liðið lék í 1. defld og nú
er meiningin aö taka stefnuna á 1.
deild á ný og ekki seinna en eftir tvö
ár. Þessi mikli hugur í Ármenning-
um stafar ekki síst af því að félagiö
á 100 ára afmæli á þessu ári.
„Mig langaöi aö breyta tfl og það
hefur blundað í mér í nokkum tíma
að fara út í svona hluti og þaö verður
án efa gaman að taka þátt í þeirri
uppbyggingu sem framundan er hjá
Armenningum," sagöi Hannes Leifs-
son en hann hefur áður þjálfað með
góðum árangri. Hann þjálfaði og lék
með ÍBV á árunum 1976-1979 og kom
þá Eyjamönnum upp úr 3. deild í 2.
sæti 2. deildar sem heíði nægt til l.
defldar sætis með núverandi fyrir-
komulagi.
Þess má geta að Guðmundur
Óskarsson, sem lék lengi með Stjöm-
unni, hefur ákveðið aö ganga tfl liðs
við Ármann og er jafnvel von á fleiri
góðum mönnum fyrir næsta keppn-
istímabfl. -SK
Valur-Lerffcur:
Leik Vals og Leifturs í 1. deildar
keppninni í knattspymu, sem fram
átti. að fara annað kvöld, hefur ver-
ið frestað. Völlur Valsara á Hlíða-
renda verður ekki tilbúinn fyrr en
um mánaðamót og gervigrasiö var
upptekið vegna leiks í 4. defld.
Senntiegt er að leikurinn fari fram
fimmtudaginn 16. júni.
-VS