Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Qupperneq 11
or oeor ímtTt k <TTmíirrar.rTTTA t LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988. melódískari verk en áöur. í íslensku verkunum tveimur er til dæmis hvergi krafist nútíma „flaututækni". Annars vegar spila ég músík sem fer út fyrir það sem flautan er gerð fyrir, en hins vegar leik ég músík sem fellur aö hljóðfærinu. íslensku verk- in, sem ég spila á hljómleikunum, falla að flautunni en hin erlendu bijóta á margan hátt ramma hennar. Gömlu flautusmiðirnir myndu sjálf- sagt snúa sér í gröfmni ef þeir hefðu vitneskju um hvernig leikið er á hljóðfærið í dag. Flauturnar gefa enda nokkuð eftir við það eitt að leika á þær, verkin krefjast svo mikils af þeim.“ Galdur lifandi tónlistar „Ef ég kynni galdurinn sem felst í lifandi flutningi tónhstar þá væru öll mál leyst,“ sagöi Kolbeinn. „Þegar maður gengur inn í tón- leikasalinn verður maður numinn af sérstöku andrúmslofti, vissri Listahátíð Jón örn Guðbjartsson spennu. Galdurinn er kannski fólg- inn í að nýta sér þá stemningu - straumana sem eru í loftinu - láta þá hjálpa sér viö að leika verkin. Ég neita því samt ekki að sviðsskrekk- urinn, sem er hluti af þessari sér- stæðu spennu, hefur í nokkrum til- feUum staðið í vegi fyrir því aö ég næði að túlka verkin á þann hátt sem ég hef óskaö mér.“ Tónlistin endurspeglar þá tíma sem við lifum á „Tónlistin endurspeglar þá tíma sem viö lifum á eins og öll list. Við lifum á óskiljanlegum tímum og því verkar nútímatónlistin óskiljanleg á sama hátt og veruleikinn,“ segir Kol- beinn, aðspurður um gildi nútíma- verkanna í tónlistarflórunni. „Tón- hstin, sem ég spha á þessum tónleik- um nú, hefur öll merkingu og túlkar á óbeinan hátt veruleika nútíma- mannsins. Á sínum tíma hehti ég mér út í tónhstina því ég var þá orð- inn leiður á máh bókmenntanna. Ég taldi þá að tónhstin væri laus við ákveðna meiningu sem hægt væri að flytja yfir í orð en nú er ég kóminn á öndverða skoðun. Verk Hubers, Andblær frá villu- tímum, boðar til aö mynda aftur- hvarf til náttúrunnar. í því hafnar hann skynsemisdýrkun og viöhorf hans eru á vissan hátt rómantísk, en með nýstárlegum hætti. Formið er losaralegt og verkið er bölsýnt, raun- ar líkast kveinstöfum. Tónhst Hu- bers er andóf við lífi nútímamanns- ins og ég tel mig á svipaðri línu og hann. Tónleikar mínir nú eru andóf gegn veruleika nútímamannsins með líku sniði og þetta tónverk Hu- bers.“ Byrja og enda á verki Femeyhough „Ég byria og enda tónleikana á verki Ferneyhough, Draumsöng Kasöndru, sem er gífurlega flókið og sækir tith sinn í gríska goðafræði eins og raunar fjölmörg flautuverk. í því lýsir Bretinn sundurtættiun heimi nútímans," sagöi Kolbeinn. „Síðan fer ég yfir í verk sem spyrna við fótum með þeim hætti að þau eru nálæg þögninni, eru af öðrum heimi en okkar, en vekja fólk th umhugs- unar um þann veruleika sem þaö býr við. Tónhstin, sem ég mun leika, ger- ir kröfur th áheyrenda, hún er róleg og oft með löngum þögnum. Þannig er hún mótvægi gegn hávaðamenn- ingunni, segir okkur að hafa stimd- um svolítið hljótt. Ég á samt ekki von á aö nokkur maður geti komiö á tón- leikana með það fyrir augum aö setj- ast niður og slaka beinlínis á þótt yfirbragð tónlistarinnar sé rólegt. Áheyrendmr þurfa að hafa fyrir hlutunum. Ég held að skilningur sé gnmdvöhur fyrir því aö tónhstin, sem ég mun spha, hafi áhrif en ekki skynjunin einsömul." JÖG 11 SUSANNE 3ja og 2ja sæta sófar með sætis- og bakáklæði sem hægt er að renna af og nota báðum megin, önnur hliðin er grá en hinn blá- röndótt. SÉRTILBOÐ: Við kaup á: Einum 3ja sæta sófa Einum 2ja sæta sófa Einu hvítu sófaborði Einu hvítu hornborði Samtals kr. 49.600 - 25% afsláttur 12.400,- Verð aðeins 37.200,- SÉRTILBOÐ Sófasett, 3ja sæta sófi og 2 stólar. Hvítlökkuð stálgrind, vínrautt bómullaráklæði sem hægt er að taka af og hreinsa KR. 26.600 FURUSOFASETT HU M 4 ft jf •tnú-iúitílii:;:;- H j ÍjÍtiP íp •••'■ ifeííitfíl . . *' \' í+f-f-þhi • jfíf/' f'p, 'llitciljílilííljttl i'-TU^frrii Tj4ÍHt-f hjrfri4i. ' . ,s H-iTHfítÍttí í |Hi- msm& iniii Iffiillij. íilfeiijj -V. N SALLY 3-1-1, 3-2-1 og sófaborð fyrirliggjandi með nokkrum teg. áklæða Verð frá kr. 36.000 T-nsni) SUÐURLANDSBRAUT 22 S. 36011

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.