Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
13
Súld með sína fyrstu plötu
Djassstormur
Islenskur djass er fyrirbæri í tón-
listarlífi landsmanna sem viö fyrstu
sýn virðist fara heldur hljótt. Ekki
vegna þess að framtakssemi skorti
hjá þeim sem þessa tónlist stunda,
hvað tónleikahald varðar, heldur
fyrst og fremst sökum þess hve lítið
hefur verið gefið út af íslenskum
djassi á hljómplötum. Hljómplötuút-
gáfa er j ú bráðnauðsynleg fy rir tón-
listina eigi hún að ná til annarra en
þeirra sem stunda tónleika að ráði.
Það er því ætíð fagnaðarefni þegar
fréttir berast af útgáfu djassplötu hér
á landi. Slíkt átti sér staö fyrir ör-
fáum dögum þegar fyrsta breiðskífa
djass-sveitarinnar Súldar leit dags-
ins ljós. Súld hefur nú starfað í tvö
ár og er almennt talin ein af fram-
bærilegustu djass-sveitum landsins
um þessar mundir. Á þeim tveim
árum, sem hún hefur starfað, hafa
orðið nokkrar breytingar á mann-
skap en í dag skipa Súld þeir Stein-
grímur Guðmundsson á trommum,
Stefán Ingólfsson á bassa, Lárus _
Grímsson á hljómborð og flautu, Pól-
verjinn Szymon Kuran á fiðlu og svo
HoÚendingurinn Maarten van der
Valk sem leikur á víbrafón og slag-
verk. Bakgrunnur þeirra flestra í
tónlistinni er mikill, ýmist hafa þeir
fengist við klassíska tónlist, elektr-
óníska tónlist eða, að sjálfsögðu,
djass í meira en fimmtán ár.
Auk plötuútgáfu nú hefur hljóm-
sveitin spilað víða undanfarið ár og
er þar helst að nefna þátttöku hennar
á tónleikahátíð í Kanada síðastliðið
sumar. Ég hitti Steingrím Guö-
mundsson trommuleikara í æfinga-
húsnæði hljómsveitarinnar á dögun-
um og ræddi stuttlega við hann, m.a.
um þessa tónleika í Kanada:
„Seinasta sumar fórum viö til
Kanada og spiluðum í Montreal á
' mjög stórum útitónleikum sem eru
haldnir á hverju ári. Um 10-15 þús-
und manns voru þarna viðstaddir og
Aar þetta það skipti sem viö höfum
upplifað aö fólk virkilega kunni að
meta tónlistina sem viö spilum. Viö
fórum svo aftur til Kanada 20. júní
og ferðumst til fjögurra borga, til
Calgary, Toronto, Montreal og
Winnipeg en þar spilum við m.a. fyr-
ir íslendinga. Síðar langar okkur
einnig til að fara j afn vel til Skandin-
Þorsteinn Högni Gunnarsson
útgáfan hefur tafist mikið. Platan öll
var tekin upp á hundrað tímum sem
er frekar stuttur tími. Við hljóð-
blönduðum svo yfir á D AT-spólu,
sem er nýtt kerfi, þannig að hljóm-
burðurinn ætti að vera sæmilegur
ef allt hefur tekist vel í skurði. Þetta
er allt frumsamin tónlist sem verður
svolítiö öðruvísi á plötunni en þegar
við spilum á tónleikum vegna þess
að aðhaldið er meira og menn hafa
ekki eins mikið frelsi. Við ákváðum
að hafa sólóin frekar stutt til þess að
lögin yrðu ekki langdregin. Á sum-
um plötum, sem maður heyrir, er
kannski eitt lag sem nær yfir heila
hhð með tíu mínútna sóló, og slíkt
fellur kannski ekki í kramið hjá
mörgum. í heild veröur tónlistin fág-
aðri í stúdíói en á tónleikum þar sem
hver fær eins löng sóló og hann vill.
Okkur til aðstoðar á plötunni er svo
Friörik Karlsson gítarleikari en hann
kemur við sögu i tveimur lögum.“
Er mikil samvinna á milli hljóm-
sveitarmanna þegar tónlistin er sam-
in?
„Upprunalega vorum það mest við
Szymon sem sömdum en síðan sem-
ur Stefán Ingólfsson mikið. Á plöt-
unni eru lög eftir okkur alla þrjá.
En raunar erum við með tónlist eftir
alla meðlimi hljómsveitarinnar því
menn koma með lag á æfingu en síð-
an er það útsett í sameiningu."
Hvað finnst þér um umfiöllun um
djass á íslandi? Er hún of lítil?
„Útvarpsstöðvar spila voðalega lít-
inn djass og sá djass sem er þá í út-
varpi er alltaf ákveðin tegund. Þaö
vantar allra handa djass, þaö sem er
að gerast í dag. New Age tónlist er
t.d. óþekkt fyrirbæri hérlendis. í
blööum finnst mér almennt tónlist
fá of htla umfiöllun. Maður sér t.d.
að íþróttir eru nánast hálft blaðið en
plötudómar eru ekki til.“
Þar með var tíminn þotinn frá okk-
ur því Steingrímur þurfti að halda
áfram með æfingar og undirbúning
fyrir væntanlega tónleikaferð til
Kanada. Ég hélt hins vegar heim á
leið til að verða mér úti um nýju plöt-
una og kynna mér það sem Súld er
að leggja af mörkum til djasstónlist-
arinnar á íslandi. Gæti hugsað mér
margt verra að gera, eiha kvöldstund
eða svo...
avíu og Evrópu því viö teljum okkur
hafa tónlist sem er frambærileg á
erlendri grund eða hvar sem er, en
það er ekki auðvelt að starfa ein-
göngu hér.“
Hvers konar djass er Súld að flytja?
Eru einhver sérkenni í tónlist ykkar?
„Það eru náttúrlega ýmis áhrif sem
eru aö koma fram og maður hefur
nú séð í greinum um okkur að ýmsir
hafa kallaö hljómsveitina bræðings-
eða „fusion“-hljómsveit. En það eru
ýmis önnur áhrif eins og „New Age“
tónhst sem er blanda af þjóðlögum,
klassík, djass, poppi og austrænni
tónhst. Það má kannski segja að við
höfum smákeim af því. Annars er
það stefna hjá okkur að hafa sem
mest úr öhum stefnum. Þannig höf-
um við mikið pláss fyrir sóló og fyrir
hverthljóðfæri."
Nú eruð þiö aö gefa út ykkar fyrstu
breiðskífu. Geturðu sagt okkur eitt-
hvaðumhana?
„Platan heitir Bukoliki, sem er
nafn úr pólskum þjóðsögum, og er
gefin út í samvinnu við Grammið.
Við tókum plötuna upp í janúar en
UTBOÐ
Klæðingar á Suðurlandi
1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i ofan-
greint verk.
Lengd vegarkafla 25 km, alls 1 50 þús. fermetrar.
Verki skal lokið 31. ágúst 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 6. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 13. júní 1988.
Vegamálastjóri
OPIÐ UM HELGINA
laugardag 10-16 og sunnudag 13-16
Vinsælu Dallastjöldin eru komin.
4-6 manna, 3-5 manna Ægistjöld og himnar.
4 manna hollensk tjöld m/himni, kr. 9.003.
STEYPUMÓTAEININGAR
Thermomurerán efa einfald-
asta steypumótakerfi sem nú
fyrirfinnst. Þetta eru steypumót
sem hægt er að raða upp og
steypa í samdægurs. Fyrir utan
að spara bæði fé, fyrirhöfn og
stytta byggingartíma er þó einn
mikilvægur þáttur ónefndur
sem er e.t.v. sá mikilvægasti
fyrir íslenskar aðstæður, en það
er í sambandi við steypu-
skemmdir.
THERMOHÚS-BYGGINGARKERFIÐ
SPARAR TlMA OG PENINGA
Thermomurveggur er byggður upp þannig: 5 cm einangrun að utan, 15 cm
steyptur veggur með járnabindingu, síðan er 5 cm einangrun að innan.
K-gildi veggjarer
K = 0,24 __________
Tæknilegar upplýsingar veitir
IÐNVERK hf. byggingarþjónusta
Hátúni 6A - 105 Reykjavík - PO.Box 5266
S 91-25945 og 91-25930