Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Síða 19
19
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
Smálaxa-
sumar
Netaveiðin í Hvitá hefur
gengið vel og margir laxar end-
að ævina í netum Hvítárbænda.
Eitt er það sem hefur vakið at-
hygli í upphafi og það er tölu-
vert af smáum laxi sem hefur
lent í netunum. Smái laxinn
hefur yfirleitt ekM komið svona
snemma en núna er hann sem
sagt kominn. í fyrstu lögninni
var 5 punda fiskur og varð þá
einhvetjum aö orði aö þetta
boðaöi nú ekki gott fyrir sumar-
ið. En við skulum sjá til hvað
gerist.
Boltar á
sveimi en
taka illa
Kleifarvatnið kemur ennþá
á óvart og stórurriðinn er til í
vatninu, ekki ber á öðm. En
eitt hefur veiðimönnum þótt
skrítið og það er hvað silungur-
inn, bæði þessi stóri og eins hin-
ir sem eru nokkm minni, tekur
Ula agnið hjá veiðimönnum.
Piskurinn virðist hafa nóg æti
í vatninu og áhugi hans á flug-
um, möðkum og spúnum veiði-
manna er frekar líti.11 ennþá.
Netin virðast vera besta vopnið
á silunginn í vatninu og í netin
fá þeir boltableikjur og stóra
urriða. Þó er auðvitað einn og
einn veiðimaður sem tekst að
plata þessa rígvænu. Það þarf
kanns'ki eitthvert leynivopn á
silunga í Kleifarvatni?
Vaanlr laxar gleðja veíðímenn
og þesslr, sem Júlíus Þ. Jóns-
son heldur á, komu úr netunum
i Hvitá fyrir skömmu. Þeir voru
12 pund og liklega ættaðir úr
Þverá.
DV-mynd G.Bender
Margir
vænir á
sveimi í ánum
Veiðiámar em opnaðar ein
af annarri þessa dagana og
veiöimenn em farnir að fá
hann. Nokkrar veiöiár verða
opnaöar 10. júni og ein af þeim
er Laxá í Kjós. Þar hafa sést
stórir laxar og vænir. Einn af
þeim veiðimönnum, sem kíktu
upp eftir fyrir skömmu, var
Þórarinn Sigþórsson en Þórar-
inn mun opna ána ásamt fleiri
veiöimönnum. Þórarinn sá
marga laxa og væna víða í ánni.
Elliöaárnar verða opnaöar
þennan dag líka og áhugamenn
hafa séð þar laxa víða, svo Dav-
íð ætti að fá hann á opnunar-
daginn - þó það verði kannski-
ekki fimm mlnútur yfir...
-G.Bender
„Gaman að reyna eitthvað
nýtt fyrir veiðimenn"
- segir Magnús Jónasson, innflytandi Orvis
„Það er gaman að reyna eitthvað nýtt fyrir ust nokkrir silungar, skemmtileg nýbreytni.
veiðmenn og þess vegna höfum við flutt inn þessa Á stangarsmíðinni geta veiðimenn sparað sér
flotbáta sem veiðimönnum hefur hkað mjög vel helming með því að smíða sér stöng sjálfir og það
og svo hefur stangarsmíðin fallið í góðan jarð- er gaman aö veiöa fisk á stöng sem maður hefur
veg,“ sagði Magnús Jónasson, innflytjandi Orvis sjálfur smíðað, svipað og hnýta sínar flugur sjálf-
á Islandi, sem hefur komið með ýmislegt nýtt í ur. Veiðimenn geta sparað um 9 þúsund með því
stangveiðina. „Við fórum til Þingvalla eitt kvöld- að smíða stöngina sjálfir,“ sagði Magnús Orvis.
ið og reyndum flotbátana. Það gekk vel og feng- -G.Bender
Engilbert Jensen ibygginn yfir stangarsmíðinni og árangurinn lét ekki á sér standa.
DV-mynd G.Bender
Örn Hjálmarsson við Þingvallavatn fyrir nokkrum
dögum að leggja i hann með flotbáta.
DV-mynd Magnús
Ertu að flytja?
Mikilvægt er að tilkynna flutning
tímanlega. Flutningsálestur á réttum
tíma tryggir að þú borgir ekki raf-
magnið fyrir þann sem flytur inn!
Ef þú býrð á orkuveitusvæði Raf-
magnsveitu Reykjavíkur afgreiðir þú
þetta með einu símtali við okkur.
Síminn er 68-62-22.
Veiðivon
Gunnar Bender
RAFMAGNSVEITA
REYKIAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SIMI686222
ARGUS/SiA